Morgunblaðið - 24.09.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 258. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sér veröldina
í formum
Þórdís Zoëga hönnuður talar við
efnin sem hún notar | 32
Lesbók | Svarta herbergið Eros Nútímahúsgögn Börn | Í réttum
Gátur Teiknimyndir Verðlaunaleikur Íþróttir | Bikarúrslitaleikurinn
í dag Enski | „Er rosalega mikið efni“ Ekki fyrir hjartveika
„ÉG ÆTLAÐI ekki að gefast upp. Ég ætlaði
ekki að vera neitt fórnarlamb. Þeir eiga að
vera fórnarlömbin, ekki ég,“ segir kona sem
vann í vikunni einkamál í Hæstarétti gegn
þremur mönnum sem nauðguðu henni í ágúst
árið 2002. Voru mennirnir dæmdir til að
greiða henni 1,1 milljón króna í miskabætur.
„Það eru þeir sem eiga að þjást. Það eru þeir
sem eiga að loka sig inni, ekki ég.“
Ríkissaksóknari ákvað að ákæra mennina
ekki á sínum tíma og var það mikið áfall fyrir
konuna sem segist þá hafa upplifað gríðarlega
höfnun. Ástæða þess að mennirnir voru ekki
ákærðir var sú að rannsókn lögreglu á málinu
var ábótavant. Mennirnir þrír voru ekki færð-
ir til yfirheyrslu strax og ekki á sama tíma og
segir lögreglan ástæðuna þá að hún hafi verið
upptekin af rannsókn líkamsárásar sem fram-
in var um sömu helgi. Atli Gíslason, lögmaður
konunnar, segir það bera vott um að lög-
reglan hafi talið mál konunnar léttvægara en
líkamsárásina. Segir hann rannsókn málsins
hafa misfarist og sérstaklega að tengja nauðg-
unina við þær miklu sálrænu afleiðingar sem
hún hafði. Telur hann ofuráherslu nauðgunar-
rannsókna á líkamlega áverka í stað þeirra
sálrænu alvarlegt mál sem þurfi að lagfæra.
Glóðarauga sé litið alvarlegri augum en sár á
sálinni sem taki áratugi að gróa ef þau grói á
annað borð. „Afleiðingarnar eru jafn aug-
ljósar þó að þær komi ekki fram í mar-
blettum,“ segir hann og bendir á að aðeins um
20% kvenna sem sé nauðgað beri líkamlega
áverka.
Þá segist hann mótfallinn boðskap slagorðs-
ins „nei þýðir nei“ sem hamrað hafi verið á
undanfarin ár hér á landi, en ein helsta vörn
ofbeldismannanna hafi verið sú að konan hafi
ekki sagt „nei“ þegar þeir nauðguðu henni og
að það hafi falið í sér samþykki hennar.
Til bóta að sækja málið
Konan segir þá upplifun að ganga í gegnum
málaferlin hafa hjálpað sér að vinna sig út úr
áfallinu sem nauðgunin olli. „Nú fer maður að
lifa lífinu,“ segir hún. „Þetta tók þrjú löng ár,
það er alltof langur tími, en svona er kerfið.“
Konan segist frá upphafi hafa verið vongóð
um að vinna einkamálið gegn ofbeldismönn-
unum. „Ég vonaði alltaf að einhver myndi
hlusta,“ segir hún um þá ákvörðun að höfða
málið.
Lögreglan of upptekin af líkamsárás til að sinna nauðgunarmáli
„Þeir eiga að vera
fórnarlömbin – ekki ég“
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Hræðslan | Miðopna
HELDUR dró úr styrk fellibylsins
Rítu í gærkvöldi, en búist var við
að hann tæki land við strendur
Texas í morgun. Var Ríta þá metin
sem þriðja stigs fellibylur á Saffir-
Simpson-mælikvarðanum og náði
vindhraðinn í hviðum hennar 201
km/klst. Þrjár milljónir manna
höfðu flúið heimili sín í Texas og
Louisiana og 24 eldri borgarar létu
lífið er kviknaði í rútu, sem flytja
átti þá frá hjúkrunarheimili í
öruggt skjól fyrir fellibylnum. Er
talið víst að kviknað hafi í út frá
súrefniskútum.
„Við munum komast í gegnum
þetta,“ sagði ríkisstjóri Texas,
Rick Perry. „Verið róleg, verið
sterk og biðjið fyrir Texas.“
Varnargarðar bresta
Aðeins örfáum dögum eftir að
náðst hafði að dæla öllu vatni burt
úr New Orleans brustu varnar-
garðar á 30 metra kafla við Pontch-
artrain-stöðuvatnið í New Orleans
með þeim afleiðingum að vatn
rennur á ný eftir götum borgarinn-
ar. Nýlega hafði verið bætt í
sprungur á görðunum, sem felli-
bylurinn Katrín olli í ágúst.
Verkfræðingar á vegum banda-
ríska hersins sögðu ekki víst að öll
borgin færi á kaf á ný. Ítrekuðu
þeir þó að varnargarðarnir réðu
aðeins við 15 cm hækkun á vatni.
Búist var við að Ríta myndi eyði-
leggja allt að 5.700 heimili og að
eyðileggingin yrði metin á rúma
500 milljarða króna.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sem er frá Texas, hafði
áformað að sækja ríkið heim í gær
en hætti við á síðustu stundu.
Ástæðan sem hann gaf fyrir
ákvörðun sinni var sú að hann vildi
ekki vera fyrir björgunarmönnum
sem væru í óða önn að búa ríkið
undir komu Rítu.
Þá höfðu þrjár milljónir manna
flúið heimili sín og langar bílaraðir
myndast. Sóttist umferðin seint og
fjöldi bíla ofhitnaði og varð bens-
ínlaus. Neyddust því margir til að
skilja bifreiðirnar eftir en snúa
sjálfir heim á ný. Aðrir ýttu bílum á
undan sér til að spara bensínið.
Reuters
Maður reynir að fjarlægja rusl af varnargarði við New Orleans, sem vatnið flæðir yfir. Gera átti tilraun til að hlaða sandpokum ofan á garðinn.
Flóðvarnargarðar að
bresta við New Orleans
Aukin bjartsýni eftir því sem dró úr krafti Rítu undan strönd Texas
Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur
jse@mbl.is
Jabaliya á Gaza. AP, AFP. | Fimmtán manns,
hið minnsta, þar á meðal tvö börn, létu lífið
og 83 særðust er pallbíll með heimagerðum
flugskeytum sprakk á fundi Hamasliða í Je-
baliya-flóttamannabúðunum á Gaza-svæð-
inu í gær. Á palli bílsins voru grímuklæddir
Hamasliðar sem voru að fagna brottflutn-
ingi Ísraela frá Gaza-svæðinu og vekja máls
á því að frá og með kvöldinu í kvöld stæði til
að þeir hættu að bera vopn á almannafæri.
Talið er að sprenginguna megi rekja til
þess að ekki hafi verið rétt farið með
sprengiefni á bílnum og því hafi flugskeytin
sprungið.
Vitni sagðist hafa séð mikinn reyk og
sundurtætt lík. Enginn hefði í fyrstu áttað
sig á því, hvað hefði gerst. Hamasliðar sök-
uðu í fyrstu stjórnvöld í Ísrael um að bera
ábyrgð á sprengingunni. Ísraelar neituðu
því og hafa palestínskar öryggissveitir stað-
fest, að um slys hafi verið að ræða.
Það var Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest-
ínumanna, sem hvatti herskáa Palestínu-
menn til að bera ekki vopn á almannafæri,
til að slá á ringulreið í landinu.
Reuters
Palestínumenn bera særðan ungling inn á
sjúkrahús eftir sprenginguna.
Fimmtán far-
ast í spreng-
ingu á Gaza
Tallinn. AFP. | Opinberar tölur í Eistlandi
benda til þess að einn af hverjum 100 Eist-
um á aldrinum 15–49 ára sé smitaður af
HIV-veirunni. Utan Afríku er útbreiðsla
veirunnar mest í þessu smáa ríki við
Eystrasalt. Skráð tilfelli HIV-smits voru
4.910 árið 2004 og 468 nýsmitaðir hafa
bæst í hópinn í ár. Um 1,4 milljónir manna
búa í landinu.
„Margir HIV-jákvæðir eru ekki skráðir í
Eistlandi, svo raunverulegur fjöldi smit-
aðra getur verið tvöfalt eða þrefalt meiri
en opinberar tölur gefa til kynna,“ segir
Jaak Aab, félagsmálaráðherra landsins.
Hnattrænu samtökin gegn alnæmi út-
hlutuðu Eistum í gær tæplega 385 millj-
ónum íslenskra króna til að berjast gegn
útbreiðslu HIV-veirunnar á næstu þremur
árum. Er þetta til viðbótar 250 milljónum
króna sem samtökin veittu Eistum til bar-
áttu við veiruna fyrir árin 2003 til 2005. Er
stefnt að því að komið verði í veg fyrir
frekari útbreiðslu hennar fyrir lok ársins
2007.
Útbreiðsla HIV er mest meðal ungs fólks
í Tallinn, höfuðborg landsins, og í austur-
hluta landsins, sem er að mestu byggður
Rússum. Um 65% þeirra sem smitaðir eru
af veirunni eru yngri en 25 ára og í hópi
nýskráðra tilfella á árinu var þriðjungur
konur, en þær voru í meirihluta meðal
smitaðra á aldrinum 15–19 ára.
Útbreiðsla HIV
mest í Eistlandi
♦♦♦
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag