Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 7
7LAUGARDAGUR 11. janúar 2003
www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200
Nýtt kortatímabil
Opið 10.00 -18.00 laugardag
Opið sunnudag
13.00-17.00
Stærsta
útsalan
er á besta stað
í bænum.
Kringlan er…
yfir 150 verslanir og
þjónustuaðilar á einum stað.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
RI
1
98
24
0
1/
20
03
Afgreiðslutími
verslana:
Mánudag til
miðvikudags
10.00 til 18.30
Fimmtudag
10.00 til 21.00
Föstudag
10.00 til 19.00
Laugardag
10.00 til 18.00
Sunnudag
13.00 til 17.00
Veitingastaðir
og Kringlubíó eru
með opið lengur á
kvöldin.
MYRTI KEPPINAUTINN Saksókn-
ari í Baltimore í Bandaríkjunum
hefur kært 18 ára pilt fyrir morð.
Piltinum er gefið að sök að hafa
eitrað fyrir 17 ára pilti sem
keppti við hann um ástir ung-
lingsstúlku.
KÆRÐUR FYRIR ÍSKAST 15 ára
piltur í bænum Betlehem í Penn-
sylvaníu hefur verið ákærður
fyrir manndráp. Hann er kærður
fyrir að hafa hent ísklumpi á
stærð við körfubolta fram af brú
og á bíl sem átti leið hjá. 33 ára
maður sem var í bílnum lést við
uppátækið.
BANKARÍKIN
VATNSSTÍGUR 11
Húseigandinn hefur sagt Félagsþjónust-
unni upp húsnæðinu.
Vatnsstígur 11:
Leigjendum
sagt upp
FÉLAGSÞJÓNUSTAN Félagsþjónustan
hefur sagt leigjendum sínum við
Vatnsstíg 11 upp húsnæðinu með
eins árs fyrirvara. Leigjendum er
gert að rýma íbúðirnar fyrir
næstkomandi áramót.
Birgir Ottósson forstöðumaður
þjónustudeildar Félagsíbúða segir
að öllum þeim sem kæra sig um
að leigja áfram hjá Félagsbústöð-
um verði tryggt annað húsnæði í
stað húsnæðisins við Vatnsstíg.
„Eigandi hússins hefur sagt upp
leigusamningi við Félagsþjónust-
una en íbúar þurfa ekki að hafa
áhyggjur af því að verða húsnæð-
islausir. Fram kemur í uppsagnar-
bréfi að þeir þurfi aðeins að snúa
sér til Félagsþjónustunnar og láta
vita hvort þeir vilji aðra íbúð,“
segir Birgir Ottósson. ■
DÓMSMÁL Tvö málverk sem tveir
blaðamenn Pressunnar voru dæmd-
ir fyrir að segja fölsuð eru í reynd
falsanir. Þetta er niðurstaða sér-
fræðinga sem dómkvaddir voru til
að meta verkin.
Kristján Þorvaldsson og Þóra
Kristín Ástgeirsdóttir sögðu mál-
verkin vera falsanir í grein í Press-
unni árið 1990. Fimm árum síðar
voru þau í Hæstarétti dæmd ómerk
orða sinna og til greiðslu sektar.
Dómurinn taldi ekki hafa verið sýnt
fram á að verkin væru fölsuð.
Málverkin sem um ræðir voru
sögð vera eftir Sigurð Guðmunds-
son málara og vera frá því um
miðja nítjándu öldina. Verkin voru
seld af Gallerí Borg. Kaupandinn
var Þorvaldur Skúlason heitinn í
Síld og fisk.
Aðgangur fékkst ekki að mál-
verkunum umdeildu fyrr en á síð-
asta ári en þá voru þau komin í eigu
Listasafns Kópavogs. Að lokinni
frekari gagnaöflun verður þess
óskað að mál blaðamannanna verði
tekið fyrir að nýju í Hæstarétti.
Sérfræðingarnir segja að um-
rædd verk beri engin einkenni
verka Sigurðar, hvorki hvað snerti
myndbyggingu, tækni eða vinnu-
brögð. Að svo komnu máli sé ekki
þörf á að rannsaka strigann sem
verkin eru máluð á eða efnin sem
þau eru máluð með. ■
Sérfræðingar telja málverkin í Pressumálinu falsanir:
Blaðamenn vilja
endurupptöku
FÖLSUN?
Annað verka sem eignað var
Sigurði Guðmundssyni mál-
ara á uppboði Gallerí Borgar.
Verkið er í einkaeigu í dag en
í vörslu sérfræðinga sem
dómkvaddir voru til að meta
uppruna þess. Myndirnar
voru um langt skeið sagðar
týndar en komu fram að nýju
á síðasta ári.
Konu leitað í Danmörku:
Auglýst í
blöðum
LEIT Lýst verður eftir Guðrúnu
Björg Svanbjörnsdóttur, sem fór
úr landi til Kaupmannahafnar 29.
desember, í dönskum dagblöðum
um helgina. Jónas Hallsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn segir
vonir standa til að þetta verði til
þess að koma lögreglunni á spor-
ið. Ekkert hefur spurst til hennar
frá því að hún fór út.
Lýst hafði verið eftir konunni
30. desember auk þess sem leit
stóð að henni en vegna mistaka í
verkbeiðni lögreglunnar í
Reykjavík kom ekki í ljós fyrr en
á mánudag að hún hafði farið úr
landi. ■
Innhöf frjósa:
Eystrasalt
gæti orðið
ísi lagt
VÍSINDI Að sögn finnskra vísinda-
manna er hugsanlegt að Eystra-
salt muni von bráðar verða ísi lagt
í fyrsta sinn síðan 1948. Nú þegar
er byrjað að myndast íslag hér og
hvar á innhafinu og Helsingjabotn
og Finnski flói eru frosnir stranda
á milli. Auk þess að ná yfir óvenju
stórt svæði er ísinn fimm til tutt-
ugu sentimetrum þykkari en í
venjulegu árferði.
Sérfræðingar telja að þó hlýir
kaflar komi inn á milli muni það
litlu breyta. Á fimmta tug skipa
hafa setið föst í ísnum í Finnska
flóa að undanförnu og hafa ís-
brjótar verið önnum kafnir við að
bjarga þeim úr prísundinni. ■