Fréttablaðið - 11.01.2003, Síða 2
Tvíburi í haldi:
Á reynslu-
lausn
FÍKNIEFNI Rannsókn í máli Þjóð-
verja og tveggja Íslendinga sem
grunaðir eru um innflutning á
sterku amfetamíni og hassi geng-
ur vel. Íslendingarnir tveir eru
tvíburar fæddir árið 1972.
Stutt er síðan annar þeirra
fékk reynslulausn. Hann var
dæmdur í fangelsi í fjögur ár
vegna stóra fíkniefnamálsins. Sá
hefur frá 1990 hlotið átta refsi-
dóma fyrir þjófnað, skjalafals,
fíkniefnabrot og fleiri brot. Hinn
er vel þekktur í glæpaheiminum.
Rannsókn málsins hefur staðið
síðan 7. nóvember þegar Þjóð-
verjinn var staðinn að smygli.
Fljótlega í kjölfarið var annar tví-
burinn handtekinn og hinn, sem
tengdist stóra fíkniefnamálinu,
tæplega þremur vikum síðar. ■
2 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR
Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri Stellu í framboði.
Stella í framboði hefur verið sýnd við ágæta að-
sókn að undanförnu. Á myndina flykkjast aðdáend-
ur hennar sem geta ekki gleymt henni frá því hún
var í orlofi um árið og vilja ólmir fylgjast með
hvernig henni gengur í framboði.
Nei, Stella Leósdóttir Löve eldist ekki illa.
Hún eldist afskaplega vel, svo vel að ég
held að hún eldist afturábak. Það er
vegna þess hve jákvæð, framsýn og
heppin hún er í lífinu.
SPURNING DAGSINS
Guðný, eldist Stella illa?
UPPGJÖR Hagnaður Baugs fyrstu
níu mánuði rekstrarárs síns er sá
mesti sem nokkurt félag hefur
skilað í íslenskri rekstrarsögu.
Hagnaður félagsins var 8,8 millj-
arðar króna eftir skatta. Hagnað-
urinn skýrist að stórum hluta af
söluhagnaði félagsins á eign
sinni í Arcadia. Söluhagnaður
Baugs ID, sem sér um fjárfest-
ingar Baugs, var 7,4 milljarðar,
en heildarhagnaður þess hluta
starfseminnar var um tíu millj-
arðar króna. Handbært fé félags-
ins er óvenju mikið, eða 14,2
milljarðar króna.
Aðrir þættir í rekstri félags-
ins draga afkomuna niður. Tæp-
lega 900 milljóna tap var af
rekstri Baugs í Bandaríkjunum.
Baugur Ísland tapaði tæpum 300
milljónum. Eigið fé Baugs hefur
aukist um 76%.
Jón Ásgeir Jóhannesson segir
starfsmenn stolta af því að hafa
myndað mesta hagnað Íslands-
sögunnar. „Rekstur á Íslandi er
enn undir væntingum.“ Hann
segir þó kostnað fara lækkandi.
Forsvarsmenn Baugs segja
mikla vinnu fram undan að ná
viðunandi afkomu af rekstri fyr-
irtækisins á Íslandi og í Banda-
ríkjunum. ■
Afkoma Baugs:
14 milljarðar
króna á lausu
ÍSLANDSMET
Hagnaður Baugs er sá mesti í rekstrarsögu þjóðarinnar. Skýringin er góður árangur félags-
ins í fjárfestingu í Bretlandi.
Innbrot í Hans Petersen:
Tveir í haldi
INNBROT Tveir menn eru í haldi
vegna innbrot í verslun Hans Pet-
ersen á Laugavegi í fyrrakvöld.
Þeir voru handteknir í fjöldahand-
töku í fyrrakvöld. Þá voru átta
handteknir í íbúð í Breiðholti. Við
leit í íbúðinni endurheimti lög-
regla hluta þýfisins en aðallega
hafði verið stolið stafrænum
myndavélum að andvirði tveggja
milljóna króna.
Ekki var hægt að yfirheyra
fólkið fyrr en í gærdag vegna
ástandsins sem það var í við hand-
tökuna. Í ljós kom að tveir af þeim
átta sem voru handteknir eru
grunaðir um aðild að innbrotinu.
Þá var einum aðila í viðbót haldið
eftir en sá átti að vera búinn að
mæta í afplánun. Hinum var öll-
um sleppt og þykir sýnt að þeir
tengjast ekki málinu.
Lögreglan hafði áður handtek-
ið tvo menn sem grunaðir voru
um aðild en þeim var sleppt að
loknum yfirheyrslum. ■
ÁSTÞÓR FÆR EKKI TÖLVUR Hæsti-
réttur hefur neitað kröfu Ástþórs
Magnússonar um að fá aftur tölv-
ur sem gerðar voru upptækar við
húsleit hjá honum í tengslum við
frægan tölvupóst Ástþórs um
hryðjuverk. Hæstiréttur segir að
svo kunni að fara að tölvurnar
verði gerðar upptækar.
VIÐSKIPTI Kauphöll Íslands hefur
óskað eftir skýringum frá Búnað-
arbankanum vegna samnings um
sölu á hlutabréfum bankans í
fjárfestingarfélaginu Straumi. Í
greinaflokki Agnesar Bragadótt-
ur í Morgunblaðinu um viðskipta-
átök hluthafa Íslandsbanka er
greint frá því að Árni Tómasson
bankastjóri og Yngvi Örn Krist-
insson, framkvæmdastjóri verð-
bréfa, hafi fyrir hönd Búnaðar-
bankans gert samning við nokkur
félög um sölu á ríflega 12% hlut í
fjárfestingarfélaginu Straumi.
Meðal þessara félaga voru Fjár-
far sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar og önnur félög
tengd honum og Kaldbakur sem
Þorsteinn Már Baldvinsson á hlut
í.
Fjárfestingarfélagið Straum-
ur er skráð í Kauphöll Íslands.
Samkvæmt reglum Kauphallar-
innar ber að tilkynna þegar eign-
arhlutir fara upp eða niður fyrir
ákveðin mörk í félögum. Þórður
Friðjónsson, forstjóri Kauphallar
Íslands, segir að ef marka megi
frásögn Morgunblaðsins sé hugs-
anlega um tilkynningaskyldan
samning að ræða. „Þess vegna
höfum við óskað eftir staðfest-
ingu frá Búnaðarbankanum um
hvort þarna sé rétt frá greint og
að fá afrit af samningnum.“ ■
Leynisamningur í Búnaðarbanka:
Kauphöllin vill fá afrit
VILJA SKÝRINGAR
Kauphöll Íslands telur hugsanlegt að regl-
ur um kauphallarviðskipti hafi verið brotn-
ar með samningi sem Búnaðarbankinn
gerði. Farið hefur verið fram á skýringar.
EINKAVÆÐING Franski bankinn
Société Générale, sem hugðist
fjárfesta með S-hópnum í Búnað-
arbanka Íslands, verður ekki með-
al fjárfesta í bankanum. Bankinn
vinnur að fjármögnun með S-
hópnum. Aðrir erlendir bankar
munu kaupa þann hlut í Búnaðar-
bankanum sem Société Générale
ætlaði að kaupa. Helst er talað um
þýska banka enda hefur S-hópur-
inn unnið með útibúi Société
Générale í Frankfurt. Meðal þeir-
ra mun vera einn þekktur banki,
en aðrir eru minni spámenn.
Société Générale hefur skoðað
sameiningarkosti Búnaðarbank-
ans við aðrar innlendar fjármála-
stofnanir. Bæði Kaupþing og
Landsbankinn voru talin góðir
kostir sem myndu skila hagræð-
ingu í rekstri. Útreikningar
Société Générale munu hafa sýnt
sparnað upp á 500 milljónir á ári
með sameiningu við Kaupþing.
Sameiningu Búnaðarbanka og
Landsbanka var hins vegar hafn-
að á sínum tíma af samkeppnisyf-
irvöldum.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er sameining Búnaðarbanka
við Kaupþing stjórnendum Kaup-
þings og S-hópnum síður en svo á
móti skapi. Stjórnendur Búnaðar-
banka munu hins vegar ekkert
sérstaklega spenntir fyrir slíkri
sameiningu. Kaupþing er ekki í
hópi vinsælustu fyrirtækja í for-
sætisráðuneytinu. Framsóknar-
menn væru hins vegar ekki mót-
fallnir slíkri sameiningu. Sam-
kvæmt heimildum hafa engar við-
ræður farið fram, en menn horfa
af alvöru til þessa möguleika.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að meðal þess sem hinir
erlendu fjárfestar horfi til séu
sameiningarmögleikar á markaði.
Fullyrt er að þeir muni kaupa og
tryggja þannig viðskiptin. Hug-
myndin sé svo að selja aftur þeg-
ar búið er að ganga frá hagræð-
ingu og sameiningu á fjármála-
markaði.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að erfiðlega gangi hjá S-hópn-
um að safna fyrir bankanum.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa og sá sem hefur farið fyrir
hópnum í kaupunum á Búnaðar-
bankanum, vísar því hins vegar
algerlega á bug. Varðandi það að
önnur bankastofnun en Société
Générale komi að kaupunum seg-
ir Ólafur að hópurinn haf aldrei
gefið neitt út um það að franski
bankinn kaupi í bankanum. Þeir
hafi gefið það eitt út að erlend
fjármálastofnun eða stofnanir
muni taka þátt í kaupunum, en
ekkert umfram það.
Fréttablaðið hefur hins vegar
áreiðanlegar heimildir fyrir því
að bein þátttaka Société Générale
hafi verið uppi á borðinu. Innan S-
hópsins sé lítil ánægja með þróun
mála. Franski bankinn fær
greiddar 3,5 milljónir evra eða
300 milljónir króna fyrir vinnu
við að koma kaupunum saman.
Þykir mönnum það há greiðsla
fyrir það eitt að gera útlit hópsins
fýsilegra gagnvart einkavæðing-
arnefnd og ríkisstjórn.
Enginn bilbugur er þó á S-
hópnum í þessum viðræðum. Þeir
telja að búið verði að ganga frá
öllum lausum endum áður en
nýjasti tímafresturinn renni út.
Kaupin verði staðfest eins og ráð-
gert hafi verið 21. janúar næst-
komandi.
haflidi@frettabladid.is
Tekur 300 milljónir
í ráðgjafarþóknun
Franski bankinn Société Générale tekur 300 milljónir króna fyrir að
koma á kaupum á Búnaðarbankanum. Kaupir ekki sjálfur hlut í bankan-
um. Sameining Búnaðarbankans og Kaupþings þykir fýsilegur kostur.
DÝR RÁÐGJÖF
Franski bankinn sem hugðist kaupa í Búnaðarbankanum er hættur við. Bankinn tekur ríflega þóknun fyrir að koma kaupum
S-hópsins á bankanum í kring.
AFTUR Í VERKFALL Breskir
slökkviliðsmenn hafa boðað nýtt
verkfall til að þrýsta á um að fá
ellefu prósenta launahækkanir.
Þeir neita að mæta á fund með
sáttasemjara og segja það engum
árangri skila. 55.000 slökkviliðs-
menn fóru í tíu daga verkfall á
síðasta ári.
REYNDIST SAKLAUS Flugvallar-
starfsmaður á Charles de Gaulle
flugvellinum í París sem hand-
tekinn var með skotvopn og
sprengiefni í bíl sínum síðasta
haust reyndist saklaus. Vitni sem
benti á hann viðurkennir að hafa
komið á hann sök en hann hefur
sagt fjölskyldu látinnar eigin-
konu sinnar standa á bak við það.
ENN EITT FLUGSLYSIÐ Tveir lét-
ust þegar eins hreyfils flugvél
lögreglunnar hrapaði utan flug-
brautar á flugvellinum í Brussel.
Mat á DeCode hækkar:
Snögg
hækkun á
bréfunum
VIÐSKIPTI Gengi DeCode, móðurfé-
lags Íslenskrar erfðagreiningar,
tók kipp á Nasdaq-markaðnum í
gær. Bréfin hækkuðu í kjölfar
þess að fjármálafyrirtækið J.P.
Morgan hækkaði mat sitt á fyrir-
tækinu úr hlutlausu í yfirvogun.
Fyrirtækið telur að lyfjaþróun fé-
lagsins hafi ekki verið metin inn í
verð félagsins. Matsgengi J.P.
Morgan er fjórir til fimm dollarar
á hlut.
Gengi bréfa DeCode hækkaði
úr rúmum tveimur dollurum á
hlut í tæpa þrjá. ■
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Skipið áður en það sökk við
Noregsstrendur.
Guðrún Gísladóttir:
Fjármagn
sagt tryggt
BJÖRGUN Norsk yfirvöld gefa eig-
endum skipsins Guðrúnar Gísla-
dóttur frest til þriðjudags til að
sanna fjárhagslega getu til að ná
skipinu af hafsbotni. Kostnaður
hefur farið fram úr áætlun.
Haukur Guðmundsson, hjá Ís-
húsi Njarðvíkur, sagði í gær að að-
eins ætti eftir að ganga frá forms-
atriðum samnings um áframhald-
andi fjármögnun.
Norskt kafarafyrirtæki hefur
yfirgefið verkefnið. Haukur sagði
starfinu verða haldið áfram um leið
og kafaramálið leystist. „Við erum
enn bjartsýnir á að okkur takist
ætlunarverk okkar,“ sagði hann. ■
EVRÓPA
DÓMSMÁL