Fréttablaðið - 04.04.2003, Side 4
FYRIR RÉTTI „Það er ekki gaman að
vera gefandi að fölsuðum hlut. Og
ef listaverkið er falsað þá er það
náttúrlega mjög miður fyrir gef-
andann. Sem betur fer valdi þiggj-
andinn gjöfina með mér,“ segir
Jóhannes Jónsson, gjarnan kennd-
ur við Bónus. Hann keypti í Gall-
erí Borg árið 1999 málverk, sem
sagt er eftir Jón Stefánsson, á
590.000 – óneitanlega rausnarleg
gjöf. Jóhannes segir enda að við-
komandi, sem er
fyrrum starfsmað-
ur hans, hafi starf-
að afar dyggilega
fyrir fyrirtækið.
„Og við gefum nú
yfirleitt eitthvað
sem til er í fyrir-
tækinu okkar og
það er nú ekki fals-
að.“
Í gær voru
vitnaleiðslur í málinu sem kallað
hefur verið stóra málverkafölsun-
armálið. Nokkrir kaupendur og
eigendur þeirra verka sem talin
eru fölsuð voru kallaðir fyrir í
gær. Sækjandi spurði hvers vegna
þeir hefðu keypt verkin og sögðu
flestir það vegna þess að þeir
stóðu í þeirri trú að verkin væru
eftir þekktan meistara, þau væru
falleg og góð fjárfesting.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, bar vitni en fyrirtækið
hafði keypt verk eftir Nínu
Tryggvadóttur fyrir 984.000 krón-
ur á uppboði Gallerí Borgar.
Kristinn sagði að einum stjórn-
enda fyrirtækisins hefði líkað
myndin vel og því hafi hún verið
keypt. Í langflestum tilvika kom
til kæru vegna álits Ólafs Inga
Jónssonar forvarðar í Morkin-
skinnu. Svo var í þessu tilviki en
hann átti leið í fyrirtækið og vakti
athygli stjórnenda á að þarna
væri um falsað verk að ræða. Var
honum falin frekari framganga
málsins.
Meðal vitna voru Sólon Sig-
urðsson, bankastjóri Búnaðar-
bankans, en hann hafði keypt verk
eftir Þórarin B. Þorláksson fyrir
hönd bankans, Hjördís Gissurar-
dóttir, sem hafði keypt mynd eftir
Ásgrím Jónsson, og Sigurður
Guðni Jónsson, fyrrum apótekari,
en hann á sjö verk sem talin eru
fölsuð.
Auk eigenda komu fram vitni
sem þekktu til þeirra listamanna
sem við sögu koma. Þannig bar
Þorvaldur Þorvaldsson, leigubíl-
stjóri Kjarvals, vitni, sem og
Hulda Valtýsdóttir, dóttir Krist-
ínar Jónsdóttur, sem og dóttir
Jóns Stefánssonar, Bryndís Jóns-
dóttir. Þau sögðust ekki hafa séð
viðkomandi verk fyrr en við yfir-
heyrslu hjá lögreglu en þegar
Jón H. Snorrason spurði hvort
verkin væru eftir viðkomandi
listamann mótmæltu verjendur
harðlega, svör við slíkum spurn-
ingum gætu aðeins verið getgát-
ur og vitni ekki sérfræðingar. Að
auki spurði verjandi af hverju
verið væri að spyrja Þorvald,
sem sagðist hafa séð allar Kjar-
valssýningar frá árinu 1942 og
þekkti vel verk hans, um verk
sem voru seld voru í Danmörku
og máluð í Englandi – ekki gæti
hann hafa verið leigubílstjóri
hans í London árið 1912. Þorvald-
ur sagði það tæplega því það
væri fyrir sína tíð.
4 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
■
Verjendur mót-
mæltu harðlega
spurningum
saksóknara til
leigubílstjóra
Kjarvals um
hvort nokkur
verk sem borin
voru í salinn
væru eftir
meistarann.
Hefurðu komið í Húsdýragarðinn?
Spurning dagsins í dag:
Hvenær lýkur stríðinu í Írak?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
16,5%
66,9%
Einu sinni
16,5%Aldrei
Oft
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Rúta sprengd:
Borgarar
létust
RÚSSLAND, AP Að minnsta kosti sex
manns létust þegar rúta var
sprengd í loft upp í Grosní, höf-
uðborg Tsjetsjeníu. Ellefu til
viðbótar særðust af völdum
sprengingarinnar. Rútan sprakk
þegar henni var ekið framhjá
fjarstýrðri jarðsprengju sem
var falin undir rusli í vegarkant-
inum.
Rútan var að koma frá aðal-
bækistöðvum rússneska hersins
í Tsjetsjeníu. Um borð voru
verkamenn auk farþega sem
teknir höfðu verið upp í á leið-
inni og voru fórnarlömbin því öll
óbreyttir borgarar. ■
DÓMSMÁL Hæstiréttur mildaði dóm
yfir manni sem var sekur fundinn
um að hafa banað barni með því að
hrista það harkalega.
Héraðsdómur Reykjaness
dæmdi Sigurð Guðmundsson til
þriggja ára fangelsis í mars á síð-
asta ári. Í dómi Hæstaréttar segir
að miða verði refsingu mannsins við
það að hann var undir gífurlegu
álagi. 21 barn var í daggæslu á
heimili Sigurðar daginn sem barnið
lést og kona hans langt gengin með
barn. Hæstiréttur féllst á þá niður-
stöðu héraðsdóms að barnið hefði
látist af áverkum sem það hefði
hlotið við að vera hrist. Enginn vafi
þótti leika á því að eins og áverkum
barnsins var háttað hefði það verið
ófært um eðlilegt hátterni og misst
meðvitund um leið og það varð fyr-
ir þeim. Því kom ekki til greina að
annar en sakborningur bæri ábyrgð
á áverkunum.
Auk fangelsisdómsins var Sig-
urði gert að greiða foreldrum
barnsins 2,8 milljónir króna í
skaðabætur. Honum og konu hans
ber að greiða varnarkostnað, alls
1,7 milljónir króna. ■
ÚR HÆSTARÉTTI
Dómur Héraðsdóms Reykjaness hljóðaði
upp á þriggja ára fangelsi. Hæstiréttur
mildaði dóminn.
18 mánaða fangelsi fyrir að bana barni:
Mildari dómur vegna álags
BLÓÐPOLLUR
Starfsfólk sjúkrahússins brást skjótt við og
reyndi eftir fremsta megni að bjarga lífi
fórnarlamba árásarinnar.
Æði rann á lækni:
Stakk starfs-
fólk og sjúk-
linga
MADRÍD, AP Kvenkyns læknir stakk
til bana kollega sinn og einn sjúk-
ling á sjúkrahúsi í Madríd. Konan,
sem var vopnuð fimmtán sentí-
metra löngum hnífi, réðst einnig á
sex aðra áður en hún var yfir-
buguð af öryggisvörðum sjúkra-
hússins.
Fimm hinna særðu voru sam-
starfsmenn konunnar en sá sjötti
var gestur. Sá hlaut alvarlega
áverka og er talinn í lífshættu.
Konan var flutt á geðdeild
sjúkrahússins en hún hafði nýlega
komið aftur til vinnu eftir veik-
indafrí sökum þunglyndis. ■
VERKFALLSMENN REKNIR Ríkis-
stjórn Venesúela rak 828 starfs-
menn ríkisrekins olíufyrirtækis
fyrir að taka þátt í tveggja mán-
aða löngu verkfalli í tilraun til að
koma Hugo Chavez forseta frá
völdum. Nær 18.000 af 38.000
starfsmönnum fyrirtækisins hafa
verið reknir.
Milljón króna verk eftir
Nínu Tryggva talið falsað
Um 60 vitni verða leidd fram í tengslum við stóra málverkafölsunarmálið. Í gær voru fyrir rétti
forstjórar stórfyrirtækja, börn listamannanna og leigubílstjóri Kjarvals.
SKELJUNGUR
Í húsakynnum olíufélagsins hékk um skeið verk eftir Nínu Tryggvadóttur sem keypt hafði
verið fyrir tæpa milljón, eða allt þar til Ólafur Ingi Jónsson átti þar leið um og úrskurðaði
það falsað. JÓHANNES Í BÓNUS
Keypti málverk á
590.000 sem hann
hélt að væri eftir
Jón Stefánsson og
gaf fyrrum starfs-
manni sínum fyrir
dygga þjónustu.
Verkið er talið
falsað.
SÓLON
SIGURÐSSON
Keypti mynd sem
hann taldi vera eft-
ir Þórarin B. Þor-
áksson fyrir
Búnaðar-bankann.
Sóloni þótti mynd-
in mjög falleg og
ekki sakaði að hún
væri eftir Þórarin.■ Suður-Ameríka
EFNAHAGSMÁL Efnahags- og fram-
farastofnun Evrópu (OECD) legg-
ur jákvætt mat á framvindu efna-
hagsmála og hagstjórn hér á landi
undanfarinn áratug í nýrri
skýrslu um íslensk efnahagsmál.
Stofnunin sýnir þróuninni eftir
niðursveifluna árin 2001 og 2002
sérstakan áhuga. Hún telur að ís-
lenska hagkerfið hafi sýnt mikla
aðlögun í þeim viðsnúningi sem
orðið hefur eftir þá niðursveiflu.
Er þessi aðlögunarhæfni rakin til
efnahagsstefnu stjórnvalda og
umfangsmikilla skipulagsbreyt-
inga í efnahagslífinu á undanförn-
um árum.
Í skýrslunni eru stjórnvöld
hins vegar hvött til að halda vöku
sinni í hagstjórn, ekki síst í ljósi
fyrirhugaðra stóriðjufram-
kvæmda. Í þessu sambandi er
einkum bent á mikilvægi aðhalds-
samrar stefnu í peningamálum en
einnig á sviði ríkisfjármála, eink-
um með því að tímasetja opinber-
ar framkvæmdir með hliðsjón af
efnahagslegum áhrifum þeirra.
Stjórnvöld eru jafnframt hvött til
þess að lækka skatta til þess að
stuðla að jákvæðum áhrifum á
vinnuframboð og halda um leið
aftur af opinberum útgjöldum.
Í spá OECD er gert ráð fyrir
heldur meiri hagvexti en í síðustu
spá fjármálaráðuneytisins frá því
í desember, eða 2,1% árið 2003 og
3,5% árið 2004. Skýringin á þessu
fráviki felst fyrst og fremst í því
að í spá OECD er tekið tillit til
þeirra ákvarðana um stóriðju-
framkvæmdir og auknar opinber-
ar framkvæmdir sem ekki lágu
fyrir þegar ráðuneytið birti sína
spá. ■
LÓÐ ALCOA Á REYÐARFIRÐI
Í skýrslu OECD eru stjórnvöld hvött til að
halda vöku sinni í hagstjórn, ekki síst í ljósi
fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda.
Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu
um íslensk efnahagsmál:
Hagkerfið sýnir
aðlögunarhæfni