Fréttablaðið - 11.01.2003, Page 29
LAUGARDAGUR 11. janúar 2003
,MYNDLIST „Ég fullyrði að þetta er
eitt af fallegri galleríum á landinu
öllu - hvorki meira né minna. Ein-
staklega fallegt rými, hentugt fyr-
ir þrívídd og þá sem eru að vinna
með rými, svo sem innsetningar,
málverk, teikningar og hvað sem
helst,“ segir Ása Hauksdóttir.
Gallerí Tukt er til húsa í Hinu
húsinu í Pósthússtræti 3-5 og Ása
stýrir rekstrinum. Galleríið er á
vegum ÍTR og hefur það að mark-
miði að vera vettvangur fyrir
ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára til
að koma listsköpun sinni á fram-
færi sér að kostnaðarlausu. Það
hlýtur að teljast vel í lagt fyrir þá
sem yngri eru því eldri myndlist-
armenn kvarta oft sáran og segja
hörgul á sýningarsölum.
„Já, það er rétt. Og þá vil ég
segja, af því þetta er jafnt fyrir
leika sem lærða, að ég geri undan-
tekningar á reglunni þegar lof-
andi listnemar sem eru að útskrif-
ast eru annars vegar. Þótt þeir séu
orðnir örlítið eldri mega þeir sýna
hjá mér. Að auki er að alltaf verð-
ur einn virtur myndlistarmaður á
ári sem sýnir í Tukt.“
Hver sýning stendur yfir í
sextán daga og fær listamaðurinn
aðstoð við að setja upp sýninguna
og kynna hana. Næsta opnun í
Tukt er sýning á verkum Ólafar
Dómhildar Jóhannesdóttur sem
var að útskrifast af myndlistar-
braut FB. Sýning hennar opnar
laugardaginn 18. janúar.
Ása segir þetta ómetanlegt fyr-
ir ungt listafólk að geta sér að
kostnaðarlausu farið í gegnum
það ferli að halda sýningu. „Að
mörgu er að hyggja: Boðskort?
Hverjum skal senda boðskort?
Fréttatilkynningar? Og þannig má
lengi telja. Hvað býður listamað-
urinn uppá við opnum? Má reynd-
ar ekki vera með hvítvín hjá ÍTR
þannig að þetta er hugsanlega
spurning um kaffi&kleinur eða
sleikjó.“ ■
Tukt - gallerí fyrir ungt fólk.
Ekkert hvítvín hjá ÍTR heldur...
Kaffi & kleinur
eða sleikjó
ÁSA HAUKSDÓTTIR
Segir ómetanlegt fyrir ungt fólk að fá tækifæri til að fara í gegnum það ferli
sem er að halda myndlistarsýningu.
GALLERÍ TUKT
Forstöðukonan fullyrðir að það sé eitt af fallegri galleríum á landinu.