Fréttablaðið - 11.01.2003, Page 12
12 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR
BORGARMÁL Gert er ráð fyrir að
hagnaður af rekstri borgarsjóðs
verði 2 milljarðar króna eða sem
nemur 5,9% af heildartekjum
borgarinnar. Þetta kemur fram í
fjárhagsáætlun Reykjavíkur
fyrir árið 2003 sem borgaryfir-
völd hafa samþykkt.
Heildartekjur borgarsjóðs
eru áætlaðar 34,1 milljarður
króna þar af eru skatttekjur
83% eða um 28,2 milljarðar.
Rekstrargjöld eru áætluð 30,5
milljarðar króna og þar vega
laun og launatengd gjöld þyngst
en þau nema 55% af rekstrar-
gjöldunum, eða 16,8 milljörðum
króna.
Útsvarshlutfallið helst
óbreytt og verður 12,7% en
sveitarfélög hafa heimild til að
hafa útsvarið 13,03%. Útsvars-
tekjur á árinu eru áætlaðar 23,5
milljarðar króna og renna 1,5
milljarðar í jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga. Álagningarhlutfall
fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði
verður 0,32% og helst því
óbreytt frá því fyrra. Álagning á
atvinnuhúsnæði hækkar um 25%
og verður 1,65%.
Skuldir borgarsjóðs án lífeyr-
isskuldbindinga lækka um 120
milljónir króna á árinu að raun-
gildi, eða úr rúmlega 16,7 millj-
örðum króna í 16,6 milljarða.
Gert er ráð fyrir að lífeyris-
skuldbindingar hækki um 1.140
milljónir króna og verði 18.675
milljónir í árslok. Þrátt fyrir
skuldaaukningu um 1.700 millj-
ónir króna á árinu 2002, vegna
fjárfestinga í lóðum og löndum,
gerir áætlunin ráð fyrir að
skuldir á íbúa verði 144 þúsund
krónur á árinu, sem er 11 þúsund
króna lækkun frá árinu 1999.
Þrír milljarðar í bygginga-
framkvæmdir
Handbært fé frá rekstri er
áætlað 4,4 milljarðar króna, en
handbært fé segir til um hve stór
hluti tekna er afgangs til fjár-
festinga eða greiðslu skulda þeg-
ar rekstur og fjármagnsliðir hafa
verið greiddir. Áætlað er að verja
4 milljörðum króna í fjárfesting-
ar, þar af 3 milljörðum í bygg-
ingaframkvæmdir.
Stærsti hlutinn, eða 1,5 millj-
arðar króna, fer í byggingar-
framkvæmdir vegna grunnskóla.
Ljúka á framkvæmdum við ýmsa
skóla í borginni og byggja við
aðra. Þá á að hefja framkvæmdir
við Ingunnarskóla í Grafarholti.
Í æskulýðs-, tómstunda- og
íþróttamála fara 540 milljónir
króna og vegur bygging yfir-
byggðrar 50 metra keppnislaug-
ar í Laugardal þyngst. Áætlaður
heildarkostnaður við hana er
milljarður króna og er áætlað að
verja 320 milljónum í fram-
kvæmdina á þessu ári.
Um 305 milljónir fara í fram-
kvæmdir við leikskóla borgar-
innar og þá er áætlað að verja
262 milljónum króna til menn-
ingarmála. Af þeim fjármunum
fara um 65 milljónir króna í
byggingu sýningarskála vegna
fornleifa í Aðalstræti og 55 millj-
ónir í byggingu nýs bókasafns í
Árbæ.
Ráðgert er að veita um 170
milljónum króna í framkvæmdir
í þágu aldraðra og eru helstu út-
gjaldaþættirnir 143 milljóna
króna framlag borgarinnar til
Markarholts og Eirar.
Á þessu ári er ráðgert að ráð-
stafa um 1.800 milljónum króna
til nýbyggingar gatna en á móti
þeim útgjöldum koma tekjur af
gatnagerðargjöldum upp á millj-
arð króna.
Minni hagnaður hjá fyrir-
tækjum borgarinnar
Gert er ráð fyrir að fyrirtæki
borgarinnar skili 820 milljóna
króna hagnaði á árinu, samanbor-
ið við rúma 2,5 milljarða króna í
fyrra. Mismunurinn er um 1.670
milljónir króna. Mestu munar um
samdrátt í hagnaði Orkuveitu
Reykjavíkur. Hún skilaði 2,4
milljörðum króna í hagnað í
fyrra en samkvæmt fjárhags-
áætlun ársins 2003 skilar hún 743
milljónum. Bjarni Freyr Bjarna-
son, fjárhagsáætlunarfulltrúi
borgarinnar, segir að mismunur-
inn skýrist fyrst og fremst af
miklum gengishagnaði Orkuveit-
unnar í fyrra.
Ráðgert er að tekjur Reykja-
víkurhafnar verði rúmur 1,1
milljarður króna á árinu eða um
60 milljónum hærri en í fyrra. Þá
skilaði Reykjavíkurhöfn 76 millj-
óna króna hagnaði en nú er höfn-
in rekin með 13 milljóna króna
tapi, sem er sveifla upp á tæpar
90 milljónir króna. Hvað nei-
kvæða afkomu hafnarinnar
snertir munar mestu um aukin
fjármagnsgjöld.
Tekjur bílastæðasjóðs eru
svipaðar milli ára eða tæpar 440
milljónir króna. Ráðgert er að
sjóðurinn skili 39 milljóna króna
hagnaði á árinu samanborið við
119 milljónir í fyrra. Mismuninn
má helst rekja til aukinna fjar-
magnsgjalda.
Útgjöld til fjárfestinga og
áhaldakaupa á þessu ári eru
lægri en áformað var í þriggja
ára áætlun og eru stjórnendur
borgarinnar hvattir til að draga
úr útgjöldum.
Fallið hefur verið frá áform-
um um að reisa vistvænan leik-
skóla á Kjalarnesi, þar sem áætl-
anir sýna að hann verði dýrari,
bæði í stofnkostnaði og rekstri,
en hefðbundnir leikskólar. Þá
verður fornleifagreftri í Víkur-
garði frestað. Þó er stefnt að því
að framkvæmdir við hótel í Aðal-
stræti og sýningarskála undir
fornminjar þar hefjist á árinu,
eins og fyrr sagði.
Í greinargerðinni kemur fram
að ekki sé ánægjuefni að fresta
framkvæmdum í borginni. Því
hefur verið ákveðið að skipa
þriggja manna nefnd borgarráðs-
fulltrúa sem hefur það hlutverk
að fara yfir öll útgjöld borgarinn-
ar og gera tillögur um hvar draga
megi úr útgjöldum áður en fjár-
hagsrammar fyrir árið 2004 verða
ákveðnir. Gert er ráð fyrir að þær
tillögur muni fela í sér breytingar
á starfsemi borgarinnar og að
þjónustan verði endurskipulögð
miðað við að þeir njóti hennar
sem brýnastar þarfir hafa.
Í greinargerðinni segir að það
nægi ekki að gera almennar hag-
ræðingarkröfur til daglegra
stjórnenda. Slíkar kröfur, til
dæmis hjá ríkinu, hafi leitt til
þess eins að halli safnist fyrir ár
frá ári, þjónusta verði ófullnægj-
andi og á endanum verði að
ákvarða veruleg viðbótarframlög
í fjáraukalögum.
trausti@frettabladid.is
Borgarsjóður rekinn
með 2 milljarða hagnaði
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 2003 hefur verið samþykkt. Laun og launatengd gjöld nema
55% af rekstrargjöldunum. Útsvarið er óbreytt. Mikill samdráttur hjá fyrirtækjum borgarinnar.
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Borgaryfirvöld áætla að verja 4 milljörðum króna í fjárfestingar á árinu, þar af 3 milljörðum í byggingaframkvæmdir. Stærsti hlutinn, eða 1,5 milljarðar króna, fer í byggingarframkvæmd-
ir vegna grunnskóla. Ljúka á framkvæmdum við ýmsa skóla í borginni og byggja við aðra. Þá á að hefja framkvæmdir við Ingunnarskóla í Grafarholti.
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar
Fjárhagsáætlun skiptist í tvo hluta, A
og B hluta. A hluti tekur til almenns
reksturs borgarinnar og stofnana henn-
ar en B hlutinn til fyrirtækja í eigu
borgarinnar.
Í fjárhagsáætlun eru skatttekjur áætlað-
ar og hagrænar forsendur unnar fyrir út-
hlutun fjárhagsramma fyrir hvern mála-
flokk. Áður en ramma er úthlutað eru
haldnir fundir með forstöðumönnum og
farið yfir fjárþörf viðkomandi mála-
flokks. Borgarráð skiptir áætluðum tekj-
um milli málaflokka en þeim ber síðan
að haga rekstri þannig að fjárhags-
ramminn dugi fyrir rekstrarútgjöldum.
Einstakir útgjaldaliðir, þ.e. liðir þar sem
forstöðumenn hafa takmörkuð áhrif á
þróun útgjalda, eru bundnir og þar með
bættir með viðbótarfjárveitingum fari
þeir fram úr áætlun.
LYKILTÖLUR FYRIR BORGARSJÓÐ
(Fjárhæðir í milljónum króna á verðlagi í nóvember 2002)
1999 2000 2001 2002(1) 2003(2)
Skatttekjur 22.700 24.100 27.000 26.800 28.000
Heildarskuldir 17.100 15.400 15.300 16.700 16.500
Eiginfjárhlutfall 58% 58%
Fjárfestingar 3.500 1.800 6.300 6.000 3.900
Í HLUTFALLI AF SKATTTEKJUM
1999 2000 2001 2002(1) 2003(2)
Skuldir 75,1% 63,9% 56,7% 62,1% 59,2%
Fræðslumál 27,1% 30,3% 26,2% 30,7% 29,3%
Leikskólar 10,9% 12,5% 11,6% 11,9% 11,7%
Félagsmál 13,1% 13,8% 12,5% 13,4% 12%
Íþrótta- og tómstundamál 7,2% 7,4% 6,1% 6,5% 5,8%
Menningarmál 4,4% 5,4% 4% 3,9% 3,5%
Umhverfis- og tæknisvið 13,8% 11,2% 11,4% 10% 9,9%
Fjárfestingar 15,8% 15,2% 25,5% 22,5% 14,1%
(1) Útkomuspá
(2) Áætlun
FJÖLDI ÍBÚA Í REYKJAVÍK
(Tölur í þúsundum króna)
1999 2000 2001 2002 2003(1)
Íbúar 109.795 111.342 112.276 113.278 114.524
(1) Áætlun
SKULDIR OG SKATTTEKJUR Á ÍBÚA
1999 2000 2001 2002(1) 2003(2)
Skatttekjur 207 216.8 240.3 236.8 244.1
Skuldir 155.5 138.4 136.2 147.2 144.4
(1) Útkomuspá
(2) Áætlun