Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 61

Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 61 FRÉTTIR ÞEGAR þessar línur eru ritaðar er tveim umferðum ólokið í Evrópu- keppni taflfélaga sem lýkur í dag, laugardaginn 24. september. Að þessu sinni fer keppnin fram í St. Vincent í Ítalíu en það er smábær sem er kunnur fyrir að vera ,,ri- viera“ Alpanna. Þar er m.a. rekið þekkt spilavíti sem hefur verið að- dráttarafl fyrir ferðalanga allt frá því það var sett á laggirnar árið 1947. Við þessar aðstæður í fjall- lendi Ítalíu sitja margir af öflugustu skákmönnum heims og tefla fyrir hönd evrópskra klúbba hvaðanæva úr álfunni. Einn sá meistari sem margir dást að fyrir stílhreina tafl- mennsku, Vassily Ivansjúk (2752), teflir fyrir hönd pólska liðsins Pol- onia Plus GSM. Í fyrstu umferð tefldi hann meistaraverk gegn norska stórmeistaranum Leif Er- lend Johannessen (2543). Hvítt: Vassily Ivansjúk (2752) Svart: Leif Erlend Johanessen (2543) 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Rd5 Be7 10. Bxf6 Bxf6 11. c3 Bg5 12. Rc2 O-O 13. a4 bxa4 14. Hxa4 a5 15. Bc4 Hb8 16. b3 Kh8 17. O-O f5 Allir þessir leikir eru þekktir í Svesnikov afbrigðinu í Sikileyjar- vörn en næsti leikur hvíts virðist vera nýjung. 1stm Ivansjúk-Leif 18. He1!? Við fyrstu sýn virðist þetta ekki merkilegur leikur en dýpt hug- myndarinnar felst í að koma hrókn- um á a2 á haganlegan máta en það- an valdar hrókurinn f2 punktinn og þrýstir á a-línuna. Þessi strategíska hugmynd gengur upp í skákinni. 18...fxe4?! 19. Hxe4 Bf5 20. He2! Dd7 21. Rce3! Bg6 22. Hea2 e4 23. Bf1! Bd8 24. b4 Það er í raun og veru unun að sjá hvernig hvítur bætir stöðu sína hægt og sígandi. Hvítur tekur hvert skref að vandlega athuguðu máli og eins og framhaldið sýnir byggir hann taflið á undirtökum sínum á a- línunni, frípeðinu á b-línunni og hol- unum á miðborðsreitunum d4 og d5. 24...axb4 25. cxb4 Re5 26. Dd4! De6 27. b5 Bf6 28. Rxf6! Dxf6 29. h3 De6 30. Ha7 Df6 31. Dd2 Rd3 Svartur reynir hvað hann getur til að skapa sér færi en taktíkin er hliðholl hvítum. 2stm – Ivansjúk-Leif 32. b6! Dd4 Peðið mátti ekki taka með 32...Hxb6 vegna riddaraglennunnar á d5. Textaleikurinn hefur í för með sér að peðið kemst á b7. 33. b7 Db6 34. Bxd3! exd3 35. Db2 Dc5 36. Ha8 Be4 37. Hxb8 Hxb8 38. Ha8 Dc7 Næsti leikur hvíts lýkur skákinni á viðeigandi hátt – með einfaldri og snoturri fléttu. 3stm – Ivansjúk-Leif 39. Db6! og svartur gafst upp enda er mát eða liðstap óumflýjan- legt. Sá sem fer yfir þessa skák og kann að meta alla litlu leiki hvíts á að fá svipaða gæsahúð eins og þeg- ar magnað tónverk er flutt af vir- túósi. Þetta er ekki sagt til að vera með einhvers konar menningar- hroka heldur fyrst og fremst að benda á að mannshugurinn hafi enn möguleika til að skapa undurfögur verk á taflborðinu. Tvö íslensk félög eru á meðal keppnisliða á EM, Taflfélagið Hell- ir og Taflfélag Reykjavíkur. Hellir er Íslandsmeistari skákfélaga en TR lenti þar í öðru sæti. Svo óheppilega vildi til að sveitirnar mættust í þriðju umferð og varð bræðrabylta, 3-3. Þá höfðu báðar sveitirnar þrjú stig af sex mögu- legum en í næstu tveim umferðum beið sveit Hellis í lægra haldi fyrir sterku þýsku liði og svo fyrir til- tölulega lágt skrifuðu hollensku liði. Báðar viðureignirnar enduðu 3½ gegn 2½ Helli í óvil. Á meðan þessu stóð tapaði TR 4-2 fyrir norskri sveit en gerði svo jafntefli 3-3 gegn ítölsku liði sem hafði á að skipa stórmeistaranum Michael Godena (2522). Í viðureigninni gegn Norð- mönnum tefldi Þröstur Þór- hallsson (2454) með hvítu gegn kollega sínum Leif Erlend Jo- hannesson og rétt eins og í skák norska stórmeistarans gegn Ivansjúks kom upp Svesnikov afbrigðið í Sikil- eyjarvörn. Þröstur fór tiltölulega snemma úr alfaraleið en virðist hafa byggt taflmennsku sína á skák á milli Naiditsch og Sutovsky sem tefld var á ofurmóti í Dortmund í sumar. Í staðinn fyrir að sætta sig við skiptan hlut eftir að svartur hafði fórnað hrók og manni lék Þröstur illilega af sér og tapaði skákinni. Sú skák er hugsanlega dæmigerð fyrir misjafnt gengi ís- lensku liðanna þó að frammistaða nokkurra liðsmanna hafi verið góð. Þannig hefur alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2388) fjóra vinninga af fimm mögulegum á sjötta borði í sveit TR. Hann hefur teflt við prýðilega sterka skákmenn og mun hugsanlega hækka töluvert á stigum. Frammistaða Hannesar Hlífars (2579) hefur verið nokkurn veginn í samræmi við skákstig hans en félagi hans í liði Hellis, Björn Þorfinnsson (2328) er sá eini sem lagt hefur stórmeistara að velli af íslensku keppendunum þegar hann bar sigurorð af Petr Kirjakov (2571). Á skákhorni skákmanna á Net- inu, www.skakhorn.com, eru marg- ar af skákum íslensku keppendanna krufnar af netverjum. Einnig er að finna umfjöllun um mótið á www.skak.is sem og á heimasíðu mótsins, www.scacchivda.com/. Gott gengi Róberts í Ungverjalandi Róberti Harðarsyni (2361) hefur gengið afbragðsvel á alþjóðlegu móti í Kecskemét í Ungverjalandi. Síðustu staðfestu fregnirnar af mótinu voru þær að hann hafði fengið sex vinninga af sjö mögu- legum og þyrfti einn vinning úr síð- ustu tveim til að ná áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli. Vonandi tekst skákþættinum að verða sér úti um skákir frá mótinu þegar Ró- bert kemur til landsins en ólíkt mörgum öðrum mótshöldurum er engin heimasíða vegna þeirra móta sem haldin eru í Kecskemét. Fyrir nokkrum vikum náði Guðmundur Kjartansson áfanga að alþjóðlegum meistaratitili á móti þar svo að ís- lenskir skákmenn virðast gera góða hluti í heimalandi gúllassúpunnar. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur Sunnudaginn 25. september hefst Haustmót Taflfélags Reykja- víkur kl. 14.00 í félagsheimilinu Faxafeni 12. Tefldar verða níu um- ferðir og er gert ráð fyrir að því ljúki 19. október næstkomandi. Í efstu tveim flokkunum verður teflt samkvæmt nýju FIDE-tímamörk- unum en í opna flokknum verða tímamörkin 90 mínútur á 30 leiki og svo 30 mínútur til að ljúka skákinni. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu TR, www.skak- net.isen þar er hægt að tilkynna þátttöku. Einnig er hægt að til- kynna þátttöku sína á netfangið rz@itn.is og í síma 896-3969 (Rík- harður). Óður Ivansjúks til skáklistarinnar daggi@internet.is Helgi Áss Grétarsson EM taflfélaga lýkur í dag. SKÁK St. Vincent á Ítalíu EM TAFLFÉLAGA 18.–24. september 2005 Vassily Ivansjúk HÓPUR ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem ekki hefur fengið sæti á komandi þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna, hefur boðað til félagsfundar í Heimdalli nk. sunnudag kl. 17 á Hótel Borg. Hópurinn segir í tilkynningu að fé- lagsfundur Heimdallar sl. fimmu- dag hafi verið ólögmætur. Til hans hafi verið boðað með nokkurra klukkustunda fyrirvara. Í hópnum er 31 Heimdellingur. Þeir ætla að leggja fram tillögu á fundinum um að þeir fái sæti á SUS-þinginu. Í yfirlýsingu stjórnar Heimdall- ar, undirritaðri af Bolla Thorodd- sen, formanni félagsins, segir að val á fulltrúum félagsins sé ekki samningsatriði milli stjórnar og einhverra hópa innan félagsins. Stjórn Heimdallar hafi að beiðni umrædds hóps haldið félagsfund sl. fimmtudag. Rúmlega þrjú hundruð félagsmenn hafi mætt og staðfest með öllum greiddum atkvæðum gegn sjö að ákvörðun stjórnar Heimdallar um val á fulltrúum fé- lagsins á SUS-þing skyldi standa óhögguð. Davíð Þorláksson, talsmaður umrædds hóps, segir að skv. lögum Heimdallar geti félagsmenn boðað til félagsfundar að eigin frum- kvæði. Í tilkynningu frá hópnum, sem send var fjölmiðlum í gær, seg- ir að hópurinn hafi boðið Bolla og stjórn hans sættir. „Sáttatillagan felur í sér að þær reglur sem í gildi hafa verið síðan 1987, sem fela í sér að stjórn- armenn síðustu 5 ára fái seturétt á SUS-þingi, verði virtar. Komi sá 31 trúnaðarmaður sem stjórn Heimdallar hafnaði í stað þeirra sem skráðir hafa verið í Heimdall og Sjálfstæðisflokkinn á síðustu dögum og vikum og hafa aldrei starfað í þágu Heimdallar og Sjálfstæðisflokksins.“ Stjórn Heimdallar segir hins vegar í yfirlýsingu sinni að engar slíkar reglur um val á fulltrúum á SUS-þing sé að finna í lögum fé- lagsins. „Stjórnir félagsins hverju sinni hafa sett ákveðin viðmið og það hefur stjórn félagsins gert nú.“ Deila áfram um val á fulltrúum á SUS-þingHÓPUR ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem mótmælt hefur því að hann fái ekki sæti á komandi þingi Sambands ungra sjálfstæð- ismanna, segir í tilkynningu að fé- lagsfundur Heimdallar á fimmtu- dag hafi verið ólögmætur. Til fundarins hafi verið boðað með nokkurra klukkutíma fyrirvara. Það sé ótækt í félagi með yfir 4.000 félagsmenn. Hópurinn hefur farið fram á það að fá sæti á þinginu. Í hópnum er 31 Heimdellingur og eru þeir eftirfarandi: 1. Kristinn Árnason, stjórn- armaður og gjaldkeri í Heimdalli 2003–2004. 2. Svava Björk Hákonardóttir, stjórnarmaður í Heimdalli 2001– 2002 og í ritstjórn Gjallarhorns. 3. Ósk Óskarsdóttir, stjórn- armaður í Heimdalli 2003–2004 og umsjónarmaður útgáfumála. 4. Orri Hauksson, varaformaður Heimdallar 1996–1997 og fyrrv. aðstoðarmaður forsætisráðherra. 5. Ólafur Hvanndal, stjórnarmaður í Heimdalli 2003–2004 og umsjón- armaður Skuldahalans fyrir borg- arstjórnarkosningar og á við- burðum á vegum SUS. 6. Agnar Tr. Lemacks, stjórn- armaður í Heimdalli 1999–2000 og sat í kosningastjórn Heimdallar og SUS fyrir sveitarstjórnarkosn- ingar 2002 og alþingiskosningar 2003. 7. Guðmundur Björnsson, stjórn- armaður í Heimdalli 2002–2003 og umsjónarmaður fjárlagahóps. 8. Herjólfur Guðbjartsson, stjórnarmaður í Heimdalli 1998– 2000. 9. Arnar Þór Ragnarsson, fyrrver- andi gjaldkeri í Heimdalli 1994– 1995 og 1996–1997 og stjórn- armaður SUS 1997–1999. 10. Hermann Baldursson, ritari stjórnar Heimdallar 1998–1999 og umsjónarmaður kosningaskrifstofu í borgarstjórnarkosningum. 11. Bjarney Sonja Ólafsdóttir, stjórnarmaður í Heimdalli 2002– 2003 og núverandi varastjórn- armaður í SUS. 12. Hafrún Kristjánsdóttir, stjórn- armaður í Heimdalli 2003–2004. 13. Ásgeir Jóhannesson, stjórn- armaður í Heimdalli 2000–2002. 14. Ásgerður Ragnarsdóttir, stjórnarmaður í Heimdalli 2002– 2003. 15. Elín Bjarnadóttir, stjórn- armaður í Heimdalli 2000–2001 og varastjórnarmaður í SUS 2001– 2003. 16. Helga Baldvinsdóttir Bjarg- ardóttir, formaður jafnrétt- isdeildar Heimdallar 2003–2004 og núverandi stjórnarmaður í SUS. 17. Halldór Skúlason, stjórn- armaður í Heimdalli 1996–1997 og núverandi endurskoðandi SUS. 18. Steinunn Vala Sigfúsdóttir, nú- verandi varastjórnarmaður í SUS. 19. Hanna Kristín Skaftadóttir, situr í stjórn Hvatar. 20. Ari Björnsson, formaður fjár- öflunarnefndar Heimdallar 2003– 2004. 21. Jónas Hvannberg, stjórn- armaður í SUS 1997–2001. 22. Selma Ragnarsdóttir, fyrrver- andi formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum og fyrrverandi bæj- arfulltrúi. 23. Hjörtur J. Guðmundsson, for- maður utanríkismálanefndar á SUS-þingi 2005. 24. Steingrímur Arnar Finnsson, stjórnarmaður í Heimdalli 2003– 2004. 25. Svanhildur Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Heimdalli 2003– 2004. 26. María Margrét Jóhannsdóttir, varaformaður jafnréttisdeildar Heimdallar 2003–2004. 27. Eggert P. Ólafsson, formaður utanríkismálanefndar Heimdallar 2003–2004. 28. Einar Örn Ólafsson, gjaldkeri SUS 1999–2001. 29. Daði Hannesson, í útgáfunefnd Heimdallar 2003–2004. 30. Sveinn Biering, stjórnarmaður í Heimdalli 2003–2004. 31. Gísli Freyr Valdórsson, rit- stjóri Íhald.is og fastur penni á SUS.is. Vilja sæti á þingi SUS Á FÉLAGSFUNDI Heimdallar sl. fimmtudagskvöld var tilnefning stjórnar Heimdallar um val á fulltrúum félagsins á þing Sam- bands ungra sjálfstæðismanna stað- fest. Segir í tilkynningu að tilnefn- ingin hafi verið samþykkt og einungis sjö verið mótfallnir. Þá kemur fram að stjórnin telji að sá mikli fjöldi sem sótti fundinn og yf- irgnæfandi stuðningur fund- armanna endurspegli traust á störfum stjórnarinnar. Boðað var til fundarins eftir að erindi barst frá rúmlega 50 félagsmönnum um að haldinn yrði fundur til að endur- skoða tilnefningu stjórnarinnar. Fulltrúar stað- festir á félagsfundi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.