Fréttablaðið - 11.01.2003, Qupperneq 19
Hvern hefði órað fyrir því fyr-ir 10 árum að fleiri en tvær
íslenskar kvikmyndir yrðu frum-
sýndar á sama ári? Tímarnir
breytast og framleiðslan með.
Tækifæri og aðferðir til þess að
koma sögum upp á hvíta tjaldið
fjölgar og kvikmyndahátíðir um
heim allan taka íslenskum mynd-
um með opnari hug en áður.
Dægurmenning landsins er að
verða eitt helsta einkenni Ís-
lands út á við ef við lítum til vel-
gengni íslenskra tónlista og
kvikmynda á síðustu árum. Ekk-
ert lát er á sköpunargleði land-
ans og því megum við búast við
frumsýningu a.m.k. sex nýrra
mynda á árinu. Fjölmargar aðrar
eru í vinnslu.
Þriðja nafnið
Kvikmyndin „Þriðja nafnið“
var forsýnd á Ísafirði á fimmtu-
dagskvöldið. Myndinni er leik-
stýrt af Einar Þór Gunnlaugssyni
sem einnig skrifar handritið.
Myndin fjallar um ungan erlend-
an ofurhuga sem tekur upp á því
að stela hér bát. Hann tekur ein-
nig áhöfn og farþega sem gísla.
Maðurinn heimtar að fá að tala
við fyrrverandi kærustu sína.
Þegar lögreglan hefur samband
við stúlkuna segist hún aldrei
hafa heyrt til mannsins getið.
Myndin verður frumsýnd á
næstu vikum. Með aðalhlutverk
fara Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Moses Rockman, Hjalti Rögn-
valdsson, Glenn Conroy, Þröstur
Leó Gunnarsson og Guðfinna
Rúnarsdóttir.
Fyrsti apríl
Íslenska kvikmyndasam-
steypan framleiðir kvikmynda
„Fyrsti apríl“. Eins og titilinn
gefur til kynna gerist myndin á
„gabbdaginn“ mikla og fjallar
um þegar aprílgabb fer úr bönd-
unum. Þennan örlagaríka dag er
framið bankarán og maður skot-
inn ásamt fleiru.
Myndin er hugverk Hauks M.
Hrafnssonar sem gerði og lék að-
alhlutverkið í kvikmyndinni
„(Óeðli)“ fyrir tæpum fjórum
árum. Haukur leikstýrir, fram-
leiðir og skrifar handrit myndar-
innar sjálfur. Friðrik Þór Frið-
riksson er meðframleiðandi.
Ungir og óþekktir leikarar skipa
öll helstu hlutverk myndarinnar.
Myndin verður frumsýnd á fyrri
hluta ársins.
Nói Albínói
Fyrsta kvikmynd Dags Kára
Péturssonar er beðið með eftir-
væntingu. Dagur hefur vakið
mikla lukku með stuttamynda-
gerð í gegnum árin og vann með-
al annars til verðlauna fyrir
mynd sína „Lost Weekend“. Dag-
ur Kári var einn þeirra leikstjóra
sem gerði hluta í myndinni
„Villiljós“ á sínum tíma.
Fyrsta mynd Dags heitir „Nói
Albínói“ og er tilbúin til sýning-
ar. Dagur leikstýrir og skrifar
handritið sjálfur.
Myndin fjallar um Nóa sem er
vandræðaunglingur í litlu þorpi
á nyrstu byggðarmörkum heims-
ins. Hann er ekki auðveldur í
samskiptum og brennir brýr að
baki sér. Þegar feigðin blasir við
getur hann ekki flúið ábyrgð
lengur.
Myndin verður sýnd á kvik-
myndahátíðinni í Gautaborg í lok
mánaðarins ásamt „Fálkum“.
Báðar taka þær þátt í sérstökum
Norðurlandahluta hátíðarinnar
þar sem ein mynd verður sér-
staklega verðlaunuð. Myndin
tekur einnig þátt í Rotterdam 25.
janúar. Zikzak framleiðir og er
áætlað að frumsýna hér á landi á
fyrri hluta þessa árs.
Með aðalhlutverk fara Tómas
Lemarquis, Þröstur Leó Gunn-
arsson, Anna Friðriksdóttir, Elín
Hansdóttir, Pétur Einarsson og
Hjalti Rögnvaldsson fara með
helstu hlutverk.
Veðmálið
Kvikmyndin „Veðmálið“ hef-
ur verið kölluð „fyrsta íslenska
Hollywood-myndin“. Kannski
helst vegna þeirrar staðreyndar
að hún er að miklu leyti unnin
þar í bæ. Myndinni er leikstýrt
af Sigurbirni Aðalsteinssyni sem
skrifar einnig handritið.
Myndin fjallar um veðmál
tveggja kvikmyndagerðamanna í
Hollywood um hvort hægt sé að
„skjóta“ mynd í fullri lengt á að-
eins þremur dögum. Ungur og
efnilegur kvikmyndagerðamað-
ur fullyrðir við þann reyndar að
hann geti gert kvikmynd á þrem-
ur dögum, frá og með morgun-
deginum, án þess að hafa hand-
rit. Veðmál þeirra leiðir af sér
mikinn hamagang.
Með aðalhlutverk fara
Kristine Gísladóttir (sem er ein-
nig á meðal framleiðenda), Chris
Devlin og leikarinn Burt Young
sem fékk Óskarsverðlaunatil-
nefningu árið 1977 fyrir hlutverk
sitt í fyrstu „Rocky“ myndinni.
Myndin er framleidd af
Prophecy Pictures og verður
frumsýnd á fyrri hluta ársins.
Opinberun Hannesar
Hrafn Gunnlaugsson lauk fyr-
ir stuttu tökum á kvikmyndinni
„Opinberun Hannesar“ sem
byggð er á smásögu Davíðs Odd-
sonar forsætisráðherra, „Glæp-
ur skekur húsnæðisstofnun“.
Myndin er þó ólík sögunni að
mörgu leyti.
Aðalpersóna myndarinnar,
Hannes, er nær fimmtugur og
býr einn með aldraðri móður
sinni. Hann hefur starfað alla
ævi hjá Eftirlitsstofnun Ríkisins
og á sér þann draum að Stefanía
ritari sem vinnur hjá sömu stofn-
un beri til sín ástarhug. Einn
daginn er tölvu með leynilegum
upplýsingum stolið af skrifstofu
Hannesar. Leyniupplýsingarnar
eru þess eðlis að Hannes þorir
ekki að trúa lögreglunni fyrir
hvað þar er að finna. Hann
ákveður að hafa sjálfur upp á
þjófinum og verður það til þess
að grunur vaknar hjá yfirvöldum
um að Hannes sé sá seki. Hannes
flækist fyrir bragðið í það örygg-
isnet sem Eftirlitsstofnun stend-
ur vörð um og verður þá að grípa
til örþrifaráða sem kalla á ör-
lagaríka atburðarás og opinber-
un þar sem Stefanía birtist í nýju
ljósi.
Hrafn leikstýrði, samdi hand-
ritið og alla tónlistina.
Með aðalhlutverk fara Viðar
Víkingsson, Helga Braga Jóns-
dóttir, Jóhanna Vigdís Arnardótt-
ir, Þórhallur Sverrisson og Theó-
dór Þórðarson. Myndin verður
frumsýnd í mars eða apríl.
Didda og dauði kötturinn
Helgi Sverrisson leikstýrði
kvikmyndinni „Didda og dauði
kötturinn“ eftir handriti Krist-
laugar Sigurðardóttur. Myndin
er byggð á samnefndri bók sem
kom út fyrir jólin. Myndin er
ætluð allri fjölskyldunni.
Aðalpersóna myndarinnar,
Didda, er níu ára gömul stelpa
sem á heima í Keflavík. Hún er
gleraugnaglámur og bókaormur.
Henni til mikillar ánægju flytur
uppáhalds rithöfundurinn henn-
ar í næsta hús. Hún reynir að ná
sambandi við hann en dettur í til-
raunum sínum ofan í lýsistunnu.
Við það bætist sjón hennar það
mikið að hún getur hætt að nota
gleraugun. Hún fer einnig að sjá
kött sem allir vita að er löngu
dauður. Inn í söguna fléttast svo
prakkarastrik og glæpir.
Með helstu hlutverk fara
Kjartan Guðjónsson, Sjöfn Ev-
ertsdóttir, Steinn Ármann, Gunn-
ar Eyjólfsson, Helga Braga Jóns-
dóttir auk þess sem Árni Sigfús-
son bæjarstjóri Reykjanesbæjar
fer með gestahlutverk.
Nú þegar er byrjað að undir-
búa framhaldsmyndina, „Didda
og kaffihneykslið“.
Aðrar myndir í framleiðslu
Aðrar myndir sem eru í fram-
leiðslu en verða ekki frumsýndar
fyrr en á næsta ári eru „Dís“,
„Konunglegt bros“, „Kaldaljós“,
„Draumur í dós“, „Sólon Ís-
landus“, „Stormy Weather“ og
„Niceland“.
Tökur á „Kaldaljósi“ hófust í
nóvember en Hilmar Oddson
kvikmyndagerðamaður hefur
haft verkefnið í maganum í rúm-
lega 10 ár. Tökur hafa farið fram
í á Seyðisfirði þar sem bókin ger-
ist að stærstum hluta. Ingvar E.
Sigurðsson leikur aðalhlutverk-
ið. Sonur hans og dóttir fara
einnig með stór hlutverk í mynd-
inni. ■
19LAUGARDAGUR 11. janúar 2003
Sex
kvikmyndir
frumsýndar
á árinu
Íslensk kvikmyndagerð hefur verið í blóma síðustu
árin. Á þessu ári er von á nokkrum athyglisverðum
myndum til viðbótar. Sex kvikmyndir í fullri lengd
verða líklegast frumsýndar á árinu 2003. Fjölmargar
aðrar eru í vinnslu.
NÓI ALBINÓI
Fyrsta kvikmynd Dags Kára Péturssonar
er tilbúin. Hún verður sýnd á kvik-
myndahátíðum í Gautaborg og Rotter-
dam í mánuðinum. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær myndin verður frum-
sýnd hér á landi en framleiðendur
hennar lofa henni á fyrri hluta ársins.