Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 37 DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan Bílaleigubílar Sumarhús í DANMÖRKU www.fylkir.is sími 456-3745 Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgreiðslugjöld á flugvöllum.) Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna og rútur með/ án bílstjóra. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum, frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni eða fáið lista. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshverfi Danskfolkeferie orlofshverfi Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk gsm-símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Þegar haldið er til London vel-ur fólk oft að gista á hóteli,njóta þess að þurfa ekki að þvo rúmföt og láta dekra við sig en að sama skapi kostar það alltaf sitt og sumum líður hreinlega ekkert vel á hóteli. Til eru ýmsir aðrir gisti- möguleikar í London sem vert er að gefa gaum þegar ferð stendur fyrir dyrum.  Að tjalda í London er ódýrasti gistimöguleikinn, fyrir utan að sofa á götunni sem er ekki beint hægt að mæla með. Helsti kostur þess að tjalda í London er kostnaðurinn, þ.e. 600 krónur á nóttina fyrir full- orðna og 250 krónur fyrir börn. Einnig er hægt að stunda ýmis áhugamál á sumum tjaldsvæðunum eins og golf, veiði og fuglaskoðun. Helsti ókosturinn er þó að sjálf- sögðu að fólk þarf að taka með sér tjöld og útilegubúnað, jafnvel þó hlífðarfatnaður sé ekki alveg eins nauðsynlegur og á Íslandi, a.m.k. á sumrin. Annar ókostur er að tjald- stæðin eru öll staðsett í úthverfum London og því tekur tíma að fara inn í borgina með lest eða stræt- isvagni. Þó taka öll ferðalög í Lond- on tíma svo það ætti ekki að skipta miklu máli. Lee Valley Regional Park, The Elms og Abbey Wood Crystal Palace eru tjaldstæði í út- hverfum London.  Að gista á farfuglaheimili. Það eru farfuglaheimili á víð og dreif um London og eru þau frábær kostur fyrir bakpokatúrista og þá vilja bara henda sér upp í rúm og eyða engum tíma á svefnstaðnum. Hægt er að fá herbergi fyrir fjölskyldur en fólk þarf oft að deila herbergi með kannski 5 öðrum. Fyrir suma er það ávísun á órólegan svefn þar sem þeir geta ekki sofið fyrir áhyggjum af því að veskið og vega- bréfið verði horfin næsta morgun. Baðherbergi er oftast frammi á gangi og því deilt með öðrum. En í raun er þetta mjög hentugur gisti- möguleiki, oftast er tiltölulega stutt í miðbæinn og verð á herbergi með morgunmat er frá 1.300 til 3.000 kr. á manninn. Fer það mikið eftir því hversu margir deila herbergi.  Heimagisting eða Bed and Breakfast er þægilegur gistimögu- leiki í London og heimilin eru víðs- vegar um borgina. Nóttinkostar um 5.000 krónur á mann og er morg- unmatur þá yfirleitt innifalinn. Oft- ast eru sjónvarp og sími í hverju herbergi. Gaman er að sjá hvernig bresk heimili geta verið og er þetta því yndislega þægilegur gistimögu- leiki. Maður getur jafnvel búist við að húsfrúin gefi manni morgunmat íklædd sloppi og með rúllur í hárinu. Heimilislegt og huggulegt.  Að leigja íbúð. Kosturinn við það er að fólk er ekki á hóteli, getur not- ið þess að vera í fríi og t.d. eldað sinn eigin mat. Verð á nótt fyrir tveggja manna herbergi er mismun- andi og lúxusíbúð í viku getur kost- að um 250.000 krónur en að með- altali er verð á tveggja manna íbúð í kringum 11.000 krónur á nóttina og vikan á 60.000 krónur. Þessi mögu- leiki hentar því vel þeim sem vilja dvelja lengi í London og njóta þess að sofa í góðu rúmi og á sama tíma vera sjálfstæðir með mat og þess háttar. Þessar íbúðir eru flestar í miðbænum og í vesturhluta London svo að ef ætlunin er að vera mest í miðbænum og á söfnum er þetta fullkominn gistimöguleiki þar sem ekki þarf að ferðast í klukkutíma eða svo til að komast í menningu.  Að leiga síkjabát og sigla um sík- in í London er skemmtilegur gisti- möguleiki. Í raun eru engir bátar til leigu í miðri London svo það verður að fara aðeins út fyrir borgina, t.d. til Broxbourne Herts, sem tekur um hálftíma í lest frá miðbænum. Hægt er að leigja 2-6 manna eða 8-12 manna báta, sigla til London og leggja að ýmsum síkisbryggjum og njóta London þannig á allt annan hátt en fólk gerir vanalega. Hægt er að fá grill, sjónvarp og hjól, en það verður að panta það fyrirfram, og þá er hægt að leggja að og hjóla svo t.d. í bæinn. En ef ætlunin er að sigla um í London verður að taka það inn í myndina að ferðalagið sjálft á síkjunum tekur sinn tíma svo ekki er hægt að eyða öllu fríinu í London sjálfri. Fólk þarf ekki að hafa síkisbátaskírteini heldur er far- ið yfir öll öryggisatriði og leiðbein- ingar þegar báturinn er leigður. Leiga á litlum bát í viku kostar 55.000–75.000 krónur og leiga á stærstu bátunum, þ.e. fyrir 12 manns, er 110.000 til 180.000 krón- ur. Fer verðið mjög mikið eftir því hvort það er háannatími eða ekki.  LONDON | Gistimöguleikarnir eru margir og mismunandi Gist um borð í báti? Hvernig væri að gista á bresku heimili næst þegar skroppið er til London? Nú eða leigja síkjabát? Laila Sæunn Pétursdóttir skoðaði gistimöguleika í heims- borginni. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Það er ekki nauðsynlegt að dvelja á hóteli og gæti verið skemmtilegt að gista á bresku heimili. Síkisbátar http://www.leevalleyboats.co.uk Tjaldstæði Lee Valley Park http://www.leevalleypark.org.uk/ Sími 020 8529 5689 Elms Caravan and Camping Site 020 8803 6900 Chrystal Palace Parade 020 8778 7155 Farfuglaheimili http://www.yha.org.uk Gistiheimili http://www.londonnet.co.uk/ln/ guide/accomm/bandb.html#full Íbúðir http://www.accommodationlond- on.co.uk/apartments.htm Höfundur er búsettur í Bretlandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.