Morgunblaðið - 07.09.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.09.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 31 MINNINGAR og góður drengur. Maður var knús- aður og klappað í bak og fyrir enda mætti ég á svæðið dillandi skottinu eins og hvolpur og heilsaði öllum með smellikossi á kinn. Ég taldi mig geta sigrað heiminn og lofaði ömmu minni að launa henni með nýrri eldavél þeg- ar ég yrði stór. Hún var brosmild, hamingjusöm og gefandi. Aldrei minnist ég þess nokkurn tíma að hún hafi skammað mig þó ég hafi nú al- mennt verið talinn stríðinn og uppá- tækjasamur úr hófi fram. Einhvern veginn hafði hún þau áhrif á mig að ég varð rólegur, friðsamur og blíður, í fullkomnu jafnvægi við allt og alla í kringum mig í Teigagerði. Ég sakna þín, amma mín, þú varst mér allt sem barn og ert stór hluti af persónuleika mínum í dag. Þú munt alltaf vera mér nærri í öllu sem ég geri og eiginleikar þínir munu leiða mig áfram í lífinu. Þinn Sverrir. Ég man svo vel eftir því þegar ég og frændi minn Sverrir vorum að ræða kosti Marenar ömmu okkar og við urðum sammála að hún væri hreinn og beinn engill. Hún var sú besta manneskja sem ég hafði nokkurn tíma kynnst og mun líklega kynnast. Hún var alltaf að hugsa um aðra frekar en sjálfa sig; ávallt glaðlynd, gjafmild og blíð. Ég er alin upp í London, en þegar ég var 18 ára kom ég til Reykjavíkur til að stunda íslenskunám við Háskóla Íslands. Ég bjó hjá frændfólki mínu á Hallveigarstíg niðri í miðbæ, en alltaf á laugardögum og oft eftir skólann í miðri viku fór ég inn í Jökulgrunn til ömmu minnar og eyddi deginum með henni. Afi minn hafði látist þá um haustið og við vorum báðar stundum einmana. Við vorum þá vanar að spjalla um allt milli himins og jarðar. Oft kom ég með kennslubækurnar með mér og fékk hjálp við námið hjá henni ömmu, ef ég þurfti með. Við drukkum endalausa kaffibolla man ég eftir. Þetta var hið bragðbesta og sterkasta kaffi, sem ég hef nokkurn tíma fengið. Önnur minning sem ég á um ömmu mína frá þessum tíma er að hún var alltaf að hafa áhyggjur af að ég borð- aði ekki nógu mikið. Hún var því allt- af að bjóða mér eitthvað eða að reyna að gefa mér pening svo að ég gæti keypt mér eitthvað að borða. En auð- vitað var ég ekki að tærast upp; því fór fjarri! En ég man hvað ég var snortin af hugulsemi hennar ömmu minnar og ástúð hennar í minn garð. Ég er gæfusöm að hafa átt ömmu eins og hana Maren ömmu og ég er hreyk- in af að heita í höfuðið á henni. Guð blessi þig og varðveiti, elsku amma mín. Þín dótturdóttir Anna-Maren Ashford. Amma Maren var ólýsanlega góð. Ég einfaldlega dýrkaði það að fara í heimsókn til hennar. Ég elskaði hana mjög mikið, hún var svo hlý, góð og falleg. Hún hugsaði vel um allt og alla. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka, þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Sigurður Victor Kiernan. Amma Maren var besta amma í heimi. Mér þótti rosalega vænt um hana. Nú er hún komin til himna til afa Stanley og systra sinna og hittir þau aftur. Guð blessi þig, amma. Þín ömmustelpa, Sonja Rún. Maren Níelsdóttir Kiernan átti sér fáa líka og þakklátur er ég fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Elst þriggja alsystra, sjálfstæð og einbeitt hóf hún snemma lífsbaráttuna, lengi ein með jafnaldra systur sinni en fjarri móður, yngstu systur og föður. Margar voru sögurnar sem hún hafði að segja úr sveitinni og ómæld hafði gleðin verið þegar faðir hennar heim- sótti hana gangandi norður yfir fjöll- in, með súkkulaði eða brjóstsykur í poka. Þá vakti ilmurinn af appelsín- um ávallt ljúfar og þöglar minningar liðinna tíma. Maren komst í Kvenna- skólann á Blönduósi og eftir það var leiðin greið suður, heim til móður og systra. Hún var glæsileg kona sem fór ekki alltaf troðnar slóðir og hafði ósjaldan gaman af því að ögra sínum nánustu. Það stóð ef til vill knappt, en Stanley kom, sá og sigraði og það voru afar glæsileg hjón sem lögðu í lífsferðalagið saman. Erlendur maki var ekki eins algengur á Íslandi þá og nú og sérstakir persónuleikar Stanl- eys ásamt dugnaði, útsjónar- og elju- semi Marenar unnu á flestum þol- raunum. Misbjart var yfir fyrstu árunum eins og gengur, en fjölskyld- an stækkaði hratt og börnin urðu sex. Kæra Maren, af einlægni, með opnum huga og þínum orðskýringum tókstu á móti mér inn í fjölskylduna fyrir rúmum 30 árum. Yfir kaffibolla eða margréttuðum máltíðum við eld- húsborðið þitt var oft tekið á málefn- um líðandi stundar og reynt að hafa gaman af. Eldhúsið var miðstöð húss- ins þar sem óskir barna og barna- barna í móður- og ömmuumhyggju að ógleymdum mat og drykk voru upp- fylltar. Já, börnin mín munu ekki gleyma góðu stundunum með ömmu sinni. Af ástúð og sem fjölskylduklett- ur studdir þú á ýmsan hátt við bakið á þínu fólki, hérlendis sem erlendis, með peningum, barnagæslu og jafn- vel matarkaupum. Það er margs að minnast úr sam- eiginlegu ferðalagi okkar og víða hef- ur verið stoppað utan heimilisins, m.a. í Malaga, Mousehole og á Möðrudal. En flestar voru stundirnar í eldhús- inu að ógleymdum garðinum þínum. Það var um margt að hugsa svo garð- urinn fengi sín best notið og oft þurfti að færa blóm, tré eða jafnvel runna svo því liði betur. Garðurinn og blóm- in voru þitt yndi og báru vott og ár- angur góðrar umhyggju. Og við vor- um sammála um að sömu umönnunar yrðu afkvæmi mannlegrar náttúru að njóta, óháð því hvort þau þjáðust af grimmd, geðveiki, öfund eða græðgi. Með kómískri glettni varstu mér sammála fyrir nokkrum misserum, að fáar steinvölurnar yrðu á lofti í fjöl- skyldu þinni ef fara ætti eftir text- anum „sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum“. Árin hafa liðið hratt og óneitanlega hafa síðustu árin hjá þér borið merki sorgar og depurðar. Ég minnist síð- ustu heimsóknar okkar Stellu og Hrefnu Marínar til þín. Á kveðju- stundinni í anddyrinu, tókstu kipp, skaust inn í lyftuna til okkar og sagðir af þinni einlægni við starfsstúlkuna á Hrafnistu: „Komdu, komdu bara líka.“ Eins og svo oft áður ætlaðir þú með okkur því öryggið fannstu hjá Stellu. Kæra Maren, það er komið skarð í hópinn, en minningin lifir. Takk fyrir samfylgdina. Sigurður Jónasson. Í dag fylgjum við Möllu á sjö síð- asta spölinn. Það var fyrir röskum fjörutíu árum að hingað í Teigagerðið flutti stór fjölskylda, Kiernan. Margir áttu erfitt með að muna nafnið. Fljót- lega eignuðust börnin góða vini í þessari fjölskyldu og Malla varð besta konan í götunni, hún átti sín töfra- meðul sem löðuðu að. Mínir drengir áttu margar góðar stundir á sjö. Þó ber hæst fimmtugsafmælið hennar. Þá bauð hún bestu vinum sínum í göt- unni til veislu sem stóð fram yfir mið- nætti. Við hér á tólf þökkum henni allt gamalt og gott. Sendum afkomendum hennar innilegar samúðarkveðjur. Guðbjörg. Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn, SINDRI SNÆR SIGURJÓNSSON, Þingási 7, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut miðvikudaginn 31. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Lágafellskirkju í Mosfells- bæ fimmtudaginn 8. september kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast Sindra Snæs, er bent á minningarsjóð sem stofnaður hefur verið í hans nafni og mun verða ráðstafað úr til Barnaspítala Hringsins. Reiknisnúmer 0115-05-070603 og kennitala 210204-2370. Sigurjón Ólafsson, Ingibjörg Betty Bustillo, Karen Erla Kristófersdóttir, Steinar Frank Sigurjónsson, Sigurður Ýmir Sigurjónsson, Ólafur Árnason, Arnfríður Helga Valdimarsdóttir, Friðbjörn Berg. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRID PETRINE ANDREASEN, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 9. september kl. 16.00. Fyrir hönd aðstandenda, Brandur Danielsen, Ingun Simonsen, Johannes Simonsen, Signar Simonsen, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og vinur, JÓN SÆVAR JÓHANNSSON, Kleppsvegi 76, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 8. september kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurrós Sóley Jónsdóttir, Guðbjörg Anna Jónsdóttir, Páll Gísli Jónsson, Aðalheiður Ágústa Jónsdóttir, Kristbjörg Gunný Jónsdóttir, tengdabörn og barnabörn, Ragnheiður Ágústína Pálsdóttir. GUÐJÓN JÓHANN JÓHANNSSON, Reitarvegi 6, Stykkishólmi, andaðist á St. Franciskusspítalanum í Stykkis- hólmi aðfaranótt þriðjudagsins 6. september. Aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR H. KJÆRNESTED skipherra, Þorfinnsgötu 8, lést föstudaginn 2. september. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju þriðju- daginn 13. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast Guðmundar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins, sími 543 3724. Margrét Símonardóttir Kjærnested, Símon Ingi Kjærnested, Elínborg S. Kjærnested, Örn Kjærnested, Hildur Einarsdóttir, Helgi Stefnir Kjærnested, Soffía Lárusdóttir, Margrét Halldóra Kjærnested, Pétur Eggert Oddsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.