Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 40
11. janúar 2003 LAUGARDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
!
!
"""
Nútímadjass:
Sérsamið fyrir
burtfarartónleika
TÓNLIST „Það má segja að þetta sé
spunnin tónlist með rætur í
djasshefðinni,“ segir Róbert
Reynisson gítarleikari um tón-
listina sem hann samdi fyrir
burtfarartónleika sína frá tónlist-
arskóla FÍH. Tónleikarnir voru
haldnir á föstudaginn en með Ró-
bert léku félagar hans í sveitinni
Adanak, þeir Helgi Svavar
Helgason á trommur og hljóð-
kára, Hrafn Ásgeirsson á tenór-
og baritónsax og Davíð Þór Jóns-
son á píanó og rafeinda Zukk.
„Við höfum verið að spila saman í
nokkur ár og ég ákvað að semja
tónlist fyrir sveitina í tilefni af
útskriftinni. Við tókum tónleik-
ana upp og erum jafnvel að spá í
að reyna að gefa þá út.“
Róbert er fæddur á Akureyri
1978 og hefur lært djasstónlist og
gítarleik í FÍH frá árinu 1998,
auk þess sem hann var eitt ár í
Kungliga Musik Högskolan í
Stokkhólmi. Hann hefur verið
virkur í djasslífi yngri kynslóðar-
innar og hefur meðal annars spil-
að nokkuð á Norðurlöndum og í
Þýskalandi. Þá hefur hann leikið
inn á hljómplötur með ýmsum
flytjendum og komið fram með
hljómsveitum á borð við 200.000
naglbíta og Ohgeath. ■
DÝRAVERND „Ég held að það sé mis-
skilin góðmennska að hafa
áhyggjur af velferð storksins í
Húsdýragarðinum,“ segir Tómas
Óskar Guðjónsson forstöðumaður
en gestir garðsins hafa margir
haft samband vegna storksins.
Þeir hafa talið að
honum væri kalt
og hann gæti
hreyft sig of lítið í
því búri sem
starfsmenn garðs-
ins hafa komið
honum fyrir í.
Tómas Óskar
segir að storkur-
inn sé við hesta-
heilsu og það sé
ekkert sem bendi til þess að hon-
um líði illa. „Farfuglar sem leita
til heitari svæða á veturna fara
ekki þangað vegna þess að þeim
yrði svo kalt hérna, heldur er
ástæðan ætisleit. Í Svíþjóð er tals-
vert af storki sem dvelur þar allan
ársins hring og þar hefur til að
mynda verið mun kaldara í vetur
en hér. Þar eru þeir fóðraðir yfir
vetrartímann á sama hátt og
starrinn og þrösturinn hér.“
Tómas bendir á að fuglar haldi
vel á sér hita með dúninum og
fjöðrunum sem þeir hafi þar yfir.
Þeir geti í raun stjórnað hitastig-
inu með því að ýfa fjaðrirnar í
hita og loka fyrir í kulda og regni.
„Það er hægt að merkja það mjög
fljótt ef dýrum líður illa á því að
þau fást þá ekki til að borða. Að
sama skapi hirða þau ekki um sig
og storkurinn sinnir sjálfum sér
vel og tekur vel til matar síns.“
Til stendur að byggja stærra
búr undir hann þar sem hann get-
ur flögrað meira um og það verð-
ur tilbúið eftir um það bil mánuð.
Þar verður einnig betri aðstaða
fyrir hann til að vera í vatni en
storki er eiginlegt að standa í
vatni og vaða. „Við höfum aðeins
einu sinni tekið hann inn en það
var á gamlárskvöld því þá var
hann mjög hræddur þegar líða tók
á daginn. En það var eingöngu
vegna þess að hann var hræddur
en ekki vegna þess að honum væri
kalt.“
„Fólk hefur einnig lýst yfir
áhyggjum sínum af velferð ann-
arra dýra, svo sem hreindýranna
og gæsanna. Þessum dýrum líður
reglulega illa inni og þeim er eig-
inlegt að vera úti. Ef þau fá nóg að
borða er líðan þeirra góð.“
bergljot@frettabladid.is
Storkinum er ekki kalt
Menn hafa haft áhyggjur af velferð storksins í Húsdýragarðinum og talið illa farið með hann
með því að gera honum ekki kleift að leita inn í kulda. Tómas Guðjónsson forstöðumaður segir
það misskilda góðmennsku að halda að storkurinn vilji húsaskjól.
40
„Ég var að klára ævisögu Jóns Baldvins
Hannibalssonar sem er mikill hvalreki fyrir
krata. Hún er listilega vel skrifuð og í raun
uppgjör við stjórnmál, menn og málefni
síðustu aldar.“
Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur.
„Það er hægt
að merkja það
mjög fljótt ef
dýrum líður
illa á því að
þau fást þá
ekki til að
borða.“
STORKURINN Í HÚSDÝRAGARÐINUM
Að sögn starfsmanna Húsdýragarðsins líður honum vel og þeir segja það fljótt að sjást á dýrum ef þeim líði illa. Storkurinn tekur vel til
matar síns og hirðir sig vel.
RÓBERT REYNISSON
Róbert býr um þessar mundir í Zürich
ásamt svissneskri kærustu sinni. „Ég er eig-
inlega atvinnulaus í Sviss en vonast til að
geta lagt fyrir mig atvinnumennsku í kjör-
búðaáfyllingu. Svo hygg ég á frekara nám
annað hvort í Sviss eða Þýskalandi.“
ÓPERA Æfingar á hinni blóðugu óp-
eru Verdis um Macbeth eru
komnar á fullt hjá Íslensku óper-
unni en verkið verður frumsýnt
1. febrúar. Ólafur Kjartan Sig-
urðarson leikur Macbeth en Elín
Ósk Óskarsdóttir fer með hlut-
verk hinnar kaldrifjuðu og metn-
aðarfullu eiginkonu hans. Elín
Ósk var full tilhlökkunar að
takast á við Lafði Macbeth og
stytti sér meðal annars biðina
með því að lesa harmleik
Shakespeares sem Verdi byggði
óperuna á. Guðjón Óskarsson,
Hulda Björk Garðarsdóttir, Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson og
Snorri Wium fara með önnur að-
alhlutverk. Petri Sakari, sem er
Íslendingum að góðu kunnur frá
hljómsveitarstjóratíð hans við
Sinfóníuhljómsveit Íslands,
stjórnar hljómsveitinni og Jamie
Hayes leikstýrir.
Macbeth er annað verkefni
hans hjá Óperunni en hann leik-
stýrði uppfærslu Óperunnar á La
Bohème fyrir tveimur árum.
Hönnuður leikmyndar er Will
Bowen, sem kemur frá Bretlandi
eins og leikstjórinn, og búninga-
hönnuðurinn Kristine Pasternaka
sem er frá Lettlandi. Lýsingu
hannar Björn Bergsteinn Guð-
mundsson, sem alla jafna starfar
við Þjóðleikhúsið en hefur einnig
hannað lýsingu í fjölmörgum
sýningum Óperunnar. ■
ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
Fer með hlutverk Lafði
Macbeth í Óperunni. Æfingar
standa yfir en verkið verður
frumsýnt 1. febrúar. Sýningarn-
ar verða aðeins átta og lýkur
þeim í byrjun mars.
Macbeth eftir Verdi:
Blóðið rennur í Óperunni
Bókalistinn:
Arnaldur
fer hvergi
BÆKUR Kiljurnar hafa tekið völdin
á sölulista Pennans að loknu jóla-
bókaflóðinu. Staða Arnaldar Ind-
riðasonar er
enn sterk en
þrjár eldri
bækur hans
raða sér á list-
ann og Dauða-
rósir hafa selst
mest það sem
af er árinu. Fá-
dæma vinsæld-
ir Turnanna
tveggja í kvikmyndahúsum setja
sitt mark á listann en þessi mikli
ævintýrabálkur J.R.R. Tolkiens er
í öðru sætinu. Anna Valdimars-
dóttir fylgir Hobbitunum eftir
með bók sinni Leggðu rækt við
ástina. Bók hennar Leggðu rækt
við sjálfan þig er í tíunda sæti en
hún var mest selda bók síðasta árs
í verslunum Pennans. ■
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BÆKURNAR Í VERSL-
UNUM PENNANS/EYMUNDSSONAR
Í JANÚARBYRJUN
Arnaldur Indriðason
DAUÐARÓSIR
J.R.R. Tolkien
HRINGADRÓTTINSSAGA 1-3
Anna Valdimarsdóttir
LEGGÐU RÆKT VIÐ ÁSTINA
Arnaldur Indriðason
GRAFARÞÖGN
Mál og Menning
EGILS SAGA M/SKÝRINGUM
Þór Whitehead
ÍSLAND Í HERS HÖNDUM
Arnaldur Indriðason
NAPOLEONSSKJÖLIN
Helgi Skúli Kjartansson
ÍSLAND Á 20. ÖLD
Jean Illsley Clarke
AÐ ALAST UPP AFTUR
Anna Valdimarsdóttir
LEGGÐU RÆKT VIÐ SJÁLFAN..