Fréttablaðið - 04.04.2003, Qupperneq 43
44 ÁRA „Alltaf að þroskast. Líður
eins og gömlu rauðvíni,“ segir
Kári Waage, birtingarstjóri aug-
lýsinga á Skjá einum, sem er 44
ára í dag. „Þetta stendur allt á
fjórum, það er fjórði í dag og ég
hef starfað hér á Skjá einum í
fjögur ár. Byrjaði fyrstur, á und-
an flestum sem hér eru nú,“ seg-
ir afmælisbarnið, sem hélt upp á
daginn með því að fara í leikhús í
gærkvöldi og í dag ætlar hann að
færa vinnufélögunum köku. Kári
var á árum áður þekktur fyrir
poppsöng með hljómsveitunum
Íslandsvinum, Tíbrá og Chaplin
en syngur nú aðallega í bílnum:
„Ég veit ekki hvað ég syng í
bílnum á afmælisdaginn en ég er
staðráðinn í að syngja ekki mitt
síðasta,“ segir Kári sem tekur
aldrinum vel, eða þannig: „Ann-
ars er eins og lífið verði tilbreyt-
ingarsnauðara og þynnra eftir
því sem árin líða. Maður verður
að hafa meira fyrir spennunni og
stemningunni. En á móti kemur
að stundum er betra að vera laus
við þau element í lífinu. Sérstak-
lega þegar maður eldist.“
Kári Waage er einhleypur og
hyggst halda því áfram þangað
til annað kemur í ljós. Nýjum
degi fylgja ný tækifæri. Svo ekki
sé minnst á heilu árin sem nú
hrannast upp „...en eiga vonandi
eftir að verða helmingi fleiri. Það
væri mátulegt,“ segir Kári
Waage. ■
44 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
Faðir og sonur sitja ogspjalla saman þegar sonur-
inn spyr: „Er það satt, pabbi,
að í sumum löndum í Afríku
kynnist eiginmaðurinn ekki
eiginkonunni fyrr en hann gift-
ist henni?“
Faðirinn lítur hissa á son
sinn en segir svo: „Það gerist í
öllum löndum, sonur sæll“.
Með súrmjólkinni
Smáralind
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/
S
IA
.I
S
M
IS
2
0
7
4
0
0
4
/
2
0
0
3
Vorútsala
3.-9. apríl
30-40% afsláttur
af nýjum vörum
Afmæli
■ Kári Waage, starfsmaður á Skjá
einum, er 44 ára í dag. Hann er
með elstu starfsmönnum sjónvarps-
stöðvarinnar og ætlar að bjóða
vinnufélögunum upp á köku í dag.
Stórborgarferðir í maí
Berlín 02.-08.05.
Sem fyrr býður Ferðaskrifstofa Guðmundar
Jónassonar sínar vinsælu ferðir til Berlínar,
höfuðborgar Þýskalands.
Berlín er sögufræg borg í örum vexti, nútímaleg og
fornfræg í senn. Flogið verður beint til Berlínar með
þyska flugfélaginu Aero-Lloyd og gist á Holiday Inn
City Center, sem er nýlegt og gott hótel í Prelnzlauer Berg, sem í dag er
helsta kaffihúsa- og kráarhverfi borgarinnar.
Verð á mann 61.500,- krónur.
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 17.000,-.
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi,
morgunverður, akstur milli flugvallar og hótels við komu og brottför, skoð-
unarferð um borgina og íslensk fararstjórn. Einnig verða í boði fleiri skoð-
unarferðir s.s. til Dresden og Potsdam.
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.
Budapest/Vínarborg 21.-28.05.
Enn bjóðum við ferð til Budapest, höfuðborgar
Ungverjalands, með viðkomu í Vínarborg. Borgirnar
eiga sér mikla sögu og eru þekktar fyrir fagrar
byggingar skemmtilegt mannlíf og kaffihús, svo fátt
eitt sé nefnt. Þá er Budapest ekki síður þekkt fyrir
skemmtileg og fjölbreytt veitingahús þar sem
sígaunar leika gjarnan tónlist meðan á borðhaldi stendur.
Flogið verður með Flugleiðum til Kaupmannahafnar og áfram til Vínarborgar
með SAS og gist það eina nótt. Seint á öðrum degi er svo ekið til Budapest
þar sem gist verður næstu 6 nætur og flogið þaðan um Kaupmannhöfn til
Keflavíkur.
Verð á mann er 83.900,-.
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 15.900,-.
Innifalið í verði er flug til Vínarborgar og heim frá Budapest, flugvallaskattar,
akstur til og frá flugvelli, gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði,
akstur milli Vínarborgar og Budapest, skoðunarferð um báðar borgirnar og
íslensk fararstjórn. Einnig verða í boði dagsferðir útfyrir borgina meðan á
dvöl í Budapest stendur. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.
FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR
Borgartúni 34, Reykjavík, sími 511-1515 - www.gjtravel.is
KÁRI WAAGE
Líður eins og gömlu
rauðvíni.
Ekki að syngja sitt síðasta
Elín Jónatansdóttir lést 31. mars.
Jóhann Þórðarson, Bugðulæk 6,
Reykjavík, lést 1. apríl.
Lóa Ágústsdóttir, Holtsgötu 13, Reykja-
vík, lést 1. apríl.
Guðmundur Steinsson, Kjalarlandi 4,
Reykjavík, lést 31. mars.
Vigdís Þjóðbjarnardóttir lést 31. mars.
Jón Olgeirsson, Banbury, Englandi, lést
28. mars.
Margrét Eggertsdóttir, söngkona, lést 1.
apríl.
Ívar Grétar Egilsson lést 23. mars. Jarð-
arförin hefur farið fram í kyrrþey.
■ Andlát
FJÖLSKYLDAN TÓNELSKA
Heimilisfaðirinn Haraldur er lengst til hægri og síðan
koma börnin í röð, þau Theódór, Hulda og Halldóra.
Móðirin Valgerður var að heiman við vinnu.
FJÖLSKYLDA „Þau eru aðallega tvö
sem sjá um blaðburðinn en það
kemur fyrir að ég fái mér göngu
með þeim á morgnana,“ segir
Haraldur Helgason fjölskyldufað-
ir á Akureyri sem á þrjú börn í
tónlistarskóla.
Börnin eru á aldrinum 10 til 17
ára og hafa til skamms tíma notað
aurana sem þau vinna sér inn með
blaðburðinum til að kaupa sér
hljóðfæri. „Það er dýrt að vera í
tónlistarnámi og það þarf að end-
urnýja hljóðfærin,“ segir faðir-
inn.
Eldri dóttirin, Halldóra, er í
fiðlunámi, Theódór sem er 13 ára
spilar á saxófón og yngri daman,
Hulda, blæs í þverflautu. „Við
höfum verið afskaplega heppin
með krakkana og það er eins og
hvert annað lán að þau skuli eiga
sér þetta áhugamál. Við bjuggum
í Reykjavík en fluttum á Ísafjörð
og síðan hingað til Akureyrar og
ég líki því ekki saman hve gott er
að ala börn upp úti á landi fremur
en í Reykjavík,“ segir Haraldur.
„Ég er járnabindingamaður og
um þessar mundir er lítið um
vinnu. Það breytist með vorinu
þegar fer að vanta við virkjunar-
framkvæmdir.“ Móðirin, Valgerð-
ur Hannesdóttir, er leikskólastjóri
svo það dæmist á Harald að bera
út þegar blaðið kemur seint. „Það
gerist ekki nema þegar færð er
slæm en það hefur verið
sárasjaldan í vetur. Fyrir mig er
það ekki nema hressandi göngu-
ferð að bera út í þau tvö hverfi
sem við erum með. Theódór er
duglegastur en hann vaknar á
hverjum morgni og fer út. Nú
erum við líka að safna fyrir nýj-
um tenórsaxófón fyrir hann sem
kostar á annað hundrað þúsund.“
Það tekur rúma tvö tíma að
bera út á morgnana og það gera
krakkarnir áður en þeir fara í
skólann. Eftir skólann er nóg að
gera við lærdóm og æfingar. „Ég
veit ekki hvers vegna börnin eru
svona elsk að tónlist nema ef vera
skyldi að það tengdist genunum.
Ég hefði kosið að læra á hljóðfæri
en það voru aðrir tímar þegar ég
ólst upp og kom ekki til greina að
hvaða barn sem væri færi í tón-
listarnám. En ég hef alltaf haft
mikla ánægju af tónlist,“ segir
Haraldur.
bergljot@frettabladid.is
Börn Haraldar Helgasonar og Valgerðar Hannesdóttur eru í hljóðfæranámi:
Safna fyrir hljóðfær-
um með blaðburði