Fréttablaðið - 04.04.2003, Qupperneq 8
8 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
Stoðmylkingar
Ég legg til að hann hafi munn-
inn lokaðan næstu fimm árin.
Það gæti reynst nægur tími til
að þroska með sér boðlegan
málflutning.
Ágúst Borgþór Sverrisson kallar eftir þroskaðri
umræðu. DV, 3. apríl.
Feluleikur sem
viðurkennt sport
Leynimakk og felu-
leikur á ekki að
vera leiðarljós
íþróttaforystunnar.
Júlíus Hafstein er ósáttur við Ellert B. Schram.
Morgunblaðið, 3. apríl.
Sælir þeir sem
sáu ekki en trúðu þó
Hvar er skattalækkunin mín?
Ingimar Ingimarsson.
Morgunblaðið, 3. apríl.
Orðrétt
Kaupþing banki hf., kt. 560882-0419, Ármúla 13,
Reykjavík, f.h. Vörðubergs ehf., kt. 600303-3250,
Austurstræti 17, Reykjavík (hér eftir einnig
nefndur tilboðsgjafi), gerir hér með hluthöfum
í Keri hf., kt. 500269-4549 (hér eftir einnig nefndir
tilboðshafar), svohljóðandi tilboð:
1. gr.
Tilboðið tekur til allra hluta í Keri hf., kt. 500269-
4549, Suðurlandsbraut 18, Reykjavik (hér eftir
einnig nefnt félagið), sem ekki eru þegar í eigu
tilboðsgjafa, en tilboðsgjafi hefur þegar tryggt
sér 59,44% hlut í félaginu.
2. gr.
Kaupþing banki hefur umsjón með tilboði
þessu f.h. tilboðsgjafa, og er heimilt að setja
fram yfirtökutilboð fyrir hans hönd.
3. gr.
Verð samkvæmt tilboði þessu miðast við
gengið 12,3 fyrir hvern hlut, sem er hærra en
hæsta gengi sem tilboðsgjafi hefur greitt fyrir
hlutabréf í félaginu síðustu sex mánuði, sem
er krónur 12,0 fyrir hlut.
Tilboðshafar (hluthafar) sem vilja samþykkja
boð þetta skulu undirrita samþykki sitt á fram-
salseyðublað sem sent verður á lögheimili
þeirra og senda aftur til Kaupþings banka hf.,
Ármúla 13, 108 Reykjavík, ásamt vörslusamningi.
Þegar Kaupþingi banka hefur borist frumrit
framsals á eignarrétti að hlutum í Keri hf. og
gerður hefur verið vörslusamningur, mun and-
virði hlutabréfa í félaginu lagt inn á banka-
reikning hluthafa sem fram kemur í vörslu-
samningi, nema hluthafi óski sérstaklega eftir
því að andvirði þeirra verði ráðstafað með
öðrum hætti. Telst framseldur hlutur frá og með
þeim degi eign tilboðsgjafa.
4. gr.
Tilboð þetta rennur út kl. 16.00, föstudaginn
2. maí 2003.
5. gr.
Gert er ráð fyrir að Ker hf. muni vinna eftir
þeirri meginstefnu að einbeita sér að olíuvið-
skiptum, fasteignarekstri og flutningastarfsemi,
en auk þess á félagið eignarhlut í Búnaðar-
banka Íslands hf. í gegnum eignarhaldsfélagið
Eglu hf. Er ekki fyrirhugað að gera breytingar
á tilgangi félagsins og ekki eru á þessu stigi
áform um að draga úr kjarnastarfsemi félagsins
eða nýta fjármunalegar eignir í öðrum tilgangi.
Hér eftir sem hingað til verður leitað allra leiða
til að reka félagið á sem hagkvæmastan máta.
Engar breytingar eru fyrirhugaðar á sam-
þykktum félagsins meðan það er skráð í Kaup-
höll Íslands, en tilboðsgjafi hyggst hlutast til
um að félagið verði afskráð af Aðallista Kaup-
hallar Íslands. Þá er vakin athygli á því að skv.
24. og 25. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög
getur hluthafi sem á meira en 9/10 hluta hlutafjár
í félagi krafist þess að aðrir hluthafar sæti inn-
lausn á hlutum sínum í félaginu.
6. gr.
Tilboð þetta er sett fram til samræmis við
V. kafla laga nr. 34/1998 um starfsemi kauphalla
og skipulegra tilboðsmarkaða, sbr. reglugerð
nr. 432/1999 um yfirtökutilboð.
Reykjavík, 4. apríl 2003.
F.h. Vörðubergs ehf.
Kaupþing banki hf.
Yfirtökutilboð
Opinbert tilboðsyfirlit
Kaupþing banki hf. • Ármúla 13 • 108 Reykjavík
sími 515 1500 • fax 515 1509 • www.kaupthing.is
A
B
X
EFNAHAGSMÁL Vöruinnflutn-
ingur án skipa og flugvéla
nam rúmlega 15,5 milljörð-
um króna í mars samkvæmt
bráðabirgðatölum fjármála-
ráðuneytisins um innheimtu
virðisaukaskatts, sem birt-
ust í vefriti ráðuneytisins.
Þetta bendir til verulegr-
ar aukningar almenns vöru-
innflutnings í mánuðinum
hvort sem miðað er við febr-
úarmánuð eða marsmánuð
árið 2002. Miðað við mars í
fyrra jókst innflutningurinn
um 21% að raungildi.
Ef innflutningur síðustu
þriggja mánaða síðasta árs og
fyrstu þriggja mánaða þessa árs
er skoðaður kemur í ljós að inn-
flutningur án skipa og flugvéla
dregst saman um 10%, sem
virðist nokkuð hefðbundið
miðað við árstíma.
Mismunur milli þessara
tveggja tímabila virðist
einkum stafa af minni inn-
flutningi rafbúnaðar og
tækja á fyrstu mánuðum
þessa árs en innflutningur
þeirra dróst saman um 1,1
milljarð króna og innflutn-
ingur á húsgögnum og hús-
búnaði dróst saman um 600
milljónir króna eða um 30%.
Aftur á móti jókst innflutn-
ingur ökutækja og fylgihluta
þeirra um 25% milli þessara
tímabila. ■
Akureyri:
Auglýst eftir
skólastjóra
SKÓLAMÁL Embætti skólameistara
Menntaskólans á Akureyri hefur
verið auglýst laust til umsóknar.
Umsóknir með
ítarlegum upplýs-
ingum um mennt-
un og fyrri störf
skulu hafa borist
menntamálaráðu-
neytinu 23. apríl
2003. Tryggvi
Gíslason, sem
gegnt hefur starf-
inu frá árinu 1972,
er að láta af störfum, en hann
hyggst vinna að sinni sérgrein,
málfræði og bókmenntum. ■
LÍFEYRIR „Þetta er í annað sinn sem
ég lendi í skerðingu hjá lífeyris-
sjóði,“ segir Rúnar Kristinsson,
56 ára vörubílstjóri frá Eskifirði,
sem nú sér fram á skerðingu líf-
eyrisréttinda vegna stórtaps Líf-
eyrissjóðs Austurlands, sem þarf
að afskrifa milljarð króna.
Áður hafði Rúnar þurft að sjá á
bak 40 prósentum þeirra réttinda
sem hann hafði áunnið sér hjá Líf-
eyrissjóði Landssambands vöru-
bifreiðastjóra á 12 ára tímabili.
Rúnar byrjaði að greiða í sjóð-
inn árið 1974 en árið 1986 var
sjóðurinn lagður niður með því að
eftirstöðvar hans runnu inn í Líf-
eyrissjóðinn Framsýn. Þá var
sjóðurinn í miklum hremmingum
vegna fjármálaóreiðu.
„Sá sem sá um sjóðinn á sínum
stal úr honum auk þess að óreiða
var á rekstrinum. Ég varð að und-
irgangast 40 prósenta skerðingu á
lífeyri mínum. Þetta var slæmur
skellur á sínum tíma og maður
hélt að þá væri nóg komið,“ segir
Rúnar.
Þegar lífeyrissjóður hans var
lagður niður ákvað hann að greiða
framvegis inn í Lífeyrissjóð Aust-
urlands. Þá var
hann starfandi
v ö r u b i f r e i ð a -
stjóri á Eski-
firði. En hrak-
fallasögu hans í
lífeyriskerfinu
var ekki lokið.
„Ég greiddi inn í þann Lífeyris-
sjóð Austurlands í 12 ár og hélt að
lífeyrir minn væri tryggur þar.
Það var mér mikið áfall að heyra
að öðru sinni þyrfti ég að sæta
skerðingu þegar í ljós kom millj-
arðstap. Þarna er um að kenna
stjórnendum sem voru mislagðar
hendur og rekstur lífeyrissjóðsins
hefur greinilega einkennst af
stjórnleysi. Ég skil ekki hvers
vegna ég og aðrir sjóðfélagar eig-
um að standa undir 29 milljóna
króna starfslokasamningi og hús-
næðisbraski vegna fráfarandi
framkvæmdastjóra. Það er ekki
nóg að setja lög um að fólk greiði
inn í sjóðina, það þarf líka að gæta
þess eins og kostur er að ábyrgir
aðilar stjórni þeim,“ segir hann.
Rúnar hætti sem vörubílstjóri
árið 1999 og hóf störf hjá rafverk-
takafyrirtæki. Það fyrirtæki dró
af honum lífeyrissparnað í tvö ár.
Sá sparnaður virðist vera glatað-
ur.
„Fyrirtækið fór í þrot og hefur
enn ekki greitt krónu af lífeyris-
sparnaði sem það átti að standa
skil á. Algjör óvissa ríkir um það
hvort ég fái þann lífeyrissparnað
greiddan. Ég hef misst alla trú á
lífeyrissjóðakerfinu,“ segir Rún-
ar.
Hann starfar nú sem bílstjóri
hjá Íslandspósti og greiðir til líf-
eyrissjóðs póstmanna.
„Ég vona að þessum hremm-
ingum sé lokið. Nóg er nú samt,“
segir Rúnar, sem á eftir 11 ár þar
til honum ber að fá lífeyri sinn til
baka; stórlega skertan.
rt@frettabladid.is
ALÞINGI Í nýsamþykktu frumvarpi
um breytingar á sveitarstjórn-
arlögum er þátttaka sveitarfé-
laga á hlutabréfamarkaði tak-
mörkuð.
Í athugasemdum með frum-
varpinu segir að á undanförnum
árum hafi orðið ýmsar breyting-
ar í rekstrarumhverfi sveitar-
félaga sem meðal annars hafi
leitt í ljós að reglur um fjármál
sveitarfélaga séu ekki í öllum til-
vikum nægilega ítarlegar. Þetta
eigi meðal annars við um þátt-
töku sveitarstjórna á hlutabréfa-
markaði, en þess séu dæmi að við
ávöxtun fjármuna sveitarfélags
hafi þess ekki verið nægilega
gætt að dreifa áhættu og hafi
þetta í einstaka tilvikum leitt til
þess að umtalsverðir fjármunir
hafi tapast. ■
Tvísköttunarsamningar:
Viðræður
við Suður-
Kóreu
EFNAHAGSMÁL Samninganefndir Ís-
lands og Suður-Kóreu hafa áritað
samningsdrög vegna tvísköttunar-
samnings. Stefnt er að undirritun
samninganna fljótlega.
Samkvæmt samningsdrögunum
verður svokallaðri frádráttarað-
ferð beitt í því skyni að koma í veg
fyrir tvísköttun. Samningurinn nær
til tekju- og eignarskatta. Helstu
efnisatriði samningsins eru þau að
samið var um 5% afdráttarskatt af
arði ef félagið sem móttekur arðinn
á a.m.k. 25% í félaginu sem greiðir
arðinn, en í öðrum tilvikum var
samið um 15% afdráttarskatt. Þá
var samið um 10% afdráttarskatt af
vöxtum og þóknunum. Einnig var
samið um upplýsingaskipti á milli
landanna varðandi þá skatta sem
samningurinn nær til. ■
Vöruinnflutningur nam rúmum 15,5 milljörðum króna í mars:
Um 21 prósent aukning milli ára
AUKINN INNFLUTNINGUR
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs jókst innflutningur ökutækja
og fylgihluta þeirra um 25% miðað við síðustu þrjá mánuði
síðasta árs.
Sveitarstjórnarlög:
Hlutabréfakaup
takmörkuð
Vörubílstjóri
lendir í þreföldu
lífeyristjóni
Rúnar Kristinsson bílstjóri hefur tvisvar þurft
að taka á sig lífeyrisskerðingu. Er sjóðþegi í
Lífeyrissjóði Austurlands.
RÚNAR KRISTINSSON
Á að baki ótrúlega sögu innan lífeyris-
sjóðakerfisins þar sem hann hefur í 26 ár
orðið að taka á sig skerðingar.
„Ég hef
misst alla trú
á lífeyris-
sjóðakerfinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
H
O
R
ST
EN
AKUREYRI
Embætti
skólastjóra MA
er laust.
GAZA-STRÖNDIN, AP Ísraelskar her-
sveitir gerðu áhlaup á flótta-
mannabúðir Palestínumanna á
Gaza-ströndinni. Til harðra skot-
bardaga kom og þegar hermenn-
irnir hurfu á braut lágu fjórir
Palestínumenn í valnum.
Herinn beitti 35 skriðdrekum,
fjórum herþyrlum og á annan tug
jarðýta í árásinni. Að sögn tals-
manns hersins var markmiðið
með áhlaupinu að finna göng sem
Palestínumenn notuðu til þess að
smygla vopnum frá Egyptalandi.
Engin slík fundust en fjórir ísra-
elskir hermenn særðust þegar
sprengja sprakk undir einum
skriðdrekanna.
Ísraelskir hermenn skutu
einnig til bana fjórtán ára gamlan
palestínskan dreng í þorpinu
Qalqiliya á Vesturbakkanum þeg-
ar gert var áhlaup á heimili
meintra vígamanna. ■
Áhlaup á flóttamannabúðir:
Fjórir féllu
JAFNAÐ VIÐ
JÖRÐU
Ísraelskar her-
sveitir hafa eyði-
lagt heimili fjöl-
skyldna Palest-
ínumanna sem
staðið hafa fyrir
sjálfsmorðsárás-
um.