Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 21

Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 21 ERLENT VERA Oskina fæddist inn í stóra fjölskyldu í Krasnojarsk-héraði í Síberíu og var ein sex systkina. Aðeins Osk- ina, ásamt einum bróður, komst til menntunar en hún er með kandídatsgráðu í félagsfræðum. Segist hún hafa tekið þátt í félagsstarfi af ýmsum toga frá því hún muni eftir sér. Hafi skírnar- nafn hennar, Vera, sem merkir trú, ætíð knúið hana áfram í leit að lausnum til handa þeim, sem höllum fæti standa og þurfa aðstoðar við. Með þessi baráttumál komst hún inn á rússneska þingið, dúmuna, þar sem hún berst nú fyrir aukinni þátttöku kvenna í stjórnmálum landsins. Hún segist fljótlega hafa áttað sig á því, eftir að hún hóf störf í dúmunni, að til þess að finna lausn við fjölmörgum vandamálum sam- félagsins þurfi kvenlegt innsæi. Því hafi hún séð sig knúna til að vinna markvisst að því að fá fleiri konur til starfa í stjórnmálum. Oskina segir konur aðeins vera einn tíunda hluta af stjórnmála- mönnum Rússlands, á meðan þær eru um þriðjungur hér á landi. ,,Í Suður-Kákasusfjöllum er hlut- fallið jafnvel enn minna, allt niður í 5%,“ segir hún. ,,Ég veit ekki ná- kvæmlega hvernig þessu er háttað um allt Rússland en ég veit hver staðan er í Krasnojarsk-héraði sem ég er fulltrúi fyr- ir. Þar er stjórnmála- þátttaka kvenna mjög lítil. Af 57 borgar- stjórum í héraðinu er til að mynda aðeins ein kona.“ Oskina upplýsir blaðamann um það, að Krasnojarsk sé ekki neitt smáhérað, það sé meira en 20-sinnum stærra en Ísland og þar búi þrjár milljónir manna. ,,Það hefur samt myndast hefð fyrir því í rússneskum stjórnmálum að konur fari með félagsmál. Það er í raun litið svo á, að málefni fjöl- skyldu, heilbrigðis-, menntunar og menningar séu kvenna en ekki karlmanna að sjá um. Viðskipti og fjármál eru hins vegar í höndum karlanna. Af 29 sérnefndum dúm- unnar eru fjórar þar sem konur stjórna; heilbrigðis-, æskulýðs-, fjölskyldu- og umhverfisnefnd. Oskina segir karlmenn vera í flest- um ráðandi stöðum í ríkisstjórn Rússlands en líklega séu konur í einhverjum tilfellum varamenn. Segist hún fyrst og fremst vinna að því að fá konur í landinu til að kjósa konur og treysta konum til að taka pólitískar ákvarðanir. Vanda- málið sé ekki það að í Rússlandi finnist ekki konur til að sinna stjórnmálum, vandinn sé hins vegar að fá þær kosnar inn á þing. Liggur vandinn hugsanlega í því að kjörsókn sé minni meðal kvenna en karla? ,,Nei, ég tel víst að konur séu meirihluti kjósenda. Vandinn liggur hreinlega í hefðinni. Í Rússlandi er mjög sterk fjölskylduhefð og það er viðtekin skoðun, að konan eigi að vera heimavinnandi og sjá um börnin. Það er líka mikill ótti við femínisma í landinu, því þar er þetta tiltölulega nýtt fyrirbæri. Margir setja enn samasemmerki á milli þess að vera femínisti og að hata karlmenn. Nei, vandinn er að fá konur í landinu til að brjóta þessa fjölskylduhefð og leyfa kon- um að taka þátt í stjórnmálum landsins, annars breytist ekki neitt. Við þurfum að fá konur til að kjósa konur.“ Oskina segist halda námskeið, fundi og erindi fyrir konur vítt og breitt um Rússland þar sem hún hvetji þær til að styðja aðrar konur í stjórnmálum. Markmið sé að sýna þeim fram á, að karlmenn geti ekki leyst öll mál einir, konur þurfi líka að taka þátt og láta sína rödd heyr- ast. ,,Kynin hafa einfaldlega misjöfn áhugamál og innsæi og við verðum að láta báðar raddirnar heyrast, annars stöðnum við,“ sagði Vera Oskina að lokum. Jafnréttisnefnd Evrópuráðsins hélt fund hér á landi fyrr í mánuðinum. Vera Oskina, þingkona frá Rússlandi, var ein þeirra, sem hann sátu. Jóhanna Sesselja Erludóttir ræddi við hana og fékk að vita hvernig unnið er að því að fá konur til að taka þátt í rússneskum stjórnmálum. Konur þurfa að kjósa konur Vera Oskina London. AP. | Ekkja eins mannanna fjögurra, sem frömdu hryðjuverkin í London 7. júlí síðastliðinn, sagði í gær í viðtali við breska dagblaðið Sun, að róttækum múslímum hefði tekist að eitra hug hans. Samantha Lewthwaite sagði, að maður hennar, Jermaine Lindsay, hefði verið tíður gestur í moskum víða á Englandi en bæði höfðu þau snúist til íslamstrúar. „Það er skelfilegt að hugsa til þess, að þessum mönnum skyldi hafa tekist að eitra allt hans sálarlíf. Hann, sem var svo saklaus, allt að því barnalegur. Líklega hefur hann verið auðveld bráð,“ sagði Lewth- waite. Talið er, að Lindsay hafi sprengt sprengju sem varð 26 manns að bana. Aðeins hálfum mánuði eftir hryðjuverkin ól Lewthwaite manni sínum dóttur en fyrir áttu þau son á öðru ári. „Að því kemur, að ég verð að segja þeim hvað hann gerði,“ sagði Lewthwaite. AP Kona með dagblaðið The Sun en á forsíðunni er mynd af Samönthu Lewthwaite með unga dóttur sína. „Líklega hefur hann verið auð- veld bráð“ HOLLENSKI sólarbíllinn Nuna 3 er talinn sigurstranglegastur í keppni sólarbíla sem hefst í Ástralíu um helgina. Hollenska keppnisliðið sigraði í tveimur síðustu keppnum, á árunum 2001 og 2003. Í síðari keppninni setti liðið met, ók um 3.000 leið þvert yfir Ástralíu á 30 klst. og 54 mínútum.          & !     '  ! ('$   ) !&   $ $  *!   (  + , -  . / ' '-  !            $)-4 ",- /5<,B-4 "0' $7 'C>-= /3''-' ,I 40",4-= ", ;" )) ) 6 4 7", ;@6 '' " ' 6G)) ' $7 6$0)* 4'5= 4 " ' 6@) 4 $7 =37-6"7) ", 36*-0$,, ) ", '$) 4 ) 6 4 5!*"4 /, 4 ;@6 ' "= *",4-, = = ! 66 "0) , , 0/6"46- )E,! B6 ,6>B ' !C> 0 ,  ;, -) $7 061 <5))-= B6/6 4 ", '$)-4 ) 6 4 ;,"E) B67" 6-' @ , 0= 7' $7 !'C> ; 0," 4 ' 010 9$66"'!-, B6 ,;@661 7, 4 @ !"..' '' 5 5,-'-=  $7 23*0.456 7 ! "8*9:0* ;<! .10499 =! *000>9**" ?<@! 3:>*AB9:02A ;7<?! B69121A @;?! .*3:.* 49"  ;! >.0*C864*A*.   ! .9D:0    9,A49" + 9E!       ,!= 4 4 ="4 !"..' '' ", 4 / '' $7 =@4 ;@6 "= /A7) ", 4 ! <*",) E0 , O), 6@- ="4 B6 ,$,!-'' " '' : ;E,>-' ="7 ;@6 ,' , "!! *", ="4 =" , "'  !@6B*3)) 0 $,!- @ , 0/634-'-= "..' ' /"0) !61 01/1 5 -''- 7 4 ) 4 ,)@= J!61 1 5 6 -7 , 7 4 @61K ?!-="'' <-,0 4 '"= ) 4 , 5 >3 )34-= $7 ="7 "!! ! 6"'7-, "' ) 6 !61  "1/1 4 ) 4 ,)@= Hollenskum sólarbíl spáð sigri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.