Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 46
46 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR
ÓKEYPIS
Býður steingeitum í mat
55 ÁRA „Ég held yfirleitt ekki upp
á afmælið mitt nema þau séu eitt-
hvað sérstök,“ segir Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari sem er
fimmtíu og fimm ára í dag. Guð-
ný er ásamt, Sverri Guðjónssyni
kontratenór, Gunnari Kvaran,
eiginmanni sínum, og fleiri valin-
kunnum steingeitum í félagskap
sem kennir sig við Capricorno.
„Við höfum það fyrir sið að hitt-
ast og borða, annað hvort úti eða
í heimahúsi, í kringum afmælin
okkar.“ Það hittist einmitt svo
skemmtilega á að Guðný ætlar að
elda fyrir hópinn í kvöld. „Þetta
eru nokkrir góðar steingeitur og
svo fá nokkrir makar sem ekki
eru í merkinu að fljóta með.“
Guðný er 1. konsertmeistari
hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands
og kennir við Tónlistardeild
Listaháskóla Íslands og Tónlist-
arskólann í Reykjavík. Þar fyrir
utan er hún meðlimur í Tríói
Reykjavíkur ásamt eiginmanni
sínum og Peter Máté. „Það er
alltaf nóg að gera. Það eru Vínar-
tónleikar hjá Sinfóníunni þessa
dagana og svo verðum við í Tríói
Reykjavíkur með okkar Vínar-
tónleika í Hafnarborg í lok mán-
aðarins. Við gerðum þetta líka í
fyrra og þá var mikið fjör. Þetta
verður með svipuðu sniði í ár og
þau Diddú og Bergþór Pálsson
verða þarna með okkur.“
Guðný fæddist í Reykjavík en
foreldrar hennar fluttu með hana
í Kópavoginn þegar hún var
nokkurra mánaða og þar bjó hún
þangað til hún varð nítján ára og
fór í nám erlendis. „Það er mikil
sól og heiðríkja í kringum
æskuminningarnar úr Kópavog-
inum. Þetta voru aðallega sumar-
bústaðir. Húsið okkar var með
þeim stærri á staðnum en það
hafði áður verið skólahús fyrir
sveitina. Það stóð eitt og sér og
maður man mest eftir sér úti í
móa að því er virðist alltaf í góðu
veðri. Lengstu ferðalögin sem
maður fór í var heimsókn til
vinafólks í Hafnarfirði en það
var alveg eins og að fara út í
sveit.“
Guðný gekk í Kópavogsskóla,
Gagnfræðaskólann í Kópavogi
og MR en hún fór út að læra
áður en hún lauk honum. „Ég var
eitt ár í London en annars í
Bandaríkjunum. „Fyrstu árin
eftir að ég kom heim bjó ég í
Kópavoginum. Það var heilmikið
viðbrigði að setjast að í Hamra-
borginni. Gamla húsið var löngu
horfið og móarnir að mestu
komnir undir hraðbraut.“
thorarinn@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
Einu sinni át ég mikið kjöt. Égvar þá trillukarl og reri frá
Hellnum á Snæfellsnesi og þótti
gott að hafa bernaise sósu út á.
Þannig var málum háttað að alla
næringu varð að panta úr Kaupfé-
laginu í Borgarnesi og fá með
mjólkurbílnum fjórum dögum
seinna. Pantanirnar voru nokk
svipaðar frá einni vikunni til ann-
arrar, 5 ómygluð brauð, 5 pottar af
ósúrri mjólk og 5 bréf af bernaise
sósu auk kjöts. Hins vegar kom
ævinlega myglað brauð. Mjólkin
slapp stundum. Einn daginn var
greinilega ný stelpa komin á lager-
inn, því brauðið kom þá alómyglað
og í stað 5 bréfa af bernaise sósu
voru 5 karton af hollandaise sósu.
En hún er vond (stundum höfð með
fiski). Í hverju kartoni voru 20
bréf þannig að í stað 5 bréfa af
bernaise sósu sátum við uppi með
100 bréf af hollandaise sósu. Þessu
var skutlað inn í skáp og við þrauk-
uðum vikuna sósulausir.
Sjö árum seinna skrapp ég við
fimmta mann í tveggja daga vetr-
artúr vestur að Hellnum. Veður
voru blíð og náttúran skartaði sínu
fegursta þar til er halda skyldi
heim. Þá skall hann á með þvílík-
um djöfulgangi að ekki var manni
út sigandi í átta daga samfleytt.
Tveggja daga nestið þurfti því að
duga í tíu. Eftir fimm daga var
ekkert eftir nema um handfylli af
rúgmjöli, matskeið af hunangi,
nokkur maiskorn og kryddafgang-
ar. En þá mundi ég allt í einu eftir
sósunni. Sauce Hollandaise!
Fyrsta daginn fengum við okkur
popp með útrunninni hollandaise
sósu. Annan daginn hollandaise
sósu með smápoppi. Þriðja daginn
bara hollandaise sósu. Og við lærð-
um margt. Til dæmis að með rúg-
mjöli í hollandaise sósu má gera af
hleif og skera í sneiðar og setja
hollandaise sósu út á. Og það má
setja hunang í hana og hafa sem
ábæti. En með vatni og kryddi ým-
iss konar galdrast fram hollanda-
ise óvissusúpa. Hvað um það, í
þann mund er veðrinu slotaði
kláraðist síðasta sósubréfið. Við
sigldum heim en mig dreymir um
að lenda í „Viltu vinna milljón“ og
fá: „Hvað borðar fullvaxinn karl-
maður mörg bréf af hollandaise
sósu á dag?“. ■
Karl Roth tölvulíffræðingur segir frá miður
geðslegu neyðarfæði og skorar á Björn
Roth, bróður sinn, að segja næstu sögu.
Sagan
Af Hollandaise sósu
JARÐARFARIR
13.30 Guðrún Björnsdóttir, Dalbæ, Dal-
vík, verður jarðsungin frá Dalvíkur-
kirkju.
14.00 Guðrún Ármannsdóttir, Sílalæk,
Aðaldal, verður jarðsungin frá
Neskirkju.
14.00 Gylfi Harðarson, Vestmannabraut
33, Vestmannaeyjum, verður jarð-
sunginn frá Landakirkju.
AFMÆLI
Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari, er
55 ára.
Ágúst Einarsson prófessor og fyrrver-
andi þingmaður er 51 árs.
ANDLÁT
Steinar Axelsson matsveinn og bryti,
lést 17. desember. Útför hans hefur farið
fram.
Steinunn Sigurborg Gunnarsdóttir,
Norðurbraut 27, Hafnarfirði, lést 20 des-
ember. Útför hennar hefur farið fram.
Kristín Guðríður Elíasdóttir, Fannborg
8, Kópavogi, lést 1. janúar. Útför hennar
hefur farið fram.
Ingvar N. Pálsson lést 1. janúar. Útför
hans hefur farið fram.
Indriði Einarsson, Melum, Kjalarnesi,
lést 9. janúar.
Lovísa Guðrún Jónsdóttir, Frakkastíg
23, Reykjavík, lést 9. janúar.
Friðbjörn Þórhallsson, Hofsósi, lést 8.
janúar.
Gestur Þorgrímsson myndhöggvari lést
8. janúar.
Hólmfríður Hildimundardóttir, Dvalar-
heimilinu Stykkishólmi, lést 8. janúar.
Svava Þorgerður Þórhallsdóttir Johan-
sen, Sóltúni 2, lést 8. janúar.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að svínið er eina dýrið sem svitn-
ar innávið.
Leiðrétting
Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari er 55 ára í dag. Hún tekur
sér frí frá tónlistarkennslu þar sem hún verður á kafi í eldamennsku
en von er á nokkrum hressum steingeitum í kvöldmat.
Toyota.
Óku jeppa í gegnum rúðu.
Þuríður Sigurðardóttir.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Ljóskan var að fylla út at-vinnuumsókn. Hún fyllti sam-
viskusamlega út í reiti sem
merktir voru nafn, aldur og
heimilisfang og svo framvegis.
Þá kom hún að dálk sem merkt-
ur var: Væntingar til launa. Hún
hugsaði sig um og skrifaði svo
samviskusamlega: Já.
KARL ROTH
„En þá mundi ég allt í einu eftir sósunni.
Sauce Hollandaise! Fyrsta daginn fengum
við okkur popp með útrunninni hollanda-
ise sósu. Annan daginn hollandaise sósu
með smápoppi. Þriðja daginn bara
hollandaise sósu.“
Skriftið eins og kaþólskir. Efekki er aðgangur að skriftar-
stól í Landakoti þá skrifið sjálf-
um ykkur bréf. Hvort sem er á
tölvu eða með kúlupenna á blað.
Leysið frá skjóðunni í einu og
öllu. Látið hugann streyma. Lygn
á eða stórfljót. Látið allt vaða.
Upplifið síðan létti þess sem los-
að hefur sig við þrúgandi byrði.
Eins og syndaaflausn. Nýtum það
besta úr kaþólskunni. Það kostar
ekki neitt.
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Mælirinn er
fullur, Bonzo!
GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR
„Ég hef mikinn áhuga á bókmenntum og fylgist vel með því sem er að gerast í leiklist og
myndlist. Þá vildi ég geta gengið meira um landið en það gefst ekki mikill tími til að
sinna því áhugamáli og vonast til að geta notað ellina til að ferðast meira innanlands.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Nú er alls endis óvíst að EinarKarl Haraldsson skipi 5. sæt-
ið á lista Samfylkingarinnar í
Reykjavíkurkjördæmi suður.
Kunnugir segja að verið sé að
kanna jarðveginn fyrir framboði
Ellerts B. Schram. Ellert kæmi
þá í 5. sæti listans en Einar Karl
færðist neðar eða yrði alls ekki á
listanum.
Nokkur skelfing ríkir í herbúð-um Framsóknarmanna eftir
skoðanakannanir sem birst hafa
undanfarið um fylgi flokkanna.
Samkvæmt Gallupkönnun um
daginn er flokkurinn einungis
með átta þingmenn. Þegar fylgið
er brotið upp, kemur á daginn að
þrír þeirra eru úr kjördæmi
Guðna Ágústssonar landbúnaðar-
ráðherra. Talið er víst að Hjálm-
ar Árnason sé þar annar maður á
lista og eygir Ísólfur Gylfi
Pálmason alþingismaður, sem
hefur manna mest gaman af
starfi sínu, veika von um að
halda þingsæti sínu. Hængur er
að Framsóknarmenn hafa haldið
mjög á lofti að þeir veigri sér
ekki við því koma konum til áhri-
fa og eiga í ljósi þess erfitt að
tefla fram lista með þremur körl-
um í efstu sætum.
FÓLK Í FRÉTTUM
YOGA Fyrir þá sem eru að ganga í
gegnum eða hafa lokið krabbameinsmeðferð
Ný námskeið hefjast 13. janúar
Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m. a. byggir nám-
skeiðin á sinni eigin reynslu. Tilgangur námskeiðisins er að
takast á við daglegt líf að nýju með aðstoð yoga, styrkja sig
líkamlega og andlega auk þess að sættast við líkamann.
Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar að Bolholti 4, 4. hæð
til vinstri.
Skráning og upplysingar gefur Arnhildur í síma 895-5848
40-70% afsláttur
Bæjarlind 12,
Kópavogi, sími 544 2222
Útsalan í fullum gangi