Fréttablaðið - 04.04.2003, Side 6
6 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
■ Dómsmál
■ Bandaríkin
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.82 0,84%
Sterlingspund 121.65 0,24%
Dönsk króna 11.22 -0,27%
Evra 83.31 -0,29%
Gengisvístala krónu 121,41 0,49%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 309
Velta 7.720 milljónir
ICEX-15 1.417 0,24%
Mestu viðskipti
ÍHraðfrystihúsið-Gunnvör hf.616.500.000
Íslandsbanki hf. 340.060.407
Sjóvá-Alm. tryggingar hf. 115.643.279
Mesta hækkun
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 5,38%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 3,45%
Búnaðarbanki Íslands hf. 0,94%
Mesta lækkun
Íslenskir aðalverktakar hf. -2,06%
Skýrr hf. -1,64%
Opin kerfi hf. -0,98%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8261,5 -0,3%
Nasdaq*: 1397,6 0,1%
FTSE: 3771,1 0,5%
DAX: 2576,4 -0,5%
Nikkei: 8017,8 -0,6%
S&P*: 877,5 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Nýr stjórnmálaflokkur var stofnaður ígær og stefnir hann að því að bjóða
fram í öllum kjördæmum landsins. Hvað
kallast flokkurinn?
2Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur var-að almenning um allan heim við því
að ferðast til tveggja landsvæða í Asíu.
Hvaða svæði er um að ræða?
3Vinsæl hljómplötuverslun á Skóla-vörðustíg fagnaði fimm ára afmæli
sínu í gær. Hvað heitir verslunin?
Svörin eru á bls. 47
ED
D
0
4/
20
03
Þessar einstöku bækur
eftir Sölva Sveinsson eru
nú fáanlegar aftur. Þær
auðvelda fólki að auðga
mál sitt og stuðla jafn-
framt að réttri notkun
málshátta og orðtaka.
Upplagðar
fermingargjafir
Íslensk orðtök og
Íslenskir málshættir
Saman í öskju
RÍKISEIGNIR Nokkurs urgs gætir
meðal þeirra sem gerðu tilboð í
tæplega 40 prósenta hlut ríkisins í
Íslenskum aðalverktökum. Einka-
væðingarnefnd ákveður við hvaða
hóp verður talað en áformað var
að þetta yrði tilkynnt í þessari
viku. Nefndin frestaði því um
viku en nú er áætlað að þetta
verði tilkynnt í næstu viku. Talið
er að þar sé um að ræða vand-
ræðagang vegna ágreinings milli
stjórnarflokkanna um það hver
eigi að hljóta hnossið.
Meðal bjóðenda er þess beðið
með eftirvæntingu hver hreppi
hnossið en talið er fullvíst að það
verði ekki Joco, fyrirtæki Jóns
Ólafssonar, sem þar með fengi
hreinan meirihluta í félaginu.
Sterkur orðrómur er um að sjálf-
stæðismenn vilji að Jarðboranir
hf. fái að kaupa hlutinn, sem talið
er að kosti um tvo milljarða. Með-
al eigenda að Jarðborunum er
Margeir Pétursson, formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins og eigandi MP verðbréfa, og
Hagkaupsbræðurnir Sigurður
Gísli og Jón Pálmasynir.
Sömu heimildir herma að innan
raða framsóknarmanna sé vilji til
þess að gengið verði til samninga
við starfsmenn ÍA sem með for-
stjóra sinn Stefán Friðfinnson í
fararbroddi gerðu tilboð í hlut rík-
isins. ■
VELFERÐ Hitaveita Suðurnesja hef-
ur lokað fyrir bæði rafmagn og
hita í Rockville, þar sem Byrgið
hefur aðsetur. Guðmundur Jóns-
son forstöðumaður segist hafa
sent fólkið í bæinn því ekki sé
hægt að elda mat né hita upp hí-
býli manna.
Í Byrginu hafa dvalið um 80
manns og margir eru alls ekki
hæfir til að fara úr vernduðu um-
hverfi. „Ég óttast að menn skili
sér ekki aftur enda til lítils því
hér verður ekki hægt að kveikja
ljós, fá neitt að
borða og kalt er í
herbergjunum hjá
fólki. Þeir allra
hörðustu munu þó
ekki láta þetta á sig
fá því þeir segja
einfaldlega að
betra sé að vera
hérna við þessar aðstæður en
skjálfa undir laufblaði á Mikla-
túni,“ segir Guðmundur.
Félagsmálaráðherra kynnti
fyrir skemmstu að tilbúin væru
drög að rammasamningi við
Byrgið. Í honum er kveðið á um að
áður en hann komi til fram-
kvæmda verði að finna Byrginu
nýtt húsnæði. Fjármálaráðherra
var falið að finna hentugt húsnæði
og um tíma stóðu yfir viðræður
um að keypt yrði hótel að Efribrú
í Grímsnesi. Brjánsstaðir á Skeið-
um hafa einnig verið nefndir í því
sambandi en ríkið hefur ekki enn
gengið frá kaupum á húsnæði.
„Ég hef ekkert fengið greitt sam-
kvæmt rammasamningnum við
félagsmálaráðherra. „Skilyrði
fyrir því að fáum eitthvert fé er
að húsnæði sé komið en ég get
ekkert gert til að flýta því; það er
alfarið í höndum fjármálaráð-
herra.“
Guðmundur segir illa ganga að
ná í einhvern í félagsmálaráðuneyt-
inu í þeim tilgangi að fá hjálp til að
greiða skuldina við Hitaveituna.
Hermann Sæmundsson, ráðu-
neytisstjóri í félagsmálaráðuneyt-
inu, sagði um miðjan dag í gær að
unnið væri að því að leysa þetta
mál. „Byrgið á eyrnamerkta pen-
inga hjá okkur sem við munum
greiða að hluta til í þeim tilgangi
að greiða skuldina við Hitaveit-
una. Það má segja að við séum að
greiða inn á rammasamninginn
því ekki er hægt að sitja aðgerðar-
laus hjá án þess að koma til bjarg-
ar undir þessum kringumstæð-
um,“ sagði Hermann.
Þrátt fyrir að málin verði leyst
óttast Guðmundur að vistmenn
muni ekki allir skila sér til baka.
„Þessir menn eru brothættir og
það má ekki mikið út af bera til að
koma þeim í uppnám og þar með
hefja þeir neyslu að nýju. Það er
ekki annað að gera en vona það
besta,“ segir Guðmundur. ■
DÆMDUR FYRIR KJÁLKABROT
Tvítugur maður á Vestfjörðum
hefur verið dæmdur í 45 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
kjálkabrjóta annan pilt fyrir utan
skemmtistað á Ísafirði sumarið
2001. Hann á að greiða fórnar-
lambinu 250 þúsund króna bætur.
VÍN, AP Fyrirtæki víðs vegar um
heim eru farin að keppast við að
ná samningum um uppbyggingu
í Írak að stríði loknu. Von stjórn-
enda margra fyrirtækja er að á
meðan slæmt efnahagsástand
dregur úr arðbærum verkefnum
heima fyrir sé hægt að eiga góð
viðskipti við þá sem stjórna upp-
byggingunni. Bandarísk stjórn-
völd hafa þegar samið við þar-
lent fyrirtæki um uppbyggingu
helstu hafnar Íraks. Gert er ráð
fyrir að tilkynnt verði um fleiri
samninga innan skamms.
„Við höfum fengið upplýsing-
ar um að þeir sem eigi hlut að
bandalaginu komi fyrstir til
greina við uppbyggingu Íraks,“
sagði talsmaður forseta Filipps-
eyja.
Ríkisstjórnir landanna sem
mynda bandalag hinna viljugu
hafa undirbúið sig fyrir þetta.
Rúmenski sendiherrann í Wash-
ington hefur afhent bandarísk-
um embættismönnum lista yfir
fyrirtæki sem hafa burði til að
taka þátt í uppbyggingarstarfi.
Slóvakar afhenda slíkan lista í
næstu viku. Búlgarar hafa feng-
ið tilboð frá Bandaríkjunum um
að taka þátt í uppbyggingunni.
Svipaða sögu er að segja um
fleiri ríki sem mynda bandalag
hinna viljugu.
Fleiri vilja komast að. Frönsk
stjórnvöld leggja áherslu á að
frönsk fyrirtæki taki þátt í upp-
byggingarstarfinu. Sömu sögu
er að segja um Rússa og fleiri
ríki. ■
Einkavæðing:
Urgur vegna Aðalverktaka
ÍSLENSKIR AÐALVERKTAKAR
Einkavæðinganefnd skoðar tilboð í ÍA.
Lokað fyrir rafmagn
í Byrginu í Rockville
Vistmenn sendir í bæinn og óttast forstöðumaður að þeir skili sér ekki aftur þegar opnað
verður fyrir rafmagnið. Þeir hörðustu segja þó að betra sé að vera í myrkri í Rockville en
skjálfa undir laufblaði á Miklatúni.
■
„Skilyrði fyrir
því að við fáum
eitthvert fé er
að húsnæði sé
komið en ég
get ekkert gert
til að flýta því.“
Fyrirtæki og lönd sækjast eftir verkefnum í Írak:
Allir vilja hlut
í uppbyggingunni
OLÍUELDAR SLÖKKTIR
Fyrst var samið um að slökkva í olíulindum sem Írakar sprengdu upp. Aðeins var kveikt í
sjö olíulindum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Á AUSTURVELLI
Dvalargestum í Byrginu þykir betra að sitja í myrkrinu í Rockville en að skjálfa undir runna á Miiklatúni eða á Austurvelli.
LAUS EFTIR 19 ÁR 42 ára karl-
maður hefur verið leystur úr
haldi eftir að hafa varið síðustu
19 árum í fangelsi. Maðurinn var
dæmdur árið 1983 fyrir að
nauðga þremur konum. Niður-
stöður úr DNA-prófum leiddu í
ljós að maðurinn væri ekki sekur
um nauðganirnar. Hann sagðist
ekki bera kala til kvennanna
þriggja sem báru kennsl á hann.
Þær hefðu lent í hrikalegri lífs-
reynslu.