Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 48
Fátt er dapurlegra en fullur mað-ur í flugvél. Á leið á framandi
stað og mætir þangað sljór og jafn-
vel blindur. Blindfullur. Sér hvorki
né heyrir. Fer á mis við ánægjulegt
og jafnvel kynngimagnað áreiti sem
gæti orðið uppspretta nýrrar sýnar á
eigin tilveru.
DATT þetta í hug þegar ég sá haft
eftir landsþekktum manni að hann
hefði vanið sig á að ferðast fullur. Þá
var búið að vísa honum úr flugvél
vegna óláta. Hann komst aldrei á
áfangastað. Missti af öllu.
VANN eitt sinn í flugstöð á fyrstu
dögum Spánarferðanna. Flogið var
úr landi árla dags og ferðalangarnir
mættu síðla nætur á litla barinn sem
seldi bjór og sterkara eitur. Konur
utan af landi, jafnvel með rúllur í
hárinu, gátu ekki annað en fengið
sér einn eða tvo morgunsnafsa. Þó
svo þær hefðu aldrei drukkið áður.
Þær voru að fara í ferðalag og þetta
tilheyrði. Svo var slegið í klárinn og
fulla fólkinu mokað út í flugvél. Þar
biðu fleiri drykkir. Á Spáni enn
fleiri. Ferðalag í þoku þrátt fyrir
heiðskíran himin og glampandi sól.
Kom svo heim ringlað af rugli.
Minningin martröð.
FINNST samt sem skylda ætti alla
til að ferðast. Ætti að vera hluti af
launakjörum almennings. Fátt er
jafn mannbætandi og breytt um-
hverfi. Enda ekki tilviljun að orðið
heimskur vísi til þess sem heima sit-
ur. Og er eins í latneska stofninum
locus sem þýðir staður. Á spænsku
kalla þeir heimskingja locos. Allt
ber að sama brunni.
EN sá sem ferðast fullur gæti eins
heima setið. Því þúfurnar eru hver
annarri líkar ef hugurinn er lamað-
ur. Sá sem hefur ekki ekið inn í New
York í ljósadýrð næturinnar með
bæði augu opin veit ekki hvað stór-
borg er. Og í neðanjarðarlestum Par-
ísar glampar á fegurð sem krefst
allrar athygli ef njóta á. Svo ekki sé
minnst á alþjóðlegt skvaldrið í
Barcelona að kvöldi dags. Eða lognið
í Búdapest.
FÍNT að vera á fullri ferð. En ekki
ferðast fullur.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
Útsala
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
19
63
5
12
.2
00
2
Rýmum fyrir nýju ári
á 700 vörutegundum.
Laugardaga ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudaga....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudaga - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30
((
60% Allt að afsláttur.
NÝTT
KREDITKORTA
TÍMABIL
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni
Full ferð