Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
RÚSSNESKIR virtúósar er heiti
tríós, rússnesks að sjálfsögðu, sem
hefur tónleikaferðalag um landið í
dag.
Fyrstu tónleikar þeirra verða í
Glerárkirkju á Akureyri í kvöld kl. 20,
en þaðan liggur leið tónlistarfólksins
næstu tíu daga til Dalvíkur, Ísafjarð-
ar, á Flúðir og loks til Reykjavíkur,
þar sem haldnir verða tónleikar í
Salnum sunnudagskvöldið 13. nóv-
ember kl. 20. Auk þess mun tríóið
heimsækja skóla og vinnustaði víðs
vegar um landið.
Tríóið er skipað þeim Dimitry A.
Tsarenko, sem leikur á balalaika og
er ennfremur stjórnandi og útsetjari
hópsins, Nicholas A. Martynov sem
leikur á bassa-balalaika og Veru A.
Tsarenko, sem leikur á domra.
Þetta er ekki fyrsta ferð hins rúss-
neska virtúósatríós hingað til lands.
Árið 2000 heimsóttu þau landið með
það að augnamiði að kynna rússnesk
alþýðuhljóðfæri og tónlist og vöktu
þá mikla athygli tónleikagesta.
Á tónleikum sínum nú mun tríóið
eftir sem áður leika rússneska alþýðu-
tónlist, en einnig útsetningar á klass-
ískum tónverkum frá Rússlandi og
víðar. Að sögn Guðbrands Sigurðs-
sonar, eins aðstandenda tónleikanna,
komst hann í kynni við tríóið í gegn-
um rússneska sendiherrann hér á
landi árið 2000, þegar hann gegndi
stöðu rússnesks heiðurskonsúls á Ak-
ureyri. „Þá stóðum við fyrir tón-
leikum þeirra bæði á Akureyrarsvæð-
inu og í Reykjavík, sem hlutu mjög
jákvæða dóma,“ segir hann.
Guðbrandur segist ekki vera rétti
maðurinn til að dæma um hvort þarna
séu sannir virtúósar á ferð, eins og
nafn tríósins gefur til kynna.
„En þetta er mjög sérstök tónlist
sem þau leika og það er alveg satt, að
þau hljóma eins og heil hljómsveit,
þrátt fyrir að vera einungis þrjú,“
segir hann.
Tónlist | Rússneskir virtúósar á tónleikaferðalagi um landið
Tríóið „Rússneskir virtúósar“ hefja tónleikaferð um landið í dag.
Alþýðutónlist
og klassísk verk
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
ÖRN Magnússon píanóleikari, leik-
ur prelúdíur úr síðara prelúdíu-
safni Debussys á tónleikum í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á
sunnudag kl.17.
Tónleikarnir eru í tónleikaröð
kennara Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar.
Örn Magnússon lauk burtfar-
arprófi í píanóleik frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri árið 1979 og
stundaði framhaldsnám í Man-
chester, Berlín og London.
Hann hefur haldið fjölda tón-
leika og leikið inn á geislaplötur
bæði sem einleikari og í kamm-
ertónlist.
Örn hefur komið fram á alþjóð-
legum tónlistarhátíðum í Japan,
Noregi, Finnlandi, Ungverjalandi
og víðar.
Hann hefur undanfarin ár ein-
beitt sér að flutningi íslenskrar
píanótónlistar, meðal annars eftir
tónskáldin Jón Leifs og Pál Ísólfs-
son.
Örn hlaut Íslensku tónlistar-
verðlaunin 2001 ásamt Finni
Bjarnasyni söngvara, fyrir hljóm-
diskinn með Söngvum Jóns Leifs.
Prelúdíur Debussys
í Sigurjónssafni
Örn Magnússon píanóleikari.
VINNUSTOFURNAR RE-105 eru
aðsetur 5 listakvenna, sem bjóða
almenningi að heimsækja sig á
morgun frá kl. 14 – 18. Vinnustof-
urnar eru í Skúlatúni 4, á þriðju
hæð, og listakonurnar fimm eru:
Aðalbjörg Erlendsdóttir fata- og
textílhönnuður, Auður Bergsteins-
dóttir listamaður, Dagný Sif Ein-
arsdóttir myndlistarmaður, Sigríð-
ur G. Sverrisdóttir myndlistar-
maður og grafískur hönnuður og
Sigríður Elfa Sigurðardóttir text-
ílhönnuður.
Verk þeirra verða þar til sýnis
og sölu og boðið upp á léttar veit-
ingar.
Opið um borð
í RE-105