Morgunblaðið - 24.09.2005, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 69
MENNING
Lifun er tímarit um
heimili, lífsstíl og
fallega hönnun
Meðal efnis í næsta blaði:
• Naumhyggjan í útlitshönnun
• Svarti liturinn setur svip sinn á heimilið
• Myndlist og hönnun mætast
• Frumlegir réttir með framandlegu yfirbragði
Lifun er dreift í 60.000 eintökum
og sjöunda tölublaðið í ár kemur
út 1. október næstkomandi.
Panta þarf auglýsingar
fyrir kl. 16 miðvikudaginn
28. september
Auglýsingar: Sif Þorsteinsdóttir, sími 569 1254.
sif@mbl.is
SVAVAR Knútur Kristinsson bar
sigur út býtum í Trúbadora-
keppni Rásar 2, sem lauk í gær.
Framlag hans var lagið „Dansa“,
„melankólískur óður um vonar-
glætuna í myrkri sorgar og dep-
urðar,“ að því er söngvaskáldið
segir sjálft. Kosið var á milli fjög-
urra trúbadora og laga þeirra í
úrslitakeppninni á ruv.is. Auk
Svavars komust í úrslit Birgir Ol-
geirsson með lagið „Kveðið um
Kötu“, „Dölli“ með lagið „Pabbi
minn“ og Tómas Axel Ragn-
arsson, með lagið „Learn How to
Behave“.
Svavar Knútur, sem er blaða-
maður á Morgunblaðinu, hefur
hingað til ekki verið þekktur sem
trúbador, en hann hefur verið for-
ystumaður hljómsveitarinnar
Hraun! sem gert hefur víðreist
um landið í spilamennsku sinni.
„Stefna sveitarinnar er að brjóta
múra milli listviðburða og
skemmtunar og veita fólki þannig
kvöldstund sem fer allt frá tón-
leikum yfir að teiti,“ segir Svavar.
Hættir ekki með Hraun!
Aðspurður hvort hann ætli að
snúa sér alfarið að spilamennsku
sem trúbador segist Svavar alls
ekki ætla að hætta í hljómsveit-
inni. „Hún er mitt líf og yndi.
Strákarnir í sveitinni eru lífs-
förunautar mínir. Það getur þó
verið að ég komi oftar fram einn
með gítarinn á næstunni, ef ég er
beðinn fallega,“ segir hann. Í
verðlaun hlaut hann kassagítar,
munnhörpu og 10 hljóðverstíma í
Geimsteini, auk þess sem hann
flýgur til Neskaupstaðar í dag og
spilar á Trúbadorahátíðinni þar í
bæ, sem stendur yfir um helgina.
Morgunblaðið/Kristinn
Svavar Knútur Kristinsson trúbador.
Svavar Knútur vann
Tónlist | Trúbadorakeppni Rásar 2
Í KVÖLD verður blásið til eins
stærsta sveitaballs ársins í Reiðhöll-
inni á Sauðárkróki en um er að ræða
hina árlegu samkomu Lauf-
skálaréttardansleikinn.
Í ár verða það hljómsveitirnar
Brimkló og VON frá Sauðárkróki
sem sjá um að skemmta gestum og
gangandi á laugardaginn en þetta er
í fyrsta sinn sem hljómsveitin fyrr-
nefnda spilar á téðu balli.
Brimkló skipa að vanda þeir
Björgvin Halldórsson, Arnar Sig-
urbjörnsson, Ragnar Sigurjónsson,
Haraldur Þorsteinsson, Magnús
Einarsson, Þórir Baldursson og
Guðmundur Benediktsson.
Björgvin sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þeir félagar væru
spenntir að taka þátt í gleðskapnum.
„Þetta verður fjölmenn og mikil
samkoma,“ sagði hann og bætti við
að hann vonaðist til að færðin norður
yrði þeim ekki fjötur um fót.
„Það er verið að spá eldi og
brennisteini.“
Hann segir viðstadda mega búast
við miklu fjöri og góðri skemmtun í
kvöld.
Björgvin hefur annars alið mann-
inn undanfarna vikur og mánuði í
hljóðveri þar sem yfir standa upp-
tökur á væntanlegri safnplötu frá
kappanum. Platan verður hvorki
meira né minna en þreföld og inni-
heldur öll þekktustu lög Björgvins
frá 35 ára söngferli hans. Platan,
sem ber heitið Ár og öld … Söngbók
Björgvins Halldórssonar 1970–2005,
inniheldur jafnframt fjórar nýjar
hljóðritanir og kemur út síðar í
haust.
Einnig eru að hefjast æfingar á
söngkabarettinum Nínu og Geira
þar sem tónlist Björgvins verður í
aðalhlutverki. Frumsýning er áætl-
uð 12. nóvember næstkomandi.
Auk Brimklóar leikur hljóm-
sveitin VON fyrir dansi í kvöld, eins
og áður sagði, en sveitina skipa þeir
Ellert Heiðar Jóhannsson, Sorin
Lazars, Sigurður Björnsson, Sig-
urpáll Aðalsteinsson og Gunnar Ill-
ugi.
Tónlist | Laufskálaréttardansleikurinn á Sauðárkróki
Von á Brimkló
Hljómsveitin Brimkló er á leið á Sauðárkrók…ef færðin lofar.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is