Morgunblaðið - 07.09.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 43
var með í för ásamt tvö hundruð Íslendingum
ÞEGAR hljómsveit er flutt til út-
landa fylgir henni gríðarlegur far-
angur. Í Feneyjaferðinni fylgdi
Stuðmönnum eitt tonn og fjórir pilt-
ar önnuðust flutninginn. Blaðamað-
ur Morgunblaðsins náði tali af þeim
þegar þeir sátu í nýju sjóarafötunum
sínum á kaffihúsi á sunnudag að
skipuleggja flutning dótsins aftur á
flugvöllinn. Leiðtoginn gengur undir
nafninu Gunni hljóðmeistari en slíkir
menn eru aldrei kynntir með fullu
nafni. Gunni er maðurinn sem fylgir
Stuðmönnum hvert á land sem er og
til annarra landa ef því er að skipta.
Hvernig er að starfa með Stuð-
mönnum?
Gunni: Það er ágætt. Þetta eru
skemmtilegir karlar en við þurfum
að hugsa rosalega vel um þá.
Hvert er uppáhalds Stuð-
mannalagið þitt?
Gunni: Þau eru nú öll frekar leið-
inleg.
Tómas Tómasson, bassaleikari:
Er það ekki lagið hans Jakobs:
„Stuðmenn munu nú taka sér stutt
hlé …“
Hvað gerir hljóðmeistari?
Gunni: Ég sé um að þessir fögru
tónar komist til skila.
Er gott Stuðmannaball þá þér að
þakka?
Gunni: Já, eingöngu.
Er eitthvert Stuðmannaball sem
stendur upp úr?
Gunni: Royal [Albert Hall í Lond-
on] var ágætt, Pétursborg var mjög
góð en Bolungarvík var sérstaklega
skemmtileg.
Hver er uppáhalds Stuðmaðurinn
þinn?
Gunni: Það er Tommi.
Tómas réttir honum nokkrar evr-
ur undir borðið og þakkar fyrir.
Þegar reikningurinn kemur biður
Tommi Gunna um peningana til
baka og segir að hann megi alveg
segja að Jakob sé uppáhalds Stuð-
maðurinn.
En eru Stuðmenn orðnir þreytt-
ir?
Gunni: Nei, langt í frá. Ég kem
þeim alltaf á fætur.
Blaðamaður ákveður að snúa sér
að fleiri hljómsveitarmeðlimum.
Þórður [Árnason, gítarleikari],
hvernig var að „gigga“ í Feneyjum?
(Óræð þögn)
Jæja, Tómas, hvernig var að
gigga í Feneyjum?
Tómas: Þetta var ofboðslega
gaman þegar giggið var búið. Nei,
þetta var frábært. Þetta var svo
skemmtilegur hópur. Mér myndi
sjálfum aldrei detta í hug að elta
Stuðmenn. Þeir eiga eftir að sjá það
þegar ég verð rekinn.
Eru Stuðmenn orðnir þreyttir?
Tómas: Ekki ég, en allir hinir eru
afskaplega slappir. Ég var t.d. kom-
inn á fætur kl. sjö í morgun til að
hitta alla frægu leikarana í morg-
unverðinum.
Og hittirðu einhverja fræga?
Tómas: Nei, þeir sváfu allir yfir
sig. En ég hitti aftur á móti af-
skaplega skemmtilegan japanskan
túristahóp við morgunverðarborðið.
Ákaflega vandað fólk í alla staði. En
Ásgeir [Óskarsson, trommuleikari]
sem svaf yfir sig hitti Donald Suth-
erland.
Snúum okkur að þér, Þórður,
hvert er uppáhalds Stuðmannalagið
þitt?
(Þögn)
En þitt, Tommi?
Tómas: Það hlýtur að vera eftir
mig. Ég samdi einu sinni þrjú ör-lög
fyrir Þjóðleikhúshátíð.
Hvað með þig, Geiri?
Ásgeir: Þau eru öll svo góð að ég
get eiginlega ekki nefnt eitthvað
eitt.
Að lokum urðu þeir þó sammála
um að Sísí fríkar úti hlyti að vera
einna skemmtilegast enda mjög oft
lokalag hljómsveitarinnar.
Morgunblaðið/Halla Gunnarsdóttir
Gunni hljóðmaður (lengst til vinstri) sá til þess að sínir menn væru klæddir í samræmi við staðsetninguna.
Mennirnir sem eru á
bak við Stuðmenn
1. „A Day in the Life“ – The Beatles
2. „Waterloo Sunset“ – The Kinks
3. „Wonderwall“ – Oasis
4. „God Save the Queen“ – Sex Pistols
5. „Bohemian Rhapsody“ – Queen
6. „My Generation“ – The Who
7. „Angels“ – Robbie Williams
8. „Life on Mars“ – David Bowie
9. „Sympathy for the Devil“ – The Rolling Stones
10. „Unfinished Sympathy“ – Massive Attack
TOPP TÍU
LAG The Beatles, „A Day in the
Life“, var valið besta breska lag
allra tíma í úttekt tónlistar-
tímaritsins Q, en það birti á dög-
unum lista yfir 50 „þjóðsöngva“
bresku þjóðarinnar. Þetta lag
Lennons og McCartneys var sett á
toppinn, en á listanum kennir ým-
issa grasa, misnýrra. „Waterloo
Sunset“ eftir Ray gamla Davies í
The Kinks vermir annað sætið og
bræðurnir í Oasis eru í þriðja sæti
með vinsælasta lag sitt, „Wonder-
wall“. Þá er lagið „Take Me Out“
með Íslandsvinunum í Franz
Ferdinand í 34. sæti, „Karma Pol-
ice“ með Radiohead í því 40.,
„Maggie May“ með Rod Stewart í
46. sæti, „Girls and Boys“ með
Blur í því 26. og „Come on Eileen“
með Dexy’s Midnight Runners í
23. sæti. „The Scientist“ með
Chris Martin og félögum í
Coldplay er númer 20 og „Com-
fortably Numb“ með Pink Floyd í
18. sæti.
Tónlist | Leitað að þjóðsöngvum
Dagur í lífi Lennons
besta lag Breta
Þessi mynd af The Beatles var tekin í janúar 1967, en í þeim mánuði las
Lennon tvær fréttir í The Daily Mail sem vöktu athygli hans. Önnur fjallaði
um dauða Tara Browne, erfingja Guinnes-veldisins og kunningja Bítlanna,
sem lést í bílslysi í Kensington í London. Hin var um áætlun bæjaryfirvalda
um að fylla 4.000 holur í veginum í Blackburn í Lancashire. Hann fléttaði
þessar tvær sögur inn í lagið „A Day in the Life“, sem kom út á plötunni
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band seinna sama ár.
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu
Miðasala opnar kl. 17.15
Sími 551 9000
Sýnd kl. 5.30 B.i.14 ára
Sýnd kl. 8 B.i 10 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
H.J. / Mbl.. . l.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i 10 ára
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í
USA OG
ÍSLANDI
I
I Í
Í I
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
H.J. / Mbl.. . l.
O.H.H. / DV. . . /
H.J. / Mbl.. . / l.
Sýnd kl. 6 ísl tal
☎553 2075
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i 16 ára
ÞEGAR EKKI ER
MEIRA PLÁSS Í
HELVÍTI MUNU
HINIR DAUÐU
RÁFA UM
JÖRÐINA
MEISTARI
HROLLVEKJUNNAR
SNÝR AFTUR
TIL AÐ HRÆÐA
ÚR OKKUR
LÍFTÓRUNA
ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA!
Sýnd kl. 8 og 10.30 Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 6 Í þrívídd Sýnd kl. 6 ísl tal
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
TOPPFIMM.IS
DV
KVIKMYNDIR.IS