Morgunblaðið - 08.12.2005, Page 42

Morgunblaðið - 08.12.2005, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN sem liggja mun beint inn í hverfið okkar og ber 50.000 bíla til viðbótar. Til þess að anna allri þessari umferð til viðbótar við það sem fyrir er þarf að byggja gríðarstór mislæg gatna- mót á mótum Skeiðarvogs og Holta- vegar við Sæbraut og kannski víðar. Þau umhverfislýti, sem gera Hring- brautarhrollvekjuna að barnaleik í samanburði, bætast þannig við gríð- arlega aukna mengun og hávaða í hverfi sem hefur fengið meira en nóg nú þegar. Vegna þeirra gríðarlegu hags- muna sem að baki Sundabrautar liggja hafa Íbúasamtökin ákveðið að ganga eins langt og þau geta í sann- girnisátt. Fremur en að mótmæla framkvæmdinni hefur verið farin sú leið að leita fyrir sér um lausnir sem draga úr þeim hrikalegu aukaverk- unum sem lagning Sundabrautar hefur beggja vegna Elliðavogs. Sú lausn sem Íbúasamtökum Laugar- dals hefur hugnast best, eftir mikla yfirlegu og samráð við færa sérfræð- inga á þeim sviðum, er að leggja jarðgöng skv. tillögu Bjarna Gunn- arssonar (sjá mynd). Ekki hefur ver- ið sýnt fram á það að þessi hugmynd sé dýrari en brúin á leið III. Kostn- aður skv. gögnum Bjarna er 6 millj- arðar, en svipuð eða eilítið dýrari MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi greinargerð frá Íbúasamtökum Laugardals: Sundabraut er með stærstu vega- framkvæmdum sem ráðist verður í á næstu árum og hún á að tengja Vesturlandsveg, Grafarvogshverfi og fyrirhuguð hverfi í Álfsnesi og á Geldinganesi við vesturhluta borg- arinnar. Hún er hugsuð sem sam- göngubót, til þess að jafna umferð- arálag í borginni og einnig á hún að auka öryggi borgarbúa ef leggja þarf á flótta með skömmum fyrir- vara. Sundabraut hefur verið á að- alskipulagi borgarinnar frá árinu 1984, svokölluð ytri leið, og unnið hefur verið að undirbúningi hennar frá 1996 af hálfu framkvæmdaaðila. Í því ferli sem hófst árið 1996 hafa margar leiðir yfir Elliðavog verið skoðaðar, en þegar árið 1997 var val- kostum fækkað niður í tvo, svokall- aða hábrú á leið I, ytri leið, og lágbrú eða eyjalausn á leið III, innri leið. Farið hefur verið fram á að skoðaðir yrðu fleiri kostir, t.d. opn- anleg brú á ytri leið og jarðgöng. Þessu var hafnað með fremur hæpn- um rökum að mati ÍL, en síðan voru þrír kostir settir í umhverfismat, hábrúin á leið I, lágbrúin á leið III og botngöng, sem einhverra hluta vegna fengu náð fyrir augum fram- kvæmdaaðila. Kostnaðarþátturinn hefur verið í forgrunni allra ákvarð- ana þessa máls, en það er mat ÍL eftir mikla yfirlegu að það séu langt frá því öll kurl komin þar til grafar, bæði hvað útreiknaða arðsemi og rekstrarkostnað varðar, auk ann- arra þátta sem snerta lífsgæði íbú- anna og hagsmuni í stórum og grón- um hverfum borgarinnar. Ferlið hefur verið nokkuð undar- legt frá sjónarhóli íbúa og dálítið örðugt að átta sig á því. Nokkrir fundir hafa verið haldnir á vegum borgarinnar þar sem málið hefur borið á góma og einhverjar tillögur að lausnum sýndar. Þó var tekið fram að ekkert væri ákveðið þar sem fjármögnun væri óviss og til- lögur væru í meðferð stjórnvalda, nú síðast umhverfisráðherra, þar sem umhverfismat var kært. Málið tók kipp þegar ríkisstjórnin til- kynnti sl. vor að hluta af söluand- virði Landssímans yrði varið í Sundabraut, nánar tiltekið 8 millj- örðum króna. Þessi fjárveiting var þó bundin því skilyrði að farin yrði svokölluð innri leið og kom það mjög flatt upp á menn þar sem umhverf- isráðherra hafði ekki enn úrskurðað í kærumálunum. Borgarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti þessa fjárveitingu til Sunda- brautar, enda mun hún hafa beðið hennar lengi, en hún setti samhljóða skilyrði um samráð við íbúa nær- lægra hverfa. Umhverfisráðherra setti einnig skilyrði um samráð við íbúa Grafarvogs í úrskurði sínum. Íbúarnir telja þessi skilyrði engan veginn marktæk nema umræðan nái til þeirra kosta sem íbúar eru sam- mála um að valdi hverfum þeirra og lífsgæðum hvað minnstum skaða. Má í því sambandi minna á að nú þegar eru hverfin algjörlega undirlögð um- ferð sem virðist fara vaxandi með hverju ári. Sem dæmi má nefna að skv. talningu borgarinnar í fyrra óku yfir 9.000 bílar á dag eftir Langholts- vegi milli Holtavegar og Álfheima, yfir 7.000 bílar á dag eftir Álfheim- unum, yfir 5.000 bílar á dag eftir Holtavegi og eru þetta götur sem liggja að 600 barna skóla, Langholts- skóla. Sama má segja um Skeiðarvog þar sem Vogaskóli er til húsa með sína 400 nemendur, auk Menntaskól- ans við Sund. Þar fóru í fyrra 8.400 bílar um á dag skv. talningu borg- arinnar 2004 og hafa allar þessar töl- ur vafalaust hækkað með aukinni bílaeign og vaxandi verslun og þjón- ustu í Skeifunni og norðan Sæbraut- ar þar sem margar helstu stórversl- anir þjóðarinnar hafa aðsetur. Nábýli við Sundabraut sem á að bera yfir 50.000 bíla á dag (svipað og Miklabraut) er því ekki beint freist- andi fyrir íbúana, jafnvel þótt ekki fari nema hluti af bílaumferðinni í gegnum hverfin, en allar umferðar- spár sem við höfum séð gera ráð fyr- ir aukinni bílaumferð um hverfin. Við stöndum því frammi fyrir því að um leið og mælingar umhverfis- sviðs sýna hvað eftir annað að svif- rykmengun fer yfir heilsuverndar- mörk og það ekki aðeins við Grensásveg heldur einnig í útivist- arparadís Reykvíkinga, Húsdýra- og fjölskyldugarðinum, að þá eigi hugs- anlega að leggja hraðbrautarbrú jarðgöng skv. hugmynd Línuhönn- unar kosta 9,5 milljarða og eru ódýr- asta lausnin á ytri leið skv. framlögð- um gögnum framkvæmdaaðila. Jafnvel þótt verðmunur yrði jarð- göngum í óhag á eftir að reikna marga aðra liði inn í dæmið, eins og til dæmis hvernig þau leysa fleiri umferðarvandamál en brýr, lág- marka sjón-, hljóð- og svifrykmeng- un, og lækka rekstrarkostnað, en jarðgöng þarf aldrei að ryðja og salta eins og allir vita. Auk þess má benda á einn kost til viðbótar sem snýr að öryggi borgarbúa, en í jarðgöngum af þessari stærð gætu tugþúsundir borgarbúa fundið skjól gegn utanað- komandi hættu ef til kæmi. Jarðgangalausnin eins og hún er hér sett fram hefur þann kost að um- ferðin dreifist á þrjá staði sunnan megin Elliðavogs. Eitt opið kæmi upp á Kirkjusandi eða í grennd, ann- að við athafnasvæði Eimskips í Sundahöfn og það þriðja mitt á milli Holtavegar og Skeiðarvogs og þjón- aði þar með þörfum Samskipa og þeirra íbúa norðan og austan Elliða- vogs sem hyggjast sækja sér þjón- ustu í verslunarhverfunum norðan Sæbrautar. Í þessu dæmi þarf ekki hin hrikalegu mislægu gatnamót of- anjarðar, umferðin dreifist í þrennt neðanjarðar eftir þörfum, en helstu rökin með Sundabraut voru þau að hún auðveldaði erindi borgarbúa og þeirra sem koma frá Vestur- og Norðurlandi inn til þjónustu- og at- vinnusvæða í vesturborginni. Austan Elliðavogs gætu jarðgöng- in einnig fækkað umferðarslaufum og komið umferðinni til muna fjær byggðinni í Grafarvogi þannig að ekki þyrfti þær ömurlegu hljóðmanir sem reiknað er með við lagningu lágbrúar á leið III. Jarðgangaleiðin gerir einnig mögulegar breytingar á landnotkun síðar meir á því athafnasvæði sem nú er norðan og austan Sæbrautar. Þar gæti vel orðið hagkvæmt og eftir- sóknarvert til lengri tíma litið að flytja atvinnurekstur sem þar er nú á ódýrari lóðir og byggja upp íbúðar- húsnæði á þessum fallega stað. Það má ekki gleymast að án tillits til verðs m.v. lágbrú er þessi lausn miklu betri fyrir tugþúsundir íbúa þessara hverfa, skattborgara og kjósendur, sem hljóta að eiga rétt á að fé þeirra sé varið þannig að heilsu þeirra og eignum sé ekki spillt með framkvæmd sem þeir sætta sig eng- an veginn við. Guðmundur J. Arason, formaður Íbúasamtaka Laugardals Gauti Kristmannsson, umferðar- og skipulags- hópi ÍL Lilja Sigrún Jónsdóttir, umferðar- og skipulags- hópi ÍL.“ Sundabraut frá sjónarhóli Íbúasam- taka Laugardals Jarðgöng undir Elliðavog skv. hug- mynd Bjarna Gunnarssonar 2004, með lausn vestan megin. Ófrágeng- in austanmegin. BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÞAÐ er merkilegt að sjá hvað það er mikil eftirvænting eftir heim- komu Jóns Baldvins Hannibals- sonar úr útlegð- inni. Jón er jú skemmtilegur og vel lesinn karl og gaman að hlusta á. En flestir aðrir en kratarnir bíða með eftirvænt- ingu eftir því að Jón Baldvin komi heim og veki til lífsins gamla krataflokkinn og sprengi í sundur Samfylkinguna með stórum hvelli. Við sem vorum í krataflokknum er- um ekkert sérstaklega spennt og okkur líður bara bærilega í sam- fylkingu með öðrum jafnaðarmönn- um. Að sjálfsögðu tökum við vel á móti Jóni og bjóðum hann velkom- inn heim. Það virðist gleymast í allri umræðunni að stóri draumur Jóns Baldvins var nefnilega að búa til stóran miðjuflokk, 30% flokk sem skipti einhverju máli. Nú er sá flokkur til og Jón Baldvin fer varla að brjóta hann upp með nýjum sóló- ferli í pólitík. Ég hef í það minnsta enga trú á því að minn gamli for- maður fari að taka upp á einhverri vitleysu á gamals aldri. Þó svo að saga jafnaðarmanna á Íslandi hafi verið köflótt og mörg upphlaup hafa verið gerð, flokkar klofnað og runn- ið saman eða dáið eftir stutta og ár- angurslitla lífdaga. Þá er Jón Bald- vin skynsamari en menn halda. Spunakarlar og kerlingar á fjöl- miðlunum eru í mikilli keppni þessa dagana og gera allt hvað þau geta til þess að gera lítið úr Ingibjörgu Sólrúnu og eru farin að spá í hve- nær dánartilkynning hennar sem formaður Samfylkingarinnar muni líta dagsins ljós. Þá er talað um fylgishrun í skoðanakönnunum hjá Samfylkingunni, heil 3 eða 4 pró- sent. Það á að vera helsta merki um að dómsdagurinn sé í nánd. Það væri nokkuð ótímabær dauðdagi ef 30% flokkur legði upp laupana eða brotnaði í frumeindir með slíkt fylgi. Hefði þá ekki verið eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn hefði pakkað saman eftir síðustu kosningar og skellt í lás í Valhöll eftir einhverja verstu útreið sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur fengið í langan tíma ef ekki bara frá upphafi? Ingibjörg setti nefnilega mark sitt svo ræki- lega á síðustu kosningar að rík- isstjórnin rambaði á bjargbrún. Slíkur er slagkraftur Ingibjargar Sólrúnar. Það er nokkuð ljóst að það er ein- hverskonar einelti i gangi gagnvart Ingibjörgu Sólrúnu og það er greinilegt að það er verið að gera atlögu að henni úr mörgum áttum. Áhyggjur eru óþarfar að mínu mati enda hef ég trölla trú á Ingibjörgu, jafnaðarmönnum og jafnaðarstefn- unni. Ingibjörg Sólrún á eftir að standa af sér storminn enda leiðtogi af bestu gerð. Við gömlu kratarnir erum enn á lífi og berum traust til Ingibjargar Sólrúnar og tökum virkan þátt í starfi Samfylking- arinnar og unum okkur vel í 30% flokki. ARNÞÓR SIGURÐSSON, flokksbundinn félagi í Samfylkingunni í Kópavogi, Bjarnhólastíg 12, Kópavogi. Beðið eftir Jóni Baldvin Frá Arnþóri Sigurðssyni: Arnþór Sigurðsson NÁM þroskaþjálfa er þriggja ára háskólanám og útskrifast þeir með BA-gráðu. Þroskaþjálfar starfa m.a. á sambýlum, skammtímavistunum, svæðisskrifstofum um málefni fatl- aðra, Greiningarstöð ríkisins, í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Grein- arhöfundar starfa sem yfirþroska- þjálfar í sérdeild Brekkubæjarskóla á Akranesi. Brekkubæjarskóli er annar tveggja grunnskóla Akranesbæjar. Þar er starfrækt sérdeild sem þjón- ar báðum grunnskólum bæjarins. Sérdeildinni er ætlað að veita nem- endum með margvíslegar fatlanir eða þroskafrávik sérhæfð úrræði og einstaklingsmiðað nám. Foreldrar barna með fötlun hafa þann valkost að sækja um í sérdeild eða almenn- um bekk í sínum heimaskóla. Í Brekkubæjarskóla er lífs- leiknistefnan „góður – fróður“. Unnið er með eina dyggð á haust- önn og eina á vorönn. Mikil áhersla er lögð á að nemendur sérdeildar tilheyri sínum bekk og taki þátt í námi, leik og starfi með sínum jafn- öldrum. Á sérdeildinni starfa tveir leik- skólakennarar í kennslurétt- indanámi, tveir þroskaþjálfar og þrír stuðningsfulltrúar. Ábyrgð þroskaþjálfa og störf þeirra eru fjölbreytileg, allt eftir þeim nemendahópi sem stundar nám við sérdeildina hverju sinni. Þau felast meðal annars í:  að standa vörð um réttindi nem- enda með fötlun og stuðla að því að þeir njóti bestu þjónustu sem fáanleg er á hverjum tíma.  vinnu við gerð áætlana af ýmsu tagi og endurmat á þeim.  að gera færni-, þroska- og náms- mat.  að skipuleggja þjálfunaraðstæður og velja/útbúa þjálfunar- og námsgögn.  að annast þjálfun nemenda í sér- deildinni. Vinna þroskaþjálfa eykur lífsgæði Frá Arndísi Höllu Jóhannesdóttur og Berglindi Ósk Jóhannesdóttur: GREINARGERÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.