Morgunblaðið - 24.09.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 45
UMRÆÐAN
h ö n n u n : w ww . p i x i l l . i s
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Hetthi
eikarlína
Rúm án dýnu
Queen stærð
Verð:
19.900.-
69.000.-
Cal king stærð
Verð:
75.000.-
Náttborð
Verð:
Sjónvarpsskenkur
Fáanlegur í tveimur stærðum
240cm
Verð:
29.500.-
69.000.-
183cm
Verð:
65.000.-
Hilla með ljósi
Verð:
Sjónvarpsskenkur
200cm
Verð: 67.000.-
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÉG þakka Þórólfi Jónssyni, garð-
yrkjustjóra Reykjavíkur, fyrir svar
hans í bréfi til blaðsins 12. sept. síð-
astliðinn við grein minni um um-
gengnina við Hljómskálagarðinn.
Í svari hans kemur fram að það
sem fyrir mig og fleiri er sóðaskap-
ur í umgengni við lystigarð á borð
við Hljómskálagarðinn sé af hálfu
garðyrkjustjóra meðvituð stefna
þar sem „náttúrulegir ferlar“ fái að
njóta sín. Þessa stefnu segir hann
byggða á „vaxandi umhverfisvit-
und“ og samkvæmt henni skuli tak-
marka venjubundna umhirðu
garða, leyfa ill-
gresi að vaxa og
eitra ekki fyrir
lús og trjámaðk.
Þessi stefna hef-
ur notið sín vel
víðar en í Hljóm-
skálagarðinum og
má nefna runn-
ana meðfram
Tjörninni við
Tjarnargötu, sem
hafa verið grálúsugir í sumar með
tilheyrandi afleiðingum. Vera kann
að þessi stefna sé vistvæn fyrir ill-
gresið og óværuna en hún er það
ekki fyrir mannfólkið í borginni.
Fáa langar til að flatmaga í njóla-
stóði eða sitja undir lúsugum runn-
um í miðri borg.
Kjarni málsins, sem birtist í svari
garðyrkjustjóra, er að þetta er með-
vituð stefna í garðyrkju. Í því lýð-
ræðisskipulagi sem við búum við
gefst okkur tækifæri til að velja
stefnur í borgarmálum á fjögurra
ára fresti. Það er því hluti af lýðræð-
inu að við fáum að vita hvaða stefnu
þeir flokkar, sem bjóða fram í kom-
andi borgarstjórnarkosningum, hafa
í garðyrkjumálum borgarinnar.
SIGRÍÐUR DÚNA
KRISTMUNDSDÓTTIR,
Bjarkargötu 10,
101 Reykjavík.
Garðyrkjustefna Reykjavíkurborgar
Frá Sigríði Dúnu
Krtistmundsdóttur:
Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir
ELLERT Guðmundsson símaverk-
stjóri sem kom á dögunum heim úr
róðri og sá ógnvænlegan mink á
bryggjunni greip til þeirra úrræða
sem dugðu og skaut óvættinn til
bana. Nýir eigendur Símans komu á
miðvikudag á Blönduós á ferð sinni
um landið og hittu fyrir ógnvænlega
dýrategund, starfsmenn Símans á
Blönduósi, tegund sem skilar ekki
arði en er mikilvæg fyrir þjónustu
við landsbyggðina og það samfélag
sem hún lifir í. Síminn tók ekki upp
hólkinn en sagði þess í stað þessum
lykilmönnum símaþjónustu í A-Hún.
upp störfum frá og með 1. nóv-
ember. Gangi þetta eftir fækkar
störfum á Blönduósi um 3 í það
minnsta og skekur samfélag sem á í
vök að verjast. Fólki er brugðið á
Blönduósi við þessi nýjustu tíðindi
og bjartsýni í atvinnumálum héraðs-
ins eykst ekki að neinu marki.
Einkavæðingin jók ekki fylgi sitt í
A-Hún. við þessa nýjustu atburðarás
en ferðaþjónustunni á höfuðborg-
arsvæðinu sem hyggur á útrás er
hollt að hafa í huga á þessum há-
marksarðsemistímum að af-
greiðslutími ÁTVR á Blönduósi hef-
ur styst til mikilla muna til að auka
arðsemi, símaþjónusta er úr sögunni
til að auka arðsemi og svo mætti
lengi telja. Störfum hins opinbera
fækkar á okkar svæði en fjölgar á
höfuðborgarsvæðinu til að auka arð-
semi. Það eru húsbílar sem framtíð
eiga fyrir sér með eldsneytistank í
eftirdragi og nægan matarforða til
að geta skilað sér heim eftir að hafa
litið á heimahagana, gróðurskemmd-
irnar eða hina „arðbæru“ þjóðgarða
sem helst ættu að geyma hina sér-
kennilegu sveitarómantík og skrítnu
kalla sem svífa langt fyrir ofan allt
venjulegt arðsemishjal.
JÓN SIGURÐSSON,
Blönduósi.
Jón Sigurðsson
Ellert Guðmundsson símaverkstjóri með minkinn.
Skjótt
skipast
veður í lofti
Frá Jóni Sigurðssyni:
Fréttasíminn
904 1100