Fréttablaðið - 21.06.2003, Side 22

Fréttablaðið - 21.06.2003, Side 22
22 21. júní 2003 LAUGARDAGUR Fyrir því hafa verið færð sann- færandi rök að ekki rúmist nema í mesta lagi fjórar hljómsveitir í sveitaballabransa hvers sumars. Meðal helstu hljómsveita sem ætla að gera út í sumar eru: Íra- fár, Í svörtum fötum, Á móti sól, Ber og Land og synir, auk þess sem eldri og reyndari menn munu láta til sín taka: Stuðmenn, Sálin, Papar og Greifarnir ... já, og meira að segja hin fornfræga Brimkló ætlar að leggja á rykug- an þjóðveginn. Reyndar má telja lengur en löngu ljóst að sam- keppnin verður blóðug, sem reyndar er ekkert nýtt. Héraðshöfðingarnir eiga sviðið Sveitaballamenningu má rekja afur til síðari hluta 18. aldar þeg- ar dragspil voru þanin í félags- heimilum. Nikkararnir áttu sviðið en svo breytist það með bættum efnahag þjóðarinnar á 6. tug síð- ustu aldar. Hljómsveitir mynduð- ust og hver átti sitt svæði, sína sveit. Þannig var Steini spil hér- aðshöfðingi á Suðurlandi allan 7. áratuginn en upp úr 1970 þurfti hann að deila því með Mánum. Dúmbó og Steini áttu Vesturland og á Vestfjörðum ríkti hljómsveit Baldurs Geirmundar (BG sjálfur) auk hljómsveitar Ásgeirs Sigurðs- sonar. Falcon frá Bíldudal gerði usla á svæðinu en fyrir norðan voru Gautar allsráðandi og við veldi þeirra tók Geirmundur Val- týsson, sem enn er að. Hljómatúrinn árið 1964 mark- ar tímamót. Þá var síldarsumar, Hljómarnir spiluðu um allt, rök- uðu saman seðlunum og höfðu ekki minna upp úr sér en skip- stjórar á síldveiðibátum. Þessi sigurför kom öðrum á bragðið og næsta sumar veittu Logar frá Vestmannaeyjum þeim sam- keppni. Aðrir komust á bragðið og reykvískar hljómsveitir fóru að þvælast út á land. Hugsanlega kemur það einhverjum á óvart en meðal alvilltustu sveitanna var Lúdó og Stefán. Héraðshöfðingj- arnir áttu eftir sem áður sín svæði og til dæmis mátti súpergrúbban Trúbrot bíta í það súra epli að spila fyrir tómu húsi á Suðurlandi vegna þess að samtímis voru Mánar með dansleik í næsta ná- grenni. Þetta var árið 1970 og lengi á eftir höfðu menn þann hátt á að hlera hvar héraðshöfðingj- arnir væru, því varhugavert var að fara í hanaslag við þá á heima- velli. „Í sjálfu sér líst mér ágætlega á sumarið sem nú fer í hönd. Þetta verður hófstillt hjá okkur því nokkrir meðlima Stuðmanna eru mikið í útlöndum nú um stundir,“ segir framkvæmdastjóri og hljómborðsleikari hljómsveitar allra landsmanna, Jakob Frímann Magnússon. Ekki hægt að mæla með þessu Stuðmenn tóku rispu í þessum mánuði og að sögn Jakobs voru undirtektir með miklum ágætum. „Við njótum þess að ná til breiðs aldurshóps á þeim annars þrönga markaði sem flestar íslenskar hljómsveitir búa við.“ Stuðmenn bera í raun ábyrgð á endurreisn sveitaballamenning- arinnar, sem var að lognast út af á sínum tíma. Í upphafi 9. áratug- ar síðustu aldar keyrðu þeir á fornfræga staði, stóðu fyrir mik- illi hátíð í Atlavík fimm verslun- armannahelgar í röð, tóku upp sína vinsælu kvikmynd Með allt á hreinu og plægðu akurinn fyrir það sem koma skyldi. Þetta merka menningarfyrirbæri á nú hins vegar verulega undir högg að sækja. Jakob tekur undir með kollegum sínum í þeim efnum og telur að þar komi ýmislegt til. „Sannast sagna myndi ég ekki vilja vera í hljómsveit sem er að hefja feril sinn núna og erfitt er að ráðleggja nokkrum manni að leggja þetta fyrir sig eins og að- stæður eru nú.“ Jakob segir að kostnaðurinn, bara við það eitt að keyra upp Ártúnsbrekkuna með hljómsveit, leiguljósabúnaði, hljóðkerfi og öllu sem tilheyrir, auk auglýsingapakka þeim sem þarf til að trekkja, sé ærinn. Einu hljómsveitirnar sem nái endum saman séu þær sem fylla húsin vel og örugglega. „Ekki er búið að ala hinar yngri kynslóðir upp í því sem áður var, að menn borg- uðu andvirði einnar brennivíns- flösku í aðgöngumiða. Miðaverð hefur staðið í stað árum saman og fólki býðst ókeypis aðgangur á pöbbana, sem stöðugt fjölgar. Þetta er mjög þungt og erfitt fyr- ir langflesta.“ Aldraðir unglingar á valdastólum Stuðmenn eru reyndar í sam- bærilegum sporum og Rolling Stones og Paul McCartney, þeir hafa notið vinsælda í áratugi og fólk kann lögin þeirra. En hljóm- sveitir sem eru að byrja með einn til tvo smelli á bak við sig eiga erfitt uppdráttar. Margir eru að stórtapa á þessari útgerð. Ís- lenskar hljómsveitir verða því miður ekki eins langlífar og skyldi þrátt fyrir að lofa góðu og búa yfir ótvíræðum hæfileikum. Og til að bæta gráu ofan á svart hegðar ríkið sér eins og argasta bestía í þessum efnum. „Ríkið heldur áfram að senda hinn langa arm laganna inn í miðasölurnar og hirða þar virðis- aukaskatt af hverjum einasta seldum miða á staðnum meðan aðrar stéttir njóta þeirra sjálf- sögðu mannréttinda að geta gert sinn vask upp á tveggja til 12 mánaða fresti. Og ekki er látið svo lítið að gefa kost á viðtali um þessi mál. Fjármálaráðherra seg- ir: „Þetta er bara svona,“ og vitn- ar í úr sér gengnar reglur.“ Jak- ob segir að miðað við óbreytt stjórnarástand sé ekkert annað í augsýn í þessum efnum. Hér sitji á valdastólum aldraðir unglingar sem misstu af hippamenningunni og bera ekkert skynbragð á þenn- an kima menningarinnar. Erlend- is, til dæmis í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Írlandi og víðar, er búið að lyfta alþýðutónlist til æðstu metorða og henni búin skapleg skilyrði. Ekki hér. Lítið til skiptanna Jakob rekur hina ýmsu kostn- aðarliði sem fylgja sumarútgerð dæmigerðrar hljómsveitar, lang- an vinnutíma sem verður að mið- ast við afþreyingarmynstur þjóð- arinnar, ókristilegan vinnutíma, skatta og skyldur, þriðjung þann sem húsin taka... þegar dæmið hafi verið reiknað standi ekki mikið eftir þegar deila skuli laun- um niður á hljómsveitarmeðlimi. Og þá er dæmið í tengslum við gerð hljómplötu, sem oft er for- senda þess að hljómsveitir geti gert út á dansiballamarkað, sér- deilis óaðlaðandi. Hefðbundinn kostnaður við upptökur er tvær milljónir. Selja þarf 3.700 til 4.000 eintök til að standa undir kostnaði. Eftir það fær flytjand- inn um 250 krónur af seldu ein- taki. Miðað við að hljómsveit nái gullplötu, sem miðast við 5 þús- und seld eintök, sem má heita fá- títt, þýðir það að flytjandinn fær 210 þúsund krónur til skiptanna. Því deilt niður á sjö manna hljómsveit þýðir 30 þúsund krón- ur á kjaft fyrir þriggja mánaða vinnu við hljóðupptökur og flutn- ing. Dágott það, eða hitt þó held- ur. „Þetta er nú umhverfið sem menn eru ekki tilbúnir að ræða eða semja um. Ríkið er eini aðil- inn sem græðir á tónleikahaldi og plötusölu á Íslandi. Hér eru kannski þrjár til fjórar hljóm- sveitir sem geta réttlætt þetta fyrir sér. Hinar við fátækramörk, sem er auðvitað til háborinnar skammar. En eins og ég segi, Stuðmenn geta ekki kvartað, okk- ur líst bara vel á sumarið,“ segir Jakob að endingu. „Sumarið leggst vel í mig þrátt fyrir allt,“ segir Birgir Nielsen, sem er umboðsmaður Lands og sona. Birgir er jafnframt trommuleikari hljómsveitarinnar sem má heita sjaldgæft, það er að trommararnir séu jafnframt framkvæmdastjórar. Birgir lýsir fremur döpru ástandi, en hann er búinn að sjá ýmislegt í þessum geira. „Reynd- ar vorum við í Sjallanum um síð- ustu helgi og gekk vel. Já, gamla klisjan: „Ef það er mikið kjöt í kofanum – þá er gaman að spila“ er í fullu gildi. Geggjað að upp- lifa þessa stemningu þegar 900 manns eru að kyrja lög hljóm- sveitarinnar. Það heldur manni við efnið.“ Land og synir er rekin eins og hvert annað fyrirtæki. Birgir segir ekki annað hægt með aukn- um umsvifum, en hljómsveitin mun senda frá sér sína 5. plötu um miðjan júlí og er auk þess í þreifingum á erlendum markaði. „Platan verður á íslensku og fókusinn núna er á innanlands- markað. Við höfum verið lánsam- ir og ekki þurft að horfast í augu við niðursveiflur. En það er full vinna að plögga og ekki nóg að hengja upp plaggöt í þessum litlu plássum. Helst þarf að vera með heilu fjölmiðlasamsteypurnar á bak við sig,“ segir Birgir, en Land og synir er í Bylgjulestinni svokölluðu, sem hjálpar til „plögglega séð“. Birgir segist ekki skynja sér- staklega mikla samkeppni á þess- um markaði þó að þessi markað- ur hafi látið verulega á sjá í sam- keppni við fjölda pöbba og aukna sjónvarps-, vídeó- og tölvumenn- ingu landsmanna. „Það eru nokkrir samverkandi þættir sem eru að ganga af sveitaballamenn- ingunni dauðri. En þetta verður spennandi sumar, að sjá hvort takist að rífa þetta upp. Og ekki verra að fá gömlu leðurverkin eins og SSSól, Stuðmenn og Sál- ina, sem kemur alltaf upp um júní/júlí líkt og draugar, til að taka þátt í því. En óneitanlega er dapurlegt þegar maður í janúar er að bóka sumarið. Hringir á hefðbundna staði: Njálsbúð, Lísu- hól, Borg í Grímsnesi... og bónda- konan svarar að þau séu eigin- lega hætt með böllin. Og það kemur upp úr dúrnum að þýski túristinn er búinn að yfirtaka gömlu góðu félagsheimilin og bú- inn að breyta í svefnpokapláss. Fá hús eru eftir. Miðgarður er eina húsið sem eitthvað kveður að enn og er samt í dauðateygj- unum.“ BIRGIR NIELSEN Það er full vinna að plögga og verð- ur spennandi að sjá hvort ekki tak- ist að rífa þetta upp með fulltingi gömlu leðurverkanna. JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSON Ríkið er eini aðilinn sem græðir á tónleikahaldi og plötusölu á Íslandi. Hér eru kannski þrjár til fjórar hljómsveitir sem geta rétt- lætt þetta ról fyrir sér. BRIMKLÓ Takið eftir nafninu. Þessi útgerð gerði út á sveitaballamarkaðinn. Þar var fetað í fótspor Ragga Bjarna og Óla Gauks og boðið uppá rándýra skemmtikrafta að sunnan. Halli og Laddi taka sig vel út fyrir miðju myndar. Umbar helstu dansiballahljómsveita landsins eru sammála um að sveitaböll séu gagnmerkt menningarfyrirbæri í útrýmingarhættu. Menn láta ekki deigan síga þrátt fyrir breytt landslag en óneitanlega er þungt hljóðið. Er ekkert kjöt í kofanum? HLJÓMAR Hljómarnir fata sig upp eftir tímamótatúr um landið 1964 – en þá höfðu þeir jafnvel betri laun en skipstjóri á góðum síldarbát. Stórútgerðir líta dagsins ljós Seint á 7. áratug 20. aldar verð- ur sveitaballaútgerðin öllu skipu- lagðari og fara nú fremst í flokki Raggi Bjarna og Sumargleðin, sem átti eftir að verða lífseigt fyrir- bæri. Um líkt leyti er Sextett Óla Gauks á ferð og hafði með í farteskinu fræga skemmtikrafta að sunnan. Brimkló og Haukar voru stærstu nöfnin þegar ung- lingarnir voru annars vegar, en menn skulu hafa í huga að þarna er miklu breiðari tilhöfðun í aldri. Pétur Kristjánsson gerði grimmt út með Svanfríði, þá Pelikan og síð- an Paradís. En nú tekur að halla undan fæti og diskótíminn fer í hönd, hnignunartímabil íslenskrar tónlistar. Það var helst að Bruna- liðið næði að krafsa í bakkann á því tímabili. Þegar allt virtist kom- ið í hnút birtust Stuðmenn líkt og frelsandi englar til bjargar sveita- ballamenningunni. Þeir fóru í nokkrar risavertíðir um landið upp úr 1980 í kjölfar gríðarlegra vin- sælda kvikmyndar sinnar Með allt á hreinu. Þeir sönnuðu að enn var lag og í kjölfarið sigldu hljómsveit- ir sem margar hverjar eru enn að: Sálin, SSSól, Stjórnin, Skriðjöklar, Ný dönsk og fleiri hljómsveitir. Nú var gaman en við tók niðurlæging- artímabil sem enn virðist vara. Hvar eru hinir nýju Stuðmenn? jakob@frettabladid.is SUMARGLEÐIN Hljómsveit Ragga Bjarna var með vinsæla skemmtikrafta í farteskinu á borð við Ómar Ragnarsson, Hemma Gunn, Magnús Ólafsson, Bessa Bjarnason og fleiri. STUÐMENN Endurlífguðu sveitaballamenninguna með látum upp úr árinu 1980. Stuðmenn halda lífi í arfleifð sinni: Hinn langi armur ríkisins Land og synir í skjóli fjölmiðlasamsteypu: Félagsheimili í dauðateygjum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.