Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 47
KIRKJUSTARF
Æðruleysismessa
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
FYRSTA æðruleysismessan á
þessu hausti verður í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði sunnudagskvöld kl. 20.
Æðruleysismessur voru haldnar
í kirkjunni einu sinni í mánuði all-
an síðasta vetur og viðbrögðin
voru vonum framar því það voru
að jafnaði 100 manns í hverri
messu.
Í æðruleysismessum er byggt á
reynslusporunum 12 sem liggja til
grundvallar í öllu starfi AA-
samtakanna og eins er byggt á
reynslusporunum 12 í andlegu
ferðalagi sem Fríkirkjan í Hafn-
arfirði hefur staðið fyrir síðustu 4
árin. Það er hópur áhugafólks um
æðruleysismessur sem stendur á
bak við þetta helgihald ásamt
prestum Fríkirkjunnar í Hafn-
arfirði og er von okkar að þessu
framtaki verði vel tekið eins og
síðasta vetur. Að lokinni messu
munu þau sem standa á bak við
þetta góða framtak bjóða upp á
kaffisopa í safnaðarheimili Frí-
kirkjunnar.
Alfa 2 í húsi KFUM
og KFUK
ALFA 2 námskeið verður haldið í
húsi KFUM og KFUK, Holtavegi
28 og fjallar um Filippíbréfið.
Kennsla hefst þriðjudaginn 27.
september og stendur fram undir
lok nóvember. Hún byggist á bók-
inni Líf á nýjum nótum eftir Nicky
Gumbel og tengir boðskap bréfsins
við lifað líf á okkar tímum. Sam-
verurnar hefjast með mat kl. 19,
síðan er kennsla, þá kvöldhressing
og að lokum umræður. Öllu er lok-
ið kl. 22. Skráning fer fram á
skrifstofunni hér á Holtaveginum í
síma 588 8899.
Kirkjuleg sveifla
í Bústaðakirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag, 25.
sept. kl. 14, verður Kirkjuleg
sveifla í Bústaðakirkju. Þar kemur
fram Kór Bústaðakirkju undir
stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur
og Tríó Jóns Rafnssonar. Tríóið
skipa þeir: Jón Rafnsson á kontra-
bassa, Eyjólfur Þorleifsson á saxa-
fón og Gunnar Þórðarson á gítar.
Fjölnisbræður annast ritning-
arlestra.
Kirkjuleg sveifla hefur um ára-
bil verið fastur liður í fjölbreyttu
tónlistarstarfi Bústaðakirkju og er
það von þeirra sem að henni
standa að sem flestir sjái sér fært
að njóta hennar á sunnudaginn.
Boðið verður upp á molasopa að
Sveiflu lokinni.
Fyrsta Tómasar-
messan á þessu hausti
FYRSTA Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd sunnudagskvöldið 25. sept-
ember kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu átta árin og verður
sami háttur hafður á í vetur.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyrirbæn-
arþjónustu og sömuleiðis á virka
þátttöku leikmanna. Stór hópur
fólks tekur jafnan þátt í undirbún-
ingi og framkvæmd messunnar,
bæði leikmenn, djáknar og prestar.
Íslandsvinur í
Laugarneskirkju
VIÐ messu morgundagsins kl. 11
mun Íslandsvinurinn og presturinn
dr. Roy Long prédika.
Dr. Roy er mörgum að góðu
kunnur hér á landi. Hann hefur
lengi starfað sem eftirlitsmaður
með einkaskólum fyrir hönd
bresku krúnunnar, auk þess sem
hann er sóknarprestur í lúth-
erskum söfnuði í London. Mun dr.
Roy flytja mál sitt á ensku en gefa
stutta íslenska samantekt. Gefst
söfnuðinum þannig tækifæri til að
heyra fallega ensku og breskan
húmor af prédikunarstóli, en dr.
Roy þekkir vel til íslenskra að-
stæðna auk þess sem hann er sér-
lega glöggur guðfræðingur áhuga-
samur rannsakandi mannlífsins.
Kór Laugarneskirkju mun syngja
en prestur og starfsfólk safnaðar-
ins þjónar að venju, ásamt fulltrú-
um frá lesarahópi kirkjunnar.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
Á sunnudag, 25. september nk. kl.
14 verður haldin ensk messa í
Hallgrímskirkju. Prestur verður
sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Hörður Áskelsson. Guðrún
Finnbjarnardóttir mun leiða al-
mennan safnaðarsöng.
Fjórða árið í röð er boðið upp á
enska messu í Hallgrímskirkju síð-
asta sunnudag hvers mánaðar.
Messukaffi.
Service in English
Service in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja)
25th of September, at 2 pm. Holy
Communion. The Eighteenth
Sunday after Trinity. Celebrant
and Preacher: The Revd Bjarni
Þór Bjarnason. Organist: Hörður
Áskelsson. Leading singer:Guðrún
Finnbjarnardóttir. Refreshments
after the Service.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af
holdi og blóði. Þess vegna er hægt
að fara út úr kirkjubyggingum
með helgihald og fagnaðarerindið
og mæta fólki í dagsins önn. Í til-
efni af því bjóðum við til guðsþjón-
ustu í Kolaportinu næsta sunnudag
25. september kl. 14.
Jóna Hrönn Bolladóttir miðborg-
arprestur flytur hugleiðingu og
þjónar ásamt Bjarna Karlssyni
presti í Laugarneskirkju.
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur
Halldórsson mun leiða lofgjörðina,
en hann mætir kl. 13.30 til að
gleðja fólk með söng og spjalli. Þá
er hægt að leggja inn fyrirbæn-
arefni til þeirra sem þjóna í guðs-
þjónustunni áður en stundin hefst,
en í lok stundarinnar verður bless-
un með olíu. Laufey Geirlaugs-
dóttir söngkona mun syngja í
guðsþjónustunni og kynna í leið-
inni ný útkominn geisladisk sinn
með lofgjörðartónlist.
Guðsþjónustan fer fram í kaffi-
stofunni Kaffiport í Kolaportinu,
þar er hægt að kaupa sér kaffi og
dýrindis meðlæti og eiga gott sam-
félag við Guð og menn. Það eru
allir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM/KFUK
og þjóðkirkjunnar.
Hver er Job? –
Fræðslukvöld
í Bústaðakirkju
HVER er Job? Á hann erindi við
þig? Hvað segir hann um sársauk-
ann? Á hann vini eða er hann einn?
Á Biblían svarið fyrir nútíma-
manninn í erli lífsins?
Fjögurra kvölda námskeið í Bú-
staðakirkju á þriðjudögum kl. 19.
Samverurnar byrja með léttri mál-
tíð. Síðan mun dr. Kristinn Ólason,
sem sérstaklega hefur kynnt sér
Job, leiða okkur inn í undraheima
ritningarinnar og fræða okkur um
Jobsbók. Gefið verður yfirlit yfir
uppbyggingu Jobsbókar og nið-
urröðun efnisins sem þar er fjallað
um. Fjallað verður um spurn-
inguna um tengsl réttlætis og þján-
ingar í heiminum út frá Jobsbók.
Þá verður fjallað um áhrif þessa
bókmenntaverks í lista- og heim-
spekisögunni. Farið verður nokkuð
nákvæmlega í valda kafla og til-
raun gerð til að skýra þá á að-
gengilegan hátt.
Námskeiðið verður í tveimur
áföngum, sá fyrri 4. og 11. október
og sá síðari yrði 25. október og 1.
nóvember. Nauðsynlegt er að skrá
þátttöku í Bústaðakirkju í síma
553 8500 eða með tölvupósti hreid-
ar@kirkja.is eða palmi@kirkja.is .
Trompetleikur
í Hallgrímskirkju
Á morgun sunnudaginn 25. sept-
ember verður messa og barnastarf
kl. 11 í Hallgrímskirkju. Messan
verður með hátíðlegu sniði. Barn
verður borið til skírnar. Tromp-
etleikararnir Ásgeir H. Stein-
grímsson og Eiríkur Örn Pálsson
munu leika ásamt Herði Áskels-
syni, organista. Þeir spila svítu í C
eftir P.M. Dubois. Í forspil leika
þeir Prélude en canon, Aríu eftir
predikun og Cortege í eftirspil. Er
þetta liður í undirbúningi þeirra
félaga að tónleikaferð til Rúss-
lands.
Sr. Sigurður Pálsson þjónar fyr-
ir altari og sr. Bára Friðriksdóttir
predikar. Sjálfboðaliðar lesa ritn-
ingarlestra og aðstoða við messu-
gjörðina. Barnastarfið er í umsjón
Magneu Sverrisdóttur. Hópur úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syng-
ur. Allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
Ensk messa kl. 14 í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar. Org-
anisti Hörður Áskelsson. For-
söngvari Guðrún Finnbjarn-
ardóttir. Messukaffi.
Fyrirlestur
í Landakoti
SÍÐASTLIÐNA fjóra vetur flutti
sr. Jürgen Jamin mánaðarlega er-
indi um helgisiði kirkjunnar. Þess-
um fyrirlestraröðum var ætlað að
dýpka fyrst og fremst skilninginn
á heilagri messu.
Í framhaldi af þessu efni býður
sr. Jürgen einnig næsta vetur frá
september til mars upp á fund sem
hann kallar eins og undanfarin
þrjú ár: „Í votta viðurvist – Heilög
messa í vitnisburði helgra manna.“
Í þessari fyrirlestraröð heldur sr.
Jürgen áfram að útskýra hvern
einasta hluta heilagrar messu (að
þessu sinni berginguna og messu-
lok: frá Faðirvorinu til blessunar)
með sérstökum kafla úr ævisögu
eins dýrlings, m.a. Teresu frá Li-
sieux, Frans Xaver, Péturs Claver
og Filippusar Neri. Fyrsti fund-
urinn verður mánudaginn 26. sept-
ember kl. 20 í safnaðarheimilinu á
Hávallagötu 16.
Þar með lýkur þessari fyr-
irlestraröð um heilaga messu og
áætlað er að safna öllum erindum
undanfarna fjögurra vetra og gefa
þau út í einu riti næsta vor.
Vetrarstarf Akureyr-
arkirkju að hefjast
Vetrarstarfið í Akureyrarkirkju
hefst formlega sunnudaginn 25.
september með fjölskylduguðs-
þjónustu klukkan 11, þar sem
Stúlknakór Akureyrarkirkju syng-
ur undir stjórn Eyþórs Inga Jóns-
sonar og börn fá afhenta kirkjubók
sunnudagaskólans. Prestar eru sr.
Svavar A. Jónsson og sr. Sólveig
Halla Kristjánsdóttir.
Í hádeginu verður opið hús í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Þar verður starf vetrarins kynnt
og boðið upp á léttar veitingar.
Meðal þess starfs sem í boði verður
í vetur eru mömmumorgnar, sem
þrátt fyrir nafnið eru ætlaðir öll-
um foreldrum, barna- og unglinga-
starf, tónlistarstarf af ýmsu tagi,
vinaheimsóknir, opið hús fyrir
eldri borgara og fullorðinsfræðsla,
sem er nýjung. Allir eru velkomnir
í guðsþjónustuna og á kynninguna,
þar sem Stúlknakórinn mun einnig
taka lagið.
Klukkan 13 er svo fundur í
kirkjunni með foreldrum vænt-
anlegra fermingarbarna.
Æðruleysismessa
í Árbæjarkirkju
MÁNUDAGINN 26. september
verður æðruleysismessa í Árbæj-
arkirkju kl. 20. Sr. Þór Hauksson
og sr. Karl Matthíasson þjóna fyrir
altari. Fjölbreytt tónlist, reynslu-
saga, hugvekja.
Allir eru boðnir velkomnir á
þessa guðsþjónustu sem verður á
mánudögum ársfjórðungslega í Ár-
bæjarkirkju.
Nýbreytni hjá Frí-
kirkjunni í Reykjavík
SÚ nýbreytni hefur verið tekin
upp hjá okkur í Fríkirkjunni í
Reykjavík að bjóða kirkjugestum
að mæta klukkustund áður en
guðsþjónustan hefst og æfa sálm-
ana sem sungnir verða í guðsþjón-
ustunni. Þetta þýðir að fólki er
boðið að mæta kl. 13 í kirkjuna og
æfa. Síðan hefst guðsþjónustan kl.
14.
Með þessu viljum við hvetja til
frekari safnaðarsöngs og fólk get-
ur þannig tekið meiri og virkari
þátt í guðsþjónustunni.
Kyrrðar- og bæna-
stundir í Fríkirkjunni
við Tjörnina
NÚ eru kyrrðar- og bænastundir
að hefjast í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Stundirnar verða á fimmtu-
dögum kl. 12.15 í kirkjunni og
hefjast 29. september. Staldrið við
í amstri daglegs lífs, takið and-
artak frá til þess að eiga stund
með Guði. Tónlistin er vel fallin til
að leiða mann í íhugun og bæn.
Allir velkomnir.
Íslenski söfnuðurinn
í Lundúnum
FYRSTA guðsþjónusta vetrarins
hjá Íslenska söfnuðinum í Lund-
únum verður sunnudaginn 25.
september klukkan 15 í Þýsku
kirkjunni við Montpelier Place,
SW1. Næsta neðanjarðarlestarstöð
er Knightsbridge.
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir,
prestur í Grafarvogskirkju þjónar
fyrir altari ásamt sr. Sigurði Arn-
arsyni, presti í Lundúnum sem
prédikar.
Íslenski kórinn í London syngur
undir stjórn Margrétar Sigurð-
ardóttir en einsöng syngur Elín
Huld Árnadóttir.
Sunnudagaskólinn verður eins
og síðastliðinn vetur í umsjón Haf-
dísar Huldar Þrastardóttur og
Henrys Ragnarssonar og bætast
fleiri sunnudagaskólakennarar
fljótlega í þann hóp.
Skólinn verður aldursskiptur
fyrir börn annars vegar 1–4 ára og
5–10 ára.
Þau sem hafa tækifæri til eru
hvött til að koma með eitthvað
meðlæti á kaffihlaðborð eftir mess-
una.
Fermingarfræðsla
Fermingarfræðslan hefst sunnu-
daginn 25. september næstkom-
andi. Nánari upplýsingar veitir sr.
Sigurður Arnarson.
Íslenski kórinn í Lundúnum
Íslenski kórinn í Lundúnum hóf
aftur æfingar, síðastliðið þriðju-
dagskvöld 21. september í íslenska
sendiráðinu, 2A Hans Street,
SW1X 0JE og æfir vikulega frá
klukkan 19–21. Næstu neðanjarð-
arlestarstöðvar eru Knightsbridge
og Sloane Square. Kórstjóri er
Margrét Sigurðardóttir.
Stofnun Íslenska barnakórsins í
Lundúnum
Stofnaður hefur verið íslenskur
barnakór í Lundúnum og stjórn-
andi kórsins verður Hafdís Huld
Þrastardóttir, nemi í tónsmíðum
og tónlistarmaður. Fyrsta æfing
kórsins verður í Þýsku kirkjunni á
Montpelier Place, næstkomandi
sunnudag, 25. september klukkan
16.. Kórinn er fyrir hressa og káta
krakka og unglinga á aldrinum 5–
14 ára. Nánari upplýsingar veitir
sr. Sigurður í síma 0207 259 3999
eða chaplain@mfa.is
Íslenskur djákni vígður
Mánudaginn 26. september
næstkomandi klukkan 19. mun Sig-
urlín Huld Ívarsdóttir, guðfræð-
ingur verða vígð sem djákni í St.
Johns-söfnuðinn í Notting Hill á
Ladbroke Grove W11 2NN. Biskup
Íslands dr. Karl Sigurbjörnsson
mun prédika og annast vígsluna
ásamt dr. Richard Chartres, bisk-
upnum af Lundúnum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/ÓmarFríkirkjan Í Hafnarfirði.