Morgunblaðið - 07.09.2005, Side 25
á Land-
ður sagði,
ð fyrir að
a á varð-
skipi og flugvél til Landhelgis-
gæslunnar, 2,5 milljarðar fari til
að styrkja stöðu Nýsköpunarsjóðs,
2,5 milljarðar fari til uppbygging-
ar fjarskiptaþjónustu í samræmi
við gildandi fjarskiptaáætlun, einn
milljarður fari nú þegar til upp-
byggingar á búsetuúrræðum fyrir
geðfatlaða og einn milljarður fari
til nýbyggingar fyrir Stofnun ís-
lenskra fræða – Árnastofnun.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra sagði m.a. á fundinum í
gær að nú gætu landsmenn séð
fram á stórhuga framkvæmdir og
verkefni, sem myndu bæta lífskjör
fólksins í landinu. Þá sagði Geir
H. Haarde fjármálaráðherra að
með umræddum ráðstöfunum á
söluandvirði Símans, þ.e. með því
að greiða niður skuldir og leggja
afganginn inn í Seðlabankann,
væri verið að bæta hag ríkissjóðs.
„Við reiknum með því að sam-
tals muni vaxtasparnaðurinn og
vaxtatekjurnar á næsta ári þýða
um það bil fjóra milljarða í bættan
hag fyrir ríkissjóð. Við getum svo
borið það saman við arðgreiðsluna
frá Símanum, sem undanfarin ár
hefur verið um tveir milljarðar.
Stundum var talað um að við vær-
um að selja frá okkur mjólkurk-
úna eða slátra henni, með þessari
sölu. En það má segja að við séum
búin að fá nýja mjólkurkú,“ sagði
Geir.
tlanir ríkisstjórnarinnar um ráðstöfun á söluandvirði Símans
kuldir greiddar
,2 milljarða í ár
Morgunblaðið/Þorkell
Símapeninganna á fundi með fréttamönnum í Ráðherrabústaðnum í gær, þeir Guðni Ágústsson, Halldór Ásgrímsson, Davíð
agði Geir meðal annars, þegar hann gerði grein fyrir ráðstöfun þeirra fjármuna sem fást fyrir söluna á Símanum.
) + O5 4 0 ""16&0
C#&06
!--)
!--$
#")--
%--
$--
+--
!--
&--
, !--%
!")--
$--
&--
+--
#--
+--
+--
#--
!--
!--,
!"---
&--
!--
+--
+--
!--
!--
, !--*
!"---
!--
+--
!-#-
!-##
!-#!
,"---
#"$--
$--
%--
,--
&--
#")--
,--
&--
+--
.
""
&--
#"---
#"---
!--
!--
#"---
)--
)--
!--
#")--
!"---
)--
)--
&--
&--
. +"---
)--
)--
&--
&--
/ +"---
+--
- +"---
0 +"---
0 #,"---
&"---
!")--
!")--
#"---
#"---
0, MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 25
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, seg-
ist telja það hafa verið skyn-
samlega ákvörðun að taka fjár-
munina ekki inn í hagkerfið fyrr
en eftir 2007 vegna efnahags-
ástandsins.
„Það er mikil þensla núna og
ljóst að það verður talsverð nið-
ursveifla í hagkerfinu 2007 þegar
stóriðjuframkvæmdum lýkur og
bendir allt til þess að ríkissjóður
verði rekinn með halla þegar þær
skattabreytingar sem þegar hafa
verið ákveðnar verða að fullu
komnar til framkvæmda,“ segir
Ingibjörg. „Þá er mikilvægt að
hafa eitthvað upp á að hlaupa. Mér
finnst þetta þannig hafa verið
skynsamleg ráðstöfun.“
Ingibjörg segir verkefnin sem
um er að ræða ágæt og öll góðra
gjalda verð. „Ég vil kannski minna
á í því sambandi að Samfylkingin
átti frumkvæði að því á sínum tíma
að hluta af fjármununum yrði ráð-
stafað í byggingu nýs háskóla-
sjúkrahús,“ segir Ingibjörg, en
bætir við að sér finnist það hins
vegar orka mjög tvímælis að rík-
isstjórnin skuli nú þegar ráðstafa
tveimur þriðju
hlutum af sölu-
andvirðinu, um
43 milljörðum, á
ýmis verkefni
sem eiga ekki
að koma til
framkvæmda
fyrr en 2007 til
2012. „Mér
finnst dálítið verið að strá silfrinu
um landið áður en það er tíma-
bært.“
Þá segir Ingibjörg að skoða
þurfi sérstaklega hvernig skyn-
samlegast sé að ráðstafa þeim
hluta söluandvirðisins sem kemur
inn í íslenskum krónum. „Það er
gert ráð fyrir að geyma það fé í
seðlabankanum og ávaxta það
þar,“ segir Ingibjörg. „Mér finnst
samt að það mætti skoða það hvort
við ættum að fara svipaða leið og
Norðmenn með olíusjóðinn að
bjóða út ávöxtunina á erlendum
mörkuðum. Þá er hægt að draga
út þá fjármuni þegar fram líða
stundir ef gengið fer að lækka
mikið. Mér fyndist að það mætti
skoða það mál miklu betur áður en
nokkur ákvörðun er tekin.“
Verkefnin öll góðra gjalda verð
ðborgar-
ðar, mun
gildandi
ur með
s.k. innri
r einnig
gu heil-
og tækni
úkrahúss
ræða við
að getur
m öflugt
væðinu í
Vatnsmýrinni verði að veruleika
fyrr en ella.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti sjálfstæðismanna fagnar
ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Hún
verði lengi í minnum höfð. Verið sé
að boða stórfelldar vegabætur á
höfuðborgarsvæðinu. „Það er ekki
bara Sundabraut sem verið er að
tala um, það er líka verið að tala um
Reykjanesbraut, 1,6 milljarðar, og
síðan er verið að tala um gatnamót
við Nesbraut, 600 milljónir.“
!
á innri
psvík
garstjórnar í gær
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs, segist ánægður
með margt í hugmyndum rík-
isstjórnarinnar, en þó verði að
minna á nokkrar staðreyndir.
„Í fyrsta lagi verður Síminn
ekki seldur nema einu sinni og
þessar krónur ekki notaðar nema
einu sinni,“ segir Steingrímur.
„Það má færa fyrir því gild rök
að innan átta til tíu ára verði rík-
issjóður jafn settur ef ekki verr
ef tekið er mið af þeim arð-
greiðslum og verðmætisauka sem
hefur skilað sér í gegnum eign
fyrirtækisins undanfarin ár. Við í
VG erum jafn ósammála því að
einkavæða þessa undirstöðual-
mannaþjónustu eins og við höfum
alltaf verið, þrátt fyrir það að
menn séu nú að útdeila afrakstr-
inum af því að selja fjölskyldu-
silfrið.“
Steingrímur segist óhress með
það að framkvæmdavaldið taki
að sér allt fjárveitingavald.
„Þetta er ekki unnið samkvæmt
hefðbundnum
leiðum gegnum
Alþingi og
þingnefndir,“
segir Stein-
grímur. „Þing-
menn koma
hvergi að mál-
inu. Fram-
kvæmdavaldið
tekur að sér að tilkynna hvernig
þessu fé verður varið mörg ár
fram í framtíðina, jafnvel út
næsta kjörtímabil. Þetta finnst
mér gagnrýnivert og umhugs-
unarvert og mér finnst gæta æ
ríkari tilhneigingar til að
gleyma því að fjárveiting-
arvaldið er hjá Alþingi. Auðvitað
hefði okkur þótt eðlilegra hefði
málið farið í eðlilegan farveg
fjárlagagerðar og samgöngu-
áætlunargerðar eins og lög
mæla fyrir um. Því hér erum við
að tala um mikla fjármuni sem
safnast hafa upp í eigu þjóð-
arinnar í tíð margra ríkisstjórna
af öllum regnbogans litum.“
Gæta verður að vinnubrögðum
GUÐJÓN Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segir
margt jákvætt í spilunum hjá rík-
isstjórninni.
„Þarna er verið að setja þó nokk-
uð fé í vegaáætlanir, en maður spyr
þó tilbaka, hvort menn muni koma
aftur inn í samgönguáætlunina
með þá sex milljarða sem þeir voru
búnir að taka út úr henni? Það var
á sínum tíma gert til að draga úr
framkvæmdahraða í landinu á tím-
um mikilla framkvæmda fyrir aust-
an og við gagnrýndum það sér-
staklega þingmennirnir í
Norðvesturkjördæminu þar sem
vantar mikið á að laga vegakerfið,“
segir Guðjón.
„Nú stendur til að setja fjármuni
inn í vegina í Norðvesturkjördæmi
og ber að þakka fyrir það og auk
þess í nauðsynlegar framkvæmdir
eins og Sundabrautina.
Mér finnst þó skorta svör við því
hvort menn ætla að koma inn með
þá milljarða sem búið var að skerða
í samgönguáætl-
uninni eða hvort
menn eru að
fylla upp í
skarðið með
þessum síma-
peningum.“
Guðjón segir
einnig nauðsyn-
legt að skoða
málefni Hvalfjarðarganga ef fara
eigi með Sundabraut í einka-
framkvæmd með tilheyrandi gjald-
töku.
Guðjón segir að vissulega sé
margt í hugmyndum ríkisstjórn-
arinnar afar jákvætt og sé ekki
nema gott um það að segja að efla
samgöngurnar og málefni geðfatl-
aðra. „Það er bara hið besta mál.
Eins tel ég það alveg ágætt að
greiða niður skuldir með þessum
fjármunum.
Þá finnst okkur mjög gott að ver-
ið sé að leggja peninga í aukna ný-
sköpun og fjarskiptaþáttinn.“
Er verið að fylla í skörð?
TRYGGVI Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands, hefði kosið að
stærri hluti af söluandvirði Símans
yrði notaður til að greiða niður
skuldir ríkisins. „Ég hef verið tals-
maður þess að greiða niður sem
mest af skuldum til þess losna við
að borga vextina í framtíðinni,“
segir hann, inntur álits á áætl-
unum stjórnvalda um ráðstöfun á
söluandvirði Símans.
„Það er þó huggun harmi gegn
að þeir ætla sér að bíða með fram-
kvæmdirnar fram yfir þessa hag-
sveiflu, þannig að þetta getur
komið sér vel,
þegar fer að
hægjast um í
hagkerfinu,“
segir hann enn-
fremur.
Tryggvi Þór
segist þó vera
sammála þeim
meginsjón-
armiðum í áætlunum stjórnvalda
að eyða fjármununum í eitthvað
sem sé uppbyggilegt, t.d. með því
að fjárfesta í vegaframkvæmdum.
Slíkt auki framleiðnina í hagkerf-
inu.
Meiri skuldir yrðu greiddar