Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Átt þú réttu græjurnar?
Láttu áhugasama vita!
Glæsilegur blaðauki um atvinnubíla og vinnuvélar
fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 5. október.
Meðal efnis er:
Vinnuvélar - það nýjasta á markaðnum
Pallbílar - Græjur í bílana - Varahlutir
Dekk - Vinnufatnaður fyrir veturinn
og margt fleira
Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00
föstudaginn 30. september.
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105
eða kata@mbl.is
GLUGGARNIR í gamla húsinu hennar Berg-
ljótar Gunnarsdóttur eru sumir hverjir lista-
verk, sprottin úr hugarheimi eigandans. Þeir
eru í öllum regnbogans litum og munstrið
fjölbreytt. Bergljót er heilluð af gleri og mós-
aiki og innandyra hjá henni bera fjölmargir
hlutir listasmíð hennar vitni. Þau eru mörg
handtökin hennar í húsinu öllu, því hún gerði
það sjálf upp nánast frá grunni, þegar hún
keypti það í niðurníðslu fyrir þrjátíu árum.
„Þetta var vissulega brjáluð vinna en húsið
gjörbreytti um karakter og varð að mínu fyr-
ir vikið. Hér er yndislegt að búa.“
Gerði við gamla kirkjuglugga
í Sevilla á Spáni
Bergljót hefur í áraraðir unnið með gler og
mósaik. „Gleráhugann hef ég haft alveg frá
því ég var barn og ég veit ekkert hvaðan
hann kemur. Steindir gluggar fönguðu alltaf
athygli mína þegar ég var lítil stúlka. List-
ræna taugin er vissulega til staðar í fjölskyld-
unni minni, því afi minn Magnús Jónsson
guðfræðiprófessor var þekktur frístundamál-
ari, Hanna systir mín hefur málað töluvert og
Anna Jóa dóttir hennar er líka málari,“ segir
Bergljót sem var lengst af sjálfmenntuð í list-
inni. „Ég var orðin sextug þegar ég fór í
fyrsta skipti til Ravenna á Ítalíu og lærði þar
mósaikgerð. Ég er búin að fara tvisvar síðan,
því mér finnst Ravenna æðisleg, enda er hún
mósaikborg og þar er ótrúlega gaman að
skoða sig um.
Ég lærði blýglersgerð með Tiffanýs aðferð
hjá Björgu Hauksdóttur þ.e. að gera þrívíð
verk svo sem lampaskerma og fleira fyrir um
fimmtán árum. Ég bjó um tíma í Sevilla á
Spáni og þá fékk ég að hjálpa til á verkstæði
hjá indælum karli sem var að gera við gamla
kirkjuglugga og hann kenndi mér margt um
glerið. Á sínum tíma lærði ég glerbræðslu og
ég vann við það í nokkur ár en seldi ofninn
minn og hef þar af leiðandi ekki sinnt því
neitt síðan.“
Gaman að skera og brjóta
Bergljót er með vinnustofu í
kjallaranum heima hjá sér og
þar heldur hún námskeið
bæði í blýgleri og mósaiki og
eins gerir hún verk eftir
pöntun. En henni finnst
ekki síður gaman að
sitja úti á verönd og
búa til listaverk,
hvort sem það eru
myndir, klukkur,
borð eða spegl-
ar, en hún ætl-
ar að halda
sölusýningu á
mósaikspeglum í október. „Mósaikið er svo
skemmtilegt að því leyti að möguleikarnir
með efnivið eru endalausir. Hægt er að nota
nánast hvað sem er, grjót, gler, grús, perlur,
skeljar, brotið leirtau, þörunga og hvað eina
sem fólki dettur í hug. Og mér finnst ekki síð-
ur gaman að brjóta, skera og móta efnið sem
ég ætla að nota hverju sinni.“
Bergljót vinnur líka mörg verka sinna á
Bíldudal, en þar á hún hús í fjörunni sem hún
gerði upp frá grunni, rétt eins og húsið sitt
heima í Reykjavík. „Húsinu á Bíldudal fylgdi
stór skúr sem við breyttum í vinnustofu
og gestahús. Þessi skúr heitir Bláa
skúrin, því þeir kvenkenna
skúra á Bíldudal. Þarna hef ég
átt margar góðar stundir,“
segir Bergljót og bætir við
að hugmyndir að verkum
komi stundum til hennar
á nóttunni. „Þá vakna
ég upp og stekk fram
til að rissa þær niður
svo þær hverfi
ekki, eða hleyp
til niður í vinnu-
stofu og byrja
strax að
vinna.“
Hugmyndirnar vekja
hana á nóttunni
Bergljót Gunnarsdóttir horfir í einn af fjölmörgum mósaíkspeglum sínum.
Eldhúsgardínurnar eru óvenjulegar, gerðar úr gleri og blýi með Tiffany-aðferð.
Morgunblaðið/Kristinn
Í mósaíki þessa spegils eru íslenskir steinar
og í baksýn er litrík hurðin út á verönd.
HANDVERK
Bergljót opnar sölusýningu á mósaíkspeglum hinn 1. október í versluninni Húfur sem hlæja á Lauga-
vegi 70. Síminn hennar er: 551–3223.
FATAVERSLUNIN Dress-
mann í Noregi hefur tekið
bol úr sölu eftir mótmæli frá
umhverfissamtökunum
Grønn Ungdom, að því er
m.a. kemur fram á nett-
avisen.no.
Á bolnum sem um ræðir er
mynd af sex nöktum konum
og texti þar sem stendur:
„Man’s essential guide to
woman: Yes=No. No=Yes.“
Í opnu bréfi til stjórnar
Dressmann spurði talsmaður
Grønn Ungdom hvort þetta
þýddi að Dressmann væri að
hvetja karlmenn til að hlusta
ekki á konur og jafnvel til
nauðgana. Stjórnin við-
urkenndi að bolurinn væri
ekki æskilegur á markaðnum
og tók hann í framhaldi úr
sölu. Upplýsingafulltrúi
Dressmann í Noregi segir að
ákvörðunin byggist aðallega
á gagnrýni Grønn Ungdom.
Bolir
teknir
úr sölu
DRESSMANN