Morgunblaðið - 07.09.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 17
MINNSTAÐUR
BURKNAVELLIR - HF. - 5 HERB.
- LAUS STRAX
Glæsileg fullbúin 111,7 fm 5 herbergja endaíbúð á
3ju (efstu) hæð í mjög vönduðu nýju fjölb. Eignin
er fullbúin og innréttuð á vandaðan hátt. Forstofa
er flísalögð með skáp. Hol flísalagt. Björt og falleg
stofa og borðstofa með útgangi út á góðar svalir.
Eldhús flísalagt með fallegri innréttingu, keramik
helluborð, góður borðkrókur. Innaf eldhúsi er gott
þvottahús/geymsla með glugga. Þrjú góð barna-
herbergi, eitt þeirra með skáp. Eitt af þessum her-
bergjum var geymsla á teikn. en var stækkað og er gott herbergi í dag. Svefnherbergi er rúmgott
með góðum skápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu og baðkari með
sturtuaðstöðu. Fallegt ljóst parket á gólfum, plastparket á herbergjum. Glæsilegt útsýni úr íbúðinni,
m.a. Snæfellsjökull, Esjan og fl. Glæsileg fullbúin eign mjög vel staðsett við opið svæði. LAUS
STRAX. Verð 22,7 millj.
KLUKKUBERG - HF. - 4RA HERB.
Glæsileg nýstandsett íbúð með stæði í bíla-
geymslu og sérinngangi, 104,2 fm auk geymslu
sem er um 5-6 fm. Stofa, eldhús með borðkróki,
gestasalerni, 3 svefnh., baðh., með þvottaað-
stöðu. Góð eign sem vert er að skoða. Verð 23,9
millj.
MIÐBÆR - HF. - EINB.
Nýkominn í einkasölu sérlega skemmtilegt þrílyft
einbýlishús, 143,6 ferm, í göngufæri við mið-
bæinn. Á jarðhæð er lítil 2ja herbergja íbúð með
sérinngangi. Húsið er nánast allt endurnýjað á síð-
astliðnum árum. Verð 29,8 millj.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Vel staðsett og fallegt 187,3 fm raðhús á þremur pöllum ásamt
22,2 fm bílskúr við Brúnaland í Fossvogi. Húsið skiptist í tvær
stofur, eldhús, þvottahús, 3-4 svefnherbergi, snyrtingu og
baðherbergi. Gengið er beint út í suðurgarð út stofu.
Bílastæði eru við inngang. Verð 43,9 m.
RAÐHÚS Í FOSSVOGI
AKUREYRI
Ekkert tilboð | Á fundi skóla-
nefndar í vikunni kom fram að
ekkert formlegt tilboð hefði borist
fyrir tilsettan tíma í rekstur nýja
leikskólans Hólmasól við Helga-
magrastræti. Borist hefur ósk um
að fresturinn verði framlengdur
og samþykkti skólanefnd að fram-
lengja tilboðsfrestinn til 26. sept-
ember nk. kl. 12 á hádegi. Aðrar
dagsetningar í útboðsgögnum fær-
ast til í samræmi við þessa
ákvörðun. Hermann Jón Tóm-
asson bókaði hjásetu og vísaði til
fyrri bókana um málið en hann sat
hjá við afgreiðslu málsins fyrr í
sumar og taldi útboðið ekki eiga
rétt á sér.
Félagsvísindatorg| Alma Odd-
geirsdóttir ræðir um Mentorverk-
efnið Vinátta á Félagsvísindatorgi í
dag, miðvikudaginn 7. september,
kl. 16.30 í stofu L201 á Sólborg.
Mentorverkefnið Vinátta er sam-
félagsverkefni sem hóf göngu sína á
Íslandi árið 2001 og er rekið af Vel-
ferðarsjóði barna.
Með þátttöku í verkefninu gefst
framhalds- og háskólanemum kostur
á að tengjast grunnskólabarni í þeim
tilgangi að verða jákvæð fyrirmynd í
lífi barnsins. Í erindinu ræðir Alma
þá hugmyndafræði sem verkefnið
byggist á og þá reynslu sem fengist
hefur af starfrækslu þess á liðnum
árum.
Vantar vitni | Gróf líkamsárás
var framin á Akureyri, við gatna-
mót Norðurgötu og Strandgötu
aðfaranótt 4. september síðastlið-
ins. Að öllum líkindum á tíma-
bilinu frá kl. fjögur til fimm um
nóttina. Ráðist var á karlmann á
fertugsaldri. Þeir sem einhverjar
upplýsingar geta veitt eru beðnir
að hafa samband við rannsókn-
ardeild lögreglunnar á Akureyri í
síma 464 7720.
Fréttir á SMS
SLIPPSTÖÐIN á Akureyri glímir
nú við fjárhagslega erfiðleika, en
unnið er að lausn málsins og er þess
vænst að jákvæð niðurstaða fáist úr
þeirri vinnu að því er fram kemur í
tilkynningu frá stjórnendum stöðv-
arinnar.
Slippstöðin hefur á undanförnum
árum gengið í gegnum mikla fjár-
hagslega erfiðleika og því er eigin-
fjárstaða fyrirtækisins veik. Slipp-
stöðin er því illa í stakk búin að
standa af sér fjárhagsleg skakkaföll
eins og þau sem fyrirtækið hefur
orðið fyrir á fyrstu stigum umfangs-
mikils verks sem fyrirtækið hefur
frá því sl. vor unnið að í Kára-
hnjúkavirkjun, en þar er um að
ræða samsetningu á þrýstipípum í
aðfallsgöngum virkjunarinnar.
Slippstöðin vinnur einnig að öðru
verki við Kárahnjúkavirkjun, sem
felst í niðursetningu á vélbúnaði
virkjunarinnar, og hefur það gengið
vel.
Þessi tvö verk í Kárahnjúkavirkj-
un eru viðbót við meginstarfsemi
Slippstöðvarinnar á Akureyri, sem
er eins og áður viðhald og endur-
bætur á skipum og bátum. Verk-
efnastaða fyrirtækisins á Akureyri
hefur verið með betra móti í sumar
og horfur eru nokkuð góðar.
Stjórnendur vinna að lausn á
þeim fjárhagslega vanda sem fyr-
irtækið á í vegna ófyrirséðra erf-
iðleika við upphaf áðurnefnds verks
við Kárahnjúkavirkjun. Viðbrögð
vekja að sögn vonir um að niður-
staðan úr þeirri vinnu sem nú er í
gangi við fjárhagslega endurskipu-
lagningu verði jákvæð.
Slippstöðin glímir við fjárhagsvanda
Skakkaföll vegna
verkefnis við
Kárahnjúka
KENNSLA í Tónlistarskólanum
á Akureyri er nú kominn á fulla
ferð en nú eru innritaðir nemend-
ur við skólann 449 talsins. Í kjöl-
far þess að Tónlistarskólinn á Ak-
ureyri tók í haust upp nýtt
skipulag í byrjendakennslu á
hljóðfæri og í söng hefur nánast
alveg tekist að tæma biðlista við
Tónlistarskólann. Um árabil hafa
verið biðlistar á flest hljóðfæri
sem kennt er á í skólanum en nú
er staðan sú að nemendur vantar
á flest hljóðfæri. Einnig hefur full-
orðnu fólki fækkað mjög mikið í
skólanum í kjölfar breytinga sem
gerðar voru á skólagjöldum síð-
astliðið vor.
Til að ná að fylla alla tíma sem
skólinn hefur til umráða verða í
boði tvær nýjar námsleiðir. Ann-
arsvegar kórnámskeið í tengslum
við kór skólans og svo hljóðfæra-
hringekja þar sem nemendum í 3.
bekk er boðið að læra á nokkur
mismunandi hljóðfæri yfir vetur-
inn. Þá tekur skólinn enn við um-
sóknum inn í almenna deild.
Tónlistarskólinn á Akureyri
Nemendur vantar
ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband Ís-
lands hefur aukið starfshlutfall á
skrifstofu sambandsins á Akureyri í
100% á ný en dregið var úr starf-
seminni fyrir um ári vegna fjár-
skorts. ÍSÍ opnaði skrifstofu á Ak-
ureyri árið 1999 og hefur Viðar
Sigurjónsson veitt henni forstöðu og
mun gera það áfram. Stefán Kon-
ráðsson framkvæmdastjóri ÍSÍ
sagði mjög mikilvægt að starfsemin
yrði aukin á ný og jafnframt að sam-
bandið nyti áfram starfskrafta Við-
ars, vegna reynslu hans og þekk-
ingar.
Starfssvæði skrifstofunnar á
Akureyri nær yfir Norður- og
Austurland og sagði Viðar að hann
hefði haft í nógu að snúast. Hann
hefur haldið um 30 þjálfaranámskeið
á 10 stöðum á starfssvæðinu og einn-
ig stjórnendanámskeið sem tæplega
200 manns, jafnt konur og karlar,
hafa sótt. „Það skortir ekki verk-
efnin hér,“ sagði Viðar.
Stefán sagði að ÍSÍ hefði fengið
sterk viðbrögð þegar dregið var úr
starfseminni á Akureyri. „Þetta
gekk ekki nógu vel og starfsemin er
því komin á fulla ferð á ný. Það verð-
ur ekki aftur snúið, enda þarf ekki
að sækja alla hluti til Reykjavíkur.“
Stefán sagði að sambandið hefði
leitað eftir fjármagni til fjár-
laganefndar Alþingis, vegna starf-
seminnar á Akureyri og einnig til
þess að hægt verði að koma upp
starfsstöðvum á Ísafirði og Egils-
stöðum. Skrifstofan að Glerárgötu
26 á Akureyri er rekin í samstarfi
við Akureyrabæ, sem leggur til hús-
næðið og sagði Stefán að sá stuðn-
ingur yrði seint metinn til fjár.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl.
8–16.
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Viðar Sigurjónsson, starfsmaður sambandsins á Akureyri.
Starfsemin í fullan gang á ný