Morgunblaðið - 08.12.2005, Síða 29
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 29
MATVÆLI eru misviðkvæm, sumt
þolir vel geymslu eins og til dæmis
dósamatur, þurrkaður matur, pasta
eða grjón, svo lengi sem umbúðirnar
halda og raki eða væta kemst ekki í
snertingu við innihaldið.
Matvæli eiga að vera merkt með
„best fyrir …“ dagsetningu og mán-
uði eða „best fyrir lok …“ ef þau þola
geymslu í allt að fimm daga eða
skemur upp í 18 mánuði. Ef
geymsluþol vörunnar er innan við
fimm dagar er varan merkt pökk-
unardegi og síðasta neysludegi, sam-
kvæmt reglugerð um merkingar
matvæla. Allar kælivörur sem hafa
þriggja mánaða geymsluþol eða
skemmra eiga jafnframt að vera
merktar pökkunardegi. „Ef um er að
ræða unna vöru, til dæmis hakkað
kjöt, kjötfars eða aðra vöru sem
framleiðandinn áætlar að þoli ekki
geymslu umfram fimm daga, þá er
hún merkt síðasta neysludegi,“ segir
Franklín Georgsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri rannsóknarstofu Um-
hverfisstofnunar, en hann er í tíma-
Best að fylgja geymslu-
þolsmerkingum
| Hvað þýða merkingar um
endingu á matvælaumbúðum? Er óhætt
að neyta þeirra þegar tíminn er útrunn-
inn? Franklín Georgsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri rannsókn-
arstofu Umhverfisstofu, fer yfir
helstu merkingar og hvað þær þýða.
MATVÆLI
bundnu leyfi
frá störfum um
þessar mundir. „Þegar
um slíka vöru er að ræða má
búast við að varan geymist ekki mik-
ið lengur og því best að fylgja
geymsluþolsmerkingum nákvæm-
lega en auðvitað fer það líka eftir því
hvar varan er geymd og við hvaða
hitastig hvað hún endist lengi.
Franklín bendir á að verulegur mun-
ur sé á hversu fljótar örverur séu að
ná sér á strik með tilheyrandi breyt-
ingum á flórunni, allt eftir því við
hvaða hitastig varan er geymd. Mik-
ill munur getur t.d. verið á geymslu-
þoli sömu kælivöru sem geymd er við
3ºC eða 7–8ºC, jafnvel svo dögum
eða vikum skiptir fyrir mismunandi
tegundir kælivara. Við mat á örveru-
fræðilegum gæðum og öryggi mat-
væla er oftast miðað við ákveðin við-
miðunargildi þegar ákveða á
geymsluþol vörunnar.
„Kælivöru á samkvæmt íslenskum
reglum alltaf að geyma undir 4ºC en
það vill stundum bregðast,“ segir
hann. „Það á til dæmis við um of-
hlaðna kæla í verslunum eða þegar
varan fer ekki beint úr einum kæli í
annan. Framleiðendur láta sumir
rannsaka geymsluþol kælivöru við
mismunandi hitastig til að finna hve-
nær hætta gæti verið á ferðum ef til
þess kæmi að eitthvað færi úrskeiðis
í flutningi og/eða í geymslu.“
Þó að varan sé komin fram yfir
„síðasta neysludag“ og stutt í að hún
fari að breytast þá þarf það ekki að
þýða að hún sé ekki „neysluhæf“ eða
að hún sé hættuleg. Það er þó líklegt
að upphafleg gæði vörunnar er varða
bragð, lykt og útlit hafi breyst en án
þess að mikil hætta sé á sýkingum.
Þetta gildir þó aðeins ef tryggt er að
varan hafi verið geymd við stöðugt
og lágt hitastig (undir 4°C) allan tím-
ann frá framleiðslu að neyslu.
Þjóðlegar smá-
kökur og jóla-
súkkulaði
Í safnbúð Þjóð-
minjasafns Ís-
lands fást sér-
stakar jólavörur.
Unnur Valdís Kristjáns-
dóttir verslunarstjóri
og Snæfríð Þorsteins-
dóttir, grafískur
hönnuður, settu
nokkrar vöruteg-
undir í hátíðlegar
umbúðir. Í
fréttatilkynn-
ingu frá Þjóð-
minjasafninu
kemur fram að
þar er hægt
að fá þrjár
smákökuteg-
undir sem bak-
aðar eru af
Sandholt bakaríi,
upp á gamla mát-
ann samkvæmt gömlum upp-
skriftum og þar sem íslenska
smjörið er í hávegum haft. Á um-
búðunum er síðan fróðleikur um
matarvenjur, jólahald og bakstur
Íslendinga um árin.
Kökupokinn kostar
590 krónur.
Þá bjóða þær
upp á íslenskt
súkkulaði frá
Nóa-Síríus og um-
búðirnar eru í
sérstökum jóla-
búningi fyrir þá sem vilja
til dæmis senda súkku-
laði til fjölskyldu eða
vina í útlöndum. Á
umbúðunum er
gömul, falleg
jólakveðja og
uppskrift að
heitu súkkulaði.
Jólasúkkulaðið
kostar 590
krónur.
Að lokum
eru til sölu jóla-
kort sem eru
gerð eftir
gömlum jóla-
kortum sem til
eru á Þjóðminja-
safninu. Kortin eiga að vekja nota-
legar minningar um jólin. Tíu kort
með umslögum kosta 1.550 krón-
ur.
NÝTT
Jólakort Barnaheilla
JÓLAKORT Barnaheilla 2005 eru
komin í sölu. Kortin eru gefin út til
styrktar starfi Barnaheilla í þágu
barna og því markmiði samtakanna að
„Búa börnum betri heim“. Í ár eru í
boði sex gerðir jólakorta.
Hægt er að kaupa kortin á á skrifstofu
Barnaheilla, Suðurlandsbraut 24, eða
panta þau á www.barnaheill.is, þá er einn-
ig hægt að panta þau í síma 5535900
eða á faxi, 5535960. Kortin eru einnig til
sölu í völdum bókaverslunum.
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 6, eða hringdu í 570 5400.
Sannkallaðir eðalvagnar
UP-667 Lexus GS430
F. skráð. 04/2002, ekinn 41.000 km
Vél: 4300cc s.sk.
Litur: Silfurgrár
Verð: 3.500.000 kr.
Tilboð: 3.150.000 kr.
BJ-683 Lexus IS200
F. skráð. 06/2004, ekinn 23.000 km
Vél: 2000cc s.sk.
Litur: Silfurgrár
Verð: 2.360.000 kr.
IP-199 Lexus IS200
F. skráð. 10/2004, ekinn 13.000 km
Vél: 2000cc s.sk.
Litur: Silkigrár
Verð: 2.500.000 kr.
LY-621 Lexus IS200
F. skráð. 10/2003, ekinn 24.000 km
Vél: 2000cc s.sk.
Litur: Dökkgrár
Verð: 2.280.000 kr.
LI-140 Lexus RX300
Luxury/sóllúga
F. skráð. 08/2002, ek. 51.000 km
Vél: 3000cc s.sk.
Litur: Dökkblár
Verð: 3.330.000 kr.
Sjá nánar á www.lexus.is - Notaðir Lexus bílar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
30
55
8
12
/2
00
5
PR-109 Lexus LS430 President
F. skráð. 01/2003, ekinn 27.000 km
Vél: 4300cc s.sk.
Litur: Platínugrár
Verð: 4.990.000 kr.
Tilboð: 4.290.000 kr.
JH-625 Lexus GS300 EXE
F. skráð. 04/2002, ekinn 49.000 km
Vél: 3000cc s.sk.
Litur: Silfurgrár
Verð: 3.000.000 kr.
Tilboð: 2.700.000 kr.
OT-861 Lexus LS430 President
F. skráð. 05/2002, ekinn 48.000 km
Vél: 4300cc
Litur: Silkigrænn
Verð: 4.520.000 kr.
Tilboð: 3.990.000 kr.