Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 34
34 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR JAMES BOND kl. 2, 5, 8 og 10.50 LIKE MIKE kl. 2Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12 b.i. 14 ára Kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 11.45- Powersýning Sýnd í lúxus kl. 3, 7 og 11 kl. 2 og 5HARRY POTTER kl. 5.45THE GREAT DICTATOR kl. 8 og 10.05HAFIÐ kl. 5.45, 8 og 10.15GRILL POINT Sýnd kl. 1.50, 3.50, 5.45, 8 og 10.10 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 1.45, 3.45 VIT498 LILIO OG SITICH m/ísl.tali kl. 2 VIT HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 2 og 5 VIT493 HARRY POTTER kl. 6 og 9.15 VIT468 STELLA Í FRAMBOÐI kl. 2, 4, 6, 8, 10.15 VIT468 GHOSTSHIP kl. 8 og 10.15 VIT487 kl. 1.45 og 3.45GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 10DISCO PIGS kl. 10.10HLEMMUR Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 Sýnd í lúxus kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.45, 8, 10.15 VIT 468 Leikarinn Jeffrey Jones, semhefur verið ákærður fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum, segist vera saklaus. Fjórtán ára piltur segir leikarann hafa ljós- myndað sig nakinn en að engin snerting hafi átt sér stað. Mál leik- arans verður tekið upp í Los Ang- eles á næstunni. Ef leikarinn verð- ur fundinn sekur gæti hann þurft að dúsa á bak við lás og slá í þrjú ár. Jones er þekktastur fyrir hlut- verk sitt sem skólastjóri Ferrris Bueller í samnefndri mynd. Díana Ross ætlar ekki að mæta íréttarsalinn þegar mál hennar verður á dagskrá. Hún segist vera saklaus af ákæru um ölvunarakstur. Söngkonan var handtekin í síðustu viku eftir að hafa fallið á áfengis- prófi lögreglunnar sem sker úr um það hvort viðkom- andi sé ökufær eða ekki. Ross hefur einnig reynt hvað hún getur til þess að stöðva það að myndbandsupptaka lögreglunnar komist fyrir sjónir almennings. Poppdrottningin Madonna gefurí apríl út fyrstu smáskífu sína af sinni níundu breiðskífu. Lagið heitir „American Life“. Stúlkunni hefur víst gengið eitthvað erfið- lega með að finna nafn á plötuna. Nafnið „Ein sof“ hefur verið nefnt, en það þýðir víst óendanleiki á hebresku. Hljómsveitin Sonic Youth ætlarað endurútgefa plötuna „Dirty“ sem kom upphaflega út árið 1992. Á nýju útgáfunni fylgir aukadiskur þar sem verður að finna áður óútgefin lög frá tímabil- inu auk nýrra útgáfna af lögum plötunnar. Nýja útgáfan kemur í búðir í mars. FRÉTTIR AF FÓLKI Poppað gegn krabba Einar Bárðarson hefur gert það að hefð að halda árlega styrktartónleika fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Í dag verða tónleikarnir haldnir í fimmta skipti í Háskólabíói. Tólf tónlistaratriði eru á dagskrá. SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Árlega greinast að meðaltali 10-12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Á styrktartónleikunum hafa safnast hátt í 2 milljónir ár hvert. TÍSKA Súpermódelið Claudia Schiffer segir að hjónaband sitt hafi farið fram úr sínum björt- ustu vonum. Fegurðardísin giftist kvikmyndaframleiðandanum Matthew Vaughn á maí á síðasta ári og eiga þau von á sínu fyrsta barni í næsta mánuði. Schiffer segist aldrei hafa ver- ið jafn ástfangin og hamingju- söm. „Ég hef aldrei verið sú per- sóna sem situr og bíður eftir að lífið þjóti framhjá sér,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Tatler. „Ég vil frekar njóta lífsins og alls þess sem það hefur upp á að bjóða.“ ■ Claudia Schiffer: Aldrei jafn hamingjusöm SCHIFFER Claudia Schiffer vill njóta lífsins til hins ítrasta. TÓNLEIKAR Þegar Einar Bárðarson ákvað fyrir fimm árum að halda tónleika til styrktar Styrktarfé- lagi krabbameinssjúkra barna þurfti hann að beita miklum sann- færingarkrafti til þess að fá sveit- irnar til þess að samþykkja þátt- töku. Eðlilega, þar sem tónlistar- menn óttast að hagnaðurinn skili sér ekki allur á réttan stað. Nú er annað uppi á teningnum og segir Einar það nú vera afar auðvelt að fá poppara til þess að leggja sitt af mörkum. „Tónlistarmenn eru tilfinn- ingaverur og finna til með þeim sem minna mega sín í þjóðfélag- inu,“ segir Einar. „Þegar tónlistar- mennirnir sjá að peningarnir eru afhentir á staðnum og að hver ein- asta króna fer í þetta málefni þá eru þeir reiðbúnir að koma. Marg- ir hverjir, eins og Sálin hans Jóns míns, eru búnir að koma á hverju einasta ári. Mönnum finnst bara mikill heiður að fá að taka þátt í þessu.“ Í Háskólabíói í dag stíga á svið Bubbi Morthens, Papar, Stuð- menn, Írafár, Daysleeper, Á móti Sól, Sálin hans Jóns míns, Í svört- um fötum, Land & synir, KK, Eyjólfur Kristjánsson og Páll Rós- inkranz ásamt Jet Black Joe. Einar hélt fyrstu tónleikana til þess að þakka Styrktarfélaginu fyrir þann stuðning sem fjöl- skylda frænda hans fékk er snáð- inn þurfti að ganga í gegnum geislameðferð eftir að hafa greinst með krabbamein. Hann segir þá reynslu hafa gefið honum mikið og því hafi verið ákveðið að gera þetta að árlegum viðburði. „Það er nú þannig að félagið er með sjálfstæðan rekstur. Það styður við börn og foreldra sem standa í þessari erfiðu baráttu. Félagið á íbúðir í Reykjavík sem það lánar landsbyggðarfólki og það styrkir foreldra líka fjárhags- lega. Eitthvað sem ríkið og bæjar- félögin ættu í sjálfu sér að gera. Það dugir ekki og það þarf miklu meira til. Þessi barátta er aldrei að fullu unnin.“ Í gegnum árin hafa yfirleitt safnast í kringum tvær milljónir króna á hverjum tónleikum. Þeir sem ekki komast að af einhverjum ástæðum geta svo lagt málefninu lið með því að hringja í síma 908 2000. Með því að hringja í númer- ið dragast af símreikningnum 2000 kr., andvirði eins miða, sem renna óskiptar til styrktarfélags- ins. Tónleikarnir hefjast klukkan 15. biggi@frettabladid.is GLÆSIKVENDI Halle Berry mætir hér á 74. Ósk- arsverðlaunaaf- hendinguna í mars síðastliðn- um. Hún var val- inn ein af best klæddu konum Hollywood á síð- asta ári af Mr. Blackwell tíma- ritinu. LIFIR ENN Í GÖMLUM GLÆÐUM Mick Jagger, söngvari Rolling Stones, var í stuði á tónleikum í Bell Center í Montreal. Þetta voru fyrstu tónleikar sveitarinnar á árinu í Forty Licks ferðalaginu. Sýning Bauhaus ljósmyndasýning opnuð laugardaginn 11. janúar kl. 15.00. Szymon Kuran leikur af fingrum fram milli kl. 15.00 og 16.00. Allir velkomnir. Sýninging stendur til 23. febrúar. Ókeypis aðgangur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.