Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 29 MINNSTAÐUR Selfoss | „Það má segja að bókin og diskurinn séu fræðslu- og skemmti- efni fyrir börn á öllum aldri til að kenna þeim um dagana og hvernig tíminn líður. Einnig til að kenna þeim að bera virðingu fyrir hvert öðru og náttúrunni,“ segir Kristín Björk Jó- hannsdóttir þroskaþjálfi og kennari sem ásamt Guðrúnu Þórarinsdóttur sérkennara hefur sent frá sér bókina og hljóðdiskinn Dagasögur. Þær starfa báðar við sérdeild Vallaskóla á Selfossi þar sem Kristín Björk er deildarstjóri. Efni bókarinnar og framsetning þess hefur verið að þróast hjá þeim undanfarin ár í kennslu og vinnu með börnum. Daga- sögur eru gerðar til að fræða börnin um vikudagana og athafnir daglegs lífs á lifandi og skemmtilegan hátt. Hver dagur á sinn gest sem kemur í heimsókn og flytur boðskap í tali og tónum. Sögurnar eru lesnar á hljóð- diskinum og umhverfishljóð ýta undir frjóa hugsun sem og myndirnar í bókinni. Lög og texta er auðvelt að læra og hrífa börnin með í söng og hreyfingu. Þá eru sögurnar hvetjandi fyrir málvitundina og þær ýta undir áhuga á lestri. Efni bókarinnar tekur mið af kenningu Howards Gardners um fjölgreind þar sem greind er skipt niður í átta svið. Dagasögur mæta mismunandi þörfum nemenda með því að nálgast efnistök á fjölbreyttan hátt. Þroskandi efni „Markmið okkar með þessu er að efla málþroska, tímaskilning og lífs- leikni barna og auka vellíðan þeirra um leið,“ segir Kristín Björk en bókin er tileinkuð dóttur hennar Hrafnhildi Guðmundsdóttur 13 ára sem er með hrörnunarsjúkdóm. Henni nýtist efni bókarinnar mjög vel þar sem hún er orðin blind vegna sjúkdómsins. Sem heilbrigt 5 ára barn tók Hrafnhildur þátt í að búa til efnið með móður sinni.„Þegar Hrafnhildur fór að finna fyrir sínum sjúkdómi þá hjálpuðu sögurnar henni að skynja hvernig tíminn líður og þannig veittu daga- gestirnir henni öryggiskennd. Það gerist í gegnum það að dagahugtökin verða hlutbundin í sögunum,“ segir Kristín Björk. „Það var okkur gott leiðarljós við gerð bókarinnar og lokafrágang að finna hvernig Hrafnhildur gat nýtt sér efni bókarinnar,“ segir Guðrún en hún og Kristín Björk hafa unnið að lokagerð efnisins undanfarin tvö ár. Afl tveggja fjölskyldna Sögumaður í bókinni er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson kennari og leik- ari og tónlistin er unnin af Ólafi Þór- arinssyni tónlistarmanni, bróður Guðrúnar, Björn bróðir þeirra samdi eitt lag og einnig kona Björns, Sigríð- ur Birna Guðjónsdóttir. Guðlaug Ólafsdóttir, dóttir Ólafs, syngur lögin ásamt Ólafi og Jóhönnu Ýr Jóhanns- dóttur sem er systir Kristínar Bjark- ar. Þannig kemur meginsköpun bók- arinnar frá afli tveggja fjölskyldna en Kristín Björk og Guðrún hafa verið mjög samhentar í sinni vinnu. Bókina og hljómdiskinn er hægt að panta á netfanginu dagasogur@vallaskoli.is. Efni fyrir öll börn Þær Kristín Björk og Guðrún hafa áður gefið út bókina Mál- og hreyfi- þjálfun sem mikið er notuð í skólum og segja þær Dagasögur vera hlið- arefni sem hafi þróast hjá þeim. Þær fengu styrk frá Kennarasambandinu til útgáfunnar og einnig frá Blindra- vinafélaginu. „Við viljum að þetta efni sé notað með börnum, bæði í kennslu og líka á heimilum. Efnið gefur marga möguleika til að spinna út frá með börnunum og það geta allir not- að þetta, bæði skólar og fjölskyldur. Þetta eru til dæmis góðar kvöldsögur til að skapa ró fyrir svefninn,“ segir Kristín Björk og báðar segjast þær hafa prófað efnið bæði í skólanum og heima og það virki vel. „Við höfum auðvitað notað þetta mest í okkar starfi í sérkennslunni þar sem það virkar mjög vel við að efla þroska og færni nemenda. Svo má nota þetta í almennri kennslu sem inngang eða kveikju að frekari vinnu í ýmsar áttir,“ segja þær Kristín Björk Jóhannsdóttir og Guðrún Þórarins- dóttir sérkennarar á Selfossi. Gefa út bókina og hljómdiskinn Dagasögur Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hróðugir útgefendur Vinkonurnar Guðrún Þórarinsdóttir og Kristín Björk Jóhannsdóttir með nýútkomnar Dagasögur, bók og hljómdisk. ÁRBORG Miðasölusími: 551 1200 Miðasala á netinu: www.leikhusid.is Frábær saga! Sýning í kvöld!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.