Fréttablaðið - 11.01.2003, Síða 32

Fréttablaðið - 11.01.2003, Síða 32
FUNDIR 12.00 ITC deildin Fífa fundar í kaffiteríu Gerðasafns í Kópavogi. Fífufélagar kynna meðal annars nokkrar bækur. TÓNLEIKAR 17.00 Hinir árlegu Vínartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar Íslands verða í Háskólabíói síðdegis í dag. Þetta eru fjórðu og síðustu tónleikarnir þetta árið. Garðar Thór Cortes syngur einsöng og Lucera Tena leikur einleik á kastanettur með hljómsveitinni. Peter Guth stjórn- ar hljómsveitinni. 20.00 Andromeda hópurinn heldur tónleika í tónleikasalnum Ými. KVIKMYNDIR Stanley Kubrick bíómaraþonið stendur yfir í allan dag í Loftkastalanum. Allar 16 myndir Kubricks eru sýndar. Öllum er heimilt að taka þátt í bíóþoninu á meðan hús- rúm leyfir. Ekkert þátttökugjald. Viðurkenningar eru veittar fyrir áhorfsseiglu. Popp og aðrar veit- ingar eru í boði. FERÐALÖG 10.00 Jeppadeild Útivistar býður upp á dagsferð um Eyfirðingaveg sem hæfir flestum jeppum. Mæting er fyrir utan skrifstofu Útivistar að Laugavegi 178. Þátttaka er öllum heimil og þátttökugjald er ekkert. OPNANIR 14.00 Myndlistamaðurinn Arnar Her- bertsson opnar málverkasýningu í Galleríi Sævars Karls. Myndefnið er fengið úr bókinni ‘Handan góðs og ills’ eftir Friedrich Nietzsche. 14.00 Í Ketilshúsinu á Akureyri verður opnuð sýningin Veiðimenning í Útnorðri. 15.00 Myndlistarmaðurinn Díana Hrafnsdóttir opnar sýningu á leir- verkum í Gallerý Hár og list - Hjá Halla rakara, Strandgötu 39, Hafn- arfirði. 15.00 Í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi verður í dag opnuð ljós- myndasýning, þar sem sýndar verða 124 ljósmyndir frá árunum 1921-81. Ljósmyndararnir eru 41 talsins, allir þýskir og aðhylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem fólst í því að myndlist og iðnhönnun ættu að sameinast í byggingarlist- inni. 15.00 Bandaríska myndlistarkonan Joan Backes opnar myndlistarsýninu sína í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Á þess- ari sýningu beitir Joan ýmsum miðlum til að koma til skila vangaveltum sínum um tré og skóga og það sjónræna viðhorf sem þar kviknar. 15.00 Opnuð verður í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar, sýning á verkum átta færeyskra listamanna. Þetta er sumarsýning Norðurlandahússins í Þórshöfn sem í ár kallast ‘Atlant- ic Visions’ eða HAFSÝN. 15.00 Hallgrímur Helgason opnar í austursal Gerðarsafns í Kópavogi sýningu með málverkum af Grim, teiknimyndapersónunni með tennurnar stóru. Myndirnar eru unnar með nýjustu tölvutækni. 15.00 Bjargey Ólafsdóttir opnar í vest- ursal Gerðarsafns í Kópavogi sýningu sem hún nefnir FLYING/DYING. Á sýningunni eru ljósmyndir og vídeóverk, sem meðal annars fjalla um bílslys sem listakonan lenti sjálf í og komst næst því að drepast. 15.00 Húbert Nói opnar sýningu á neðri hæð Gerðarsafns í Kópa- vogi. Sýningin, sem nefnist HÉR OG HÉR / 37 mys, er sérstaklega unnin fyrir salinn og er innsetning á olíumálverkum sem sýna ann- ars vegar hluta af salnum og hins vegar málverk sem hanga þar á veggjum. 17.00 Á jarðhæðinni í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39, opnar Ásgeir Jón Ásgeirsson málverkasýningu sína sem ber yfirskriftina “neo–naive“. Ásgeir hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og unnið við hönn- un á tölvuleiknum Eve online. 17.00 Í kjallaranum í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39, opnar Hans Alan Tómasson sýninguna “Undir- myndir“. Um er að ræða lág- myndir sem unnar eru með blandaðri tækni s.s. M.D.F. bíla spartli, olíulakki, gólfbóni og öðr- um tilfallandi efnum. 17.00 Rakel Kristinsdóttir opnar sýn- ingu á verkum sínum í Kaffi Sól- on, Bankastræti 7a. LEIKHÚS 20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. 20.00 Með fullri reisn, söngleikur eftir Terrence McNally og David Yaz- bek, verður sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 20.00 Jón og Hólmfríður eftir Gabor Rassov, frekar erótískt leikrit í þrem þáttum, verður sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Fáar sýningar eftir. 20.00 Hin smyrjandi jómfrú eftir Charlotte Bøving er sýnd í Iðnó. SKEMMTANIR 16.30 Fjölskylduhátíð í Félagsmiðstöð- inni Tónabæ, Safamýri 28 í tengslum í tengslum við hátíðina Dagur Nella nágranna. 23.59 Botnleðja spilar á Grandrokk. 20 ára aldurstakmark. Aðgangur kostar 500 krónur. Óskar Einarsson trúbador skemmtir á Ara í Ögri í kvöld. Unglingahljómsveitin POPS verður með magnaðan Lokadansleik á Fjörukránni í Hafnarfirði. Allir Bítla- og Stonesaðdá- endur ættu að nota tækifærið núna og draga fram dansskóna, því fáir ná að fanga stemningu sjöunda áratugarins með viðlíka hætti og drengirnir í POPS. Diskórokktekið og plötusnúðurinn DJ SkuggaBaldur verður á Búðarkletti í Borgarnesi ásamt ljósagangi, reyk, þoku og tónlistarinnskotum síðustu 50 ára. Hljómsveitin SAGAKLASS leikur á Players í Kópavogi. Atli verður á neðri hæðinni og KGB á efri hæðinni á 22 í kvöld. Munið stúd- entaskírteinin. Sælusveitin leikur fyrir dansi á Café Catalina, Hamraborg 11 í Kópavogi. ÚTIVIST 11.00 Dagsferð Ferðafélags Íslands í Herdísarvík. Páll Sigurðsson pró- fessor verður leiðsögumaður í ferðinni. Mikilvægt er að klæðast vel og hafa með sér gott nesti. Lagt verður af stað frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6. Heimkoma er áætluð um kl. 17.00. Verð er 2.000 kr. fyrir félagsmenn og 2.500 kr. fyrir aðra. KVIKMYNDIR Stanley Kubrick bíómaraþoninu lýkur klukkan 9 að morgni sunnudags í Loft- kastalanum. Sýningar hófust á föstu- dagskvöld. Öllum er heimil þátttaka meðan húsrúm leyfir. 15.00 Tvær 50 mínútna rússneskar myndir verða sýndar í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Sú fyrri er teiknimynd frá árinu 1984, byggð á ævintýri rússneska skáldsins Al- exanders Púshkíns um Saltan keisara. Hin kvikmyndin er heim- ildarmynd um siglingu rússnesku seglskútunnar „Andrésar postula“ um heimshöfin á árunum 1996- 1999. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill. 16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir í Bæjarbíói í Hafnarfirði kvikmynd- ina Morgunn lífsins, sem gerð var eftir skáldsögu Kristmanns Guðmundssonar árið 1955. Myndin er svarthvít og tekin í V.- Þýskalandi. Leikstjóri er Robert A. Stemmle. Miðaverð er kr. 500.- TÓNLEIKAR 20.00 Píanóleikararnir Hrefna Eggerts- dóttir og Jóhannes Andreassen og slagverkshópurinn Benda, skipaður þeim Steef van Ooster- hout, Eggerti Pálssyni og Frank Aarnink, leika verk eftir Benjamin Britten, John Cage og Béla Bartok á Tíbrártónleikum í Salnum í Kópavogi. 15.00 Hin árlega áramótaveisla til styrkt- ar Styrktarfélagi krabbameins- sjúkra barna verður í Háskóla- bíói. Fram kemur landslið Ís- lands í poppi: Bubbi Morthens, Papar, Stuðmenn, Írafár, Day- sleeper, Á móti Sól, Sálin hans Jóns míns, Í svörtum fötum, Land og synir, KK, Eyjólfur Kristjánsson og Páll Rósinkranz ásamt Jet Black Joe. Miðaverð er 2000 krónur. 32 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR LEIKHÚS Býsna langt er orðið frá því nýr íslenskur rokksöngleikur var síðast frumsýndur. Þetta ger- ist þó í kvöld þegar Sálin hans Jóns míns stígur á svið í Borgar- leikhúsinu ásamt níu leikurum og sex dönsurum og flytur þar söngleikinn Sól og Mána. Arnbjörg Valsdóttir fer með hlutverk Sólar, ungrar stúlku sem hefur verið óhamingjusöm frá því hún fæddist. Hún hefur aldrei brosað. Að sjálfsögðu leys- ir ástin hana úr þessum álögum, eins og vera ber í söngleikjum. Söguþráðurinn er að öðru leyti ævintýralegur, ber sterk einkenni vísindaskáldskapar og er með heimspekilegu ívafi. Bar- átta trúar og vísinda vefst með ýmsum hætti inn í persónulegt ævintýri Sólar og engilsins Mána, sem Bergur Þór Ingólfs- son leikur. Hilmar Jónsson er leikstjóri sýningarinnar. Þórunn María Jónsdóttir sá um búningana og Finnur Arnar Arnarsson leik- myndina. „Við þrjú erum búin að vinna saman í sjö, átta ár og höfum gert eitthvað á annan tug sýn- inga á þessum tíma,“ segir Hilm- ar. Hilmar og Finnur hafa starfað saman frá því 1995 þegar þeir stóðu að stofnun Hafnarfjarðar- leikhússins Hermóðs og Háðvar- ar og settu upp Himnaríki eftir Árna Ibsen. Þórunn kom svo til liðs við þá árið eftir þegar Birt- ingur eftir Voltaire var settur á svið. Þau hafa einnig verið fengin til að setja upp verk annars stað- ar, Kryddlegin hjörtu í Borgar- leikhúsinu og Cyrano de Berger- ac í Þjóðleikhúsinu. „Við erum fengin til að gera þetta, kannski til þess að reyna aðeins á þanþol söngleikjaforms- ins,“ segir Hilmar. „Við erum kannski með smávegis nýrri af- stöðu til söngleikja. Við erum einnig með Íslenska dansflokk- inn í þessu, listrænan dansflokk, sem eru algjör forréttindi.“ Hugmyndin að verkinu er komin frá Guðmundi Jónssyni, lagahöfundi Sálarinnar. Lögin í sýningunni eru einkum af plöt- unum Logandi ljós og Annar Máni, sem voru samdar með söngleik í huga. „Þetta er þeirra draumur, sem er að rætast núna,“ segir Hilmar. Karl Ágúst Úlfsson tók að sér að skrifa verkið fyrir leiksvið. Þau Hilmar, Finnur og Þórunn segjast reyndar vera orðnir miklir aðdáendur Sálarinnar eft- ir að hafa kynnst tónlist hennar ofan í kjölinn undanfarnar vikur. „Maður er búinn að hlusta á þessi lög hundrað sinnum, og maður er ekki ennþá búinn að fá leið á þeim. Maður syngur þau í huganum og hækkar meira að segja í útvarpinu þegar þau koma,“ segir Þórunn. gudsteinn@frettabladid.is Dapra stúlkan Sól og engillinn Máni Nýr íslenskur rokksöngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld. SÓL OG MÁNI Arnbjörg Valsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson í hlutverkum Sólar og Mána. LAUGARDAGUR 11. JANÚAR hvað? hvar? hvenær? SUNNUDAGUR 12. JANÚAR hvað? hvar? hvenær?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.