Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT 5. sæti París. AFP, AP. | Dominique de Villep- in, forsætisráðherra Frakklands, hét því í gær að koma á lögum og reglu í úthverfum Parísar eftir að óeirðir blossuðu þar upp í fyrrinótt, sjöundu nóttina í röð. Stjórn hans sætir vax- andi gagnrýni fyrir að hafa brugðist of seint og slælega við vandamálinu. Yfir þúsund lögreglumenn beittu kylfum og táragasi í átökum við ung- menni í að minnsta kosti níu úthverf- um Parísar og þrettán bæjum í grennd við borgina. Fjórum byssu- kúlum var skotið að lögreglu- og slökkviliðsmönnum en enginn særð- ist. Ungmenni náðu lögreglustöð í hverfinu Aulnay-sous-Bois á sitt vald um tíma og gengu þar berserksgang. Eldar voru kveiktir í íþróttahúsi og bílasöluhúsi og skemmdarverk unn- in á verslunarmiðstöð. Óeirðirnar geisuðu í hverfum þar sem innflytjendur og afkomendur þeirra eru í meirihluta. Glæpastarf- semi er mikið vandamál í hverfun- um, atvinnuleysið er þar helmingi meira en annars staðar í Frakklandi og meðaltekjur íbúanna um 40% minni en meðaltekjur allra Frakka. Íbúar hverfanna, sem eru margir múslímar, hafa einnig kvartað yfir harðræði lögreglumanna. Sarkozy sagður hafa kynt undir spennunni Villepin forsætisráðherra sagði að ástandið í úthverfum Parísar væri „óviðunandi“ og það hefði „algeran forgang“ að binda þegar í stað enda á óeirðirnar. Franskir stjórnarandstæðingar sökuðu hægristjórnina um að hafa hunsað vandamál úthverfa Parísar. Vinstrimenn sögðu að ríkisstjórnin hefði brugðist of seint við óeirðunum og hægrisinnaðir þingmenn röktu vandann til þess að of mörgum inn- flytjendum hefði verið hleypt til landsins. Franskir stjórnarandstæðingar og evrópsk dagblöð sökuðu einnig Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, um að hafa kynt undir spennunni í hverfum innflytjenda í París með harðorðum yfirlýsingum sem þykja líkjast málflutningi margra hægriöfgamanna í Frakk- landi. Sarkozy hefur meðal annars talað um að „hreinsa“ þurfi úthverfin af „úrþvættum“ og hafa margir inn- flytjendur tekið það óstinnt upp. Franska ríkisstjórnin sætir vaxandi gagnrýni Sögð hafa brugð- ist of seint við óeirðum í París Reuters Lögreglumenn við brennandi bíl í úthverfi Parísar, Aulnay-sous-Bois, eftir að óeirðir blossuðu þar upp í fyrrinótt.   4   !"# N # ! "$$# (( C <C$ " 5  C O $6- O C # " $ C$$6O  G - 4 4 1:$ # "4 1 5 4 "    N # )O$ 4 # 4  C )& 4  6 -  # &    -O 5  O -    +P 00 , 9K <C$  A %)$"$*"$ >  !C  ! - "   4# $@#$ # 4$ "$  $O  & $ 4#$# " !C $ )G$ $ 44-$ C #4 )& 4 2" 4  0&  C !C  4$     " &  !C  # #  $"$*"$ Q4    ! $ $ C   $# " &  C  !C 4 $ % $ %    & '( ) *  "+ ÞING Spánar samþykkti aðfaranótt þriðjudags að umdeild áætlun um aukna sjálfstjórn Katalóníu teldist tæk til meðferðar. Hægri menn voru einir á móti en langt ferli er nú fram undan áður en breytingar á stöðu Katalóníu innan spænska ríkisins verða að veruleika. Krafan um breytta stöðu innan Spánar, sem felur í sér aukna sjálf- stjórn, var samþykkt með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða á þingi Katalóníu 30. september. Í sam- þykktinni er m.a. kveðið á um aukna sjálfstjórn á sviði fjármála, ákveðið „breytingavald“ gagnvart þeim lög- um sem þingið í Madríd samþykkir, og að Katalónar fái stöðu „þjóðar“ innan Spánar. Eftir umræðu sem stóð í 12 klukkustundir var gengið til at- kvæða um frekari meðferð tillög- unnar. Fór svo að 197 þingmenn reyndust tillögunni samþykkir en 146 andvígir. Í neðri deild spænska þingsins sitja 350 fulltrúar. Þing- menn Þjóðarflokksins (Partido Popular, PP) voru einir andvígir en þeir telja kröfu Katalóna fallna til að rjúfa einingu spænska ríkisins og því stjórnarskrárbrot. Samþykkt spænska þingsins þýð- ir í raun að fyrstu hindrun hefur ver- ið rutt úr vegi. Krafa Katalóna fær nú þinglega meðferð með tilheyr- andi breytingatillögum. Tillögunni verður vísað til stjórnarskrárnefnd- ar þingsins. Munu margir mánuðir líða þar til hún verður aftur borin upp fyrir þingheim í Madríd. Sýnt er að breyta þurfi henni til að hún fari saman við spænsku stjórnarskrána. José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra minnihlutastjórn- ar Sósíalistaflokksins (PSOE), hélt uppi vörnum fyrir samþykkt kata- lónska þingsins en Zapatero reiðir sig m.a. á stuðning vinstri manna og lýðveldissinna í Katalóníu á þinginu í Madríd. Hið sama gerðu fulltrúar Katalóna á þinginu í Madríd og ein- kenndist umræðan af verulegum til- finningahita. Zapatero og fleiri héldu því fram að krafa Katalóna fæli ekki í sér að brotið yrði gegn stjórnarskránni og því væri hún tæk til þinglegrar meðferðar. Þessu mót- mæltu þingmenn PP með leiðtogann Mariano Rajoy í broddi fylkingar harðlega. Samþykkt katalónska þingsins hefur valdið umtalsverðu tilfinninga- legu umróti á Spáni. Katalónía er ásamt Baskalandi ríkasta hérað Spánar og því óttast margir að aukin sjálfstjórn í fjár- og skattamálum verði til að raska þeirri tekjudreif- ingu sem fram fer á vettvangi mið- stjórnarvaldsins í Madríd. Að auki óttast margir, einkum hægri menn, að einingu ríkisins verði ógnað verði gengið að kröfum Katalóna. Svipað ar kröfur hafa komið fram í Baska- landi en þeim hefur verið hafnað, einkum með tilvísun til stjórnar- skrárinnar. „Þjóð“ innan ríkisins Þá hafa margir orðið til þess að andmæla því að til standi að Kata- lónar fái stöðu „þjóðar“ innan spænska ríkisins. „Ég er Spánverji og ég tel að Katalónía sé afar mikil- vægt hérað innan Spánar,“ sagði Rajoy m.a. í þingumræðunni og upp- skar klapp samflokksmanna sinnar. „Katalónar eru samlandar mínir og ég tel að breyting á stöðu þeirra [innan spænska ríkisins] verði nei- kvæð fyrir þá,“ bætti hann við. Zapatero forsætisráðherra lagði á hinn bóginn áherslu á að aukið for- ræði Katalóna í eigin málum væri öldungis í samræmi við stjórnarskrá Spánar og myndi „styrkja lýðræðið“ í landinu. Sagði hann niðurstöðu þingsins í Madríd fela í sér að full- trúarnir væru samþykkir kröfu Katalóna en jafnframt vildi þing- heimur tryggja að hún bryti ekki gegn stjórnarskránni. Spánn skiptist upp í 17 sjálfstjórn- arhéruð samkvæmt stjórnarskránni frá árinu 1978. Sjálfstjórnin eða for- ræði í eigin málum er á hinn bóginn mismikil, mest í Katalóníu, Baska- landi og Galisíu. Tungumál sem töl- uð eru í þessum héruðum, þ.e. kata- lónska, baskneska og galisíska, hafa sömu stöðu og ríkismálið, spænska, í þeim sömu þremur héruðum og í Katalóníu og Baskalandi starfa sér- stakar lögreglusveitir heimamanna svo dæmi séu tekin. Þá hafa þessi héruð mikið forræði í menntamálum sínum og er raunar svo komið að halda má því fram að katalónska njóti nú yfirburða lögum samkvæmt gagnvart spænsku í Katalóníu. Í stjórnarskránni er á hinn bóginn tekið fram að fullveldið eigi upptök sín hjá spænsku þjóðinni en ekki í einstökum héruðum Spánar. Í ræðu sinni lagði Zapatero for- sætisráðherra til að gerðar yrðu ýmsar veigamiklar breytingar á samþykkt katalónska þingsins. Stuðningur hans reyndist því skil- yrtur. Hann forðaðist t.a.m. að nota orðið „þjóð“ um Katalóna í ræðu sinni en vísaði þessi í stað til „þjóð- arsérstöðu“ eða „þjóðarvitundar“ („identidad nacional“) þeirra. Áfangasigur Katalóna Spánarþing samþykkir að krafa um aukna sjálfstjórn Katalóníu innan spænska ríkisins fái þinglega meðferð Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is Reuters Mariano Rajoy, leiðtogi Þjóðar- flokksins, á þingfundi um kröfu Katalóna um aukna sjálfstjórn. París. AFP, AP. | Stjörnufræðingar í Bandaríkjunum telja sig hafa greint daufan bjarma frá fyrstu stjörnunum sem mynduðust í al- heiminum, að því er fram kemur í grein í vísindatímaritinu Nature. Talið er að stjörnurnar hafi myndast úr frumgasi og geim- ryki um 100–200 milljónum ára eftir Miklahvell sem talið er að hafi orðið fyrir um 13,7 millj- örðum ára. Vísindamenn Geimrannsókna- stofnunar Bandaríkjanna, NASA, notuðu innrauða myndavél í geimsjónaukanum Spitzer til að greina sundur geislun frá fyrstu stjörnunum og geislun frá öðrum stjörnum og vetrarbrautum. Talið er að fyrstu stjörnurnar hafi myndast úr vetni, helín og litín. Alexander Kashlinsky, sem stjórnaði rannsókninni, sagði að stjörnurnar hefðu verið firna- stórar, líklega mörg hundruð sinnum massameiri en sólin. Tal- ið er að þær hafi verið tiltölulega skammlífar og brennt allt vetnið á nokkrum milljónum ára. Ennfremur er talið að fyrstu stjörnurnar hafi búið til efni sem síðar voru mikilvæg við myndun annarra stjarna. Avi Loeb, stjörnufræðiprófess- or við Harvard-háskóla, sem tók ekki þátt í rannsókninni, sagði niðurstöðu hennar mjög áhuga- verða. „Þetta er í fyrsta skipti sem við sjáum hugsanlegar vís- bendingar um hvernig og hvenær fyrsta stjörnubirtan varð til.“ Richard Ellis, stjörnufræðipró- fessor við California Institute of Technology, sagði hins vegar að aðeins minniháttar mistök við að greina geislunina sundur kynnu að leiða til rangrar niðurstöðu í slíkum rannsóknum. Bjarmi frá fyrstu stjörnum alheimsins?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.