Morgunblaðið - 08.12.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 39
UMRÆÐAN
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég
tel að það liggi ekki nægilega
ljóst fyrir hvernig eða hvort
hinn evangelísk-lútherski
vígsluskilningur fari í bága við
það að gefa saman fólk af sama
kyni …“
Birgir Ásgeirsson: Opið bréf
til vígslubiskups Skálholts-
stiftis, biskups Íslands, kirkju-
ráðs og kirkjuþings.
Jakob Björnsson: Útmálun
helvítis. „Álvinnsla á Íslandi
dregur úr losun koltvísýrings í
heiminum borið saman við að
álið væri alls ekki framleitt og
þyngri efni notuð í farartæki í
þess stað, og enn meira borið
saman við að álið væri ella
framleitt með raforku úr elds-
neyti.“
Þorsteinn H. Gunnarsson
fjallar um rjúpnaveiðina og
auglýsingu um hana, sem hann
telur annmarka á.
Eggert B. Ólafsson: Vega-
gerðin hafnar hagstæðasta til-
boði í flugvallarrútuna.
Örn Sigurðsson: Bornir eru
saman fjórir valkostir fyrir
nýjan innanlandsflugvöll.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
ÞORBJÖRGU Helgu Vigfús-
dóttur verðandi borgarfulltrúa og
ráðgjafa tekst í Morgunlbaðinu
(2.12.) heldur ófim-
lega að verja áætlanir
yfirmanns síns varð-
andi framhaldsskól-
ann. Vörn ráðgjafans
hefst á óskiljanlegri
málsgrein: „Mark-
miðið með breyttri
námsskipan til stúd-
entsprófs er einmitt
að miða þróun kerf-
isins út frá sjónar-
horni nemendans.“
E.t.v. er þetta hug-
myndin um að laga
skólakerfið að þörfum
nemenda en það hafa menn dund-
að sér við í árhundruð eða hitt að
laga eigi nemendur að þörfum
kerfisins. Sé hið seinna meiningin
er því fljótsvarað að aðferðum ráð-
herrans hefur verið harðlega mót-
mælt og sé átt við hið fyrra sting-
ur það í stúf við greinarskrif
ráðgjafans fyrr í vetur.
Þá getur ráðgjafinn þess að nú
þurfi að endurskipuleggja náms-
tíma og námsefni. „Til þess að
kerfið geti haldið áfram að þróast
þarf einmitt að leggjast í vinnu við
að endurskoða námskrár beggja
skólastiga“. Ráðgjafinn staðfestir
hér með að kerfið hefur forgang í
menntamálum.
Flumbrugangurinn kristallast í
grein ráðgjafans sem ætlar mönn-
um að „skoða hvar sveigjanleiki er
fyrir hendi, hvernig námskrár
ólíkra skólastiga spila
saman (svo) og hvar
tími nemenda gæti
nýst betur.“ Hefði nú
ekki verið viturlegra
að kanna þetta ræki-
lega áður en hlaupið
var af stað og einhliða
ákvörðun tekin um
styttingu náms? Ætli
ráðgjafinn sjái þver-
sögnina í eigin skrif-
um er hún segir að
stytting grunnskólans
komi ekki til greina
en samt skuli kanna
hvar tíminn í grunnskólum getur
nýst betur? Margir benda á að
þekking og færni nemenda skiptir
sköpum, ekki aldurinn, og fyrst
grunnskólinn var lengdur, má þá
ekki stytta hann aftur?
Helstu rökin gegn styttingu
grunnskólans eru að ekki megi
taka unglinga of snemma úr
vernduðu umhverfi, og síst á
landsbyggðinni. Þau rök áttu við
þegar framhaldsskólar voru
sárafáir en eru nú fleiri en einn í
hverjum fjórðungi. Ráðgjafinn
mætti gefa gaum að svari forsætis-
ráðherra við fyrirspurn þingkonu
nokkurrar en þar kom fram að
23% fólks á aldrinum 16-74 ára á
höfuðborgarsvæðinu eru með há-
skólamenntun en 12% á lands-
byggðinni og 45% íbúa á lands-
byggðinni á milli 20 og 70 ára eru
einungis með grunnskólapróf. Gæti
„verndað umhverfi“ haft sitt að
segja í þessum efnum?
Kemur þá að margtugginni full-
yrðingu að tillögur um styttingu
byggist á faglegum sjónarmiðum
(líklega ofangreindum!) og sam-
ráði. Samráðið fólst í því að ráð-
herrann fundaði í 1-2 tíma í hverj-
um skóla, hlustaði á gagnrýnis-
raddir og skrifaði niður og benti
svo kennurum á að koma ábend-
ingum á framfæri með tölvusend-
ingum (svona eins og krakkarnir í
msn!). Þetta kallar ráðgjafinn
„umfangsmikið samráð“ og hefur
þá enn verið reynt á þanþol ís-
lenskrar tungu.
Þá gerir ráðgjafinn lítið úr mál-
inu. Aðeins standi til að færa 12
einingar úr framhaldsskólum í
grunnskóla og námsárið lengist
um viku. Annaðhvort veit ráðgjaf-
inn ekki betur eða kýs að setja
sannleikann í orlof og svo fylgir
þessi dásamlega setning: „Tveir
áfangar færast úr kjörsviði nám-
skrárinnar og verður því í valdi
nemenda hvort þeir verði teknir
sem val eður ei.“ Lesendur eru
beðnir að ráða í merkinguna.
Ekki vefst fyrir ráðgjafanum að
smella greinum niður í grunnskól-
ann og líklega telur hún grunn-
skólakennara bíða spennta eftir
aukavinnu. Fleiri eru þeir sem vita
að nóg er lagt á grunnskólakenn-
arana í nýju stefnunni, „skóli án
aðgreiningar“. Ráðgjafanum hefði
verið hollt að slást í för með borg-
arstjóra, sem heimsótti grunnskóla
Reykjavíkur á dögunum og hitti
þar hetjurnar sem trúað er fyrir
fjöreggi þjóðarinnar, börnunum.
Hún kveikti nefnilega á perunni og
lýsti yfir að kennararnir þyrftu
strax aðstoð í erfiðu uppeldisstarfi.
(Ekki hefur enn kviknað á perunni
hjá formanni menntaráðs Reykja-
víkur, Stefáni Jóni, enda er pera
hans veikari.)
Framhaldsskólakennarar ítreka
að fyrirhuguð stytting sé meingöll-
uð og auki miðstýringu. Ráðgjaf-
inn skrifaði grein í Mbl. (16.10.)
um ,,stelpumiðaða kennsluhætti“
(svo) en þar má lesa eftirfarandi:
„Skilgreiningunni samkvæmt ættu
einstaklingsmiðaðir náms- og
kennsluhættir ekki að vera mót-
aðir af fræðsluyfirvöldum heldur
þeim kennurum sem standa nem-
endum næst. Hættan við að yf-
irvöld á hverjum tíma innleiði
stefnu er að stefnan verði kerf-
isbundin, sett í ferli og verði ráð-
andi.“ Betri rök gegn stytting-
arhugmyndum eru vandfundin en
margir hafa nú skipt um skoðun á
lengri leið en frá Sölvhólsgötu að
Ráðhúsinu.
Að síðustu fróm ábending:
Framhaldsskólinn er í uppnámi og
framkvæmd samræmds stúdents-
prófs var með þeim hætti að kost-
að hefði ráðherra starfið víðast
hvar. Gæti nú ekki Þorbjörg ráðið
Þorgerði heilt? Hætta við stóryrt-
ar yfirlýsingar um þor í stjórn-
málum. Fá framhaldsskólakennara
og stjórnendur til að hvetja nem-
endur til að flýta námi sínu og efla
þriggja ára námsbrautir, auka alla
ráðgjöf, lengja Kennaraháskólann
um eitt ár og festa árið við fag-
menntun í sérgreinum, fara ræki-
lega yfir námsefni beggja skóla-
stiga og velja til þess óvilhalla
aðila (ekki fólk í aukavinnu á
vinnutíma). Þá munu kennarar
leggjast á sveifina með ráðherra.
Hvatning er nefnilega vænlegri til
árangurs en valdboð.
Ráðgjafa svarað
Árni Hermannsson fjallar um
styttingu náms til stúdents-
prófs og gerir athugasemd við
grein Þorbjargar Helgu
Vigfúsdóttur
’Framhaldsskólakenn-arar ítreka að fyr-
irhuguð stytting sé
meingölluð og auki mið-
stýringu í mennta-
málum.‘
Árni Hermannsson
Höfundur kennir við VÍ.
... svo í borg sé leggjandi
Áttu leið í bæinn?
– stæði fyrir alla
Á bíl í jólaösinni í miðborg Reykjavíkur.
Hvað má bjóða þér? Miðastæði, stöðu-
mæli eða bílahús. Viltu greiða með
korti eða krónum, eða kannski gsm
símanum þínum?
Tímamiðar úr miðamælum gilda
áfram þegar lagt er við stöðumæli
innan sama gjaldsvæðis.
Ótakmarkaður tími býðst á stöðu-
mælum í miðborginni.
Í desember verða bílahúsin opin
klukkustund lengur en verslanir
í miðborginni. Gleðilega aðventu!
N
æ
st
! " !
!#
$%
& '( (
!"#$ %&'()*
"+$ + , )) # "--*
! " #
!"#$ !%
$
!% &"
'
& '
" (
"
)
*
+ %
, -
'
# #
"
#
. *
/
! 0 *# " *" 1
*"
$
"
"
2 .
'#
"
"