Fréttablaðið - 11.01.2003, Side 1

Fréttablaðið - 11.01.2003, Side 1
MYNDLIST Að finna sér farveg bls. 24 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 11. janúar 2003 Tónlist 32 Leikhús 32 Myndlist 32 Bíó 34 Íþróttir 16 Sjónvarp 36 KVÖLDIÐ Í KVÖLD PRÓFKJÖR Tveir ráðherra framsókn- armanna, Valgerður Sverrisdóttir og Jón Kristjánsson, bítast um efsta sætið í prófkjöri Framsókn- arflokksins í Norðausturkjördæmi í dag. Alls gefa fimmtán manns kost á sér. Framsóknarmenn í prófkjöri FRUMSÝNING Söngleikurinn Sól og Máni eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson verður frumsýndur á Stóra sviði Borgar- leikhússins. Sól og Máni frumsýnt ÚTIVIST Jeppadeild Útivistar býður upp á dagsferð um Eyfirðingaveg sem hæfir flestum jeppum. Mæt- ing er fyrir utan skrifstofu Útivist- ar að Laugavegi 178 klukkan tíu. Jeppaferð Útivistar OPNUN Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi verður í dag opnuð ljósmyndasýning, þar sem sýndar verða 124 ljósmyndir frá árunum 1921-81. Ljósmyndararnir eru 41 talsins, allir þýskir og aðhylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem fólst í því að myndlist og iðnhönnun ættu að sameinast í byggingarlistinni. Bauhaus í Breiðholti GÆLUDÝRIÐ Krúsa þykir allur matur góður LAUGARDAGUR 9. tölublað – 3. árgangur bls. 20 SJÓMENNSKA Maður á að vera hræddur bls. 23 STJÓRNMÁL Ólafur Örn Haraldsson, alþingismaður Framsóknarflokks í Reykjavík, hefur ákveðið að vera ekki í framboði til Alþingis í vor. „Þetta kemur okkur á óvart,“ s a g ð i Þ o r l á k u r Björnsson, for- maður kjördæmis- ráðs flokksins í norðurkjördæmi Reykjavíkur. Heimildir Frétta- blaðsins herma að innan flokksins sé hræðsla um stöðu Halldórs Ásgrímssonar og að hann kunni að falla af þingi tak- ist ekki að styrkja framboðið. Þess vegna mun hafa verið leitað til Ólafs Arnar um að hann gefi annað sætið eftir. Átök munu hafa verið um hvað þingmaðurinn fengi í staðinn, en hann mun hafa gert kröfur um stöðu seðla- bankastjóra eða sambærilega stöðu. Á það hefur ekki verið hægt að fallast. „Hafi honum verið boðið eitthvað hefur það komið frá hærra settum mönnum en mér,“ sagði Þorlákur. Skoðanakannanir hafa sýnt að tví- sýnt er hvort Hall- dór nær kjöri í þingkosningunum í vor. Sömu heim- ildir herma að þegar Halldór ákvað að koma suður hafi verið samið um að Ólafur Örn yrði í öðru sæti listans. Eftir að skoðanakannanir sýndu veika stöðu Framsóknar- flokksins í norðurkjördæminu hafi menn komist að þeirri niður- stöðu að Ólafur Örn, sem þó er sitjandi formaður fjárlaganefnd- ar, hafi ekki þann drifkraft sem talinn er nauðsynlegur til þess að bæta Halldór upp og minnka möguleikana á hrakförum flokks- ins í Reykjavík norður. Forystan telur nauðsynlegt að fá sterka konu í sætið eða einhvern sem styrkir Halldór. Því hafi verið ákveðið að semja við Ólaf Örn um að hann víki gegn því að fá boð- lega stöðu innan embættismanna- geirans. „Samkvæmt því sem hefur verið sagt virðist hálfur bærinn koma til greina. Það rétta er að þetta er það nýtilkomið að við höfum ekki rætt hver kemur í sætið í stað Ólafs.“ Í óformlegum viðræðum und- anfarið hefur gengið illa hjá mönnum að ná saman. Ekki fékkst staðfest í gær hvort Ólafur Örn og forysta Framsóknar- flokksins hefðu náð saman. Nokk- ur urgur er meðal flokksmanna vegna þeirra samninga sem gerð- ir voru um efstu tvö sætin og það viðhorf heyrist að ekki sé rétt að ráðstafa sætum á framboðslistum í fámennum klúbbum. Fréttablaðið náði tali af Ólafi Erni, sem efnislega svaraði engu um málið. Ekki náðist í Halldór Ásgrímsson vegna málsins. ■ REYKJAVÍK Suðaustan 10-15 m/s og talsverð rigning undir hádegi, en styttir upp. Hiti 4 til 9 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 10-15 Skúrir 7 Akureyri 3-8 Rigning 4 Egilsstaðir 3-8 Rigning 2 Vestmannaeyjar 8-13 Skýjað 6➜ ➜ ➜ ➜ + + + + Ólafur Örn Haraldsson hættir í stjórnmálum. Framsóknarmenn í Reykjavík leita leiða til að styrkja framboð flokksins í borginni. Þingmaðurinn víkur af listanum LIMA, PERÚ, AP Fokker-flugvél frá flugfélaginu Tan með 46 manns innanborðs er nú leitað í Amazon- frumskóginum í Perú. Herþyrlur voru sendar til þess að leita vélar- innar en vegna mikilla rigninga varð að draga þær til baka og hefja leit á jörðu niðri. Björgunarmenn eru lagðir af stað fótgangandi inn í skóginn en um 6 tíma ganga yfir afar ógreiðfært land er að því svæði þar sem vélin hvarf. Meðal farþega í vélinni eru, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu, 8 börn auk belgískra hjóna sem þeg- ar hafa verið nafngreind. Flugumferðarstjórar misstu samband við vélina þremur mínút- um fyrir áætlaða lendingu á flug- velli í fjallaþorpinu Chachapoyas á fimmtudaginn. Talsmaður flugfé- lagsins segir að veður hafi verið ágætt þegar vélin hvarf og nægt eldsneyti en enn sé ekki vitað hvort tókst að nauðlenda vélinni. Flugmaður sem til þekkir segir aft- ur á móti að nauðlending sé nánast ógerleg vegna aðstæðna á svæð- inu, sem er hálent og skógi vaxið. Chachapoyas-þorpið er nálægt gömlum indíánarústum og er því reglulega heimsótt af ferðamönn- um. ■ ÖRVÆNTINGARFULLIR AÐSTANDENDUR Margir hafa leitað til Tan-flugfélagsins til þess að fá upplýsingar um ættingja og vini sem grunur leikur á að hafi verið um borð í flugvélinni sem saknað hefur verið síðan á fimmtudag. Flugvélar með 46 farþega saknað í Perú: Erfiðar aðstæður tefja leit NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur vikunnar meðal 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 29% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu? 62% 72% ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON Hefur ljáð máls á því að rýma ann- að sætið. Alcoa og Landsvirkjun samþykkja: Hátíðahöld fyrir austan STÓRIÐJA Stjórn Alcoa samþykkti í gær að ráðast í byggingu 322 þús- und tonna álvers við Reyðarfjörð, sem nefnast mun Fjarðaál. Þetta verður ein umfangsmesta fjár- festing sem ráðist hefur verið í á Íslandi, kostar um 90 milljarða króna. Byggingarframkvæmdir hefjast árið 2005 og álframleiðsla hefst 2007. Um 450 störf skapast í verinu sjálfu og 300 störf í tengd- um iðnaði og þjónustu, samtals 750 störf. Þá samþykkti stjórn Lands- virkjunar rafmagnssamning vegna álversins í gær með sex at- kvæðum gegn einu, Helgi Hjörv- ar, fulltrúi Reykjavíkurborgar, var á móti. Í bókun hans segir að ekki séu rök til þess að fallast á litla arðsemi Kárahnjúkavirkjun- ar og ábyrgðir eigenda. Stjórn Landsvirkjunar fól stjórnarfor- manni og forstjóra að undirrita sameiginlega rafmagnssamning- inn. Þó eru gerðir fyrirvarar um ábyrgð eigenda á lánum vegna Kárahnjúkavirkjunar og af- greiðslu Alþingis á heimildarlög- um vegna álversins. „Þetta eru stórtíðindi og mjög gleðileg,“ sagði Valgerður Sverr- isdóttir iðnaðarráðherra um sam- þykkt Alcoa. Í sama streng tóku heimamenn austur á fjörðum. Alcoa-fánanum var flaggað á Eskifirði og mikil hátíðahöld voru á Reyðarfirði. Þá var fyrirhuguð flugeldasýning í tilefni samkomulagsins. ■ VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Iðnaðarráðherrann fagnar undirskrift samninga og segir þetta vera mikil tíðindi. Alcoa samþykkti að reisa 322 þúsund tonna álver við Reyðarfjörð og hefjast framkvæmdir árið 2005. AP /M YN D „Hafi honum verið boðið eitthvað hefur það komið frá hærra settum mönnum en mér.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.