Morgunblaðið - 07.09.2005, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„UM SÍKIÐ sveima og læt mig
dreyma um gondóla,“ segir í texta
við Stuðmannalagið „Söng fjallkon-
unnar“ en segja má að textinn hafi
ræst sl. helgi þegar Stuðmenn sóttu
Feneyjar heim. Hátt í tvö hundruð
Íslendingar fylgdu þeim og tóku
þátt í galaveislu og grímudansleik í
14. aldar byggingu. Þetta var alvöru
ferð með alvöru Íslendingum. Það
var partístemmning í flugvélinni og
klappað þegar vélin lenti á Marco
Polo-flugvellinum í Feneyjum um
miðjan dag sl. föstudag. Bílrúðan
sem þurfti að skafa þegar lagt var
af stað frá Íslandi gleymdist fljótt í
29 stiga hita og barinn við hliðina á
hótelinu fékk strax viðurnefnið
„næsti bar“. Gott að hafa örnefnin á
hreinu þegar maður er á erlendri
grundu.
Það tók lengri tíma að útskýra
fyrir Íslendingi sem ekki tilheyrði
hópnum að Stuðmenn væru í alvör-
unni komnir til Feneyja til að spila á
dansleik. „Hver skipuleggur þetta?“
spurði hann undrandi og við út-
skýrðum að ferðaskrifstofan Príma
Embla hefði haft samband við Stuð-
menn og nú væri brjálæðisleg hug-
mynd orðin að veruleika.
Stuðmenn voru ekki einu stór-
stjörnurnar sem heimsóttu Fen-
eyjar þessa helgi. Alþjóðleg kvik-
myndahátíð setti sinn svip á
eyjarnar. Jeremy Irons heilsaði
kumpánlega við morgunverð-
arborðið og Renée Zellweger
splæsti vatni á lífverðina sína á
„næsta bar“. Sagan segir að hún
hafi hreinlega reynt við (þ.e. verið á
sama stað á sama tíma) Ásgeir Ósk-
arsson, trommuleikara Stuðmanna,
sem var einmitt við barinn að sækja
drykki fyrir sig og konuna sína. „Ég
vissi nú bara ekkert hver þetta var,“
sagði Ásgeir í samtali við Morg-
unblaðið og kannski ekki að furða
enda leit Zellweger út fyrir að vera
u.þ.b. 50 kílóum léttari en hún var í
hlutverki Birgittu Jóns (e. Bridget
Jones). Þegar Íslendingar rákust
hver á annan á förnum vegi ræddu
þeir auðvitað hvaða fræga fólk þeir
„hittu“ yfir daginn og ætla má að Ís-
landsvinum hafi fjölgað til muna.
Dansað eins lengi og mátti
Galakvöldverðurinn og dansleik-
urinn á eftir heppnaðist einstaklega
vel. Fólk var uppstrílað og margir
höfðu leigt sér búninga fyrir til-
efnið. Allir fengu grímur til að bera
og þjónustan var í samræmi við um-
gjörðina. Dansað var eins lengi og
dansa mátti en þegar búið var að
klappa Stuðmenn þrisvar sinnum
upp höfðu borist jafn margar kvart-
anir enda er víst bannað að leika
músík eftir miðnætti í Feneyjum.
Aðspurður um stemmninguna í
ferðinni sagði Jakob Frímann
Magnússon hljómborðsleikari að
þetta væri ein skemmtilegasta ferð
sem Stuðmenn hefðu farið enda
borgin glæsileg sem og föruneytið.
Ekki er ofsögum sagt að allir aðrir
Feneyjafarar hafi verið á sama máli
enda var bros á nánast hverju and-
liti þegar haldið var heim á leið
seint á sunnudagskvöld.
Fólk | Grallararnir í Stuðmönnum heimsóttu Feneyjar um helgina og Morgunblaðið
Sveimað um síki
Ljósmynd/Tómas Tómasson
Fólk var uppstrílað og margir höfðu leigt sér búninga fyrir tilefnið. Allir fengu grímur til að bera og þjónustan var í samræmi við umgjörðina.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
MÉR finnst það flott hugmynd að
fimm villikettir stofni saman hljóm-
sveit. Guli kötturinn á trommunum er
í uppáhaldi því ég ætla sjálfur bráð-
um að læra á trommur. Mér finnst
þetta góður diskur, lögin fjörug og
skemmtileg og textarnir líka. Mér
fannst gaman að heyra
um líf villikatta, ég vissi
ekki að það væri svona.
Söngurinn er oftast
mjög töffaralegur,
enda eru þessir villikettir algjörir
töffarar. Mér finnst líka gott að ég
heyri vel hvað söngvararnir segja, en
ég þoli ekki að hlusta á tónlist þar
sem orðin eru óskýr. Og af því það er
rím í textunum er ég fljótur að læra
þá og get sungið með. Ég hélt reynd-
ar þegar ég byrjaði að hlusta á þenn-
an disk að lögin ættu bara að vera um
ketti og varð því svolítið hissa þegar
þessir villikettir fóru að syngja um
mjög skrýtið fólk eins og Kokteil-
sósukonuna og heimskasta krakka í
heimi. En það kom bara skemmtilega
á óvart og villikettirnir hljóta þá að
hafa kynnst þessu undarlega fólki.
Mér finnst líka allskonar svona auka-
hljóð, eins og flautið, klappið, hrot-
urnar og mjálmið sem er í sumum
lögunum, mjög flott. Söngvarinn fer
líka að gráta í lokin á einu laginu,
„Öskurbörnin“, enda er það ekkert
skrýtið því sá köttur hitti svo hræði-
lega vonda krakka sem fara illa með
villiketti. Mér finnst óþægilegt að vita
að krakkar geti verið svona vondir við
kisur og ef ég sæi öskurkrakka pína
kisu myndi ég sko hlaupa og bjarga
henni. Ég vissi ekki heldur að fólk
sviki kisurnar sínar og henti þeim út
fyrir jólin, þó þeir skíti í sófann og éti
páfagaukinn á heimilinu, eins og sagt
er frá í laginu „Öskutunnublús“, en
það lag finnst mér alveg fullkomið,
takturinn og söngurinn finnst mér
flottur og ég skil köttinn í því lagi svo
vel, af því ég er sjálfur svona óarga-
dýr inni í mér eins og hann. Lagið
„Göturæsisrottur“ finnst mér líka
frábært og það er gott að dansa við
taktinn í laginu um „Garpinn Guð-
mund“. Lagið um erfðagenabreyttu
fjölskylduna minnti mig dálítið á ein-
hver lög á Abba babb-diskinum hans
Doktors Gunna, sérstaklega söng-
urinn, en það er samt allt í lagi. Ég
var mjög hrifinn af síðasta laginu á
diskinum, „Sofa börnin undir sæng“,
sem er allt öðruvísi en öll hin, miklu
rólegra, eiginlega vögguvísa þar sem
er til dæmis sagt frá glæpamönnum
sem þurfa að sofa alveg eins og allt
annað fólk. Ég ætla að láta mömmu
læra þetta lag svo hún geti sungið það
fyrir mig á kvöldin áður en ég fer að
sofa.
Töffaradiskur
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Lög við vísur eftir Davíð Þór Jónsson.
Hljóðfæraleikur: Hljómsveitin Buff og
gestir. Myndskreyting: Lóa Hjálmtýsdótt-
ir. Útgefandi: 21 12 CC.
Villikettirnir – Kristinn Ingvarsson, sjö ára.
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim allan.
Sýnd kl. 4 ísl tal
Sýnd kl. 8 og 10.20
kl. 4 og 6 Í þrívíddSýnd kl. 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.45, 8, 10.20 B.i 10 ára
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
BESTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
H.J. / Mbl.. . l.
O.H.H. / DV
H.J. / Mbl.
. . . /
. . / l.
Sýnd kl. 8 og 10
Sími 564 0000
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i 16 ára
ÞEGAR EKKI ER
MEIRA PLÁSS Í
HELVÍTI MUNU
HINIR DAUÐU
RÁFA UM
JÖRÐINA
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
Miðasala opnar kl. 15.15
kl. 5.50, 8 og 10.10
O.H.H. / DV
H.J. / Mbl.
. . . /
. . / l.
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
Sýnd kl. 6 ísl tal
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 5.50 og 10
KVIKMYNDIR.COM
S.K. DV
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
KVIKMYNDIR.IS
TOPPFIMM.IS
DV
KVIKMYNDIR.IS