Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 59 DAGBÓK Árnaðheilla dagbók@mbl.is Félag um átjándu aldar fræði efnir tilmálþings á morgun, laugardaginn 5.nóvember, í sal Þjóðarbókhlöðu. Mál-þingið stendur frá klukkan 13 til 16.30 og er yfirskriftin Ástir og örlög á átjándu öld. Fyrirlesarar eru Anna Agnarsdóttir, dósent í sagnfræði (Ástir og örlög Hundadagadrottning- arinnar), Erla Hulda Halldórsdóttir, dokt- orsnemi í sagnfræði (Ástarharmsaga), Inga Huld Hálfdánardóttir sagnfræðingur („Göfugt eðli kvenna“: Ástir og kvenréttindi suður í lönd- um), Már Jónsson prófessor (Fjárreiður hjóna á 18. öld) og sr. Gísli H. Kolbeins (Ástir ljósmóð- urinnar Vatnsenda-Skáld-Rósu). Dr. Ólöf Garðarsdóttir er ritari Félags um átjándu aldar fræði og er spurð hvað sé merki- legt við átjándu öld umfram aðrar. „Þegar minnst er á átjándu öldina detta mörgum eflaust í hug hörmungar á borð við Móðuharðindin, hið mikla harðindaskeið sem ríkti hér í kjölfar Skaftárelda árið 1783, en nærri lætur að lands- mönnum hafi þá fækkað um fimmtung. Enn fleiri létust í kúabólufaraldri sem gekk hér yfir snemma á öldinni. Átjánda öldin er þó merk fyr- ir margra annarra hluta sakir, hún hefur verið kennd við vísindahyggju og upplýsingastefnu og var fræðastarfsemi með miklum blóma hér á landi, einkum undir lok aldarinnar.“ Ólöf segir athyglisvert við erindin á mál- þinginu að fjallað sé um einstaklinginn á átjándu öld, sem ekki hafi verið gert mikið af því heim- ildir séu mjög brotakenndar. „Sendibréf koma nokkuð við sögu, til að mynda í „Ástarharm- sögu“ Erlu Huldu Halldórsdóttur, sem fjallar um svik Baldvins Einarssonar við Kristrúnu Jónsdóttur frá Reykjahlíð. Baldvin er frels- ishetja í augum Íslendinga og fór til Kaup- mannahafnar, en á meðan sat Kristrún heima í festum. Erla Hulda notar rómantísk og harm- þrungin bréf Baldvins til þess að lesa hennar sögu,“ segir Ólöf, en Baldvin og Kristrún voru uppi á fyrri hluta nítjándu aldar. „Anna Agnars- dóttir fjallar um Guðrúnu Einarsdóttur, íslenska stúlku sem átti í tygjum við Jörund hundadaga- konung. Séra Gísli H. Kolbeins fjallar um Skáld- Rósu, svo það má segja að líf þriggja kvenna sé þungamiðjan í erindunum,“ segir Ólöf. Þá fjallar Inga Huld Hákonardóttir um ástir kvenna og kvenímyndir á sautjándu og átjándu öld og Már Jónsson fjallar meðal annars um heimanmund kvenna og veltir því fyrir sér hversu mikinn rétt þær höfðu yfir eigum sínum. Ólöf segir loks að Félag um átjándu aldar fræði sé þverfaglegt og hafi að markmiði að efla rannsóknir á sviði átjándu aldar fræða. Málþing félagsins eru haldin þrisvar á ári og verður næsta þing um bókmenntir á átjándu öld. Sagnfræði | Einstaklingurinn í brennidepli á málþingi um ástir og örlög á átjándu öld Ástkonur, kvenímyndir og svik  Ólöf Garðarsdóttir er doktor í sagnfræði frá háskólanum í Umeå í Svíþjóð og deildarstjóri mannfjöldasviðs Hag- stofu Íslands. Doktorsritgerð Ólafar fjallaði um ástæður lækkunar tíðni ung- barnadauða á Íslandi á seinni hluta nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Viðfangsefni hennar í rannsóknum hafa eink- um verið fjölskyldusaga og söguleg lýðfræði. Ólöf er í stjórn Félags um átjándu aldar fræði. Hún á tvær dætur, 21 og 17 ára gamlar. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is „Hnakkamella og nútímakona“ TÍMARITIÐ Sirkus varð sér, að mínu mati, enn og aftur til skammar með síðasta tölublaði. Það sorglega er að erfitt er að komast hjá því að hafa þennan hrylling fyrir framan nefið á sér enda er þessari lágmenn- ingu, að því virðist, troðið á sem flesta staði. Núna er fáklædd stelpa á forsíð- unni með þversagnakenndu fyr- irsögninni „Ég er algjör hnakka- mella. – Brynja Björk er nútíma- kona.“ og varla þarf að taka það fram að innihald viðtalsins við þessa miður smekklegu stelpu er nið- urlægjandi (fyrir hana og í raun alla) og jafnvel átakanlegt. Þar segir hún meðal annars að hún sé sko engin rauðsokka (sem er nokkuð ljóst enda eru það konur sem bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum) en styðji jafnrétti. Einnig kemur fram að viðkomandi gáfnaljós lítur á stráka sem „auka- hluti“ og að draumur hennar felist í strák með krítarkort og á BMW. Virkilega jafnréttissinnuð. Sjálf er ég jafnaldra þessarar manneskju og finnst hreinlega ömurlegt að þessi mynd sé dregin upp af íslenskum stelpum enda er hér nóg af hæfi- leikaríkum og vel gefnum stelpum sem hafa margt til málanna að leggja, þ.e.a.s. annað en að gera lítið úr sjálfri sér, tala um stráka og að vera líklegast versta hugsanlega dæmið um íslenska (lág)menningu (sem hún óhjákvæmilega verður með því að birtast á forsíðu tíma- rits). Sjálf vildi ég ekki undir neinum kringumstæðum vera bendluð við lýð af þessu tagi enda á ég jafnvel meira sameiginlegt með Benito Mussolini en þessari stelpu sem er þó á aldur við mig og þátttakandi í íslensku samfélagi. Nú getur vel verið að þetta sé grín en þá þykir mér fáránlegt að þessu mislukkaða tímariti skuli vera dreift í jafn miklum mæli og raun ber vitni, það á enginn að þurfa að horfa upp á þetta. H.E.Þ. 270885-2419 Snjómokstur við strætóskýli ÉG vil benda þeim sem sjá um snjó- mokstur og stjórna hreinsunun á götunum að hreinsa snjó og klaka frá stoppistöðvunum en þar er allt í klaka og snjóbungum þessa dagana. Ég fór í strætó í gær, og á 3 stoppi- stöðvar og þar var alls staðar sama sagan. Meira að segja við Lækj- artorg var varla hægt að komast inn í strætó. Göturnar eru hreinsaðar en gang- stéttarnar ekkert nema snjór og hálka. Ég þakka fyrir að hafa komist heil á húfi heim því þetta er mikil slysagildra. Eldri borgari úr Hlíðunum. Gullarmband týndist í nágrenni Sóltúns GULLARMBAND með múrsteins- munstri týndist sl. helgi, líklega við Grand hótel Reykjavík eða í ná- grenni Sóltúns. Skilvís finnandi hafi samband í síma 552 2936. Fundarlaun. Eyrnalokkur týndist í Debenhams SILFUREYRNALOKKUR, hjarta- laga, týndist í mátunarklefa í versl- uninni Debenhams síðastliðinn mið- vikudag. Skilvís finnandi hafi samband í síma 893 6518. 70 ÁRA afmæli. Ingibjörg Garð-arsdóttir, Aðalgötu 6, Kefla- vík, er sjötug í dag, 4. nóvember. Í til- efni dagsins tekur hún á móti gestum á morgun, laugardag, í Víðihlíð, Grinda- vík, milli kl. 14 og 18. HM í Portúgal. Norður ♠Á10943 ♥Á974 S/Enginn ♦4 ♣D76 Vestur Austur ♠762 ♠KD ♥G ♥1062 ♦ÁK863 ♦9752 ♣Á932 ♣K1085 Suður ♠G85 ♥KD853 ♦DG10 ♣G4 Ítalir og Svíar státa ótvírætt af sterkustu liðum Evrópu um þessar mundir, en þjóðirnar urðu í fyrsta og öðru sæti á Evrópumótinu í Málmey í fyrra og komust svo í fjög- urra liða úrslit í Estoril ásamt bandarísku sveitunum tveimur. Spil dagsins kom upp í viðureign Ítala og Svía í raðkeppninni í Portú- gal og sýnir að jafnvel þeir bestu gera sig seka um alvarleg mistök. Vestur Norður Austur Suður Lauria Fredin Versace Lindkvist – – – Pass 1 tígull 1 spaði 2 tíglar 2 spaðar 3 tíglar Allir pass Í opna salnum var þó allt með eðlilegu móti, en þar varð Lorenso Lauria sagnhafi í þremur tíglum og vann þá slétt (gaf slag á hvern lit). Og ekkert merkilegt við það. Tíðindin komu úr lokaða salnum: Vestur Norður Austur Suður Bertheau Nunes Nyström Fantoni – – – Pass Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Peter Bertheau kaus að passa með vesturspilin og Claudio Nunes vakti á spaða á 10 punkta og keyrði svo í geim á móti pössuðum makker. Vörnin virðist eiga a.m.k. fjóra slagi, en Svíarnir ungu misstigu sig illilega. Bertheau kom út með tíg- ulás og Frederik Nyström lét tvist- inn í slaginn, sem var hliðarkall í laufi í stöðunni (einspil í borði). Bertheau hefði kannski átt að leggja niður laufásinn, en hann kaus að spila litlu laufi til að dekka þann möguleika að makker ætti kóng annan. Og þar með var sviðið sett fyrir varnarmistök – Nyström lét tíuna duga og Nunes fékk ódýran slag á gosann. Geimið var þó ekki unnið, því sagnhafi átti eftir að vinna úr spaða- litnum. Nunes hefði svo sem getað reiknað út að vestur gæti ekki verið með spaðaháspil til hliðar við ÁK í tígli og laufás (og passað í byrjun), en það spillti ekki fyrir honum þegar vestur valdi að henda spaða frá þrí- litnum við fyrsta tækifæri. Nunes gaf fyrst austri slag á spaða, en tók svo á ásinn og tryggði sér tíu slagi. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. h3 Bg7 5. Rf3 0–0 6. Be3 a6 7. Dd2 b5 8. a3 Bb7 9. Bd3 Rfd7 10. Bh6 c5 11. d5 Rb6 12. h4 e5 13. h5 Bxh6 14. Dxh6 Df6 15. hxg6 Dxg6 16. De3 f6 17. 0– 0–0 R8d7 18. Hh6 Dg7 19. Hdh1 Hf7 20. H1h3 Kf8 21. Hg3 Dh8 22. Rh4 Ke8 23. Rf5 Df8 24. Hh4 Kd8 25. Hhg4 Kc7 Staðan kom upp í fyrri hluta Ís- landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Gylfi Þórhallsson (2.187) hafði hvítt gegn Kjartani Thor Wikfeldt (1.780). 26. Bxb5! Dd8 26. … axb6 gekk ekki upp vegna 27. Rxb5+ Kb8 28. Hg8. 27. Be2 Rf8 28. Hg8 Dd7 29. Bg4 h5 30. Bxh5 Hh7 31. De2 Dc8 32. Rg7 Dd8 33. Hxf8 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Hlutavelta | Þessir ungu drengir héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfn- uðust 2.893 krónur. Þeir heita Borgþór Ingvarsson og Arnar og Bjarki Kjart- anssynir. Morgunblaðið/Kristján Hlutavelta | Þessar stúlkur í Mela- skóla, Ragna Reynisdóttir og Þórhild- ur Reynisdóttir ásamt Elísabetu I. Sig- urðardóttur og Katrínu Ásu Karlsdóttur sem vantar á myndina, héldu tombólu til styrktar börnum í Pakistan og söfnuðu þær 3.229 kr. Morgunblaðið/Kristinn ÍBÚÐ VIÐ SLÉTTUVEG ÓSKAST Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir 100-130 fm íbúð við Sléttuveg. Mörkinni 6, sími 588 5518. 10 ár í Mörkinni Mörg góð tilboð • Úlpur • Stuttkápur • Rúskinnsjakkar • Leðurjakkar • Þunnir ullarjakkar • Treflar • Hattar og húfur Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.