Fréttablaðið - 11.01.2003, Síða 39
39LAUGARDAGUR 11. janúar 2002
„Námið hefur gagnast mér afar vel og hefur opnað
margar dyr í lífi mínu. Þegar ég var hálfnaður með
MCSA braut fékk ég starf hjá einu af stóru
tölvufyrirtækjunum.”
Daníel F. Jónsson
nemandi á MCP, MCSA og MCSE braut 2001-2002
MCSE braut hjá Rafiðnaðarskólanum
Fyrir þá sem vilja ná árangri
Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · www.raf.iswww.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
THE BACHELOR
Piparsveinninn hefur fengið nýjan keppinaut.
Nýir sjónvarpsþættir í Bandaríkjunum:
Piparmærin
slær í gegn
SJÓNVARP Þrír „raunveruleika-
þættir“ sem frumsýndir voru í
bandarísku sjónvarpi í síðustu
viku fóru allir vel í áhorfendur og
náðu góðu áhorfi. Um er að ræða
þættina „The Bachelorette“ og
„Celebrity Mole: Hawaii“ sem
sýndir eru á sjónvarpsstöðinni
ABC og „Star Search“ sem sýndur
er á CBS-stöðinni.
„The Bachelorette“ fékk besta
áhorfið af þáttunum þremur. Þátt-
urinn er svipaður í uppbyggingu
og þættirnir vinsælu „The
Bachelor“ nema að í þetta skiptið
berjast 25 karlmenn um hylli einn-
ar konu. Fleiri horfðu á þáttinn á
miðvikudagskvöld heldur en hinn
vinsæla þátt „The West Wing,“ eða
17,44 milljónir áhorfenda. ■
FÓLK Áhugamaður um sagnfræði
hefur ritað bresku drottningunni
bréf þar sem hann krefst þess að
líkamspörtum af dýrlingum, sem
hann segir að hafi verið stolið úr
kapellu fyrir hundrað árum, verði
skilað aftur.
Paul Cantrell telur að líkams-
partar hafi verið teknir úr Lincoln
kapellunni á 16. öld samkvæmt
skipun Hinriks VIII konungs og
fluttir í Tower of London. Þar á
meðal eru höfuð af Heilögum
Hugh, fyrsta dýrlingi Lincoln,
fingur af Heilagri Katrínu, tönn úr
Heilögum Páli og bein úr
Heilögum Stefáni. Cantrell hefur
farið þess á leit við drottninguna
að líkamspörtunum verði skilað
aftur. Ef drottningin verður ekki
við beiðninni vill hann að kapellan
njóti fjárframlaga frá konungs-
veldinu.
Cantrell byggir kröfu sína á því
að kapellan hafi orðið af milljónum
punda vegna sýningarhalda síð-
astliðin 464 ár. Flestir gestir
kapellunnar borga rúm þrjú pund í
aðgang, sem nemur tæpum 500
krónum.
„Þetta er mjög alvarlegt mál,“
segir Cantrell meðal annars í bréfi
sínu. „Við viljum þessa fjársjóði
aftur. Ef þeir hefðu verið í kapell-
unni hefðum fólk borgað milljónir
punda í aðgangseyri fyrir að sjá
þessa hluti.“
Yfirvöld í Buckingham-höll
munu íhuga málið og svara Can-
trell fyrr en seinna. ■
BRESKA DROTTNINGIN
Ætlar að svara áhugamanni um sagnfræði
sem krefst þess að líkamspörtum verði
skilað.
Breska drottningin:
Krafin um að skila líkamspörtum
FÓLK Penelope Cruz ropar í nýrri
auglýsingu þar sem verið er að
auglýsa eðaldrykkinn Coca-Cola.
Auglýsingin er hluti af nýrri her-
ferð sem hleypt verður af stokk-
unum í vor. Í henni má sjá ýmsar
stórstjörnur þamba kók en ekki
fylgir sögunni hvort þær ropa all-
ar. Það er kærasti Cruz, leikarinn
Tom Cruise, sem leikstýrir aug-
lýsingunni í félagi við aðra. Fram-
leiðendur kók voru ekki nógu
ánægðir með síðustu herferð og
síður þá staðreynd að kók tapaði
um 0,5% af markaðshlutdeild
sinni 2001. Keppinautunum í
Pepsi gekk betur, en þeirra her-
ferð skartaði stjörnum á borð við
Britney Spears og Beyonce Know-
les úr Destiny´s Child. ■
Ný herferð Coca-Cola:
Cruz ropar