Morgunblaðið - 24.09.2005, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 65
DAGBÓK
Aðalfundur SÍF hf. verður haldinn
mánudaginn 10. október, kl. 18.00,
á Nordica hotel, sölum H og I.
AÐALFUNDUR SÍF HF . 05
DAGSKRÁ
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýring
um endurskoðanda lagður fram til samþykktar.
3. Ákveðin þóknun til stjórnar.
4. Kosning stjórnar félagsins.
5. Kosning endurskoðenda félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál sem lög
lega kunna að verða lögð fyrir fundinn eða fundurinn
samþykkir að taka til meðferðar.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundinum
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en
sjö dögum fyrir aðalfundinn.
Dagskrá aðalfundarins, ársreikningur félagsins og
endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðal
fundinn.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir við inn
ganginn og á skrifstofu félagsins að Fornubúðum 5,
Hafnarfirði, fundardaginn.
Hafnarfirði, 23. september 2005
Stjórn SÍF hf.
SÍF hf. er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu fullunninna matvæla fyrir
Evrópumarkað. Hjá SÍF starfa tæplega 4.000 manns en félagið starf
rækir 12 verksmiðjur í Frakklandi, Englandi, Skotlandi og á Spáni.
Framleiðslan er seld undir eigin vörumerkjum, sem eru Labeyrie, Blini,
Delpierre, Skandia og Lyons Seafoods, og vörumerkjum verslanakeðja.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5.
a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Dg4 Kf8 8. a4
Dc7 9. Rf3 b6 10. Ba3 Ba6 11. Bb5 h6
12. O-O Kg8 13. c4 Bb7 14. cxd5 Rxd5
15. dxc5 bxc5 16. Hfe1 a6 17. Bd3 Rd7
18. Hab1 Hc8 19. Hb3 a5 20. Bb5 Bc6
21. h4 Rb4 22. He2 Rb6 23. Rd2 h5 24.
Dg5 Hh6 25. Bxc6 Dxc6 26. Re4 Rd7
27. Hg3 Hh7 28. c4 Dxa4 29. Hd2 Dc6
Evrópumeistari kvenna í skák, Kate-
ryna Lahno (2498), hafði hvítt í þessari
stöðu á meistaramóti Úkraínu gegn
stórmeistaranum Eduard Andreev
(2497). 30. Hxd7! Dxe4 hvítur hefði
unnið drottninguna eftir 30... Dxd7 31.
Rf6+. 31. Hd8+ og svartur gafst upp
enda verður hann mát í næsta leik. Það
er óvenjulegt að máta upp í borð og að í
stað peðs á h7 sé hrókur.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Ólafur B. Ólafsson spilar á nikkuna og
Stefán Stefánsson syngur. Þeir sem
vilja dansa taka sporið. Allir velkomn-
ir.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16
„Hjáverk í amstri daga“, opin list-
munaýning Einars Árnasonar. Fimm-
tud. 29. september: „Kynslóðir sam-
an í Breiðholti“, félagsvist í samstarfi
við Seljaskóla. Á mánud. kl. 11 (inni)
og miðvikud. kl. 9.30 (úti) sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum 9–16. Fastir liðir eins og
venjulega. Skráning á tölvu-, listþæf-
ingar- og framsagnarnámskeið
stendur yfir. Ef þú vilt hitta skemmti-
legt fólk þá kíktu við, fáðu þér kaffi-
sopa, líttu í dagblöðin og skoðaðu
haustdagskrána. Við getum líka sent
þér netbréf. Síminn er 568 3132.
Vesturgata 7 | Kór Félagsstarfs aldr-
aðra í Reykjavík æfir á mánudögum
og fimmtudögum frá kl. 13–16, nýir
kórfélagar velkomnir. Nánari upplýs-
ingar í síma 535 2740.
Félagsstarf
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Haustlitaferð 29. sept.: Brott-
för frá Gullsmára kl. 13.15 og frá Gjá-
bakka kl. 13.30. Ekin verður gamla
leiðin fyrir Hvalfjörð. Áð að Ferstiklu.
Síðan ekinn Dragháls, inn með
Skorradalsvatni að Braathenslundi.
Kaffihlaðborð að Skessubrunni í
Svínadal. Gamanmál, söngur og dans
á eftir. Skráningarlistar í fé-
lagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skráning er hafin á námskeið í staf-
göngu og framsögn, uppl. í síma
588 2111. Skemmtikvöld verður
föstudaginn 30. sept. kl. 20. Upp-
lestur, söngur, gamanmál, getraun,
dans ofl. Skráning í síma 588 2111.
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Caprítríó leikur fyrir dansi.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Haustfagnaður verður í Gullsmára
þriðjudaginn 27. sept kl 14. Kynnt
verða frönsk vín og íslenskir ostar,
kaffi og konfekt, allir fá að smakka.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Píanóleikararnir
Jón Sigurðsson og
Þórarinn Stef-
ánsson leika fjór-
hent á nýjan flygil
Ketilhússins á Ak-
ureyri á tón-
leikum sem Tón-
listarfélag
Akureyrar heldur
í samvinnu við Fé-
lag íslenskra tónlistarmanna á
sunnudaginn. Tónleikarnir hefjast
klukkan 16 og
flutt verða þekkt
verk fyrir tvo pí-
anóleikara eftir
Schubert,
Poulenc, Debussy
og Barber. Jafn-
framt flytja þeir
félagar útsetn-
ingu fyrir fjórhent
píanó á íslenska
þjóðlaginu „Fagurt syngur svan-
urinn“.
Fjórhent í Ketilhúsinu
Þórarinn
Stefánsson
Jón
Sigurðsson
Í DAG opna dönsku glerlistamenn-
irnir Anne K. Kalsgaard og Leif M.
Nielsen sýningu á verkum sínum í
Galleríi Húnoghún á Skólavörðu-
stíg 17.
Undanfarna mánuði hafa þau
Leif og Anne starfað hjá Gleri í
Bergvík-glersmiðjunni undir leið-
sögn Sigrúnar Ó. Einarsdóttur.
Einnig hafa þau ferðast um landið
og orðið fyrir sterkum áhrifum af
fegurð íslenskrar náttúru, eins og
segir í tilkynningu.
Anne stundaði nám í Brierly
Hill-glermiðstöðinni í Englandi en
Leif lærði við Kosta Glass School í
Svíþjóð, sem starfræktur er af
Kosta – Boda-glerverksmiðjunni.
Leiðir þeirra lágu saman á nám-
skeiði í Feneyjum 2002. Þau hafa
ferðast víða í tengslum við list sína,
m.a. til Istanbúl, New York og
Seattle en eins og þau orða það eru
glerblásarar fáir í heiminum og
leiða gjarna saman hesta sína til að
læra hvor af öðrum.
Sýning Önnu og Leifs opnar kl.
15 en hún stendur til 21. október.
Er sýningin að hluta styrkt af
Samskipum. Nánari upplýsingar
má finna á www.annekkalsgaar-
d.com
Dönsk glerlist á Skólavörðustíg
Eitt verka Leifs á sýningunni.
Verk Önnu af sýningunni.
Þjóðminjasafn Íslands
Síðasti sýningardagur tveggja
ljósmyndasýninga á Þjóðminjasafni
Íslands er á morgun. Sýningarnar
eru: Skuggaföll. Portrettmyndir
Kristins Ingvarssonar og Story of
your life - ljósmyndir Haraldar
Jónssonar.
Þjóðminjasafn Íslands er opið
þriðjudaga - sunnudaga kl. 11:00-
17:00. Lokað er á mánudögum.
Sýningum
lýkur
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Odd Nerdrum, ein mynda Kristins á
sýningunni.
EFNT er til útgáfuhófs í dag kl 16 í
anddyri Borgarleikhússins í tilefni
af útkomu nýrrar bókar Hugleiks
Dagssonar. Ber verkið titilinn Forð-
ist okkur og annast JPV útgáfuna.
Verður við sama tækifæri opnuð
sýning á teikningum úr væntanlegri
bók Hugleiks, Bjargið okkur, í and-
dyri Borgarleikhússins.
Boðið verður upp á léttar veit-
ingar og leikverkið Forðist okkur
kynnt, en það er flutt af Nemenda-
leikhúsinu í samvinnu við leikhópinn
CommonNonsense og byggt á sög-
um Hugleiks. Leikstjórar eru Stefán
Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttur.
Verkið verður síðan frumsýnt á litla
sviði Borgarleikhússins 29. sept-
ember.
Ný bók Hugleiks
Morgunblaðið/Kristinn
Hugleikur Dagsson.
ÓKEYPIS aðgangur er að öllum
sýningum Þjóðmenningarhússins
fram til 5. október en nú stendur
þar yfir sýning á tillögum um bygg-
ingu Tónlistarhúss og Ráðstefnu-
miðstöðvar við Austurhöfnina í
Reykjavík ásamt skipulagi aðliggj-
andi svæða.
Opið frá 11–17 alla daga vik-
unnar. Veitingar við allra hæfi má
finna á veitingastofunni Matur og
menning.
Ókeypis í Þjóð-
menningarhúsið
Í TILEFNI evrópsks tungumáladags
26. september, stendur Nordklúbb-
urinn fyrir tungumálamaraþoni í
húsakynnum Norræna félagsins á
Óðinsgötu 7 í Reykjavík. Maraþonið
hefst kl. 14 mánudaginn 26. sept-
ember og stendur til miðnættis og
eru allir velkomnir. Í maraþoninu
mun gestum verða boðið að læra ör-
lítið í níu evrópskum tungumálum.
Mun hver kennslustund vara í um
það bil eina klukkustund. Nánari
upplýsingar: www.norden.is/
nordklubb og hjá Norræna félaginu.
Tungumálamaraþon
hjá Norræna félaginu
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Ösp mun
gangast fyrir íþróttakynningu,
laugardaginn 24. september kl. 14–
16, í íþróttahúsi ÍFR í Hátúni 14.
Þjálfarar hinna ýmsu íþrótta-
greina svara spurningum. Netfang
Aspar er olliks@simnet.is og
heimasíða er here.is/osp
Íþróttadagur Aspar
AÐALFUNDUR Sögufélags verður
haldinn í dag, laugardag, í húsi fé-
lagsins í Fischersundi 3 og hefst kl.
14.00. Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa mun Bjarni Einarsson
fornleifafræðingur flytja erindi,
sem ber heitið „Bær í Öræfum:
Augnabliksmynd árið 1362.“
„Augnabliksmynd
árið 1362“
SKÁKMÓT fyrir stelpur á grunn-
skólaaldri fer fram í Rimaskóla í
Grafarvogi í dag en stelpur úr öll-
um hverfum og skólum eru vel-
komnar Mótið hefst klukkan ellefu
og veittir verða vinningar í boði
Zikzak tískuhúss og Hársports.
Einnig verða gefnar bækur frá
Eddu útgáfu og Sölku forlagi.
Skákmót fyrir
stúlkur í Rimaskóla
ZEDRUS er ný verslun sem selur
úrval af persneskum hand-
hnýttum mottum frá Töfratepp-
inu og handgerð austurlensk hús-
gögn og gjafavörur frá
Markaðsþjóni. Verslunin er í
Hlíðarsmára 11, austurenda, jarð-
hæð. Eigandi Zedrus er Ester
Sveinbjarnardóttir.
Í tilefni opnunar verður fagn-
að, í dag, laugardaginn 24. sept-
ember kl. 15 til 18. Þá mun sér-
fræðingur í austurlenskum
teppum frá Danmörku verða til
aðstoðar fyrstu dagana.
Afgreiðslutími verslunarinnar
verður frá kl. 11 til 18 virka daga
og kl. 11 til 15 á laugardögum.
Zedrus ný verslun í Hlíðarsmára
MISHERMT var í Morgunblaðinu í
gær að farþega- og flutningaferja
Smyril-Line, Norröna, yrði í slipp
frá 24. október fram til 10. desember
n.k. Hið rétta er að Norröna fer í
slipp í eina viku eftir helgi, en mun
eftir það sigla á vetraráætlun með
fragt eingöngu fram til 10. desem-
ber, þegar aftur verður byrjað að
taka farþega. Í næstu viku á m.a. að
kanna bilun í stöðugleikabúnaði.
Ferjan verður svo aftur tekin í slipp í
byrjun janúar. Smyril Blue Water
mun á þessum tíma eins og áður m.a.
flytja fisk og kælivörur á flutninga-
bílum og í gámum með Norrönu til
Norðurlandanna, Evrópu, Færeyja
og Íslands. Á suðurleiðinni frá Ís-
landi og Færeyjum til Evrópu er að-
allega fluttur fiskur, en norður fara
ýmsar vörur. Er beðist velvirðingar
á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Norröna