Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 15
ERLENT
MÁLIÐ
MOGGANU
M Á MOR
GUNMÁLIÐ FY
LGIR MEÐ
ÚTDAUÐ T
ÓNLIST
Í TAKT VIÐ
TÍÐARAN
DANN;
FREYR Í P
OPPLAND
I
FELLIBYLURINN Nabi fór yfir
Suður-Japan í gær og olli víða
miklu tjóni. Varð hann rúmlega 20
mönnum að bana og meira en 50
slösuðust. Um 100.000 manns leit-
uðu hælis í sérstökum neyð-
arskýlum þegar veðurhamurinn
var mestur. Gífurleg úrkoma fylgdi
fellibylnum, um 1.300 mm frá því á
sunnudag, og olli hún víða flóðum
og skriðuföllum. Eins og venjulega
voru yfirvöld með mikinn viðbúnað
vegna veðursins og ekki dró það úr,
að Japanir eins og aðrir hafa fylgst
með afleiðingum fellibylsins Katr-
ínar í Bandaríkjunum og eft-
irleiknum þar.
Jústsjenko
í vanda
VÍKTOR Jústsjenko, forseti Úkr-
aínu, er í vanda eftir að fyrrverandi
aðstoðarmaður hans og kosn-
ingastjóri á síð-
asta ári, Ol-
exander
Zíntsjenko, sak-
aði nokkra valda-
mikla embætt-
ismenn um
spillingu. Segir
hann, að Petro
Poroshenko, yf-
irmaður þjóð-
aröryggisráðs-
ins, og Olexander Tretjakov, einn
helsti ráðgjafi Jústsjenkos, séu á
kafi í spillingu og noti sér aðstöð-
una miskunnarlaust. Eru þessi mál
helsta umræðu- og fréttaefnið í
Úkraínu og koma á slæmum tíma
fyrir forsetann. Hafa fyrri vinsæld-
ir hans að mestu gufað upp og
hvorki gengur né rekur með um-
bætur í efnahagslífinu. Segja
fréttaskýrendur, að vinni Jústsj-
enko og bandamenn hans ekki mik-
ilvægar kosningar eftir sjö mánuði,
sé eins líklegt, að tilraunir hans til
að færa Úkraínu í vesturátt verði
þar með farnar út um þúfur.
Írak verra
en Afganistan
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í fyrra-
dag, að Írak væri orðið að meiri
miðstöð fyrir hryðjuverkastarfsemi
en Afganistan hefði verið í tíð talíb-
anastjórnarinnar. Kom þetta fram í
viðtali Annans í BBC, breska rík-
isútvarpinu, en þar sagði hann, að
margir múslímar ættu í sál-
arkreppu. Þeim fyndust þeir ofsótt-
ir í sínu eigin samfélagi og nið-
urlægðir af vestrænum ríkjum.
Hefði Íraksstríðið ekki hjálpað til í
því efni.
„Við höfðum einu sinni áhyggjur
af Afganistan sem miðstöð alþjóð-
legrar hryðjuverkastarfsemi en ég
held, að Írak sé orðið verra,“ sagði
Annan.
Fjarar
undan Fazio
MARGT bendir til, að Antonio Faz-
io, seðlabankastjóri á Ítalíu, neyðist
til að segja af sér en svo virðist sem
helstu samherjar
hans hafi snúið
við honum bak-
inu. Fazio er sak-
aður um að hafa
beitt áhrifum
sínum til að boði
ítalsks banka í
tvo aðra ítalska
banka var tekið
en ekki boði frá
hollenskum
banka og spænskum. Með því hafi
hann gróflega brotið gegn hlutleys-
isskyldu sinni sem seðlabankastjóri.
Domenico Siniscalco, efnahags-
málaráðherra Ítalíu, sagði fyrir
fáum dögum, að Fazio ætti að vera
búinn að leggja fram lausnarbeiðni
og Silvio Berlusconi forsætisráð-
herra sagði í fyrradag, að þótt Sin-
iscalco hefði bara verið að tjá sína
skoðun, þá væri alveg hægt að taka
undir hana með honum.
Manntjón í
fellibyl í Japan
Víktor Jústsjenko
Antonio Fazio
Berlín. AFP. | Angela Merkel, sem þykir líkleg
til að verða næsti kanslari Þýskalands, var
sökuð um það í gær að hafa afritað ræðu
Ronalds heitins Reag-
ans Bandaríkjafor-
seta frá árinu 1980 og
notað hana sem loka-
orð sín í kappræðun-
um við Gerhard
Schröder kanslara
síðastliðinn sunnu-
dag.
Lokaorð Merkel
þykja sláandi lík
lokaorðum Reagans í
kappræðunum við Jimmy Carter í október
1980. Voru þau sögð hafa ráðið nokkru um
sigur Reagans í kosningunum og þýskir jafn-
aðarmenn segja, að Merkel hafi einfaldlega
afritað þau. Talsmenn kristilegra demókrata,
flokks Merkel, viðurkenndu í gær, að Merkel
kynni að hafa sótt eitthvað til Reagans.
Efnislega eins
Lokaorð Reagans í kappræðunum við
Carter voru þessi: „Næsta þriðjudag munu
kjósendur ganga að kjörborðinu og þá er
ekki óeðlilegt, að þeir spyrji sig þeirrar
spurningar hvort þeir hafi það betra nú en
fyrir fjórum árum. Hefur kaupmátturinn
aukist, hefur atvinnuleysið minnkað? Ef
svarið er já, er augljóst hvað þeir munu
kjósa. Ef svarið er nei, þá get ég bent þeim á
annan kost.“ Lokaorð Merkel voru þessi:
„Kæru kjósendur. Eftir tvær vikur verður
gengið að kjörborðinu og þá er ekki úr vegi
að velta nokkrum spurningum fyrir sér. Er
ástandið betra nú en fyrir sjö árum (þegar
Schröder komst til valda). Er hagvöxturinn
meiri? Hefur dregið úr atvinnuleysi? Hefur
skriffinnskan minnkað? Er betur séð fyrir
eftirlaunum og heilsugæslu? Ef svarið við
þessum spurningum er já, þá vitið þið líklega
hvað þið ætlið að kjósa. Ef svo er ekki, þá eig-
ið þið annan kost.“
Sögð hafa
afritað orð
Reagans
Angela Merkel
ALMENNAR þingkosningar verða í Afganistan 18.
þessa mánaðar og kosningabaráttan á fullu eftir því,
sem hún gerist í þessu stóra landi, sem byggt er
mörgum þjóðum. Myndin er frá höfuðborginni, Ka-
búl, og ekki ólíklegt, að á stóru myndinni á veggnum
sé verið að reka áróður fyrir skógrækt.
Á hana hafa síðan frambjóðendur hengt sín aug-
lýsingaspjöld.
AP
Kosningar í Afganistan
BRESKIR vísindamenn hafa nú
gert út af við lífseiga kenningu
um að karlar muni eftir nokkrar
milljónir ára deyja út vegna þess
að Y-litningurinn, sem ákvarðar
karlkyn, sé að tapa genum og
muni loks hverfa. Hafa menn
jafnvel rætt um að ef ekki fynd-
ist annað ráð yrði að frysta mikl-
ansa sýnir á hinn bóginn að Y
hefur ekki misst nein gen síðan
menn og simpansar greindust í
tvær ólíkar dýrategundir fyrir
um sex milljónum ára. Karlar
eru því varla í útrýmingarhættu.
En Y-litningur simpansa hefur
hins vegar tapað fimm genum á
þessu tímabili.
ar birgðir af sæði til að tryggja
að tegundin maður dæi ekki út.
Skýrt er frá nýjum rannsókn-
um á þessu sviði í vísindatímarit-
inu Nature í vikunni.
Aðeins 27 gen eru í Y-litningn-
um en um þúsund í X-litningnum
sem einkennir frumur kvenna.
Ný rannsókn á genamengi simp-
Karlar ekki að deyja út