Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 19
MINNSTAÐUR
Vörumarkaður í Perlunni 3.-11. sept. - Opið milli 14-18 virka daga, 12-18 um helgar!
Standlampar
Verð frá: 12.500 kr!
Algengt verð: 35.000 kr.
Stór lampi
Verð aðeins: 9.000 kr!
Algengt verð: 19.900 kr.
Stór lampi
Verð aðeins: 6.500 kr!
Algengt verð: 19.800 kr.
Global Art House postúlín
Eldfastir og slitsterkir diskar, skálar og fleira!
Libbey’s glervörur
Hágæða glervörur af öllum gerðum!
Nuddstóll með skemli!
Verð aðeins: 19.900 kr!
Algengt verð: 38.000 kr.
Skrifstofustóll!
Verð aðeins: 8.000 kr!
Algengt verð: 16.000 kr.
Stórir og fallegir vasar
Háir, lágir djúpir
og grunnir.
á húsgögnum og húsbúnaði!Ótrúle
gt verð
... og margt
margt fleira!
Verð frá 1.900 kr!
EKTA LEÐUR!
EKTA LEÐUR!
Verð frá 100 kr!
Mögnuð útsala!
Blönduós | Heilbrigðisstofnunin á
Blönduósi er ekki frábrugðin öðrum
sambærilegum heilbrigðisstofnun-
um á landsbyggðinni þegar horft er
til skilvirkni þeirra og þess ráðstöf-
unarfjár á íbúa sem þær fá til að
sinna hlutverki sínu.
Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar
stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoð-
unar. Þá hefur stjórnendum stofn-
unarinnar tekist að laga starfsemina
að þeim fjárhagsramma sem henni
er settur og breyttum aðstæðum
heilbrigðisstofnana á landsbyggð-
inni.
Úttektin var gerð að beiðni stjórn-
enda stofnunarinnar sem telja ekki
nægilega skýrt samband milli fjár-
framlaga til hennar og þess sem ætl-
ast er til af henni. Telja þeir stofn-
unina vera vanfjármagnaða og að
auka þurfi framlög til hennar.
Í úttektinni var Heilbrigðisstofn-
unin á Blönduósi borin saman við
þrjár sambærilegar heilbrigðisstofn-
anir á landsbyggðinni og eina sem er
bæði mun stærri og sinnir fjölbreytt-
ari verkefnum. Í ljós kom að starf-
semi hennar er álíka skilvirk og
starfsemi viðmiðunarstofnana af
svipaðri stærð. Úttektin sýnir einnig
að utanaðkomandi þjónusta skýrir
ekki mun á heildarkostnaði íbúa ein-
stakra þjónustusvæða.
Árið 2004 var reglubundinn rekst-
ur Heilbrigðisstofnunarinnar á
Blönduósi nánast í jafnvægi eftir
hallarekstur undangenginna ára.
Stjórnendum hefur tekist að laga
starfsemina að fjárhagsramma sem
þeim er settur og virðast fá mikið út
úr fjármunum sem stofnunin fær til
ráðstöfunar.
Munur milli stofnana
Í ljós kom umtalsverður munur
milli stofnana sem ekki verður
skýrður með efnislegum aðstæðum
en skv. niðurstöðum úttektarinnar
virðist þó ekki liggja beint við að
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
eigi að fá leiðréttingu umfram ýmsar
aðrar sambærilegar stofnanir.
Áður en slík leiðrétting er gerð
þarf að endurskoða forsendur fjár-
veitinga til þessara heilbrigðisstofn-
ana svo að tryggja megi sem best
jöfnuð milli þeirra.
Í úttektinni er bent á ýmsa kosti
þess að heilbrigðisþjónustunni sé
fremur stýrt á miðlægan hátt en á
sveitarstjórnarstigi. Slíkt veiti bæði
betri yfirsýn yfir málaflokkinn í heild
og auðveldi stöðlun, svo sem að veita
sambærilega þjónustu alls staðar á
landinu. Ríkisendurskoðun leggur
þó áherslu á að miðlæg stýring megi
ekki koma í veg fyrir að einstakar
stofnanir geti lagað þjónustu sína að
aðstæðum og þörfum hvers staðar.
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Tekist hefur að
laga starfsemina
að fjárveitingum
LANDIÐ
Laxamýri | „Stór þessi,“ heyrist sagt
úr nemendahópnum þegar 4.–7.
bekkur Hafralækjarskóla fékk að
líta augum 20 punda hæng í vett-
vangsferð sinni á Laxárbökkum á
dögunum. Það var Jón Helgi Vigfús-
son hjá Norðurlaxi sem tók fiskinn
upp úr laxakassanum og hafði verið
að sækja hann upp í Aðaldal. Þetta
fannst þeim mjög gaman enda mikil
tilbreyting í skólastarfinu að fá leið-
sögn um sína heimabyggð til þess að
sjá og fræðast um það sem þau höfðu
ekki séð mikið af áður.
Þema haustsins í skólanum er líf-
ríki Laxár í Aðaldal og hafa krakk-
arnir verið að kynna sér bæði fugla
og fiska, auk þess gróður, mannlíf og
annað það sem lifir við ána og í henni.
Dagurinn hjá þessum fjórum
bekkjum hófst hjá Norðurlaxi þar
sem skoðuð voru bæði lítil og stór
seiði auk nokkurra stórlaxa. Þá
fengu þau einnig að sjá regnbogasil-
ung sem vakti töluverða athygli enda
stór og gráðugur fiskur sem buslaði
mikið þegar þeim var gefið.
Að því loknu var farið niður að
ánni og skoðað í skordýragildru sem
þar er á vegum Náttúrurannsókn-
arstöðvarinnar við Mývatn og kíkt í
fuglakíki á svanafjölskyldu sem var á
ánni. Þá voru einnig tekin gróðursýni
í plastpoka og síðan var gengið niður
að Mjósundi og Æðarfossum. Eftir
það lá leiðin út að ósum árinnar og
farið var í fjöruferð við Ærvík-
urbjarg og þar borðað nesti í blíð-
skaparveðri. Þangað höfðu fáir kom-
ið áður og nutu þess að hlaupa í
fjöruborðinu og sjá öldurnar koma
að landi.
Mest gaman að sjá stóru laxana
„Mér brá þegar ég sá hvað seiðin
voru mörg í kerunum,“ segir Guð-
mundur Helgi Bjarnason sem er í 6.
bekk. Hann á heima á Aðalbóli í Að-
aldal og er áhugasamur um stang-
veiðar.
„Ég var ekki búinn að átta mig á
því að þetta væri svona mikið. Ég
hafði mjög gaman af að sjá þetta og
það er allt öðru vísi að sjá fossa í al-
vörunni heldur en á mynd. Ég hafði
ekki komið að Æðarfossum áður og
mér fannst sérlega skemmtilegt að
komast í fjöruna við Ærvíkurbjarg.“
Að sögn Guðmundar fer nú fram
verkefnavinna í skólanum sem teng-
ist vettvangsferðunum og finnst hon-
um gaman að kynna sér veiðitölur
sumarsins bæði hvað varðar silung
og lax. Hann er t.d. í hópi sem fjallar
um þá atvinnu sem áin skapar og
gerðar eru bækur þar sem teiknaðar
eru myndir af lífinu við ána.
„Sjálfur er ég búinn að læra að
veiða á flugu og hef farið upp að
Kringluvatni þar sem ég hef veitt
bleikjur. Ég hef gaman af veiðum og
hafði þess vegna mest gaman af að
sjá stóru laxana.“
Hóparnir gera kort af ánni og lík-
lega verður afrakstur vinnunnar inn-
an tíðar kominn upp á veggi á göng-
um Hafralækjarskóla gestum og
gangandi til fróðleiks og skemmt-
unar. Guðmundur segir að fleiri ferð-
ir séu eftir og t.d. muni þau heim-
sækja Laxárvirkjun og kynna sér þá
starfsemi sem þar fer fram.
Þemadagar
um lífríki
Laxár
í Aðaldal
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Lax á lofti Stórlaxinn vakti athygli nemenda þegar Jón Helgi Vigfússon
tók hann upp úr kassanum, enda er hann um 20 punda flykki.
Eftir Atla Vigfússon