Morgunblaðið - 24.09.2005, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LY
F
29
50
6
09
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum.
Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því
hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgi-
seðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt
er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings
ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins,
nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota
Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn.
Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Nýtt í Lyfju
Nicorette Freshmint 210 stk.
20% afsláttur í september
LÁTTU REYKLAUSA DRAUMINN
RÆTAST
AFSLÁTTURINN GILDIR AF FRESHMINT 210 STK. 2 MG og 4 MG.
CRAIG A. Davis, forstjóri og stjórnarfor-
maður Century Aluminum, móðurfyrirtækis
Norðuráls á Grundartanga, segir að þeim
hugnist afar vel að standa í viðskiptum hér á
landi og bindi vonir við að ráðast í frekari fjár-
festingar hér í framtíðinni.
Century Aluminum hélt stjórnarfund hér á
landi í vikunni og voru framkvæmdirnar við
stækkun verksmiðju fyrirtækisins á Grundar-
tanga skoðaðar og aðstæður í Helguvík á
Suðurnesjum, en fyrirtækið hefur undirritað
viljayfirlýsingu með Suðurnesjamönnum um
athugun á möguleikum á byggingu álvers þar,
eins og kunnugt er.
Könnun í Helguvík
Davis sagði í samtali við Morgunblaðið að
stækkun á verksmiðju fyrirtækisins á Grund-
artanga væri í fullum gangi. Verksmiðjan
hefði nú 90 þúsund tonna framleiðslugetu og
unnið væri að því að stækka hana í 212 þúsund
tonna framleiðslugetu á ári. Framkvæmdum
við þann áfanga yrði lokið um mitt næsta ár.
Síðan reiknuðu þeir með enn frekari stækkun
og að þegar upp yrði staðið myndi verk-
smiðjan geta afkastað 220 þúsund tonnum á
ári og sú framleiðslugeta ætti að nást árið
2007. Að auki hefði verið gengið frá samningi
við Orkuveitu Reykjavíkur um frekari stækk-
un verksmiðjunnar upp í 260 þúsund tonna
framleiðslugetu á ári, en sá samningur væri
háður fyrirvara um að Orkuveitan gæti útveg-
að viðbótarorku vegna þeirrar stækkunar tím-
anlega. Frekari stækkun verksmiðjunnar á
Grundartanga hefði ekki verið ákveðin enda
þyrfti nýtt mat á umhverfisáhrifum og nýja
orkusamninga til að það mætti gerast.
Davis bætti því við að þeir hefðu mikinn
áhuga á því að færa frekar út kvíarnar í starf-
semi fyrirtækisins hér á landi og hefðu því
undirritað viljayfirlýsingu með Suðurnesja-
mönnum um könnun á byggingu álvers í
Helguvík. Það mál væri á frumstigi og mikil
vinna framundan hvað varðaði þróun og undir-
búning verkefnisins áður en það kæmist á
ákvörðunarstig. Ef hins vegar það yrði niður-
staðan að ráðast í verkefnið færi eflaust vel á
því að framkvæmdir hæfust ekki fyrr en að
loknum þeim stórframkvæmdum sem nú
stæðu yfir hérlendis. Þannig mætti draga úr
þeirri niðursveiflu sem fyrirsjáanlega kæmi að
loknum svo miklum framkvæmdum.
Davis sagði að þeir hjá Century Aluminum
teldu að Ísland hentaði afar vel fyrir frekari
umsvif fyrirtækins. Þannig væri Ísland hlut-
fallslega lítið land og þeirra fyrirtæki væri
einnig lítið í hlutfalli við önnur fyrirtæki á
þessum markaði. Þetta færi því vel saman,
auk þess sem þeir hefðu mjög góða reynslu af
viðskiptum sínum hér á landi. Lykilatriðið
væri þó auðvitað að hér væri boðið upp á sam-
keppnishæft orkuverð. Síðan væri hér stöðugt
og jákvætt viðskiptaumhverfi og vel menntað
vinnuafl og að öllu þessu samanlögðu teldu
þeir Ísland afar heppilegan vettvang fyrir
frekari umsvif fyrirtækisins á sviði álfram-
leiðslu. Þar væri um gagnkvæman hag að
ræða að þeirra mati.
Lítið fyrirtæki
Davis benti á að Century Aluminum væri
lítið fyrirtæki og hefði ekki möguleika á að
leita jafnvíða fyrir sér og stórfyrirtækin á
þessum markaði, sem væru að skoða mögu-
leika til fjárfestinga út um allan heim. Þeir
yrðu hins vegar vegna smæðar fyrirtækisins
að einbeita sér að færri möguleikum og hefðu
gert það í gegnum tíðina, en reyndu jafnframt
að vera fljótir og einbeittir að grípa mögu-
leikana þegar þeir gæfust og að ákvarðana-
töku kæmi. Þannig hefði það til dæmis verið
þegar þeir hefðu keypt Norðurál af Keneth
Peterson í apríl í fyrra, en einungis mánuði
síðar eða í maímánuði hefði verið búið að
ákveða stækkun verksmiðjunnar úr 90 þúsund
tonnum í 212 þúsund tonn.
Century Alminum var gert að almennings-
hlutafélagi og skráð á Nasdaq-hlutabréfa-
markaðinn í New York árið 1996. Framan af
var fyrirtækið fyrst og fremst í úrvinnslu á áli,
en hefur í seinni tíð einbeitt sér að álfram-
leiðslu og báxít- og súrálsvinnslu.
Rúmlega 700 þúsund tonn
Davis sagði aðspurður það alveg rétt að ál-
verð á heimsmarkaði væri nú mjög hátt í
sögulegu samhengi eða um og yfir 1.900 dalir
tonnið á álmarkaðnum í London, eins og borið
hefur við að undanförnu. Álframleiðsla sé
sveiflukennd starfsemi en menn séu þó al-
mennt sammála um að þetta sé verulega yfir
jafnvægisverði á áli þegar til langs tíma sé lit-
ið. Almennt sé talið að álverð geti verið á
bilinu 1.400 dalir tonnið og upp undir 1.650
dalir þegar horft sé yfir lengri tímabil.
Davis ítrekar að fyrirtækið sé lítið á mæli-
kvarða margra annarra fyrirtækja í áliðnaði.
Þannig séu einungis sautján manns starfandi í
aðalstöðvum fyrirtækisins og raunar hafi þrír
þeirra bæst við á síðasta ári vegna fram-
kvæmdanna hér á landi og kaupa á súráls-
verksmiðju í Bandaríkjunum og báxítnámu á
Jamaíka, en þar sé fyrst og fremst um að
ræða bókara og endurskoðendur. Þegar
stækkunin hér sé komin í gagnið muni fyrir-
tækið framleiða rúmlega 700 þúsund tonn af
áli samanlagt í verksmiðjum fyrirtækisins í
Bandaríkjunum og hér á landi og þar af séu
rúmlega 200 þúsund tonn framleidd hjá
Norðuráli á Grundartanga.
„Við sjáum Ísland sem mjög góðan stað til
að standa í viðskiptum. Við höfum góða
reynslu af því að standa í viðskiptum hér og
erum áhugasamir um framhaldið,“ sagði hann
og bætir við að Norðurál hafi í raun verið
ávöxtur af frumkvöðulsstarfi Kenneths Peter-
sons, fyrrverandi eiganda fyrirtækisins. Þeir
hafi ákveðið að starfa áfram í sama anda og
hann og vilji að fyrirækið sé sem mest ís-
lenskt. Þannig sé bankafyrirgreiðsla vegna
stækkunarinnar fengin hjá íslenskum bönk-
um, notast sé við íslenska verkfræðinga og
hönnuði vegna stækkunarinnar og þannig
megi áfram telja. Þá sé nánast allt starfsfólk
fyrirtækisins íslenskt eða einungis tveir
starfsmenn af erlendum uppruna, sem fengnir
hafi verið vegna sérþekkingar og reynslu af
álframleiðslu.
Fram kom að hjá Norðuráli störfuðu um
200 manns áður en til stækkunarinnar kom.
Nú er búið að bæta við um 80 manns vegna
stækkunarinnar og á eftir að ráða 60–70
manns til viðbótar að fyrirtækinu.
Stjórn álfyrirtækisins Century Aluminum, eiganda Norðuráls, fundaði hér í vikunni
Áhugi á frekari
fjárfestingum hér á
landi í framtíðinni
Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, var með
stjórnarfund hér á landi í vikunni og voru aðstæður á
Grundartanga og í Helguvík skoðaðar. Craig A. Davis,
forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að þeir
séu áhugasamir um frekari fjárfestingar hér á landi.
Craig A. Davis, stjórnarformaður og forstjóri Century Aluminum, með Árna Sigfússyni, bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ, á vettvangi í Helguvík í vikunni þegar kannaðar voru aðstæður þar.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
LANDSVIRKJUN hyggst efna til
samkeppni um orkumál í grunnskól-
um landsins og í kjölfarið verður
fulltrúum grunnskólanema boðið að
taka þátt í að leggja hornstein að
Kárahnjúkavirkjun í vor.
Í bréfi til skólastjórnenda kemur
fram að Landsvirkjun hafi á undan-
förnum árum stutt vinnu við eflingu
á fræðslu um orku og orkumál í
grunnskólum. Í því sambandi er
minnst á námskeið fyrir kennara,
svonefnt Nordlab-verkefni, orkuvef,
orkuþing skóla og fræðsluvef Lands-
virkjunar. Hornsteinn verði lagður
að stærstu virkjun Íslandssögunnar,
Kárahnjúkavirkjun, í vor og bjóði
Landsvirkjun fulltrúum ungu kyn-
slóðarinnar að taka þátt í að leggja
hann. Til að velja þessa fulltrúa verði
efnt til samkeppni eftir áramót þar
sem nemendum verði boðið að vinna
verkefni tengd orkumálum og verði
þau sniðin að mismunandi aldurs-
stigum grunnskólans.
Nemendum í 1.–4. bekk verður
boðið að myndskreyta sögu eftir
Yrsu Sigurðardóttur, barnabókarit-
höfund og verkfræðing við Kára-
hnjúkavirkjun. Sagan leitast við að
svara spurningunni: Hvað er raf-
magn?
Nemendum í 5.–7. bekk verður
boðið að fjalla um raforkuvinnslu þar
sem ýmsir valkostir bjóðast.
Nemendum í 8.–10. bekk verður
boðið að gera kynningu um Kára-
hnjúkavirkjun og má nálgast verk-
efnið á ýmsan hátt.
Segir að um áróður sé að ræða
Ögmundur Jónasson alþingismað-
ur gagnrýnir þessa fyrirætlun á
heimasíðu sinni, segir að um áróður
sé að ræða og Landsvirkjun beri að
draga bréfið til baka.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að
norræna ráðherranefndin hafi átt
frumkvæði að Nordlab-hópnum þeg-
ar í ljós hafi komið að kennsla í raun-
greinum væri ekki nógu góð í sam-
anburði við gang mála í Singapúr.
Íslenski hópurinn hafi fengið það
verkefni að skoða hvernig orka og
orkumál ættu að koma betur inn í
raungreinakennslu. Þessi hópur hafi
haft frumkvæði að því að hafa sam-
band við Landsvirkjun, samstarfið
hafi staðið yfir í nokkur ár og sam-
keppnin á næsta ári sé í beinu fram-
haldi af því. Verkefnin séu enda í
mótun í samráði við skólafólk sem
hafi sinnt fræðslu um orkumál. „Við
viljum leggja upp efni sem skólarnir
geta nýtt sér og síðan er það hvers
og eins hvort þeir vilja taka þátt í
þessari samkeppni eða ekki,“ segir
hann.
Undirbýr samkeppni
um orkumál í skólum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann á fimmtugs-
aldri, Trausta Finnbogason, í
tveggja ára fangelsi fyrir ránstilraun
og líkamsárás, þjófnaði og fíkniefna-
brot. Þá var 18 ára gamall piltur
dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir aðild að ránstilraun-
inni. Þeir voru einnig dæmdir til að
greiða manni, sem þeir réðust á, 600
þúsund krónur í bætur.
Fram kemur í dómi héraðsdóms,
að Trausti hafi viðurkennt að hafa
ráðist á karlmann á sextugsaldri og
reynt að ræna hann peningum. Ját-
aði hann að hafa barið manninn með
kylfu í höfuðið en ekki oftar en einu
sinni eða tvisvar. Á höfði mannsins,
sem ráðist var á, voru sex skurðir
eftir högg og þótti dómnum ekki var-
hugavert að telja sannað að ákærði
hefði slegið hann sex sinnum í höf-
uðið með kylfunni. Ákærði á að baki
nokkurn sakaferil og hefur frá árinu
2000 hlotið fjóra refsidóma fyrir
hegningar- og fíkniefnalagabrot. Í
niðurstöðu dómsins segir m.a. að
ránsbrot ákærða hafi verið bæði
fruntalegt og hættulegt.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
dæmdi málið. Verjandi Trausta var
Örn Clausen hrl. og verjandi með-
ákærða Magnús B. Brynjólfsson hdl.
2 ára fang-
elsi fyrir
ránstilraun
og árás