Morgunblaðið - 07.09.2005, Side 4

Morgunblaðið - 07.09.2005, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rimini í september í 1 eða 2 vikur. Njóttu lífsins á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Bókaðu sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Rimini í september frá kr. 29.990 Verð kr. 29.990 í viku Verð kr.39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur 15. eða 22. sept. (ath. 22. sept. er aðeins vikudvöl í boði). Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 34.990 í viku Verð kr.44.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur 15. eða 22. sept. (ath. 22. sept. er aðeins vikudvöl í boði). Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Síðustu sætin TVÖ alvarleg líkamsárásarmál á Akureyri voru þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Annars vegar er um ræða ákæru á hendur tveimur mönnum fyrir hættulega líkamsárás í Vaðlaheiði í apríl sl. þar sem skotið var á pilt með loftskamm- byssu. Hins vegar á hendur fjórum mönnum fyrir frelsissviptingu og líkamsárás á pilt hinn 11. mars sl. Pilturinn, sem varð fyrir skotárásinni í Vaðla- heiði, er einn hinna fjögurra sem ákærðir eru í hinu málinu. Alls er krafist miska- og skaðabóta í þess- um málum upp á rúmar fjórar milljónir króna. Af hálfu ríkissaksóknara er þess krafist að mennir tveir í Vaðlaheiðarmálinu verði dæmdir til refsingar og jafnframt gerir pilturinn sem fyrir skotárásinni varð kröfu um að mennirnir tveir verði dæmdir til greiðslu skaðabóta að fjárhæð rúmlega 3,2 milljónir króna. Mennirnir eru ákærð- ir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, annar þeirra með því að hafa skotið piltinn með málm- kúlum úr loftbyssu og látið hann afklæðast á meðan á skotárásinni stóð og hinn maðurinn fyrir að hafa einnig lagt á ráðin um skotárásina, ekið hinum ákærða og piltinum á vettvang og verið viðstaddur skotárásina. Pilturinn fékk 17 skotsár á fótleggi, vinstri hendi og mjóbak og varð að fjarlægja fjórar málmkúlur úr vinstri mjöðm og hægra læri hans. Alvarlegir áverkar Í hinu málinu er þess krafist að mennirnir fjórir verði dæmdir til refsingar og þá krefst pilturinn, sem fyrir árásinni varð, miskabóta að fjárhæð 1 milljón króna, auk skaðabóta að fjárhæð tæpar 60 þúsund krónur og kostnaðar vegna lögmannsað- stoðar að fjárhæð 50 þúsund krónur. Í ákærunni eru tveir mannanna ákærðir fyrir frelsissviptingu og líkamsárás með því að hafa þvingað piltinn ofan í farangursgeymslu bifreiðar á bifreiðastæði við Gránufélagsgötu, haldið honum þar nauðugum í um klukkustund á meðan bifreiðinni var ekið um götur Akureyrar og að Akureyrarflugvelli, veist þar í sameiningu að piltinum, slegið hann í andlitið, þvingað hann aftur niður í farangursgeymsluna og ekið til bæjarins. Mennirnir tveir og einn til viðbótar eru ákærðir fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa í sam- einingu, í húsasundi við Kaldbaksgötu, dregið pilt- inn úr farangursgeymslu bifreiðarinnar og ráðist á hann með ofbeldi. Þeir rifu piltinn úr bol, spörkuðu í andlit hans svo að hann vankaðist og lagðist í jörð- ina, spörkuðu ítrekað í hann liggjandi, slógu hann hnefahögg í andlit og líkama, rifu hann úr skóm og buxum. Tveir hinn ákærðu drógu piltinn eftir mal- arborinni jörð nokkra metra, allt með þeim afleið- ingum að hann hlaut mar og bólgur á vinstra kinn- bein, fleiður og rispur á bak og vinstri öxl, auk annarra áverka á maga, bringu og handleggjum. Loks eru allir mennirnir fjórir ákærðir fyrir brot gegn lífi og líkama með því að hafa eftir þetta yf- irgefið piltinn í húsasundinu, meiddan á nærbuxum einum fata en kalt var í veðri, um 5 gráðu frost og éljagangur með köflum. Ákærðu höfðu föt piltsins og farsíma á brott með sér. Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins af mál- inu komst pilturinn, sem fyrir árásinni varð, við ill- an leik upp í miðbæ Akureyrar, þar sem hann hitti skólafélaga sinn fyrir tilviljun, sem veitti honum aðstoð og kom undir læknishendur á slysadeild FSA. Bæði þessi mál tengdust fíkniefnum. Tvö alvarleg líkamsárásarmál þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra Krafist 4 milljóna króna skaða- og miskabóta Eftir Kristján Kristjánsson krkr@mbl.is SKÁKFÉLAGIÐ hrókurinn og Edda hófu í gær fjórðu hringferð sína í kring- um landið með heim- sókn í Austurbæj- arskóla þar sem börn í þriðja bekk fengu að gjöf bókina Skák og mát. Heiðursgestur við athöfnina var Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu og gamall nemandi við skólann. Í hringferðinni fá öll grunnskólabörn fædd 1997 bókina gef- ins. Hrókurinn hefur nú farið í næstum þúsund skólaheimsóknir og stefnir óðfluga yfir það mark. Í vetur mun skák- félagið mikilvirka heimsækja öll sveitarfélög og grunnskóla á Íslandi ásamt fulltrúum Eddu sem hefur nú gefið alls um 20.000 bækur til verkefn- isins hin síðustu ár. Krakkarnir í Austurbæjarskóla voru vitaskuld ánægð með þessa góðu gjöf og er það von Hróks- manna að skákáhugi vakni hjá sem flestum þeirra, enda skákin konungleg íþrótt. Hrókurinn gef- ur Skák og mát Morgunblaðið/Golli Krakkarnir í Austurbæjarskóla voru afar ánægðir með bókagjöfina frá Hróknum í gær. Páll Bragi Kristjónsson afhenti fyrstu bæk- urnar á fornum slóðum. FÁLKI drap nýlega tvo hrafna á Melrakkasléttu, án þess að vera að veiða þá sér til matar. Erlingur Thoroddsen, hótelstjóri á Hótel Norðurljósum á Raufarhöfn og fréttaritari Morgunblaðsins, varð vitni að þessum atburði. „Ég var að vitja silungsneta í Kötluvatni, vestast á Melrakka- sléttu, í blíðskaparveðri snemma að morgni 23. ágúst síðastliðinn,“ sagði Erlingur. Hann hafði komið þarna í rúma viku eftir miðjan ágúst að vitja neta og séð allt upp í fjóra fálka á 5 km leið. „Þar sem ég var úti á vatninu sat fálki uppi á hæð og horfði yfir allt þarna í kring. Svo tók ég eftir tveim- ur hröfnum sem flögruðu stefnu- laust um brekkurnar og krunkuðust á líkt og þeir væru í berjum. Ég var upptekinn af að draga netið en heyrði þá garg og leit upp. Þá var fálkinn kominn í hrafnana sem voru um 50–60 metra beint fyrir neðan þar sem hann hafði setið. Hann renndi sér niður og annar hrafninn lá eftir í valnum. Hinn flaug yfir hæð og fálkinn á eftir. Ég reyndi að ein- beita mér að netinu og ætlaði í land þegar netið væri búið og skoða um- merkin. Þá kemur fálkinn aftur og gengur endanlega frá hrafninum sem lá í brekkunni. Svo fór hann upp á steininn og horfði yfir víðan völl.“ Erlingur fór í land og skoðaði hrafninn sem lá dauður í brekk- unni. Hann ákvað að ganga yfir ásinn til að athuga hvort hann sæi hinn. „Ég var ekki bú- inn að labba lengi þeg- ar ég sá hvar hann lá með lappirnar upp í loft og eins frágenginn og sá fyrri. Eina sem fálkinn gerði var að höggva undir höf- uðskelina og niður í hálsinn á hröfn- unum,“ sagði Erlingur. Erlingur segir að fálkaóðul séu ekki langt frá þessum stað. Víðsýnt sé af hæðinni, þar sem fálkinn sat, yfir alla austursléttuna og Kötlu- vatnið. Telur hann líklegt að fálkinn hafi ekki kært sig um samkeppni á svæðinu. Hann segist hafa þekkt til fálka allt frá barnæsku og ekki vitað fyrr til þess að fálkar dræpu nema sér til matar. Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur á Nátt- úrufræðistofnun Ís- lands, þekkir þess dæmi að fálkar hafi drepið hrafna í erjum við hreiðurklett og látið hræin liggja. Fálkar leggja oft undir sig hreiður hrafna. Önnur dæmi eru um að fálkar drepi, án þess að hirða bráð, þar sem fálkar deila bjargi með fýlum. Hefur Ólafur Karl séð fálkakerlingu slá niður þrjá til fjóra fýla í beit og vitnar í Þorvald Björnsson, sem varð vitni að því er fálki sló niður miklu fleiri fýla, án þess að hirða þá. Þá sá breskur fuglafræðingur fálka leika sama leik vestur í Arnarfirði fyrir nokkrum ár- um. Varð vitni að ránfuglastríði á Melrakkasléttu Fálki í vígaham drap tvo hrafna Fráneygur fálki. TVEIR af þeim þremur mönnum sem meiddust í tveimur vinnuslys- um við Kárahnjúka í fyrradag eru ekki jafn alvarlega slasaðir og í upphafi var talið. Í fyrstu var talið að þeir hefðu fótbrotnað en við skoðun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri kom í ljós að þeir höfðu ekki brotið bein heldur marist illa. Á FSA fengust þær upplýsingar hjá lækni þeirra að þeim liði ágæt- lega, eða eftir atvikum vel eins og algengt væri að segja. Þeir væru með slæmt mar á fótum, en betur hefði farið en á horfðist. Talið er að þeir muni ná sér á viku til tíu dögum. Maður sem slasaðist á hendi við vinnu sína á Kárahnjúkum og var einnig sendur til aðhlynningar á FSA fór í aðgerð í gær og líður einnig eftir atvikum. Mikið marðir á fótum HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að 17 ára gamall piltur, sem stakk tvo aðra pilta með hnífi í kjölfar menningarnætur í Reykjavík í ágúst, sæti áfram í gæsluvarðhaldi til 14. október. Annar pilturinn, sem varð fyrir árás, hlaut lífshættulega áverka. Segir í úrskurði héraðsdóms að brot árásarmannsins geti varðað allt að ævilöngu fangelsi. Taldi dómurinn því skilyrði fyrir að pilt- urinn sæti í gæsluvarðhaldi með til- liti til almannahagsmuna. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Árni Kolbeinsson, Ingi- björg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Gæsla vegna hnífaárása framlengd HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær úrskurði Héraðsdóms Reykjavík- ur um að maður, sem réðist á lækni í apríl á þessu ári, skuli sæta áframhaldandi gæslu- varðhaldi til 30. september. Að mati Hæstaréttar gat lög- regla ekki gefið viðhlítandi skýr- ingar á nauðsyn þess að mál mannsins þurfi að taka svo lang- an tíma sem raun ber vitni en hann hefur nú setið í gæslu- varðhaldi í fjóra og hálfan mán- uð. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Ingibjörg Benedikts- dóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Árásarmanni sleppt úr haldi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.