Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ræða RunólfsÁgústssonar, rekt-ors Viðskiptahá-
skólans á Bifröst, við út-
skrift um nýliðna helgi
hefur vakið nokkra athygli,
en í henni varaði hann við
því að í nýjum háskólalög-
um yrði bein tilvísun til
hins svokallaða Bologna-
ferlis, sem miðar að því að
til verði samevrópskt há-
skólasvæði fyrir árið 2010.
„Ég er í sjálfu sér ekki
mótfallinn því að við séum í
evrópsku samstarfi og tök-
um mið af því. Hins vegar
finnst mér að við eigum að horfa
víðar og ekki aðeins binda okkur
við evrópska staðla,“ segir Runólf-
ur og bendir á að sú þróun sem orð-
ið hafi í Evrópu með tilkomu Bol-
ogna-ferlisins hafi í sjálfu sér verið
mikið framfaraspor. Á sama tíma
sé þó, að mati Runólfs, ákveðin
hætta á því að staðlar Bologna-
ferlisins steypi alla í sama mót.
Hann leggur áherslu á að tryggja
þurfi samræmd gæðaviðmið og
tekur fram að hann sé alls ekki að
biðja um afslátt á gæðum fyrir
hönd Bifrastar. „Þvert á móti. Mín
skoðun er sú að við eigum að miða
við bestu gæði hvar sem þau eru.“
Aðspurður segist Runólfur á
þeirri skoðun að Bologna-ferlið sé í
grunninn til bóta. „Við þurfum hins
vegar að fara yfir það og ákveða
hvað af því við þurfum að innleiða,
hvað við viljum innleiða og hverju
við getum og viljum sleppa,“ segir
Runólfur og nefnir í því samhengi
tvennt í Bologna-stöðlunum sem
varhugavert væri að taka hrátt
upp án aðlögunar að íslenskum að-
stæðum. Annars vegar staðlar sem
gera ráð fyrir að nemendur séu í
fríi á sumrin, sem komi í veg fyrir
heilsársskóla líkt og rekinn er á
Bifröst þar sem duglegum nem-
endum býðst að flýta fyrir sér í
námi með því að taka valfög á
sumrin. Hins vegar nefnir Runólf-
ur einkunnakerfi ferilsins þar sem
gert er ráð fyrir að einkunnadreif-
ing sé normaldreifing, sem að mati
Runólfs hentar afskaplega illa í ís-
lensku umhverfi þar sem oft er
verið að kenna í litlum hópum.
Stuðlar að trausti milli skóla
Í samtölum við bæði Kristínu
Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Ís-
lands, og Þorstein Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri, var
að skilja að þau teldu Bologna-ferl-
ið í heild sinni hafa verið jákvætt
fyrir íslenskt háskólasamfélag þar
sem það stuðli að trausti milli evr-
ópskra háskóla og hvetji til bæði
nemenda- og kennaraskipta.
„Markmiðið með Bologna-sam-
þykktinni er að samræma kröfur
til prófgráða í því markmiði að
skólar eigi auðveldara með að við-
urkenna gráður hver frá öðrum.
Með þessari yfirlýsinu er líka verið
að hvetja til samstarfs um þróun
gæðaeftirlits en hugsunin á bak við
þessa samstöðu Evrópuríkja í há-
skólamenntunarmálum er í raun
að styrkja Evrópu sem mennta-
svæði og ekki síst í alþjóðlegu sam-
hengi þar sem horft er til sam-
keppnisstöðu gagnvart Banda-
ríkjunum, sem löngum hafa þótt
skara fram úr á sviði háskóla-
menntunar,“ segir Kristín og
bendir á að bandarískir háskólar
standi framarlega á sviði gæðaeft-
irlits. Aðspurð segist Kristín telja
það til mikilla bóta ef inn í ramma-
lögin um háskóla, sem nú er í
vinnslu hjá menntamálaráðuneyt-
inu, kæmi ákvæði um samræmdar
gæðakröfur fyrir íslenska háskóla
þar sem það myndi styrkja landið
út á við að hafa ytri vottun á próf-
gráðum og starfi skólanna.
Að mati Þorsteins hefur Bol-
ogna-ferlið eflt vitund jafnt há-
skólamanna sem og stjórnmála-
manna um hlutverk og markmið
háskóla í nútímasamfélagi. Auk
þess að hvetja til hreyfanleika
stuðlar ferlið að umræðum og eyk-
ur eftirfylgni með gæðum í kennslu
og rannsóknum í háskólum. „Allt
eru þetta atriði sem íslenskir há-
skólar, sem eru staðsettir í mjög
fámennu samfélagi, þurfa á að
halda,“ segir Þorsteinn og bendir á
að þátttakan í Bologna-ferlinu geti
gert evrópska háskóla hæfari til að
taka þátt í samstarfi við háskóla ut-
an Evrópu. „Háskólamenn hér á
landi eiga að hvetja til þess að ís-
lensk stjórnvöld og háskólar taki
áfram virkan þátt í Bologna-ferlinu
frekar en að drepa umræðunni á
dreif með tali um óskyld atriði.“
Aðspurður um gagnrýni Runólfs
segist Þorsteinn telja að hún bein-
ist fremur að íslenskum mennta-
yfirvöldum en íslenska háskóla-
samfélaginu í heild. Bendir hann á
að andstæðurnar sem Runólfur
setji fram milli annars vegar evr-
ópskra háskóla og bandarískra og
ástralskra háskóla hins vegar
standist ekki. „Það er mikil sam-
keppni, kraftur og fjölbreytni í evr-
ópskum háskólum og þegar Run-
ólfur gefur í skyn að háskólar í
Bandaríkjunum séu lausir við rík-
isrekstur, miðstýringu og staðla þá
fer því víðs fjarri,“ segir Þorsteinn
sem sjálfur stundaði sitt fram-
haldsnám í Bandaríkjunum. „Sum-
ir ástralskir og bandarískir háskól-
ar eiga við alvarleg gæðavandamál
að stríða, þannig að þessi ágætu
ríki eru ekki endilega fyrirheitnu
löndin fyrir íslenska háskóla.“
Fréttaskýring | Innleiðing Bologna-ferlis
í háskólasamfélagið hér á landi
Allt spurning
um gæði
Ferlið styrkir Evrópu sem mennta-
svæði, sérlega í alþjóðlegu samhengi
Viðskiptaháskólinn á Bifröst.
Gætu Bologna-staðlar
steypt alla í sama mót?
Hjá Sólrúnu Jensdóttur, skrif-
stofustjóra í menntamálaráðu-
neytinum, fengust þær upplýs-
ingar að í núgildandi lögum og
reglugerðum sé ekkert sem
meini háskólum að taka ekki þátt
í innleiðingu Bologna-ferlisins,
þar sem ferlið sjálft sé ekki laga-
lega bindandi heldur einvörð-
ungu viljayfirlýsing um sam-
starf. Spurð hvort til standi að
innleiða í lög ákveðna þætti Bol-
ogna-yfirlýsingarinnar svarar
Sólrún: „Verið er að vinna að
endurskoðun á rammalögum um
háskóla og því ekkert hægt að
segja um þetta á þessu stigi. “
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
94
90
09
/2
00
5
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
94
90
09
/2
00
5
Landsbanki Íslands hf.
- Hluthafafundur
Dagskrá:
1. Tillaga um að skiptingar- og samrunaáætlun sem undirrituð var af stjórnum Landsbanka Íslands hf.,
Straums Fjárfestingarbanka hf. og Burðaráss hf. þann 1. ágúst 2005 verði samþykkt. Í því felst m.a. að
hlutafé í Landsbanka Íslands hf. mun hækka um 2.120.677.803 kr. að nafnverði, eða úr 8.900.000.000 kr.
í 11.020.677.803 kr., og verður sú hækkun innt af hendi til hluthafa Burðaráss hf. sem hluti endurgjalds
fyrir hluti sína í því félagi. Jafnframt leiðir af tillögunni að hluthafar í Landsbanka Íslands hf. eiga ekki
forgangsrétt til áskriftar að hinum nýju hlutum.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Boðað er til hluthafafundar þessa með fyrirvara um að hluthafafundur í Burðarási hf. sem fram fer kl. 13.00
þennan sama dag samþykki fyrirliggjandi skiptingar- og samrunaáætlun og tengdar tillögur.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á hluthafafundi, skulu vera komnar skriflega í hendur bankaráðs eigi
síðar en föstudaginn 9. september 2005.
Skiptingar- og samrunaáætlun, ásamt ársreikningum Landsbanka Íslands hf., Straums Fjárfestingarbanka hf.
og Burðaráss hf. síðustu þrjú árin, endurskoðuðum efnahags- og rekstrarreikningum þeirra fyrir fyrri hluta
ársins 2005, greinargerðum stjórna félaganna, sameiginlegum efnahags- og rekstrarreikningum Burðaráss
og Landsbanka Íslands annars vegar og Burðaráss og Straums Fjárfestingarbanka hins vegar, sem og skýrsla
matsmanna og yfirlýsing samkvæmt 122. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, liggja frammi í aðalbanka
Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis á sama stað, sjö dögum fyrir hluthafafundinn.
Einnig er hægt að nálgast fundargögn á vefsíðu Landsbankans, www.landsbanki.is.
Fundargögn verða afhent hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 14:00 á fundardegi.
Umboðsmenn eru beðnir um að framvísa gildu umboði við hluthafaskrá á fundarstað.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Hluthafafundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn í Ársölum á Hótel Sögu, Reykjavík,
þann 15. september 2005 og hefst hann kl. 15:00.
410 4000 | www.landsbanki.is
SAMTÖK endurhæfðra mænu-
skaddaðra (SEM) hafa hafið rekstur
á nýjung í happdrættismálum sem
þeir kynntu á blaðamannafundi í vik-
unni. Hringt er í númerið 904-1111
og fæst svar strax hvort viðkomandi
hafi hlotið vinning eða ekki. Sex
hundruð kr. verða dregnar af síma-
reikningi viðkomandi eftir að hann
hefur samþykkt að halda áfram.
Hringt verður í viðkomandi sem
hlotið hefur vinning eins fljótt og
mögulegt er og honum tilkynnt hvað
hann hafi unnið. Er þetta í fyrsta
skipti í heiminum sem þessi aðferð er
reynd, að því er forsvarsmenn SEM
segja í tilkynningu.
Dregið hefur verið úr öllum skráð-
um símanúmerum einstaklinga með
heima- og farsíma, sem skráðir voru
hinn 31. ágúst sl. og var það gert hjá
Háskóla Íslands undir eftirliti sýslu-
manns í Reykjavík.
Meðal vinninga er bifreið að verð-
mæti 2 milljónir kr., utanlandsferðir,
fartölvur, heima- og farsímar.
Heildarverðmæti vinninga er um 23
milljónir kr. og er vinningafjöldi 774.
Afhending vinninga fer fram 19. nóv-
ember nk. Samtökin voru stofnuð ár-
ið 1980 af nokkrum einstaklingum
sem höfðu orðið fyrir mænuskaða af
völdum slysa. Markmið félagsins er
að efla samhjálp mænuskaddaðra,
vinna að auknum réttindum þeirra
og bættri aðstöðu í þjóðfélaginu.
Morgunblaðið/Þorkell
Forsvarsmenn SEM, Jón H. Sigurðsson, Páll E. Ingvarsson læknir, Guðný Guðnadóttir og Egill Stefánsson.
SEM-samtökin með nýjung í happdrættismálum
Fá að vita strax um vinning