Morgunblaðið - 08.12.2005, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„Meistarastykki!“
-F.G.G., Fréttablaðið
„Tilvalin
fjölskylduskemmtun
sem auðgar
andann!“
-S.P., Rás 1
„Sjón er sögu ríkari!“
-H.J., Mbl
Þar sem er vilji,
eru vopn. S.V. MBL
Harry Potter og Eldbikarinn kl. 6 - 8 og 10 B.i. 10 ára
Green Street Hooligans kl. 5.45 - 8 og 10.15
Lord of War kl. 8 og 10.20 B.i. 16 ára
La Marche De L'empereur kl. 6
Tim Burton´s Corpse Bride kl. 6 Gæti vakið ótta ungra barna!
er komin. Kýldu á þessa.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Stattu á þínu og láttu það vaða.
Hörkulegasta kvikmynd ársins
er komin. Kýldu á þessa.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Stattu á þínu og láttu það vaða.
FRUMSÝND Í KVÖLD
Frá leikstjóra Mean Girls og Freaky Friday.
Rómantískur gamanmyndasmellur með hinni
einu sönnu Reese Witherspoon (Legally Blonde)
Ástin lífgar
þig við.
Mark
Ruffalo
Reese
Witherspoon
Jólalegasta jólamynd ársins er komin með Óskarsverðlauna-
hafanum, Susan Sarandon, blómarósinni Penelope Cruz ásamt
frábærum leynileikara sem á eftir að koma öllum á óvart.
Fregnir herma að Kevin Feder-line, eiginmaður Britney
Spears, hafi elt hana til Las Vegas
og beðið hana að gefa sér annað
tækifæri. Britney var í Vegas vegna
afhendingar Billboard-verð-
launanna. Áður en hún fór þangað
hafði hún vísað Kevin á dyr og látið
draga Ferrari-
bílinn hans á brott
frá heimili þeirra í
Malibu.
Erfiðleikar hafa
verið í hjónaband-
inu síðan sonurinn
Sean Preston
fæddist og Britn-
ey og Kevin hafa
mikið rifist. Eftir heiftarlegt rifrildi
rak hún hann út. Kevin hringdi lát-
laust í Britney og bað hana um ann-
að tækifæri – og bílinn aftur.
Mun Britney hafa verið svo
brugðið að hún afboðaði þátttöku
sína í verðlaunaveitingunni. Breska
blaðið The Sun hefur eftir heimilda-
manni: „Kevin elskar bílinn sinn
næstum því jafn mikið og hann elsk-
ar Britney. Það fór alveg með hann
að hún skyldi senda bílinn aftur til
umboðsins. Hann hefur hringt í
hana stöðugt og beðist fyrirgefn-
ingar og sagt að hann vilji að þau
verði áfram fjölskylda.“
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
Britney hafi ráðfært sig við lögfræð-
inga um skilnað eftir að hún fékk
nóg af því að hann væri sífellt að
hverfa að heiman og fara í partí,
skiljandi hana eftir með strákinn.
MGN Limited og Northern &Shell, útgáfufyrirtækjum
tímaritanna People, Star og Hot
Stars var gert að greiða poppstjörn-
unni Robbie Williams skaðabætur á
dögunum, fyrir birtingu greina í
tímaritunum þar sem því var haldið
fram að hann færi leynt með sam-
kynhneigð sína. Sagði þar að Robbie
stundaði skyndi-
kynni með karl-
mönnum og að
það væri rangt
sem fram kæmi í
ævisögu hans, að
hann hefði aðeins
sængað hjá kon-
um.
Eigendur út-
gáfufyrirtækjanna játuðu fyrir
hæstarétti í Lundúnum að ummælin
væru ósönn og samþykktu að greiða
Robbie skaðabætur, en upphæðar
þeirra var ekki getið. Verjandi út-
gáfufyrirtækjanna sagði skjólstæð-
inga sína iðrast gjörða sinna og biðja
Williams fyrirgefningar á því að
hafa skaðað hann og valdið honum
þjáningu. Opinber afsökun verður
birt í tímaritunum. Popparinn var
ekki viðstaddur réttarhöldin.
Fréttavefur BBC greindi frá þessu.
Fólk folk@mbl.is
NÝ íslensk bók um hljómsveitina
Rolling Stones kom út á dögunum og
kallast hún því margræða nafni
Steinarnir tala. Af því tilefni efnir
bókaútgáfan Sögur til rokktónleika
með hermibandinu Rolling Stóns á
Gauknum í kvöld þar sem öll helstu
Stones-lögin verða leikin.
Bókin, Steinarnir tala hefur að
geyma sögu stærstu rokksveitar
sögunnar og er byggð á viðtölum við
núverandi meðlimi hennar. Hún er
416 blaðsíður og í henni birtast fjöl-
margar fágætar ljósmyndir. Í frétta-
tilkynningu segir að það sé einfald-
lega ekki hægt að komast nær
bandinu, nema hugsanlega á tón-
leikum á Íslandi!?
Rolling Stóns stígur á svið klukk-
an 22 en innanborðs er einvalalið
hljóðfæraleikara og „stónsara“:
Helgi „Jagger“ Björnsson, Björgvin
„Keith“ Gíslason, Eðvarð „Wood“
Lárusson, Tómas „Wyman“ Tóm-
asson, Birgir „Watts“ Baldursson og
Einar „Hopkins“ Rúnarsson.
Forsala aðgöngumiða er á vef-
svæðinu baekur.is. en miðaverð er
1.000 krónur.
Rolling Stones er ein lífseigasta
hljómsveit tónlistarsögunnar.
Tónlist | Útgáfu-
tónleikar bókarinnar
Steinarnir tala
Stóns á
Gauknum
Í KVÖLD munu vinir,
vandamenn og velunnarar
Rafns heitins Jónssonar
halda tónleika á Grand-
rokki til að heiðra minn-
ingu Rafns, sem lést sum-
arið 2004, en 8. desember
er fæðingardagur hans.
Rafn lést eftir hetjulega
baráttu við MND-
sjúkdóminn sunnudaginn
27. júní á fimmtugasta ald-
ursári. Rabbi, eins og
hann var oftast nefndur,
kom víða við sögu í ís-
lensku tónlistarlífi. Hann
hóf feril sinn með því að
spila á trommur árið 1968
og spilaði á þær allt til árs-
ins 1993 þegar hann lagði
kjuðana á hilluna vegna
veikinda sinna. Meðal
hljómsveita sem Rabbi lék
með og stofnaði eru Náð,
Ýr, Grafík, Bítlavina-
félagið og Sálin hans Jóns
míns.
Á tónleikunum, sem
verða órafmagnaðir, munu
koma fram Ragnar Sól-
berg og Egill Örn, synir
Rafns, ásamt hljómsveit-
inni Sign. Rúnar Þórisson
mun ásamt Kalla og Láru
leika lög af nýútkomnum
geisladisk Rúnars Ósögð
orð og ekkert meir. Einnig
flytur Lára nokkur lög af
væntanlegum sólódisk sín-
um sem kemur út á næsta
ári og Heiðar Krist-
jánsson sem hefur starfað
undir nafninu The Viking
Giant Show treður upp.
Tónlist | Tónleikar á Grandrokki
Til minningar
um Rabba
Í dag er fæðingardagur Rafns Jónssonar en vinir hans
og fjölskylda halda tónleika í kvöld til að minnast hans.
Tónleikarnir hefjast
klukkan 22 og er að-
gangur ókeypis.
ÆRNGJARNIR sjö sem skipa Köntrísveit Baggalúts ætla
að blása til stórtónleika á Nasa við Austurvöll í kvöld í til-
efni af útkomu hljómdisksins Pabbi þarf að vinna, sem kom
út fyrr á árinu. Á hljómleikunum mun sveitin leika kraum-
andi sveitatónlist með þjóðlegu aðventuívafi, að því er segir
í tilkynningu frá aðstandendum. Sérstakur leynigestur
verður Rúnar Júlíusson, hljómplötuútgefandi og frum-
kvöðull í sveitasöngvatónlist. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir en Baggalútum þykir tilefni að taka fram að
öll meðferð skotvopna sé bönnuð innandyra.
Eins og mörgum er kunnugt um halda Baggalútsmenn
út eigin vefsíðu. Þar er meðal annars hægt að hlýða á að-
ventulag þeirra félaga, „Sagan af Jesúsi“ og glænýtt jóla-
lag, „Föndurstund“. Ekki er ólíklegt að bæði jóla- og að-
ventulagið muni hljóma á tónleikunum í kvöld.
Tónlist | Tónleikar Köntrísveitar Baggalúts
Meðferð skot-
vopna bönnuð!
Tónleikar Köntrísveitar Baggalúts eru á Nasa í kvöld.
Húsið opnað klukkan 22.
www.baggalutur.is
Köntrísveit Baggalúts leikur á Nasa í kvöld.
HLJÓMSVEITIN Úlpa boðar til útgáfutónleika í
kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum. Nýjasta hljómplata
sveitarinnar, Attempted Flight by Winged Men, kom
til landsins í síðustu viku en brösuglega gekk að fá
plötuna úr framleiðslu þá loksins þegar upptökum og
öðrum frágangi var lokið hér á landi. Það ferli var,
eins og kom fram á dögunum í viðtali við Úlpu, önnur
og enn meiri þrautaganga og í framhaldinu fékk
hljómsveitin það orð á sig að vera, „óheppnasta
hljómsveit Íslands“. Búast má við því að þeir Úlpu-
menn ákveði í eitt skipti fyrir öll að kasta því óorði af
sér í kvöld en sveitin er þekkt fyrir þétta spila-
mennsku.
Dyr Þjóðleikhúskjallarans verða opnaðar kl. 22 en
tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 23.Meðlimir Úlpu á óræðum stað.
Tónlist | Úlpa með útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum
Fagnaðarfundur