Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kjartan í 3. sætið Veljum traustan og öflugan málsvara borgarbúa í borgarstjórn! www.kjartan.is „MÉR þætti það með miklum ólíkindum ef það kæmi til að samningum yrði sagt upp miðað við þá stöðu sem nú er,“ sagði Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og bætir við að samtökin séu tilbúin til að vinna úr þess- um forsenduákvæðum kjarasamninganna á svip- aðan hátt og gert var á síðasta samningstímabili og segir sömu forsendur hafa verið þá og nú. „Og við erum tilbúnir til þess þrátt fyrir að stað- an í atvinnulífinu gefi ekkert tilefni til þess að samþykkja neinar kostnaðarhækkanir af hvaða tagi sem vera skal.“ Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær lýsti miðstjórn Alþýðusambands Íslands yfir miklum vonbrigðum með viðbrögð atvinnurekenda og ríkisstjórnar við áherslum ASÍ til lausnar á þeirri stöðu sem er í viðræðum um endurskoðun kjarasamninga. Meðal annars kom fram í máli Grétars Þorsteinssonar, forseta ASÍ, að mið- stjórnin hefði metið stöðuna í viðræðunum og sé þeirrar skoðunar að verði ekki breyting á blasi við að reyna á uppsagnarákvæðið. Fráleitt að segja upp samningum Ari segir ekki um það deilt að nú sé staðið frammi fyrir því að forsenduákvæði kjarasamn- inga sé virkt, einkum vegna verðlagsþróunar en engu að síður verði einnig að horfa á þá stöðu að kaupmáttur hér er í sögulegu hámarki og hefur verið að þróast jákvætt frá upphafi ársins 2004. Jafnframt bendir Ari á að kaupmáttur launa hafi vaxið um 40% á undanförnum tíu árum og kaup- máttur ráðstöfunartekna hafi á sama tíma vaxið um 60%. Því verði menn að horfa á heildarmynd- ina þegar lagt er mat á hvað sé skynsamlegt í þeirri stöðu sem nú er komin upp. Ari segir mik- ilvægt að horfa til þess að sú nálgun að gera svo- kallaða forsendusamninga til lengri tíma en áður hafi skilað launafólki miklu meiri árangri en þeir verðbólgufroðusamningar sem gerðir voru áður, og fært landsmönnum meiri aukningu kaup- máttar en nokkru sinni fyrr. Hann telur því að það væri alvarlegt mál að víkja frá þeirri nálgun og verði aftur farið í gamla farið geti tekið lang- an tíma að ná jafnvægi á ný. Hann minnir einnig á að það hafi ekki verið fyrr en árið 1999 að náð hafi verið þeim kaupmætti aftur sem mældist hér árið 1980. „Ég tel að það væri því fráleit niðurstaða við þessar aðstæður sem nú eru uppi að segja samn- ingum upp og stefna vinnumarkaðnum almennt í átök og verkföll,“ segir Ari og segir yfirlýsingu ASÍ ekki til þess að auka bjartsýni í viðræðunum sem staðið hafa yfir að undanförnu. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, bregst við yfirlýsingum miðstjórnar ASÍ Kaupmáttur í sögulegu hámarki Eftir Andra Karl andri@mbl.is FÉLAGAR í Ferðaklúbbi rannsóknarlögreglumanna í Reykjavík, FERLIR, skoðuðu í gær fornan stein sem FERLIS-félagar hafa lengi leitað að, svonefnda Hall- grímshellu. Í ljós kom að hellan er í varðveislu Þjóð- minjasafns Íslands. Um er að ræða fyrrum aflanga steinhellu á klöpp skammt norðan Þórshafnar við Ósa. Á heimasíðu ferlir.is kemur fram að á hellunni átti að vera áletrun (HPS), sem m.a. hefur verið eignuð séra Hallgrími Péturssyni, presti í Hvalsnesi. Hellan er innskráð í Þjóðminjasafnið með eftirfar- andi hætti: „Þungur steinn aflangur sem í er klappað stöfunum HPS og beint þar fyrir aftan er klappað ártalið 1628. Steinn þessi var rétt vestan við Þórs- höfn norðan Ósabotna, fast við gamla veginn. Menn hafa viljað halda, að Hallgrímur Pétursson hafi klappað þarna fangamark sitt, en hann kom ekki að Hvalsnesi fyrr en 1644 og er aðeins 14 ára árið 1628.“ Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, formanns FERLIS, ber ljósmynd af hellunni frá 1964 með sér að ártalið sé 1638 og því séu tengslin við Hallgrím Pétursson ekki eins augljós og ætla mætti úr því ár- talið reynist 1628. Merkingin HPS gæti verið graf- skrift yfir manni sem hefði orðið úti á þessum slóð- um fyrr á öldum. Segir Ómar Smári ennfremur að Hallgrímshellan veki spurningar um staðsetningu fornminja, þ.e. hvort varðveita eigi þær í lokuðum geymslum eða á heimaslóðum. Leituðu að Hallgrímshellunni Morgunblaðið/Árni Sæberg HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Rangárþing eystra af kröfum Eggerts Haukdals, fyrrv. oddvita V-Landeyjarhrepps, um greiðslu 4 milljóna kr. er nam mismun á fjárhæð vegna leiðréttinga og bakfærslna, sem hann áleit að gera ætti í bókhaldi hreppsins honum til tekna, og skuldar, sem hann var í við hreppinn sam- kvæmt bókhaldinu. Byggði Egg- ert m.a. á því að tilteknar fjár- hæðir hefðu verið ranglega færðar í reikningum hreppsins sem skuld hans við hreppinn þar sem þær hefðu stafað frá kaupum hreppsins á jörð en ekki verið persónuleg skuld hans. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að ekkert hefði verið fært í reikn- inga hreppsins um kaup og end- ursölu á umræddri jörð og var Eggert ekki talinn hafa sýnt fram á að þær skuldbindingar, sem deilt var um að þessu leyti, hefðu með réttu átt að falla á hreppinn. Þá áleit Eggert að bókhalds- mistök hefðu verið gerð, er leiddu til þess að talið var að hann væri í skuld við hreppinn í ársbyrjun 1996. Ekki var talið sannað að Eggert ætti kröfu um leiðrétt- ingu á þessu atriði. Kröfugerð Eggerts byggðist enn fremur á því að oddvitalaun til hans á ár- unum 1994 til 1998 hefðu verið vangreidd. Var á það fallist að hann ætti vangreidd laun fyrir ár- in 1995, 1997 og 1998 um tiltekna fjárhæð. Þá byggði Eggert enn fremur á því að hann ætti kröfu á hendur hreppnum vegna þess að hann hefði greitt hluta af skuld- bindingu, sem hann gekkst undir fyrir hönd hreppsins í tengslum við viðskipti með áðurgreinda jörð. Talið var að Eggert hefði skort heimild til að binda hreppinn við sjálfskuldarábyrgð á þeirri skuld- bindingu, sem vísað var til í þessu sambandi, og var því ekki fallist á að umrædd greiðsla ætti að færast honum til eignar á viðskiptareikn- ingi hjá hreppnum. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson, Garðar Gísla- son, Gunnlaugur Claessen og Ingi- björg Benediktsdóttir. Ragnar Að- alsteinsson hrl. flutti málið fyrir Eggert og Elvar Örn Unnsteins- son hrl. og Jón Höskuldsson hdl. fyrir Rangárþing eystra. Sveitarfélagið sýknað af kröfum Eggerts Haukdals HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða Ástþóri Magnússyni 150 þús- und krónur í bætur fyrir frels- issviptingu en Ástþór var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í nóvember 2002 eftir að hann sendi tölvu- póst til um 1.200 aðila, þar á meðal lögreglu og fjölmiðla, og varaði við hugsanlegum hryðjuverkaárásum. Ástþór sat í gæsluvarðhaldi í fjóra daga vegna málsins. Hann var í kjölfarið ákærður fyrir að hafa dreift tilhæfu- lausri viðvörun sem hefði verið til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð manna. Ástþór var hins vegar sýknaður bæði í héraði og í Hæstarétti og krafðist í kjöl- farið bóta. Ekki komnar fram skýringar á töfinni Að mati Hæstaréttar var í öndverðu tilefni til að hand- taka Ástþór og beita gæslu- varðhaldi yfir honum í þágu rannsóknar málsins. Hins veg- ar hafi ekki komið fram skýr- ingar á þeirri töf, sem varð á því að skýrsla yrði tekin af vitni, sem Ástþór hafði borið að kveikt hefði hjá sér hug- mynd um þá ógn sem vofði yf- ir. Þá hafi ekkert komið fram um það hvenær lögregla hefði kannað nægilega þau gögn, sem fundust við húsleit, til að staðreyna að frekari heimildir byggju ekki að baki orðsend- ingunni. Þótti Hæstarétti Ást- þór því hafa sætt gæsluvarð- haldi lengur en efni stóðu til og var fallist á að hann ætti rétt til bóta. Málið dæmdu hæstaréttar- dómararnir Markús Sigur- björnsson, Garðar Gíslason og Hrafn Bragason. Hilmar Ingimundarson hrl. flutti málið fyrir Ástþór og Óskar Thorarensen hrl. fyrir ríkið. Bætur vegna of langs varðhalds SVÖR hafa ekki borist frá banda- rískum stjórnvöldum um hugsanlegt fangaflug bandarísku leyniþjónust- unnar CIA um íslenska lofthelgi og íslenska flughelgi, að sögn Ragn- heiðar Elínar Árnadóttur, aðstoð- armanns utanríkisráðherra. Utanríkisráðuneytið kom fyr- irspurninni á framfæri eftir að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, lagði fram fyrirspurn um fangaflugin á Alþingi 13. október sl. Ragnheiður sagði að upplýsingar um fangaflugin sem birtust í gær og fyrradag hefðu engu breytt um af- stöðu Íslendinga. „Víð bíðum enn eftir svörum, það hefur ennþá ekk- ert verið staðfest um þessar vélar.“ Ekki náðist í Geir H. Haarde utan- ríkisráðherra vegna málsins. Engin svör og ekkert breyst HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 19 ára pilt í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi fyrir vítaverðan akstur á Bíldudals- vegi í fyrra með þeim afleiðingum að 15 ára gömul stúlka, sem varð fyrir bílnum, beið bana. Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi piltinn í eins mánaðar skilorðs- bundið fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn, og sagði að slysið yrði rakið til vítaverðs aksturs pilts- ins, sem hafi sýnt af sér stórfellt gá- leysi. Auk fangelsisrefsingar var pilturinn dæmdur í tveggja ára öku- leyfissviptingu og til að greiða tæp- ar 600 þúsund krónur í málskostnað. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Markús Sigurbjörnsson, Guðrún Erlendsdóttir og Gunn- laugur Claessen. Verjandi var Helgi Jóhannesson hrl. og sækjandi Bogi Nilsson ríkissaksóknari. Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi EKIÐ var á 15 ára gamla stúlku á Austurvegi á Selfossi í gær. Að sögn lögreglu er stúlkan ekki talin vera mikið slösuð en hún hljóp í veg fyrir bifreið sem var á ferð. Stúlkan var flutt á slysadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss til aðhlynningar. Ekið á stúlku á Selfossi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.