Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Taktu það rólega í dag. Bjartsýnin er
enn til staðar en eftir því sem líður á
daginn fjölgar hindrunum. En þær eru
minniháttar. Slakaðu á.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið gæti komið miklu í verk í dag, en
líklega fer best á því að fresta mik-
ilvægum ákvörðunum þangað til á morg-
un. Samstarfsmaður þarf á aðstoð þinni
að halda.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn er enn í stuði til þess að leika
sér, álagið í vinnunni fer hins vegar vax-
andi. Búðu þig undir hefðbundnar skyld-
ur, maður sleppur aldrei undan þeim of
lengi í einu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú væri ekki vitlaust að sýsla aðeins á
heimilinu. Láttu innkaup alveg eiga sig
þar til seinnipartinn í dag og forðastu al-
veg mikilvægar ákvarðanir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ábyrgð á einhverju sem þú gleymdir
blasir skyndilega við þér á ný. Þú getur
ekki látið sem ekkert sé. Þetta er minni-
háttar, en óleyst. Brettu upp ermarnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu búðaferðir alveg eiga sig í dag
(nema þú sért uppiskroppa með mat) og
taktu engar ákvarðanir í peningamálum
fyrr en seinnipartinn. Annars sérðu eftir
því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn í dag verður að sumu leyti dá-
lítið klikkaður. Ekki reyna að koma of
miklu í verk fyrir hádegi. Vinnusemin
heltekur þig þegar á líður.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki efasemdir um sjálfan þig slá
þig út af laginu. Upp úr hádeginu eflist
þú allur og verður staðráðinn í því að ná
settu marki. Einhver reynir kannski að
spilla fyrir þér, en tekst það ekki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ræddu framtíðarplön þín við vinina. Það
er allt í lagi að leggja spilin á borðið.
Reyndar á bogmaðurinn mjög gott með
að vera hreinskilinn. Viðbrögð þeirra
koma þér á óvart.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki bjóðast til þess að gera eitthvað
eða taka að þér mikilvæg verkefni fyrri-
part dagsins. Frestaðu ákvörðunum þar
til á morgun. Segðu að þú þurfir um-
hugsunarfrest.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er mjög opinn fyrir fram-
andi hugmyndum í dag. Það er í góðu
lagi og reyndar fínt að vera umburð-
arlyndur og móttækilegur fyrir nýj-
ungum. Hins vegar skaltu halda að þér
höndum þar til á morgun.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er ekki rétti tíminn til þess að gera
fjárhagsáætlanir eða taka ákvarðanir
um skiptingu eigna. Hugsun þín er reik-
ul. Bíddu þar til á morgun.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbarn dagsins:
Árangurinn sem þú nærð kemur mikið
til vegna meðfæddrar seiglu. Þú lætur
hindranir ekki á þig fá. Þeir sem eiga af-
mæli í dag eru oft sérfræðingar á ein-
hverju tæknilegu sviði. Þú býrð yfir ákefð,
fjöri og endalausri orku.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Sudoku
© Puzzles by Pappocom
Lausn síðustu gátu
Þrautin felst í því
að fylla út í reit-
ina þannig að í
hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar
1-9. Það verður
að gerast þannig
að hver níu reita
lína bæði lárétt
og lóðrétt birti
einnig tölurnar
1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu
í röðinni.
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 stygg, 4 kasta,
7 þjóðhöfðingja, 8 gugg-
in, 9 greinir, 11 eyði-
mörk, 13 fugl, 14 end-
urtekið, 15 heit, 17 nóa,
20 ílát, 22 malda í móinn,
23 með öndina í háls-
inum, 24 dreg í efa, 25
digri.
Lóðrétt | 1 verða færri, 2
léreftið, 3 tanga, 4 lögur,
5 kuskið, 6 korns, 10
skjálfa, 12 tók, 13 heiður,
15 skyggnist til veðurs,
16 blauðan, 18 lærdóms-
setur, 19 náði í, 20 biðji
um, 21 tala.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 himinhvel, 8 féllu, 9 álfta, 10 Níl, 11 sárin, 13
mæður, 15 úrann, 18 staka, 21 enn, 22 starf, 23 útlit, 24
limaburði.
Lóðrétt: 2 illur, 3 Iðunn, 4 hjálm, 5 erfið, 6 ofns, 7 maur,
12 inn, 14 ætt, 15 únsa, 16 ataði, 17 nefna, 18 snúru, 19
aflið, 20 atti.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Bar 11 | Tilburi, Hellvar og Hanoi Jane
halda tónleika á Bar 11, kl. 22. Frítt inn.
Salurinn | Opnunartónleikar í Tíbrá 2005
– 2006 hefjast kl. 20. Meðal fjölmargra
flytjenda eru Ólafur Kjartan Sigurðarson,
bariton, Guðrún Birgisdóttir, flauta, Mart-
ial Nardeau, flauta, Jóhann Nardeau,
trompet, Peter Máté, píanó, Skóla-
hljómsveit Kópavogs, stjórnandi Össur
Geirsson, og loks Skólakór Kársness und-
ir stjórn Þórunnar Björnsdóttur ásamt
kærkomnum gestum úr höfuðborginni,
Jazzkvartett Reykjavíkur.
Listasafn Íslands | Margaret Leng Tan pí-
anóleikari flytur tónlist eftir John Cage.
Kl. 20.
Myndlist
Café Karólína | Arnar Tryggvason. Húsin
í bænum. Til. 30. september.
Gallerí BOX | Darri Lorenzen. Stað sett.
Hljóðverk, ljósmyndir og teikning. Til 17.
sept.
Gallerí Sævars Karls | Sólveig Hólm-
arsdóttir – Hamskipti til 8. sept.
Grafíksafn Íslands | Margrét Guðmunds-
dóttir til 11. sept. Fim.–sun. frá 14 til 18.
Hafnarborg | Eiríkur Smith til 26. sept-
ember.
Hrafnista Hafnarfirði | Sesselja Halldórs-
dóttir sýnir í Menningarsal til 4. okt.
Iða | Guðrún Benedikta Elíasdóttir. Und-
irliggjandi.
Kaffi Sólon | Víðir Ingólfur Þrastarson.
Olíumálverk á striga. Til 24. sept.
Listasafn ASÍ | Hulda Stefánsdóttir og
Kristín Reynisdóttir. Til 11. sept.
Listasafnið á Akureyri | Jón Laxdal til
23. október.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist
1945–1960 Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Meist-
ari Kjarval 120 ára. Afmælissýning úr
einkasafni Ingibjargar Guðmundsdóttur
og Þorvaldar Guðmundssonar. Til 2. októ-
ber.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Sýning á úrvali verka
úr safneign. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Úrval verka frá 20. öld til 25. september.
Listasetrið Kirkjuhvoll, Akranesi | Sýn-
ing Björns Lúðvíkssonar til 18. september.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 15-18.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg |
Stefnumót við safnara II. Sýningin stend-
ur til 11. sept. Sýning Lóu Guðjónsdóttur í
Boganum á vatnslita– og olíuverkum
stendur til 11. sept. Ókeypis aðgangur.
Sýningar eru opnar virka daga frá kl. 11–
17. Helgar frá kl. 13–16.
Norræna húsið | Sýning 17 danskra lista-
kvenna á veggteppum í anddyri.
Skaftfell | Listamaðurinn Carl Boutard –
„Hills and drawings“ í sýningarsal Skaft-
fells. Listamaðurinn Dodda Maggý með
sýningu sína „verk 19“ á vesturvegg
Skaftfells. Til 18. sept.
Skriðuklaustur | Helga Erlendsdóttir
sýnir 13 olíumálverk.
Suðsuðvestur | Gjörningaklúbburinn/
The Icelandic Love Corporation. Til. 25.
sept. Opið fim. og fös. 16–18 og helgar 14–
17.
Thorvaldsen Bar | Skjöldur Eyfjörð –
„Töfragarðurinn“ til 9. sept.
Listasýning
Bæjarbókasafn Ölfuss | Ágústa Ágústs-
dóttir, söngkona og listamaður, sýnir verk
sín á Bæjarbókasafni Ölfuss, Þorlákshöfn.
Listaverkin eru m.a. búin til úr hlutum
sem Ágústa hefur fundið í fjörunni.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn kl. 10–17 alla daga nema
mánudaga í vetur. Hljóðleiðsögn um hús-
ið, margmiðlunarsýning og gönguleiðir.
Nánar á www.gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið
– fyrstu Vestur-Íslendingarnir, Bókminja-
safn. Auk þess veitingastofa með hádeg-
is- og kaffimatseðli og lítil en áhugaverð
safnbúð.
Mannfagnaður
Maður lifandi | Fyrsta hláturæfing Hlát-
urkætiklúbbsins í vetur verður kl. 17.30 í
fundarsal á neðri hæð Maður lifandi –
heilsumiðstöð, Borgartúni 24. Leiðbein-
endur eru Ásta Valdimarsdóttir og Krist-
ján Helgason. Aðgangseyrir er 300 kr. og
eru allir velkomnir.
Fréttir
Björgunarsveitin Ársæll | Björg-
unarsveitin Ársæll leitar að nýju fólki til
að hefja störf. Nýliðakynning verður í dag
kl. 19.30. Kynningin verður haldin í Gróu-
búð, að Grandagarði 1 í Reykjavík.
www.bjorgunarsveit.is.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður í
Stykkishólmi kl. 9.30–17. Allir velkomnir.
Fundir
ADHD samtökin | Sjálfshjálparhópur full-
orðinna með athyglisbrest með eða án
ofvirkni (adhd) heldur fund í dag að Háa-
leitisbraut 11, 4. hæð kl. 20.
Geðhjálp | Félagsfælnihópur Geðhjálpar
heldur sinn vikulega fund kl. 20–22. Allir
sem orðnir eru 16 ára og eldri og eiga við
félagsfælni að stríða eru velkomnir.
Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar,
stuðningshópur um krabbamein í blöðru-
hálskirtli, verða með rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, kl. 17. Kaffi á könnunni.
Fyrirlestrar
Háskóli Íslands | Hartmut Lutz prófessor
heldur fyrirlestur um afdrif inúíta í sýn-
ingum í Evrópu á 19. öld. Fyrirlesturinn er
á morgun, kl. 12.20 í stofu 311, í Árna-
garði í HÍ og fer fram á ensku. Fyrirlest-
urinn er í boði Hugvísindadeildar Háskóla
Íslands og Íslandsdeildar Norræna félags-
ins um kanadísk fræði. Allir velkomnir.
Háskólinn á Akureyri | Á Félagsvís-
indatorgi fjallar Alma Oddgeirsdóttir um
Mentorverkefnið Vináttu sem hóf göngu
sína á Íslandi árið 2001 og er rekið af Vel-
ferðarsjóði barna. Alma ræðir um þá hug-
myndafræði sem verkefnið byggist á og
reynslu af starfrækslu þess á liðnum ár-
um. Fyrirlesturinn er í stofu L201 á Sól-
borg og hefst kl. 16.30.
Sólheimar | John Wilkes frá Emerson
College verður með fyrirlestur á Sól-
heimum 9. september kl. 14. Fjallað verð-
ur m.a. um rennslifræði vatns og orku-
breytingar í vatni og umhverfi og hvernig
nýta má þessa þætti í umhverfislegum
tilgangi, landslags- og listhönnun, við
ræktun og matvælavinnslu.
Málstofur
Verkfræðideild HÍ | Umhverfis- og bygg-
ingarverkfræðiskor Háskóla Íslands verð-
ur með málstofu í stofu 132, í Öskju kl 16.
Jónas Elíasson prófessor og Sigurður M.
Garðarsson dósent flytja fyrirlestra um
náttúruhamfarirnar í New Orleans. Lýst
verður hvaða vitneskja var fyrir hendi um
hamfarir sem þessar.
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Fyrsta
málstofa vetrarins verður haldin í dag, kl.
12.15. Gylfi Zoëga prófessor mun halda
erindi sem hann nefnir „Tekjujöfnun inn-
an fyrirtækja: Er gengið á hag hæfustu
starfsmannanna? Málstofan er haldin í
Odda, stofu 101. Allir velkomnir.
Námskeið
Alþjóðahúsið | Námskeið í arabísku fyrir
byrjendur verður haldið 8. sept. til 10.
nóv. Kynnst er arabískum bókstöfum, tek-
in fyrstu skref við að tala og skrifa arab-
ísku, og fjallað um menningu tengda ar-
abískri tungu. Námskeiðið verður í
Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, 3. hæð, á
fimmtudögum kl. 17–19. Kennari er Amal
Tamimi félagsfræðingur. Verð 25.000 kr.
skráning: amal@ahus.is, eða í síma
530 9308.
Börn
Dansskóli Jóns Péturs og Köru | 4 til 5
ára börnum er boðið upp á dans, söng og
leik. Hjá eldri börnum og unglingum er
boðið upp á námskeið í samkvæm-
isdönsum og freestyle. Innritun daglega
kl. 12–19 í síma 553 6645 eða á heima-
síðu dansskólans www.dansskoli.is.
Kennsla hefst 12. sept.
Hlutavelta | Þær Sylvía Rún Hálfdan-
ardóttir og Matthildur Amelía Mar-
vinsdóttir héldu tombólu og söfnuðu
3.600 kr. til styrktar Rauða krossi Ís-
lands.
Morgunblaðið/Ásdís
Brúðkaup | Gefin voru saman 20.
ágúst sl. í Árneskirkju á Ströndum þau
Bryndís Guðmundsdóttir og Bjarni
Georg Einarsson. Prestur var séra
Sigríður Óladóttir.
Fréttasíminn
904 1100
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is