Morgunblaðið - 24.09.2005, Side 46
46 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11, félagar
úr kór Áskirkju syngja, organisti Kári Þor-
mar. Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Foreldrar, afar og ömmur sérstaklega
hvött til þátttöku með börnunum. Kirkjuleg
sveifla kl. 14. Þar koma fram Kór Bústaða-
kirkju undir stjórn Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur og Tríó Jóns Rafnssonar. Tríóið
skipa þeir Jón Rafnsson á kontrabassa,
Eyjólfur Þorleifsson á saxófón og Gunnar
Þórðarson á gítar. Fjölnisbræður annast
ritningarlestra. Boðið verður upp á mola-
sopa að sveiflu lokinni. Sr. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Karl V.
Matthíasson predikar. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu meðan á messu stend-
ur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og ung-
linga úr kirkjustarfinu. Guðsþjónusta kl.
11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til
kristniboðsstarfs SÍK. Kaffisopi að lokinni
guðsþjónustu. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafs-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Bára Friðriksdóttir predikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Páls-
syni. Umsjón barnastarfs Magnea Sverr-
isdóttir. Sjálfboðaliðar lesa ritningarlestra
og aðstoða við messugjörðina. Hópur úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Tromp-
etleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Ei-
ríkur Örn Pálsson leika ásamt organist-
anum Herði Áskelssyni. Kaffisopi eftir
messu. Ensk messa kl. 14.00 í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti Hörður
Áskelsson. Forsöngvari Guðrún Finnbjarn-
ardóttir. Messukaffi.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Douglas A.
Brotchie. Umsjón barnaguðsþjónustu: Erla
Guðrún Arnmundardóttir, Þóra Marteins-
dóttir, Hrafnhildur Héðinsdóttir og Annika
Neumann. Léttar veitingar eftir messu. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Æv-
ar Kjartansson guðfræðingur predikar. Eftir
messuna verður boðið upp á stuttar um-
ræður í safnaðarheimilinu um texta dags-
ins og predikun. Egill Árni Pálsson syngur
einsöng. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór
Langholtskirkju leiða safnaðarsöng.
Barnastarfið verður í safnaðarheimilinu á
sama tíma í umsjón Rutar, Steinunnar og
Arnórs. Eftir messuna verður boðið upp á
kaffisopa í safnaðarheimlinu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón sunnu-
dagaskóla er í höndum Hildar Eirar Bolla-
dóttur, Heimis Haraldssonar og Þorvaldar
Þorvaldssonar. Kór Laugarneskirkju syngur
við guðsþjónustuna, Gunnar Gunnarsson
leikur á orgelið. Íslandsvinurinn dr. Roy
Long predikar og flytur mál sitt bæði á
ensku og íslensku (sjá fréttatilk.). Bjarni
Karlsson sóknarprestur þjónar ásamt Sig-
urbirni Þorkelssyni meðhjálpara og fulltrú-
um lesarahóps kirkjunnar. Messukaffi Sig-
ríðar kirkjuvarðar bíður svo allra að
guðsþjónustu lokinni.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Sr. Örn Bárður Jónsson predikar og
þjónar fyrir altari. Fermingarbörn eru sér-
staklega minnt á messusókn í vetur. Börn-
in byrja í kirkjunni en fara síðan í safn-
aðarheimilið. Brúður, söngur, sögur, leikir
og margt fleira. Öll börn fá kirkjubók og lím-
miða. Umsjónarfólk er Guðmunda, Björg
og Ari. Kaffi, djús og spjall í safnaðarheim-
ilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir
sálmasöng og messusvör. Organisti Pavel
Manasek. Sr. Sigurður Grétar Helgason.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Verið hjart-
anlega velkomin. Minnum á æskulýðs-
félagið kl. 20 – Óvissuferð!
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir
messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík:
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Athugið breyttan guðsþjónustutíma. Safn-
aðarpresturinn Hjörtur Magni Jóhannsson
leiðir guðsþjónustuna. Fermingarbörn að-
stoða. Anna Sigríður Helgadóttir og Carl
Möller sjá um tónlistina. Sú nýbreytni verð-
ur tekin upp hjá okkur í Fríkirkjunni í Reykja-
vík að kirkjugestum gefst kostur á að
mæta til kirkjunnar kl. 13 og æfa sálmana
sem sungnir verða í guðsþjónustunni. Með
þessu viljum við hvetja til frekari safn-
aðarsöngs og að kirkjugestir taki meiri þátt
í guðsþjónustunni. Allir hjartanlega vel-
komnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
predikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn
leiðir söng undir stjórn Krisztínu Kalló
Szklenár organista. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á sama tíma. Kaffi, djús og
kex að stundinni lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Fyrsta Tómasarmessa hausts-
ins kl. 20.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju,
B-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð. Súpa í safnaðarsal
að messu lokinni (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
klukkan 11. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson og sr. Svavar Stefánsson. Sr.
Gísli Jónasson prófastur setur Ragnhildi
Ásgeirsdóttur í embætti djákna við kirkj-
una. Ragnhildur Ásgeirsdóttur djákni pre-
dikar. Organisti Lenka Mateova. Sunnu-
dagaskóli í umsjá Sigríðar Rúnar
Tryggvadóttur. Súpa og brauð í safn-
aðarheimili að lokinni guðsþjónustu.
Þriðjudaginn 27. september verður kyrrð-
arstund kl. 12.00 og að stundinni lokinni
verður boðið upp á súpu og brauð á vægu
verði. Kl. 13.00–16.00 er opið hús fyrir
fullorðna. Barna- og æskulýðsstarf er í full-
um gangi svo og foreldramorgnar, sjá nán-
ar á heimasíðu kirkjunnar (www.kirkjan.is/
fella-holakirkja)
GRAFARHOLTSSÓKN: Messa í Þjón-
ustusalnum, Þórðarsveig 3, kl. 11. Nýi kór-
inn okkar syngur í fyrsta skipti við messu
og organisti er Hrönn Helgadóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Bjarni Þór Bjarnason predikar og
þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti: Hörður Bragason.
Barnaguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl.
11. Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Um-
sjón: Hjörtur og Rúna. Undirleikari: Stefán
Birkisson. Barnaguðsþjónusta í Borg-
arholtsskóla kl. 11. Umsjón: Gummi, Ing-
ólfur og Tinna. Undirleikari: Guðlaugur Vikt-
orsson.
HJALLAKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Erla
Björg Káradóttir og Kristín R. Sigurðardóttir
flytja dúett úr kantötu nr. 78 eftir J.S.
Bach. Félagar úr kór Hjallakirkju syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18 og opið hús á fimmtudag
kl. 12 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Fermdur verður Arnar Guðmundsson, Þing-
hólsbraut 37. Kór Kópavogskirkju syngur
og leiðir safnaðarsöng. Kaffisopi eftir
messu. Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30 í
umsjón Önnu Kristínar, Péturs Þórs og Sig-
ríðar. Bænastund þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Messa og sunnu-
dagaskóli í Lindaskóla kl. 11. Kór Linda-
kirkju leiðir safnaðarsöng, organisti Hann-
es Baldursson. Guðmundur Karl
Brynjarsson sóknarprestur þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör! Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Bolli Pétur Bollason predikar. Kór
Seljakirkju leiðir söng. Organisti Jón
Bjarnason. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl.
16. Sr. Bolli Pétur Bollason predikar. Fé-
lagar úr kór Seljakirkju leiða söng. Org-
anisti Jón Bjarnason.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl. 11. Fræðsla fyrir börn og full-
orðna. Friðrik Schram lýkur við að fjalla um
efnið: Hvert er hlutverk okkar í áætlun
Guðs? Sameiginlegur matur eftir stundina,
þar sem allir leggja eitthvað á hlaðborð.
Samkoma kl. 20.00 með mikilli lofgjörð og
fyrirbænum. Ólafur H. Knútsson predikar.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN, Eyjólfs-
stöðum á Héraði: Samkoma kl. 17. Unnar
Erlingsson predikar.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla miðvikudaga kl. 20. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma sunnu-
dag kl. 20. Við bjóðum velkomna nýja yf-
irmenn Hjálpræðishersins í Noregi, Fær-
eyjum og á Íslandi, Gudrun og Carl
Lydholm. Heimilasamband mánudag kl.
15. Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam-
koma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir talar.
Lofgjörð og fyrirbænir. Barnastarf á sam-
komutíma. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir velkomnir. Þriðjudaginn 27.
september er bænastund kl. 20.30. Allir
eru velkomnir. Föstudaginn 30. september
er unglingasamkoma kl. 20. Allir unglingar
velkomnir.
KFUM og KFUK við Holtaveg: Samkoma í
húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 17.
„Bæn“. Um efnið tala Heiðrún Kjart-
ansdóttir og Sigurður Bjarni Gíslason. Beð-
ið verður fyrir starfi KFUM og KFUK á Ís-
landi og kristilegu starfi á landinu. Sýnd
stuttmynd og leikræn tjáning. Mikil lof-
gjörð. Barnastarf á meðan á samkomunni
stendur. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðum. Sheila Fitzgerald. Gospelkór Fíla-
delfíu leiðir söng. Allir velkomnir. Barna-
kirkja á meðan samkomu stendur, öll börn
frá 1-12 ára velkomin. Hægt er að hlusta á
beina útsendingu á Lindinni fm 102.9 eða
horfa á www.gospel.is. Miðvikud. 28. sept.
kl. 18–20 er fjölskyldusamvera, „súpa og
brauð“. Jón Þór Eyjólfsson verður með bibl-
íulestur. Allir velkomnir. Alla miðvikudaga
kl. 12–13 er hádegisbænastund. Allir vel-
komnir. www.gospel.is
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis
á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18. Tilbeiðslustund er
haldin í Kristskirkju á hverju fimmtudags-
kvöldi að messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30
til 19.15. Trúfræðsla barnanna fer fram á
laugardögum kl. 13.00 í Landakotsskóla.
Barnamessan er kl. 14.00 í Kristskirkju.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á mánu-
dögum frá kl. 19.00 til 20. Riftún í Ölfusi:
Sunnudaga: Messa kl. 16. Miðvikudaga kl.
20. Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnu-
daga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga:
Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á hverj-
um degi kl. 17.15. Karmelklaustur:
Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga:
Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella:
Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga kl.
16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl.
18. Sunnudaga: Messa kl. 11.00 Til-
beiðslustund á hverjum föstudegi kl.
17.00 og messa kl. 18.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Laugardagur.
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðþjónusta kl.
11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. Loft-
salurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðumað-
ur: Ólafur Kristinsson. Safnaðarheimili
aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Bibl-
íufræðsla kl. 10. Guðþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Maxwell Ditta. Safnaðarheim-
ili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Einar Valgeir Arason. Aðvent-
kirkjan Brekastíg 17, Vestmannaeyjum:
Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Gunnar Kristjánsson,
sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
10.00: Litlir lærisveinar, kóræfing. Kór-
stjórar. Kl. 11.00: Sunnudagaskóli. Litlir
lærisveinar syngja og leiða í söng. Myndir
teknar af nýjum þátttakendum til að setja
á skýjaborgina okkar. Við heyrum bibl-
íusögu, fáum heimsókn og biðjum saman í
Jesú nafni. Prestar og barnafræðarar. Kl.
11.00: Kirkjuprakkarar hefja sína stund í
kirkjunni. Dagskrá þeirra heldur síðan
áfram í fræðslustofu undir handleiðslu
Völu og Birkis. Kl. 12.30: TTT-starf í
fræðslustofunni. Umsjón Vala og Birkir. Kl.
14.00: Guðsþjónusta í Landakirkju. Sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar. Kór
Landakirkju syngur undir stjórn Guð-
mundar H. Guðjónssonar. Fermingarbörn
lesa ritningarlestra. Félagskonur úr
Kvennakirkjunni taka virkan þátt. Sr. Þor-
valdur Víðisson þjónar fyrir altari. Kl.
15.10: Guðsþjónusta á Hraunbúðum. Sr.
Þorvaldur Víðisson.
LÁGAFELLSKIRKJA: Sunnudaginn 25.
september er guðsþjónusta í Mosfells-
kirkju kl. 11. Prestur sr. Ragnheiður Jóns-
dóttir. Kór Lágafellssóknar syngur undir
stjórn Jónasar Þóris organista. Barn verður
borið til skírnar. Fermingarbörn næsta
vors, foreldrar þeirra og forráðamenn eru
hvött til að koma í kirkju. Sunnudagaskól-
inn verður kl. 13 í Lágafellskirkju – athugið
breytta staðsetningu. Hvetjum við foreldra
og aðra forráðamenn til að koma með
börnin og eiga stund með þeim í kirkjunni.
Hreiðar Örn og Jónas Þórir hafa umsjón
með stundinni. Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Þórhallur Heimisson.
Íhugunarefni: „Íslenska skjaldarmerkið og
kristin táknfræði“. Organisti Antonia Hev-
esi. Kór kirkjunnar leiðir söng. Sunnudaga-
skóli fer fram á sama tíma í safnaðarheim-
ili og Hvaleyrarskóla.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyrir
börn á öllum aldri. Messa kl. 13. Kór Víð-
istaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks
Ólasonar.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Æðruleys-
ismessa kl. 20. Fríkirkjubandið leiðir tón-
list og söng undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Fluttur verður vitnisburður og sporin 12
lesin og kynnt.
ÁSTJARNARSÓKN í samkomusal Hauka,
Ásvöllum: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Létt-
ar kaffiveitingar og kynning vetrarstarfs-
ins.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 17. Léttar kaffiveitingar og
kynning vetrarstarfsins.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11. Sunnu-
dagaskólinn mætir á sama tíma. Foreldrar
hvattir til að koma með börnum sínum. Páll
Jóhannesson tenór syngur einsöng. Org-
anisti Jóhann Baldvinsson. Félagar úr Kór
Vídalínskirkju leiða safnaðarsönginn. Boð-
ið upp á léttan málsverð í umsjón Lions-
manna eftir messu. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar. Allir velkomnir. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11.00 í sal Álftanesskóla í umsjón Krist-
jönu og Ásgeirs Páls. Foreldrar hvattir til að
koma með börnum sínum. Allir velkomnir.
Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Kirkjudagur.
Barnastarfið kl. 11. Hvetjum foreldra,
ömmur og afa til að koma með börnunum
og taka þátt í skemmtilegum sam-
verustundum. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi-
veitingar eftir athöfnina. Ágóði af kaffisölu
rennur í orgelsjóð. Stefnt er að því að nýtt
hljóðfæri verði komið í kirkjuna á 25 ára
vígsluafmæli hennar 26. september
2007. Kór Grindarvíkurkirkju syngur. Org-
anisti og kórstjóri: Örn Falkner. Sókn-
arnefnd og sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudaginn 25. september kl. 20.30.
Kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Nat-
alíu Chow Hewlett organista. Meðhjálpari
er Ástríður Helga Sigurðardóttir. Sókn-
arprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11 árdegis.
Guðsþjónusta í Hlévangi kl. 13. Prestur:
Sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Laufey Gísla-
dóttir, umsjónarmaður sunnudagaskól-
ans, Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir, Sigríður
Helga Karlsdóttir, Sara Valbergsdóttir. Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og
stjórnandi: Hákon Leifsson. Meðhjálpari:
Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir. Kaffi og djús
eftir messu.
ÚTSKÁLASÓKN: Messa sunnudaginn 25.
sept. í Útskálakirkju kl. 11. Gengið verður
til altaris. Kór Útskálakirkju leiðir sönginn.
Organisti: Steinar Guðmundsson. Prestur:
sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir. Helgistund í
Garðvangi kl. 15.30.
HVALSNESSÓKN: Messa sunnudaginn
25. sept. í safnaðarheimilinu í Sandgerði
kl. 14. Gengið verður til altaris. Kór Hvals-
neskirkju leiðir sönginn. Organisti: Steinar
Guðmundsson Prestur: sr. Lilja Kristín Þor-
steinsdóttir.
BORGARPRESTAKALL: Messa í Borg-
arneskirkju kl. 14. Messa í Borgarkirkju
kl. 16. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Upphaf vetrarstarfs.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Sólveig
Halla Kristjánsdóttir og sr. Svavar A. Jóns-
son. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur.
Organisti: Eyþór Ingi Jónsson. Allir vel-
komnir og börnin fá afhenta kirkjubók frá
sunnudagaskólanum. Opið hús í safn-
aðarheimilinu kl. 12–13. Kynning á starfi
vetrarins. Léttar veitingar. Stúlknakór Ak-
ureyrarkirkju syngur. Fundur með for-
eldrum fermingarbarna í Akureyrarkirkju kl.
13. Guðsþjónusta í Hlíð kl. 16. Sr. Svavar
A. Jónsson. Stúlknakór Akureyrarkirkju
syngur. Organisti Eyþór Ingi Jónsson.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Pét-
ur Björgvin Þorsteinsson djákni þjóna.
Barnakór Glerárkirkju syngur. Stjórnandi:
Ásta Magnúsdóttir. Organisti: Hjörtur
Steinbergsson. Kvöldguðsþjónusta með
léttri tónlist kl. 20.30. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson þjónar. Krossbandið, Ragga,
Snorri og Kristján leiða söng. Kaffisopi í
safnaðarsal.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Samkoma kl. 17. Sig-
urður Ingimarsson talar.
KFUM og KFUK á Akureyri: Fjöl-
skyldudagur KFUM og KFUK á Akureyri
verður á Hólavatni sunnudaginn 25. sept-
ember kl. 14 til 17.30. Leikir og bátar.
Samkoma kl. 16.30. Ragnar Snær talar.
Allir velkomnir.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 14. Mánudagur: Kyrrð-
arstund kl. 18. Tólf sporin – andlegt ferða-
lag, kynningarfundur kl. 20. Sókn-
arprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Nína María Morávek.
Fermingarbörn næsta vors eru sérstaklega
boðuð til kirkju ásamt foreldrum sínum.
Kynningarfundur um fermingarstarf vetr-
arins verður í kirkjunni strax að athöfn lok-
inni. Sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Messa kl. 14.
Sr. Skírnir Garðarsson predikar og þjónar
fyrir altari. Organisti Guðjón Halldór Ósk-
arsson. Allir velkomnir. Kl. 15.15: Helgi-
stund á Kirkjuhvoli.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Sókn-
arprestur predikar og þjónar fyrir altari.
Kirkjukór Selfoss syngur. Organisti: Glúm-
ur Gylfason. Barnasamkoma í lofti safn-
aðarheimilis kl. 11.15 sama dag. Léttur
hádegisverður eftir athöfnina. Guðsþjón-
usta í Ljósheimum kl. 14.30. Guðþjónusta
á Heilbrigðisstofnun Suðurlands kl.
15.15. Tíðagjörð þriðjudaga til föstudaga
kl. 10 í kirkjunni, með fyrirbæn. Kaffisopi á
eftir. Þriðjudaginn 27. september er kirkju-
skóli í Félagsmiðstöðinni kl. 14. Miðviku-
daginn 28. september er pabba- og
mömmumorgunn kl. 11.00 uppi á lofti í
safnaðarheimilinu. Opið hús, spjall og
hressing. Miðvikudaginn 28. september
verður haldinn fyrsti kynningarfundur
vegna tólf spora starfs í Selfosskirkju í vet-
ur. Sr. Gunnar Björnsson.
HVERAGERÐISPRESTAKALL: Barnaguðs-
þjónusta í Kotstrandarkirkju kl. 11. Rútu-
ferð frá Hveragerðiskirkju kl. 10.45. For-
eldramorgnar á þriðjudagsmorgnum kl.
10-11.30 í Safnaðarheimili Hveragerð-
iskirkju. Sjá: http://notendur.mi.is/
hvgpkall/.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnudaginn
25. september kl. 14. Guðfræðinemar í
messu- og haustlitaferð til Þingvalla að-
stoða. Organisti: Guðmundur Vilhjálms-
son. Prestur: Kristján Valur Ingólfsson.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Búrfellskirkja, Árnessýslu, næstelsta timburkirkja landsins, byggð 1845.
(Matt. 22).
Guðspjall dagsins:
Hvers son er Kristur?