Morgunblaðið - 24.09.2005, Síða 62
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
VAKNAÐU GRETTIR,
KLUKKAN ER FJÖGUR
ÉG ER MEÐ
FRÁBÆRA
HUGMYND
HORFUM Á
SÓLARUPPRÁSINA
ÞÚ GETUR HORFT Á
HANA ÚT UM
GLUGGANN Á
SJÚKRABÍL
ÞETTA ER EINI
GRÍPARINN SEM KEPPIR UM
STANLEY BIKARINN
KALVIN, HEFUR VERIÐ
BREYTT Í PÖDDU. HANN
RÉTTIR BLAÐIÐ AF MEÐ
ERFIÐIS MUNUM
EINA LEIÐIN FYRIR HANN
AÐ BJARGA SÉR, ER AÐ
SKRIFA BRÉF TIL FJÖLSKYLDU
SINNAR Á ÞESSA RITVÉL
HANN HOPPAR Á
MILLI TAKKANNA
HVER SKRIFAÐI „HJÁLP ÉG
ER PADDA“ Á BRÉFIÐ
TIL ÖMMU?
GREINI-
LEGA
EINHVER
PADDA
HRÓLFUR, FÁUM VIÐ
EINHVERSKONAR BÆTUR ÞEGAR
VIÐ VERÐUM GAMALMENNI? JÁ!
ÞEGAR ÞIÐ VERÐIÐ 65
ÁRA, ÞÁ GETIÐ ÞIÐ BARA
SETIÐ Í BÁTNUM EN ÞURFIÐ
EKKI AÐ RÓA
30 MAÍ, 1920. HARRY
HOUDINI SLEPPUR
FIMLEGA FRÁ ÞVÍ
AÐ BORGA LEIGUNA
NÚ ÞEGAR ÞAÐ ER ORÐIÐ
SVONA HEITT Í VEÐRI, ÞÁ ÆTTUM
VIÐ AÐ MINNA STARFSFÓLKIÐ Á
AÐ KLÆÐA SIG RÉTT
JÁ, ÞAÐ
ER RÉTT.
VIÐ ÆTTUM
AÐ TALA
VIÐ ÞAU
KANSKI AÐ ÞAÐ MEGI
BÍÐA AÐEINS LENGUR
VIÐ KLÆÐUM
OKKUR EKKI
FORMLEGA, EN
ÞAÐ MÁ EKKI
GANGA OF
LANGT
ÞESSIR ÓÞOKKAR
SÖGÐU MÉR AÐ ÞEIR
VÆRU AÐ VINNA
FYRIR UGLUNA??
ÞAÐ VAR ÁÐUR EN
PUNISHER REYNDI
AÐ GATA ÞÁ
BEST AÐ
HEILSA UPP
Á HANN
MÉR SÝNDIST ÉG SJÁ
HANN UPPI Á ÞESSU
ÞAKI ÞARNA
Dagbók
Í dag er laugardagur 24. september, 267. dagur ársins 2005
Víkverja þykir fáttbetra en góður
ostur. Sérstaklega er
Víkverji veikur fyrir
blámygluostum og
kemst í annarlegt
ástand þá sjaldan að
hann lætur það eftir
sér að japla á góðum
blámygluosti, smá
sultu eða vínberjum
með og skola niður
með ísköldum bjór
eða jafnvel vínglasi.
Slíkt vandist Víkverji
á þegar hann var við
nám erlendis á sínum
tíma.
En á Íslandi er lítill
ostakúltur og gremst Víkverja það
stórlega. Ostaborðin í íslenskum
verslunum, jafnvel í sérverslunum
fyrir sælkera og ostaunnendur, eru
ofboðslega fátækleg miðað við það
sem þekkist erlendis. Ofboðslega!
Víkverja þykir fáránlegt að í ís-
lenskum stórmörkuðum skuli vera
hægt að kaupa hvaða amerísku
óhollustu, sykurleðju og snarl sem
hugurinn girnist í tíu sortum en
varla geta valið úr fleiri en 3–4 er-
lendum blámygluostum í besta falli.
Uppáhaldsostar Víkverja virðast
ekki seldir hér á landi. Annar þeirra
er hinn þýski Dorblu, yndislegur
verksmiðjuframleidd-
ur gráðostur (sem
fæst í hverri búð í
Evrópu). Hinn er
danskur ökológískur
blámygluostur sem
Víkverji man ekki
nafnið á en kaupir í
ostabúðinni miðja
vegu milli Illums og
Hringturnsins, þá
sjaldan hann er á
Strikinu. Dorblu er
góður, en sá danski er
himneskur.
Ástæða þess að
ostaframboðið á Ís-
landi er svona dapurt
eru innflutningstollar
og innflutningsbönn hins opinbera.
Innflutningstollarnir takmarka
stórlega það magn sem hægt er að
flytja inn og þann fjárhagslega
ávinning sem fyrirtæki gætu haft af
slíkum innflutningi. Innflutnings-
bönnin banna t.d. innflutning osta
sem unnir eru úr ógerilsneyddri
mjólk. Vitaskuld eru flestir bestu
ostarnir úr ógerilsneyddri mjólk.
Gat nú verið!
Og neytendur gjalda fyrir reglu-
gerðir landbúnaðarráðherra með
skammarlega slæmu ostaúrvali og
fokdýrum ostum. Þetta finnst Vík-
verja óþolandi.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Ingunnarskóli | Íþróttafélagið Fram er að hefja starfsemi sína í Grafarholti
þessa dagana og af því tilefni stungu útsendarar félagsins við stafni í Ingunn-
arskóla í gær og færðu öllum nemendum Fram-peysu að gjöf. Auk þess verð-
ur öllum börnunum í skólanum boðið á bikarúrslitaleik Fram og Vals í knatt-
spyrnu sem fram fer á Laugardalsvelli í dag. Hann hefst klukkan 14.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sótt fram í Grafarholti
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í kærleika sínum ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú
Kristi. Sá var vilji hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða
syni. (Ef. 1, 5.–7.)