Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 46

Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 46
47FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003 Megrunarkúr: Ásmundur selt 5 þúsund eintök MATARÆÐI Ásmundur Stefánsson, fyrrum forseti ASÍ og fram- kvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, hefur selt fimm þúsund eintök af megrunarbók sinni um Atk- ins-kúrinn sem hann skrifaði með Guðmundi Björnssyni lækni. Útgefandi Ásmundar, Vaka-Helgafell, hefur látið Gallup gera skoðanakönnun meðal almennings um trúverð- ugleika Atkins-kúrsins og eru niðurstöður þær að um 70 pró- sent aðspurðra hafa trú á að hann virki. Atkins-kúrinn byggir á því að fólk sneiði hjá kolvetnaríkum mat en geti í raun borðað hvað sem er að honum slepptum. Fjöl- margir þjóðþekktir menn eru á Atkins-kúrnum og nægir þar að nefna Davíð Oddsson forsætis- ráðherra, sem gjarnan snæðir egg og beikon með steiktum tómötum á Gráa kettinum við Hverfisgötu. Þar hafa veitinga- menn sérhæft sig í réttum sem falla að Atkins-kúrnum og eru þeir eftirsóttir af mörgum. ■ Kosningaárið hefur ekki bein-línis farið vel af stað hjá al- þingismanninum Kristjáni Páls- syni. Ófarirnar byrjuðu þegar uppstillingarnefnd kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi úthýsti honum. Hug- myndir um sérframboð skutu strax upp kollinum en Kristján beið þó með að segja sig úr flokknum. Þegar hann lét loks verða af því fór nánast ekkert fyrir ákvörðuninni í fjölmiðlum þar sem 300 milljón króna mútu- sprengjan sprakk í fjölmiðlum sama dag og Kristján tilkynnti brotthvarf sitt úr flokknum. Kristján varð því einungis neðan- málsgrein við fréttir þeirrar vindasömu viku. Ekki tókst svo betur til þegar hann ákvað að kynna stefnumál og framboðs- lista T-framboðsins síns en svo óheppilega vildi til að dagurinn sem hann valdi til þess var 1. apríl. Hugsanleg sameining Kaup-þings og Búnaðarbankans hef- ur komið róti á huga stjórnenda annarra stórra bankastofnana. Þannig er talið að stjórnendur Ís- landsbanka og Landsbankans leiti ákaft að leiðum til sameiningar sem hugnast muni Samkeppnisstofn- un. Þessu til stuðn- ings spurðist til ferða Kristjáns Ragnarssonar, bankaráðsfor- manns Íslandsbanka, og Bjarna Ármannssonar, forstjóra bankans, þar sem þeir áttu erindi á 5. hæð- ina á Suðurlandsbraut 12, í húsi Eddu miðlunar. Svo skemmtilega vill til að þar er skrifstofa Björg- ólfs Guðmundssonar, nýkjörins bankaráðsformanns Landsbank- ans. Heimsókn Íslandsbanka- manna var vel tímasett því þeir voru á hæð Björgólfs um klukkan sex síðdegis á miðvikudag þegar flestir starfsmenn Eddu miðlunar voru farnir heim... Á GRÁA KETTINUM Afgreiðslustúlka með Atkins-megrunarfæði: Egg og beikon með steiktum tómötum. Fréttiraf fólki ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Nýtt afl. Hong Kong og Guangdong-hérað í Kína. 12 Tónar. ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að eitt er kyn- þokki - annað kjörþokki. GERHARD SCHROEDER Kanslari Þýskalands skoðaði nútímalistarsýningu í Berlín í síðustu viku. Hér hefur hann stillt sér upp fyrir framan myndina „Taken by chance“ sem listmálarinn Walter Stöhrer gerði árið 1982. Stöhrer fæddist árið 1937 og er búsettur í Berlín. Við höfum selt „Hvíta stellið“ í 50 ár. Í tilefni þess bjóðum við 50% afslátt af fylgihlutum í Hvíta stellinu. BLÁU HÚSIN FAXAFENI SÍMI 553 6622 www.hjortur.is. Opnunartími: mánudaga-föstudaga 11-18 • laugardaga 11-16

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.