Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 33
33LAUGARDAGUR 11. janúar 2003 LEIKHÚS 14.00 Jón Oddur og Jón Bjarni eftir Guðrúnu Helgadóttur verður sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 14.00 Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner verður sýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins. 14.00 Honk! Ljóti andarunginn eftir George Stiles og Anthony Drewe, gamansöngleikur fyrir alla fjöl- skylduna, verður sýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. 14.00 Benedikt búálfur eftir Ólaf Gunn- ar Guðlaugsson verður sýndur í Loftkastalanum. 15.00 Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz verður sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. 15.00 Hin smyrjandi jómfrú eftir Charlotte Bøving er sýnd í Iðnó. 20.00 Með fullri reisn, söngleikur eftir Terrence McNally og David Yaz- bek, verður sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson verður sýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. 21.00 Beyglur með öllu, gamanleikur um líf kvenna í samtímanum, verður sýndur í Iðnó í flutningi Skjallbandalagsins. SÝNINGAR Freygerður Dana Kristjánsdóttir sýnir tvö verk á sýningu sinni í MOJO á Vega- mótastíg 4. Annað er háðsádeila á fálka- orðuna, hitt er um rollur á réttum eða röngum hillum í lífinu. Sýningin stendur út janúar. Anna Guðrún Torfadóttir myndlistar- maður sýnir verk unnin með blandaðri tækni í Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík. Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning- una Án samhengis - allt að klámi í Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi. Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á árinu 2000. Sýningin stendur út janúar og er opin á opnunartíma Café Presto, 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4. hæð. Sýningin er opin virka daga frá 9- 17 og stendur til 31. janúar. Í hers höndum er yfirskrift á sýningu sem stendur yfir í Borgarskjalasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýningin er opin alla daga klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar. Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur sýningu á verkum sínum í Kaffitári, Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn- inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms- kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall- grímskirkju og stendur til loka febrúar- mánaðar. Hildur Margrétardóttir myndlistarkona sýnir nokkur óhlutbundin málverk á Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan- úar. Sýning á nokkrum verkum Guðmundar Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja- víkurminningar en myndirnar tók Guð- mundur um miðja síðustu öld í Reykja- vík. Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Inga Svala fjallar um og endurvekur draum- sýnina um hið fullkomna samfélag. Hún leggur fram hugmynd að milljón manna borgarskipulagi í Borgarfirði og á norð- anverðu Snæfellsnesi. Sýningin er opin alla daga klukkan 10-17. Henni lýkur 19. janúar. Á Kjarvalsstöðum eru sýnd nokkur verk eftir Jóhannes S. Kjarval úr Kjarvals- safni. Sýningin er opin alla daga 10-17. Henni lýkur 31. janúar. Íslandsmynd í mótun - áfangar í kortagerð er yfirskrift sýningar í Þjóð- menningarhúsinu. Sýnd eru þau kort sem markað hafa helstu áfanga í leitinni að réttri mynd landsins. Sýningin stend- ur þangað til í ágúst. Stærsta sýning á íslenskri samtímalist stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn sem fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning- in árin 1980-2000. Í Nýlistasafninu við Vatnsstíg 3B standa yfir sýningar á verkum eftir Giovanni Garcia-Fenech og JBK Ransu. Innsetn- ing Garcia-Fenech nefnist Sex hausar, innandyra. Yfirskriftin á sýningu Ransus er Abstrakt expressjónin og geómetrí- an. Safnið er opið miðvikudag til sunnu- dags klukkan 13-17. Sýningarnar standa til 12. janúar. Milli goðsagnar og veruleika er yfir- skrift sýningar á nútímalist frá araba- heiminum í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Sýningin kemur frá Ríkislistasafn- inu í Jórdaníu. Á henni er úrval verka eftir karla og konur frá sextán löndum. Sýningin er opin alla daga 10-17. Henni lýkur 19. janúar. Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn- ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor- ræna húsinu. Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum Vatnsstígs 10. Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð- menningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá klukkan 11 til 17. Sýning á bútasaumsverkum eftir 10 konur stendur nú yfir í Garðabergi, fé- lagsmiðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í Garðabæ. Sýningarnar verða opnar alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17. Ýmsir listamenn halda sýningu í gallerí i8, Klapparstíg 33. Meðal annars eru verk eftir Eggert Pétursson, Rögnu Ró- bertsdóttur, Þór Vigfússon, Kristján Guðmundsson, Sigurð Guðmundsson, Roni Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg Guðna og Tony Cragg til sýnis og sölu. Opið er fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11-18 og laugardaga frá kl.13 til 17 eða eftir samkomulagi. Í Ásmundarsafni við Sigtún stendur yfir sýningin Listin meðal fólksins, þar sem listferill Ásmundar Sveinssonar er sett- ur í samhengi við veruleika þess samfé- lags sem hann bjó og starfaði í. Sýning- in er opin alla daga klukkan 13-16. Hún stendur til 20. maí. TÓNLIST Tvö píanó og slagverks- sveit er ekki algeng sjón á sviði. Þetta fá þó gestir á Tíbrártónleik- um Salarins í Kópavogi að upplifa á sunnudagskvöld. Píanóleikararnir tveir eru þau Hrefna Eggertsdóttir og Johann- es Andersen. Ásamt þeim verður á sviðinu slagverkshópurinn Benda, sem nú hefur starfað í þrjú ár. Hann er skipaður þeim Steef van Oosterhout, Eggerti Pálssyni og Frank Aarnink. Þau ætla að leika verk eftir Benjamin Britten, John Cage og Béla Bartok. „Öll þessi verk eiga það sam- merkt að þau voru samin í kring- um 1940. Þau hafa öll í sér seinni heimsstyrjöldina,“ segir Hrefna. Til að mynda er annað tveggja verka eftir Britten, Mazurka El- egiaca, samið í minningu píanist- ans Ignace Jan Paderewski, sem flúði frá Póllandi og var leiðtogi pólsku útlagastjórnarinnar árin 1940-41. Síðasta verkið á tónleikunum er Sónata fyrir tvö píanó og slagverk frá 1937 eftir Ungverjann Béla Bartok. Það er reyndar eina verk- ið á tónleikunum þar sem bæði pí- anóin eru notuð ásamt slagverk- inu. Nokkru eftir að Bartok samdi þetta verk fór hann í útlegð og settist að í Bandaríkjunum. Þau segja þessa tónleika í raun hafa átt sér tuttugu ára aðdrag- anda. Upphafið megi rekja til pí- anóleikarans Jóhannesar Ander- sen, sem er Færeyingur. „Þetta byrjaði allt saman í Vín með því að Jóhannes keypti nót- urnar að þessu stykki eftir Bart- ok. Hann gaf mér eintak með því skilyrði að við spiluðum það bæði í Færeyjum og á Íslandi,“ segir Eggert. Þeir Jóhannes voru þá báðir við nám í Vín. Þau léku þetta verk síðan í Færeyjum árið 1994. „En svo bið- um við eftir því að það kæmi tón- listarhús á Íslandi til þess að geta flutt það hér.“ ■ FJÖLSKYLDUSKEMMTUN Dagur Nella nágranna verður haldinn í annað sinn laugardaginn 11. janúar næstkomandi. Börnum og for- eldrum í hverfunum sem markast af Þingholtunum, Suður- landsbraut og Grensásvegi er boðið að kynna sér það fjöl- breytta starf sem í boði er fyrir börn og unglinga utan hefðbund- ins skólatíma. Þrettán aðilar verða með opið hús milli kl. 13 og 16 á laugardag- inn, Knattspyrnufélögin Valur og Fram, Mímir - símenntun, Skáta- félagið Landnemar, Dansskóli Jóns Péturs og Köru, Skákskóli Íslands, Jassballettskóli Báru, Karatefélagið Þórshamar, Ball- ettskóli Eddu Scheving, Frí- stundamiðstöðin Tónabær, Borg- arbókasafnið í Kringlunni, Há- teigskirkja og Hallgrímskirkja. Að því búnu verður fjölbreytt fjölskylduhátíð í Félagsmiðstöð- inni Tónabæ, Safamýri 28. Þar verður boðið upp á atriði úr smiðju þjónustuaðila og happ- drætti. Meðal vinninga verða námskeið fyrir börn og unglinga frá þeim aðilum sem taka þátt í deginum. ■ Fjölskylduhátíð í Tónabæ: Dagur Nella nágranna Á SVIÐINU Í SALNUM Hér sjást þeir Johannes Andersen píanóleikari, Eggert Pálsson slagverksleikari og Steef van Oosterhout innan um hljóðfæri sín. Óvenjulegir tónleikar í Salnum í Kópavogi: Tvö píanó og slagverk

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.